Dagur - 29.12.1944, Side 2
2
BAGUR
Föstudaginn 29. desember 1944
KVEÐjA
Frá bókamarkaðiiium
Með útkomu þessa tölublaðs
er ritstjórn minni við Dag lokið.
Blaðið hóf göngu sína í árs-
byrjun 1918 og er því 27 ára
gamalt um þessar mundir.
Þeúna tíma hefi eg haft ritstjórn
þess nieð höndum að undan-
teknum 8 árum, (frá 1920 ti'l
1927 ,er Jónas Þorbergsson var
ritstjóri þess) ýmist eirwi eða með
öðrum. Samanlagt hefi eg því
gegnt ritstjórnarstarfi við Dag
181/) ár, en áður hafði eg verið
meðritstjóri íslendings 1V& ár,
og er þess yegna 20 ára ritstjóra-
afmæli mitt nú. Þykirmérþvível
hlýða að hverfa nú frá þessu
starfi, með því líka að árin eru
farin að færast yfir mig og heils-
an nokkuð *tekin að bila. Um
þessa ráðabreytni hefir verið
fullt samkomulag milli mín og
útgáfustjórnar blaðsins eins og
jafnan áður.
Blaðamennskustarf mitt hefir
lengst af verið hjáverkastarf sam-
fara öðrum skyldustörfum. Það
er jafnan talin nokkur hætta á
því, að sá, sem hefir mörg járn í
eldinum í senn, brenni eitt eða
fleiri. Það er ekki mitt að dæma
um, hvort svo hafi farið fyrir
mér, þegar um blaðamennsku
mína er að ræða. Sá dómur heyr-
ir til lesendum blaðsins. En af
þeim. kynnum, sém eg hefi af
þeim haft að öllu samanlögðu,
hefi eg enga ástæðu til að kvíða
þeim dómi, þó að mér sé hins
vegar ljóst, að blaðamennsku
minni hefir að ýmsu verið meir
ábótavant en skyldi.
En þrátt fyrir allt það, sem
ábótavant kann að hafa verið,
get eg skilið ánægður við Dag,
þegar litið er til þróunarsögu
blaðsins frá fæðingu þess og
fram á þenna dag. Dagur byrjaði
sem dvergur, en er nú orðinn risi
meðal blaða utan Reykjavíkur,
og allar horfur á, að
hann eigi éftir að taka mikl-
um vexti í framtíðinni, ef allt
fer að sköpuðu. Þó að blaðstærð-
in ein segi ekki til um gæði og
áhrif blaðsins, þá er hún samt
mikilvægt atriði, og engurn get-
ur dulizt, að Framsóknarflokkn-
um og samvinnustefnunni er
þörf á auknum blaðakosti. En
undir merkjum þessara tveggja
skyldu aðila hefir Dagur ætíð
unnið og mun vinna í framtíð-
inni.
Um leið og eg hverf nú frá rit-
stjórn Dags, ber eg fram þá hug-
heilu ósk, að honum megi auðn-
ast um allan ófarinn veg að
styðja öfluglega að framgangi
allra góðra, réttlátra og heil-
brigðra málefna og verðí sterk-
ur Þrándur í götu alls þess, er
til óheilla horfir fyrir hina ís-
lenzku þjóð. Megi Haðið vinna
sem íiesta sigra á þeirri leið.
Öllum samstarfsmönnum mfn-
um við blaðið fyrr og síðar
þakka eg ánægjuleg og vinsam-
leg viðskipti ,svo og öllum þeim,
er á einhvern hátt hafa staðið að
útgáfu blaðsins. Ekki sízt vil eg
færa þeim prentmeisturunum,
herra Oddi Björnssyni og þig-
urði syni hans, svo og öl'lu sfarfs-
fólki prentmiðjunnar, mínar
beztu þakkir fyrir langt og vin-
samlegt samstarf.
Ingimar Eydal.
Dráttarvextir
falla á ógreiddan tekju- og eigna-
skatt frá áramótum.
Greiðið þinggjöldin nú þegar.
Skrifstofa Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar, 27. des. 1944.
Sig. Eggerz
TILKYNNING
FRÁ SKATTSTOFU AKUREYRAR
Frestur til þess að skila skattframtölum er til 31. janúar n. k. Fram-
tölum skal skila í skattstofuna. Aðstoð við að fylla út framtalseyðu-
blöð verður veitt alla virka daga fráT kl: 5—7 e. h. í skattstofunni,
HAFNARSTR. 85, 3. hæð, frá 2.—31. janúar, að báðum dögúm með-
töldum. Aðstoð verður enn fremur veitt frá kl. 8.30—9.30 e. h. síðustn
vikuna í janúar. Þeim, sem eigi hafa skilað framtölum innan þessa
frests, verður áætlaður tekju- og eignaskattur.
Samkvæmt ráðuneytisbréfi, er öllum, sem grciða laun, skylt að gefa
upp þær greiðslur, á þar til gerðum eyðuhlöðum, fyrir 10. janúar
n.k., og liggja sektir við, ef þetta cr vanrækt: Þeir, scm eigi fá þcssi
eyðublöð send, skulu vitja þeirra í skattstofuna.
Akureyri, 27. desember 1944.
Skattstjórinn
Hugiún: Við sólarupp-
rás. Rvík 1944. —
Sögur. —
Skáldkonan Filippía Krist-
jánsdóttir frá Brautarhóli í
Svarfaðardal, sem tekið hefir sér
rithölundarheitið Hugrún, send-
ir frá sér sögur undir þessu
nafni. Áður hafa komið út el'tir
hana 2 kvæðasöfn: Mánaskin o<f
Stjörnublik. Með þessari nýjti
bók sinni: Við sólaruprás, legg-
ur -hún inn á leið sagnagerðar-
innar, og er sú léið, að eg hygg,
ný fyrir hana og -henni ókunn.
En hún veit, hvað hún vill, og
er takmarki sínu trú. Ilún vi-11
auðsjáanlega greiða sólu trú-
ar og siðgæðis leið'ina. Hún vill
að enginn verði að verra manni,
er sögur hennar les, nema síður
væri, og það er óhætt að lullyrða,
að í því tilliti nær hún tilgangi
sínum. Frásögn liennar er látlaus
og oftast ljós og ailþýðleg. Við
einn yfirlestur virtist mér bókin
vera skrifuð á góðu, norðlenzku
máli, og prófarkalestur betri en
oft gerist. Þegar um efnismeð-
ferð höf. á að dæma, verður að
gæta þess, að hana ber að skoða
með það fyrir augum, að bókin J
er ' skrifuð með vissu, áður,
greindu takmarki í framsýn. Hið
sama gildir og um efnisvalið. Eg !
geri ekki ráð fyrir, að bókin
standi öðrum sams konar bókum
framar í þessu tilliti, en eg hygg
hana yfirleite standa mjög svo
jafnfætis í sinni röð innlendum
og útlendum bókuin Jreim er
mér eru kunnar. Eg skal ekki
neita Jrví, að mér virðist bókin
myndi liafa grætt á jrví, að sagt
hefði verið frá sterkari átökum,
meira hafróti í sálum söguper-
sónanna og meira tvísýni á leiks-
lokurn. En vel má vera, að ein-
hverjum hefði Jiá ekki þótt bók-
in jafn markviss, en»það ætla eg
Jió vafamál. Hvort skáldkónunni
láti betur bundna en óbundna
formið, læt eg ósagt að svo
stöddu. Eg vil fá fleiri sögur frá
hennar hendi, áður en úr Jrví
verður skorið. Eg vil líka af öðr-
um ástæðum fá fleiri sögur frá
henni. Eg veit, að hún muni
aldrei skrifa sögu (eða ljóð) án
Jiess að ætila Jrví að vinna eitt-
hvert gott verk. Sjálfsagt tekst
Jiað ekki æfinlega, eins og gerist
og gengur. En að álíta að það
takist aldrei, er íjarstæða. Eg
hvet skáldkonuna til framhald-
andi ritstarfa, en let ekki.
Reynslan kennir henni að bæta
úr göllum, sem finnast kunna á
frumsmíð hennar, og um þörf
jxjóðarinnar á góðum trúrænum
og siðrænum sögum efast eng-
inn. V. Sn.
Islenzk alfræðabók í 12 bindum verður gefin út á næstu
árum, ef nægileg þátttaka fæst
r
Aðalritstjóri verksins verður Arni Friðriksson
Árni Friðriksson fiskifræðingur kvaddi blaðamenn í Rvík á fund;
sinn nvlega og skýrði þeiin frá nýju útgáfufyrirtæki, „Fjölsvinnsút-
gáíunni*1, sem ætlar sér að gefa út íslenzka alfræðabók — Encyclo-
pædia Islandica — og hefir Jregar verið hafinn undirbúningur
að verkinu.
Er Árni aðalritstjóri alfræðabókarinnar en aðstoðarritstjóri Ei-
ríkur Kristinsson cand. mag., og hefir hann verið fastráðinn starfs-
maður útgáfunnar frá því í ágúst í sumar, að ákvörðun var tekin
um útgáfuna. Gert er ráð fyrir að verkið verði í 12 bindum.
Um undirbúning málsins fórust
Árna Friðrikssyni orð á þessa leið:
Þegar hafizt var handa um þetta
verk, var fyrsta torfæran sú, að við
vtissum ekki til að neinn íslenzkur
maður hefði reynslu í því hvemig
slíkt verk skyldi vinna. Við urðum
því að leita til erlendra alfræðabóka
um fyrirmyndir, og var byrjað á því
að athuga gaumgæfilega, hve mikil
éherzla þar er lögð áýmsar greinar
efnisins. Var valin fyrirmyndar al-
fræðabók og tekin úr henni 13—14
þús. uppsláttarorð eftír ákveðnum
reglum, svo að tilviljun um val orða
kæmi ekki til greina, og var athugað
hve mikið rúm hvert uppsláttarorð
tók. Úr þessum efnivið var síðan unn-
ið hagfræðilega. Þannig auðnaðist að
skapa ramma sem hægt er að hafa
til hliðsjónar fyrst um sinn. Nú er á
það að líta, að ekki er hægt að taka
neina erlenda alfræðabók algerlega
tól fyrirmyndar því hér er að veru-
legu leyti um nýsmíð við hæfi íslend-
inga að ræða.
Þetta verk verður að miklu leyti
frábrugðið hverri annarri alfræða-
bók sem vera skal, og þá sérstaklega
vegna þess að mikil áherzla verður
lögð á íslenzkt efni, sem mjög er van-
rækt í erlendum alfræðabókum. Það
nær ekki aðeins til íslenzkra bók-
mennta og íslenzkrar sögu, heldur
kemur þarna til greina landafræði og
náttúrufræði landsins ásamt hundruð-
um ævisagna merkra manna, lifandi
Dg látinna. Talta verður fullt tillit til
þess, að íslenzkar bókmenntir mega
teljast mjög snauðar að efni um raun-
hæfa hluti, svo sem verkfræði, eðlis-
fræði, efnafræði o. fl., og verður að
hafa þá staðreynd til hliðsjónar þeg-
ar ráðizt er í starf eins og þetta.
Sú skoðun hefir gert vart við sig,
hvort ekki væri réttara að einskorða
alfræðabókina við íslenzk efni, en við
nána yfirvegun höfum við komizt að
þeirri niðurstöðu að á þann hátt væri
ekki unnið nema hálft verk, og lægi
þá eftir sá hlutinn sem að öllum lík-
indum væri þýðingarmeiri. Þó íslend- ,
ingum sé, eins og öðrum, opinn að-
gangur að erlendum alfræðabókum,
eru slíkir gripir fáséðir á íslenzkum
heimilum og mætti nefna sem hl'ið-
stætt dæmi þá staðreynd, að 'jafnvel
perlur heimsbókmenntanna verða
ekki slendingum að raunverulegri i
eign fyrr en þeim hefir verið snúið á
tungu þjóðarinnar.
Þegar vinna skal verk eins og það
sem hér er fram undan, er tvímæla-
laust mestí vandinn að finna nægilegt
úrval hæfra manna til að leggja hönd
á plóginn. Nær fimmtíu menn hafa
þegar lofað ritinu stuðningi sínum.
Þá er enn eftir að leita til fjölda
manna sem nauðsynlegt er að ná til,
og margir þeirra, sem taka að sér að
vinna þetta verk munu oft þurfa að
leita til annarra þegar út í starfið er
komið.
Meglináherzla verður lögð á, að út-
gáfan verði eins vönduð og nokkur
kostur er á. Hér má ekki horfa í
kostnað. Aðalatriðið er að árangurinn
af þessu átaki megi verða okkur til
sóma.
Það má nefna dæmi, að óhjákvæmi-
legt verður að teikna öll landabréf
sérstaklega fyrir þetta verk, m. a. til
að losna við erlend hetiti, þar sem ís-
lenzk mætu koma í staðinn, en á
þann hátt verður birt raunverulega í
fyrsta skipti íslenzk landakortabók.
i
Auk tæknislegra erfiðleika af þessu
tagi verður ef til vill aðalvandinn að
velja uppsláttarorðin. Áð sjálfsögðu
verður stuðzt við þann sjóð af al-
þjóðlegum fróðleik og þekkingu, sem
heimurinn á í alfræðabókum á ýms-
um tungum, en íslenzku viðfangsefnán
verða hrein nýsmíð, sem ekki er á
færi annarra en lærðustu manna. Af-
leiðingin af þessu er sú, að langur
tími hlýtur að líða þar tíl fyrsta bind-
ið getur komið fyrir almenningssjón-
ir, því þá verða öll uppsláttarorðm að
vera fyrir hendi, en úr því ætti starf-
finu að geta skilað hraðar áfram. Þess
verður einnig að gæta, að engin al-
fræðabók, sem hægt er að hafa til
fyrirmyndar, nær alveg fram á síð-
ustu ár, en á þeim hefir margt gerzt,
sem verður að taka með.
Að sjálfsögðu veltur framkvæmd
þessa verks fyrst og fremst á því,
hverjar viðtökur það fær hjá þjóðinni.
Bak við þetta fyrirtæki verður að
standa slíkt bákn fjármagns, að ekk-
ert vit væri að setja framtíð þess á
guð og gaddinn, og komi í ljós, að
ekki sé hægt að afla allmiikils fjölda
traustra áskrifenda í náinni framtíð,
verður að hverfa frá þessu ráði og
hefir þá undirbúningurinn verið unn-
inn fyrir gýg.
Smokingföt
á meðalmann, til sölu
á saumastofu Gefjunar,