Dagur - 23.09.1943, Qupperneq 3
Fimmtudagur 23. sept. 1943
DAGUR
3
an orðin þessum þjóðmálaskussum sá
ofjarl, sem þeir knésetja ekki“.
Þaunig syngur nú í blaði Alþfl. hér
á Akureyri. En nú væri bæði gagn og
gaman fyrir lesendur, að blaðið svar-
aði eftirfarandi spurningu frómt og
ærlegá:
Studdi Alþfl. ekki stjórn sjálfs dýr-
tíðarkongsins, Ólafs Thors, meðan
hann tvöfaldaði dýrtíðina með þeim
skilyrðum, að ekkert yrði aðhafst,
sem kynni að stöðva „dýrtíðarófreskj-
una“ eða halda henni í skefjum? Voru
það ekki Framsóknarmenn, sem
„bentu á“ hættuna, en fengu ekki að-
gert fyrir offorsi „þjóðmálaskuss-
anna?“ Ef Alþýðuflokkurinn og blöð
hans eru búin að gleyma þessu, þá
má alveg fullyrða, að þjóðin man það,
sennilega óþægilega lengi fyrir þá,
hverjir það voru, sem steyptu bölvun
verðbólgunnar yfir hana.
Er minni ritstjórans eitthvað farið
að bila?
Minnugur.
KELLOGGS
All Bran og Krumbles
K. E. A.
Nýlenduvömdeiltl.
BÆNDUR ATHUGIÐ!
Þar sem kjöt af mylkum ám og mjög lélegum dilkum
verður að líkindum óseljanlegt í haust, viljum við benda
viðskiptavinum okkar á, að koma ekki með slíkt fé til
slátrunar.
VERZL. EYJAFJÖRÐUR. Kr. Arnason.
Litatlair lopi.
Litaði Lopinn er nýjasta nýjungin í íslenzkri lopagerð. —
Kvenpeysur, unnar úr litaða lopanum þykja hvort tveggja
í senn hlýjar og fallegar. Þegar veturinn nálgast fer konan
að hugsa um lopapeysuna, sem á að verja hana gegn
kulda vetrarins. —
Ullarverksmid|aii GEFJUN
Saumanámskeið
heldur Heimilisiðnaðarfélag Norðurlands á Akureyri í Brekku-
götu 3B frá 20. okt. til 19. nóv. Kenndur verður kvenna- og barna-
fatasaumur. Kennslugjald kr. 50.00. Kennari Freyja Antonsdóttir.
Frekari upplýsingar gefur undirritaður formaður
HALLDÓRA BJARNADÓTTIR.
Sími 488.
SOYA-
BAUNIR
fást í
K. E. A.
N ýlenduvörudeild.
Rúgmjöl, ný sending, ágætt í slátur.
Blandað Rullupylsukrydd, blandað hér,
sem allir kaupa.
Pipar st. í baukum og U vigt.
Negull — - — — - —
Allrahanda — - — — - —
Saltpétur í kjöt, Edik og Ediksýra
KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA
N ÝLEN DU V ÖRUDEILD
Litli drengurinn okkar andað-
ist s. 1. mánudagskvöld.
Karólína Jóhannesdóttir.
Jóhann Ögmundsson.
Ungling
eða eldri mann vantar til að
bera blaðið til kaupenda á
Oddeyri.
Afgreiðslan.
sýnir í kvöld kl. 9:
GRÍMUMAÐURINN
Föstudag kl. 9:
VESTURFARAR
Láugardag kl. 9:
GRÍMUMAÐURINN
Sunnudag kl. 5:
GRÍMUMAÐURINN
Sunnudag kl. 3 og 9:
VESTURFARAR
Til söln
ung kýr haustbær
Hallur Sigtryggsson
Steinkirkju
Svartar
olínkápnr
á drengi og fullorðna
K. E. A.
Járn- og glervörudeild.
- Milli fjalls og f jöru -
Ríkisstjórnin cr meir og meir að f;í á
sig blæ þjóðstjórnar. Að því er virðist,
vilja gömlu þjóðstjórnarflokkarnir þrír
ekki fella hana, né reyna að setja aðra
sljórn á laggirnar. Kommiinislar eru mót-
fallnir stjórninni, af því þeir vilja fá
óstjórn. Landsmenn erti fegnir að hafa
nokkurn frið um húsbóndastörfin, og að
lekið sé á málum með hófsemi og fcslu,
en þó yfirliti og athugun ttm alþjóðar
hag.
r*
Mjög hafa gengið í upþfyllingu spár .
Dags um ópólitískt samstarf framleiðenda.
Nú hafa nálega 30 þingmenn. allir úr
Framsóknar- og Sjálfstæðisflokknum,
skriflega bundizt heitum um að koma í
framkvæmd tillögum sex manna nefndar-
innar. Komnuinistar cru æsitr á móti,
kratar fylgja í kjölfar þeirra. Að lokum
fylgir Níagmis Jónsson guðfræðiprófessor
með fáeina Mbl.menn í slóðina. Má á öllu
sjá, að kommúnislar ætla, af óvild til
góðra rnála, að gera fulltrúa sinn í sex
manna ncfndinni ómcrkan orða sinna.
í dýrtíðarmálunum er sennilegt, að rík-
isstjórn og Alþingi takist að halda vísi-
tölunni nálægt 250. Líklcgt er, að sam-
komttlag fáist milli fulltrúa framleiðcnda
á Alþingi um að nota auknar tekjur af
áfengi og tóbaki með verðlækkunarskatt-
inum til að halda lítið breyttri dýrtíð, og
bæta upp útfluttar landbúnaðarvörur,
svo að svcitafólk fái fyrir yfirstandandi ár
svipaðar tekjur og fólk við aðra atvinnu.
Sumir menn undrast, að bæta þurfi úr
ríkissjóði lágt verð á útfluttum landbún-
aðarvörum. Menn gleyma, að þessi fjár-
hæð er dýrtíðaruppbót bænda. Sjómenn,
verkamenn og alls konar launamenn fá
nú sem stendur upphæðir sem nema
mörgum milljónura í dýrtíðaruppbætur.
Meðan verið er að dreiía striðsgróðanum,
verða sveitirnar að fá sinn hlut. J. J.
Mpossak|öt
í reykhúsinu Norðurgötu 2
á morgun.
Mótorhjól
til sölu.
Afgreiðslan vísar á.
únistum, komst að þeirri niðurstöðu, að allar launastéttir lands-
ins hefðu nú í ár liaft svo góðar tekjur, að bændur yrðu að fá
nokkru meira verð fyrir vörur sínar heldur en á undanförnum
árum, til að vera ekki afskiptir uin tekjur. Dómur nefndarinnar
varð þess vegna m. a. til að eyða gömlum og leiðinlegum hleypi-
dómum milli stærstu stéttanna í landinu, og var þess full þörf.
Ríkisstjórnin sá, að ef bændur átttt að fá réttlátt verð fyrir
framleiðslu sína, myndu landbúnaðarvörur hækka í verði, hækka
vísitöluna, hækka kaupgjaldið og stöðva atvinnuna. Stjórnin
óskaði þess vegna eftir samvinnu við þingflokkana um að geta
notað verðhækkunina á víni og tóbaki til að lækka í verði kjöt
og mjólk vegna neytenda. Þetta var ltið mesta snjallræði. Dýrt
vín og dýrt tóbak tryggði neytendum í bæjum mjólk og kjöt með
niðursettu verði. Kommúnistar risu þegar í stað gegn frumvarp-
inu, og sýndu með því glópsku sína í dýrtíðarmálum, og þá ekki
síður hitt, hve mikla fyrirlitningu þeir hafa á fylgismönnum.
sínum í verkamannastétt, með því að vilja halda niðri verði á
nautnameðölum, en láta mestu nauðsynjavörur liækka í verði
að þarflausu.
Gömlu þjóðstjórnarflokkarnir hjálpuðu stjórninni til að fá
þennan tekjuauka. En þegar sá sigur var unninn, snerist Alþýðu-
flokkurinn í lið með kommúnistum og vildi hindra, að stjórnin
gæti notað þetta fé til að lialda vísitölunni niðri. Sjálfstæðismenn
og Framsóknarmenn vildu ekki bregða fæti fyrir stjórnina í þessu
efni. en gáfu heimildina með óþarfri tregðu. Framsóknarmenn
lögðu áherzlti á, að stjórnin myndaði sérstakan dýrtíðarsjóð úr
þrenns konar tekjulindum: Hinum nýfengna gróða á víni og
tóbaki og með því að framlengja verðlækkunarskattinn. Til
samans gátu þessir tekjuliðir gefið ca. 18 miljónir króna. Menn
gerðu sér von um, að með þessum sjóði væri bæði hægt að verð-
bæta útfíutningsvörur bænda og lækka mjólk og kjöt til neyt-
enda f bæjum,
Aðstaðan í þessum málum er sú, að stjórnin hefir ekkert fast
þingfylgi.og enga viðurkennda stuðningsmenn. En mikill meiri
hluti manna í gömlu þjóðstjórnarflokkunum er sæmilega ánægð-
ur með stjórnina, finnst Iiún leitast við að leysa aðkallandi vanda-
mál og vera mannasættir í landinu. Hins vegar á- stjórnin ekki
neinum eiginlegum vinsældum að fagna, og ýmsir þingmenn
vildu setjast í ráðherrastólana, ef tækifæri gæfist til að komast
þangað. Að svo komnu sýnast þau tækifæri vera nokkuð undan
landi.
Þjóðin og þingið er hægt og hægt að skipa sér í tvenn banda-
lög. Annars vegar eru kommúnistar og nokkur hluti Alþýðu-
flokksins og lauslyndustu mennirnir í stærsta þingflokkn-
um. Kommúnistar marka stefnu þessarar fylkingar. Þar er alið á
alls konar sundrung og upplausn. Jafnvel það. að lækka kjöt og
mjólk með ágóða af verzlun með óhófsvörur, gefur þessu fólki
tækifæri til að sýna mótstöðu. Þar er ekkert gert nema í neikvæða
átt, til niðurrifs og eyðingar.
Hitt bandalagið er að myndast. Út um allt land hafa þúsundir
manna í sumar fylgt með athygli því, sein ritað hefir verið um
þetta efni. Svo að segja um allt land koma fregnir um að sveita-
fólkið þokar sér saman. Það yfirgefur ekki sína flokka, en það
ætlast til af fulltrúum sínum, að þeir standi einhuga móti komm-
únistum og öllu eyðileggingarstarfi þeirra. En sérstaklega lieimta
bændur, að fulltrúar þeirra vinni saman að verndun framleiðsl-
unnar, hvað sem líður persónulegum ríg og gömlum væringum.
Og nú hafa málefni framleiðenda þokast áleiðis á þá lund, að
nú standa tvennir fjórtán fulltrúar á þingi í öruggri varnarstöðu
fyrir framleiðendur landsins móti þeim fáránlega liðsafla. sem
vill gefa börnum landsins ódýrt vín og tóbak, en dýra mjólk og
kjöt.
Slúlkur
vantar í heimavist Mennta-
skólans. Upplýsingar gefur
ráðskonan.
3 kýr til SÖlu.
Upplýsingar í*síma 220.
sioma oshast tli oeyKia-
vlkur.
Oóð stúlka óskast á barn-
laust heimili, sér herbergi
hátt kaup, mikið frí.
Upplýsingar í Pingvallastr. 8
Rosentbal.