Dagur - 27.01.1944, Síða 3
Fimmtudaginn 27. janúar 1944
DAGUR
3
\
Jónas Jónsson:
landnámsmaður A sjAvarströndu
Fyrir sjötíu árum mátti heita að allir íslendingar væru sveita-
menn. Síðan þá hefir orðið á þessu mikil breyting. íslendingar
gerðust landnámsmenn í nýjum skilningi. Þúsundir manna, kon-
ur, karlar og börn, fluttu vestur um haf, og tóku sér bólfestu á
óravíðlendum hinna miklu slétta, eða á hinni mildu og frjósömu
strönd milli Klettafjalla og Kyrrahafs. Jafnhliða þessari löngu og
erfiðu leit eftir nýjum heimkynnum í fjarlægum löndum, gerðust
sögulegir þjóðflutningar heima í landinu sjálfu. Fólkið, sem vaxið
var upp í dreifbýli sveitanna, flutti í stríðum straumum niður að
ströndinni. Þar risu á skömmum tíma blómleg kauptún og kaup-
staðir. Þar hófu íslendingar nýja grein atvinnureksturs, með nýj-
um og áður ókunnum vinnubrögðum. Aldrei fyrr í sögu þjóðar-
innar síðan landið sjálft var að byggjast, hafa íslendingar tekið
þátt í jafn stórkostlegu landnámi utan lands og innan, eins og
síðan um 1870.
Einn af þessum merkilegu landnámsmönnum andaðist rétt fyrir
síðustu jól 55 ára að aldri. Það var Ingvar Guðjónsson, útgerðar-
maður á Siglufirði og bóndi í Kaupangi. Ingvar var fæddur og
alinn upp í Vestur-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru fátæk,
áttu rnörg börn og vantaði öruggt jarðnæði. Ingvar var tekinn í
fóstur hjá frændfólki og góðkunningjum foreldranna, en þó með
þeim breytileik, að hann hafði átt heima á fjórtán heimilum, þeg-
ar hann var fjórtán ára. Eftir það fór hann að vinna fyrir sér sjálf-
ur í vegavinnu, símavinnu eða við sjómennsku. Einn vetur gekk
hann í unglingaskólann á Heydalsá í Húnavatnssýslu og síðar á
sjómannaskólann í Reykjavík.
Þá var Siglufjörður mesti áhættustaður á íslandi. Þar voru ís-
lendingar og Norðmenn í kapphlaupi um landnámið og notkun
náttúrugæðanna. Ingvar Guðjónsson var að vísu bláfátækur og
hafði ekki þekkt annað en fátækt. En hann var djarfur og skarp-
skyggn. Honum lék hugur á að fara til Siglufjarðar, og taka þar
þátt í hinu djarfa áhættuspili um síldina ogsíldargróðann. í fyrstu
voru Norðmenn yfirsterkari íslendingum í þessum kappleik. Þeir
höfðu meiri skipastól, meiri peninga, betri sambönd erlendis og
kunnu til fullnustu að glíma við síldina. Með því yfirlæti, sem
stundum einkennir ríka’ frændur, gerðu Norðmenn sig í fyrstu
heimakomna á Siglufirði, eins og þar væri þeirra bær og þeirra
gróðalind í sjónum.
íslendingar urðu oft að beygja sig í þessari samkeppni fyrstu
árin. Þeir þurftu að læra eitt og annað af Austmönnum, til að geta
keppt við þá og orðið þeim snjallari. Ingvar Guðjónsson var einn
hinn fremsti í þessum leik. Hann gerðist athafnamikill útgerðar-
maður. Hann eignaðist mörg veiðiskip, bryggjur og síldarstöðvar.
Eitt sumarið, eftir að farið var að takmarka síldarsöltun, átti hann
50 þús. tunnur af saltsíld. Ingvar var löngum erlendis vegna
markaðsmálanna, oftast á Norðurlöndum, en líka í Ameríku.
Síðustu árin sem hann lifði, átti hann mikinn þátt í að verka salt-
síld með nýjum hætti, svo að hún væri sem bezt söluhæf á markaði
vestanhafs, þar sem húsfreyjurnar vilja ekki eyða of löngum tíma
við undirbúning matreiðslunnar. Menn gera sér góðar vonir um
að eftir stríðið verði mikill markaður vestan liafs fyrir íslenzka
síld. Þá má gjarnan minnast þess, að landnám Ingvars Guðjóns-
sonar náði líka þangað vestur.
Menn eignuðust ekki skip og báta, bryggjur og söltunarstöðvar
á starfsárum Ingvars Guðjónssonar á Siglufirði, fremur en annars
staðar, með því að koma á staðinn og ganga þar um með hendur
í vösum. Ingvar kom félaus til Siglufjarðar og varð þar á allmörg-
um árum ríkur maður á íslenzkan mælikvarða. Ingvar var starf-
samur maður í bezta lagi. En hann bar mest af leiknautum sínum
að skarpskyggni og dirfsku, samfara gætni. Keppinautarnir norsku
voru harðhentir og hneigðir til að beita víkingatökum. Ingvari
var unun að þreyta leik við þessa harðlyndu, erlendu gróðamenn.
Hann átti líka til hörku og kaldlyndi, þegar því var að skipta.
Gáfuð og hugstór börn, sem eiga fjórtán heimili fjórtán fyrstu
ár ævinnar, líta ekki svo á, að lífsbaráttan sé ekkert nema kvöld-
og morgunroði með miðnætursól til uppfyllingar. Ingvar Guð-
jónsson barðist um langa stund baráttu hins sigursæla gróða-
manns. Hann tapaði fremur sjaldan og græddi miklu oftar. Þá
sigra átti hann að þakka skarpskyggni sinni og viljaþreki. Hann
tók fyrst þátt í landnámi og síðan í landvörn Siglufjarðar með
öðrum íslenzkum útgerðarmönnum. Smátt og smátt tóku land-
arnir fleiri og fleiri skotgrafir af Norðmönnum á Siglufirði, unz
bærinn og atvinnan var að fullu og öllu komið í liendur íslend-
inga. Þá var lokið fyrsta þætti í landnámi og landvörn hinnar
norðlenzku síldarborgar.
Ing-vari Guðjónssyni hafði heppnazt að verða vel efnaður út-
gerðarmaður. Foreldra hans hafði að vísu skort staðfestu í sveit.
En í þúsund ár höfðu forfeður hans, eins og allra annarra íslend-
inga, verið sveitamenn. Þegar Ingvar tók að efnast, heyrði hann
rödd íslenzkrar moldar, sem alið hafði forfeðurna í tíu aldir.
Hann vanmat ekki landnám sitt á sjávarbakkanum, þar sem hann
hafði komið snauður og orðið ríkur. En sveitin hafði líka sitt
seiðmagn, og nú heyrði hann þessa röddu.
Fyrir Ingvar Guðjónsson voru fjármunir leið að takmarki en
ekki takmarkið sjálft. Þegar liann tók að liafa nokkur fjárráð í
símavinnu eða sjómennsku, byrjaði hann að miðla móður sinni
og föður af litlum efnum. Eftir því sem gróði hans óx, gat hann
veitt foreldrum sínum, börnum sínurn og ýmsum mannúðarstofn-
unum ríflegri stuðning. En auk þess lagði liann fé sitt í Kaupang,
einhverja stærstu og beztu jörð í Eyjafirði. Að hans tilhlutun var
rekið í Kaupangi stórbú og jörðin bætt til stórra muna. Síðustu
ár sín átti Ingvar heima í Kaupangi, þó að hann dveldi löngum
annars staðar vegna útgerðarframkvæmdanna.
Ingvar Guðjónsson hafði legið á sjúkrahúsi nokkrar síðustu
vikurnar sem hann lifði. Legan liafði verið erfið, en hann hafði
ástæðu til að telja, að batinn væri að hefjast. Hann hafði þó ráð-
stafað búi sínu eftir því, sem honum var geðfelldast. Hann hafði
selt flest veiðiskip sín, en átti eftir miklar fasteignir á Siglufirði.
Ingvar hafði séð fyrir forstöðu þeirra mála á sjávarbakkanum.
En í Kaupangi ætlaði han að búa með einum syni sínum og búa
stórt. Hann leit svo á, að landnámi sínu á sjávarbakkanum væri
lokið. Hann ætlaði að sinna aldagamalli rödd moldarinnar það
sem eftir var ævinnar. En þá var því landnámi líka lokið.
Þannig var ævi Ingvars Guðjónssonar. Mér finnst barátta hans
táknræn fyrir starf núlifandi kynslóðar. Hún hefir lagt undir sig
veldi hafsins við strendur landsins með dirfsku og nýrri tækni.
En þegar þessir sigrar eru unnir, kallar moldin, sem hefir fætt og
klætt börn landsins í þúsund ár, til landnámsmannanna á sjávar-
bakkanum og býður þeim til endurfunda, til að nema að nýju
land í byggðinni, með nýjum lífsskilyrðum og nýrri tækni.
ýx4xSxJ>3x»xS>3x3>^xSx»x«>3xSx«xS><$xéxMx$K$>3xS>3xSxS>3>^xs>3xSx$x«x$>3>^x.xSxSx.x«x.xíxSx.xíx»xS;
GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR,
liúsfreyja frá Garði.
Aðfaranótt 30. nóv. s.l. andaðist í Garði í Aðaldal Guðný Jónsdóttir,
áður lengi húsfreyja þar og ekkja Baldvins sál. Sigurðssonar óðals-
bónda í Garði, alþekkts smáskammtalæknis. — Guðný var blind orðin
og komin í kör, enda orðin 93 ára að aldri. — Hún var dóttir Jóns
hreppstjóra Jóakimssonar að Þverá í Laxárdal, en systir Benedikts á
Auðnum og þeirra merku systkina. Um Guðnýju var alsagt, að hún
væri búin flestum þeim beztu kostum, er konur mega prýða. — Eftir-
farandi ljóðlínur voru lesnar við útför hennar.
Skammdegið grúfir í grátkyrrð að héraðsins barmi.
Glitrandi blástjörnur tindra á himinsins armi.
Hnigin er sól,
horfin burt af skýja stól.
Sveitin er hnípin af harmi.
Löngum féll dómur sá, áður en íslending varði:
ágætust húsfrú var kölluð frá Grund eða Skarði.
— Liðið er kvöld,
— lokin nærri tíðræð öld.
— Guðný er dáin frá Garði.
Hér varð ei brestur, né horfið frá óunnu starfi,
heldur er sorg yfir runninna daggeisla hvarfi.
Heiman og heim
haldið út í þráðan geim.
— Fagnað þar andlegum arfi.
Hennar var köllun að lilúa og verma og næra,
hjarta síns auðæfi börnum og vinum að færa.
Glæða þeim ljós,
græða upp úr moldu rós.
— Líða og kenna og læra.
Man ég, er ljósin þín lýstu upp skammdegið svarta.
Lifandi minningum sporin þín glitra og skarta.
Þökk vor og ást
þér, sem aldrei veikum brást,
hlær enn í fagnandi hjarta.
Ljómar nú bros þitt í blástjömum gleði og tára,
byrgðar er voru í kvöldhúmi liðinna ára.
— Sól þín er rís,
sjá þær, eins og hugur kýs,
lækningu sjúkleiks og sára.
Vöknuð er sál þín, er vonaði, unni og trúði.
Vinir fá endurheimt dýrustu móður og brúði.
— Lof þitt og ljós
lýsir yfir dauðans ós.
Skín þar í eilífu skrúði.
K. V.
Friðartakmark.
Engra afsakana er þörf þótt
vér setjum oss það sem eitt
helzta markmið er stríðinu létt-
ir, að útrýma atvinnuleysinu.
Því að atvinnuleysi hefir verið
næst stríði, útbreiddasta, illkynj-
aðasta og óheillaríkasta mein-
semd þessarar kynslóðar. Bitrar
nrinningar um hörmungar þess,
eru greyptar djúpt í huga verka-
fólksins, sem varð að búa við
það. Óttinn við sjúkdóminn
grefur um sig í undirvitund
þeirra, sem nú eru heilbrigðir,
— þ. e. a. s. hafa föstum störfum
að gegna fyrir land og þjóð. Þessi
ótti getur magnast og orðið að
þjóðarvoða, ef ekkert verður
gert til þess að afstýra atvinnu-
leysinu fyrr en stríðinu léttir.
Þá er of seint að hefja undirbún-
ing. Það þarf að gerazt nú.
Þeir, sem skoða atvinnuleysið
sem hörmulegan en ólæknandi
sjúkdóm, hafa gefið sig á vald
svartsýninni og fullkominni ör-
væntingu um þjóðarheill. En
það er jafn háskalegt að líta á
sjúkdóminn, sem léttan barna-
sjúkdóm sem læknist af sjálfu
sér. . . .
Atvinnuleysisbölið er ekki
sprottið af hinu óháða einstakl-
ingsframtaki 19. aldarinnar,
heldur er það skapað af einka-
farmtaki 20. aldarinnar, sem í
staðinn fyrir að vera óháð hefir
reynst vera stórkostlega bundið
og sjálfstjórnandi í formi hringa,
einkaframleiðslu, verzlunarsam-
banda og verðlagningarsamn-
inga. Offramleiðsla hefir verið
einkenni þessa skipulags, — ekki
þó þannig, að offramleiðsla hafi
verið, miðað við þörf, — lieldur
miðað við ákveðið verð. Fram-
leiðslan hefir snúist um
ágóðann, — en ekki þörfina, —
og einstakar framleiðslugreinar
hafa verið skipulagðar til þess
eins, að skila ágóða í hendur
framleiðandans. Þar sem slík fyr-
irbrigði koma fyrir, þarf að taka
fast í taumana.
Reynslan hefir sannað, að ein-
angraðar ráðstafanir til þess
gerðar að aðstoða hóp framleið-
enda eða einn þátt framleiðsl-
unnar, án tillits til hinna, er
engin lækning á at-
vinnuleysisbölinu. Þvert á móti.
Áðeins allsherjar áætlun og
skipulagning, þar sem enginn
þáttur atvinnu- og viðskiptalífs
er látinn afskiptalaus, getur af-
stýrt bölinu. Framleiðslugetan,
framkvæmdaþolið og neyzlu-
þörfin, em atriðin sem þarf að
samræma. Ekkert má verða út-
undan.. Afnám atvinnuleysisins
krefst þess einnig, að verkalýður-
inn láti af þeirri stefnu að tak-
marka aðgang að vissurn starfs-
greinum. Verkalýðurinn þarf að
láta sér eins annt um að til séu
störf fyrir alla eins og kaup og
kjör þeirra, sem í störfum em.
Ýmislegt virðist benda til að
brezkur verkalýður skilji þetta
mætavel nú.
Þá er og á hitt að líta, að at-
vinnuleysi er meira en böl og
(Framhald á 7. síðu).