Dagur - 29.12.1944, Page 4
4
DAGUR
Föstudaginn 29. desember 1944
ðK BÆ OC BYCCÐ
KIRKJAN. Messað á gamlaársdag
í Glerárþorpi kl. 1 e. h. — Akureyri
kl. 6 e. h. — Nýjársdaé: Messað á
Akureyri kl. 2 e. h.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin sam-
an í hjónaband af sóknarprestinum,
sr. Friðrik J. Rafnar vígslubiskupi,
ungfrú Ingibjörg Stefánsdóttir, Akur-
eyri og Ingólfur Á. Guðmundsson,
Akureyni.
Með þessu tbl. lýkur 27. árgangur
blaðsins. Tölublöðin á liðnu ári verða
því aðeins 49. Stafar þetta af prent-
araverkfallinu í október. Hins vegar
hefir blaðið nokkrum sinnum verið
mun stærra en ráðgert var í upphafi,
mun það vega fullkomlega upp á móti
því, sem vantar á tölubl.fjöldann.
/ dag verða gefin saman í hjóna-
band í Reykjavík ungfrú Sólveig Ax-
elsdóttir, Kristjánssonar kaupmanns
og Gísli Konráðsson, Vilhjálmssonar
frá Hafralæk.
Ingimars Eydal, fyrsta ritstj. blaðs-
ins, og starfa hans í þágu Dags, verð-
ur minnzt í fyrsta tbl. eftir nýjár, í til-
efni þess, að hann lætur nú af rit-
stjórn við blaðið.
Noregssöínunin. Þakksamlega mot-
tekið frá Þorsteini Sigurgeirssyni kr.
100; Benedikt Þorleifssyni kr. 20;
Jóni Helgasyni, Eyrarlandi, kr. 100;
Sigurði Vilhjálmssyni kr. 50; Davið
Eggertssyni kr. 100; Guðm. L. Frið
finnssyni kr. 50. — Akureyrardeild
Norræna félagsins.
I. O. G. T. — Jólatrésskemmturt
halda allar barnastúkurnar hér í bæn-
um fyrir meðlimi sína í Skjaldborg
dagana 2. og 3. jan. næstk., sem hér
segir: Þriðjudaginn 2. jan. komi börn
11 ára og eldri úr öllum stúkunum. —
Miðvikudag 3. jan. komi börn 10 ára
og yngri úr öllum stúkunum. —
Skemmtanimar hefjast kl. 4 síðdegis
báða dagana. — Allir barnastúkufé-
lagar sæki aðgöngumiða sína í Skjald-
borg þriðjudaginn 2. jan. kl. 10—12
árd. og greiði þá um leið, ef þeir
skulda ársfjórðungsgjöld.
/. O, G. T. Stúkan Brynja nr. 99
heldur fund í Skjaldborg þriðjudag-
inn 2. jan. kl. 8.30 e. h. — Venjuleg
fundarstörf. — Þriðji flokkur fræðir
og skemmtir. — Framhaldssagan. —
Dans.
Athygli skal vakin á auglýsingu frá
Skattstofu Akureyrar, sem birtist hér
í blaðinu í dag.
Hjónaefni. Á aðfangadagskvöld op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú Birna
Þorsteinsdóttir frá Hrólfsstöðum í
Skagafirði og Sigurður Magnússon frá
Bíldudal.
1. tölublað næsta árgangs kemur út
föstudaginn 5. janúar næstkomandi.
BRÉF:
/ LEIKHÚSINU.
Eg er ekki tíður gestur í leikhúsinu
hér, en allt í einu datt mér í hug, að
það væri ekki svo vitlaust að bregða
sér þangað og sjá og heyra þann
leik, sem sýndur er þar nú, „Leyni-
mel 13“. Og þar sem leikstjóri og
leiðbeinandi, Guðm. Gunnarsson, er
hagleiksmaður mikill, vséri gaman að
sjá, hvernig honum hefði tekizt að
móta og þjálfa persónur leiksins. Og
eftir að hafa séð leikinn, tel eg alveg
óhætt að fullyrða, að honum hafi
tekizt það með ágætum, því að leik-
urinn er útfærður í einn bezta skop-
búning, sem hér hefir verið sýndur,
eða eg hefi a. m. k. séð hér. Það fólk,
sem skilar beztri útkomu í leik sín-
um — enda hefir það aðalhlutverkin
í leiksýningunni — eru: Frú Jónína,
frú Kristín, frk. Freyja, Jón Kristins-
son, Þórir Guðjónsson og Snorri Lár-
usson.
Leikritið er þanniig úr garði gert
frá höfundanna hendi, að það skilur
lítið eftir hjá manni, en það vekur
hollan og hressandi hlátur. Og þeirri
kvöldstund er vel varið, sem eytt er
til þess að fara í leikhúsið. Þið, sem
ekki hafið séð leikinn, ættuð að gera
það heilsunnar vegna, með því sparið
jsið' líka nokkur glös af vítamínum.
Leikhúsgestur.
Stí
ornarmyndunm
(Framhald af 1. síðu).
..Samningarnir um stjórnar-
samvinnu milli þessara flokka
tókust fyrir mikla eftirgangs-
muni við kommúnista og Al-
þýðuflokkinn, sem neyttu þess
og settu Sjálfstæðisflokknum
kostina, er skuldbinda flokkinn
tiíl að koma fram áhugamálum
þessara flokka, hvað sem það
kostar. ...
Það, sem réði þvf, að eg neit-
aði að samþykkja áðurgreinda
samninga og beygja ntig fyrir
meirahlutasamþykkt Sjálfstæðis-
flokksins, voru fyrst og fremst
eftirgreindar ástæður:
1. Að meðan Kommúnistafl.
er yfirlýstur byltingaflokkur,
sem vinnur að fullkominni upp-
lausn ogsíðan einræði þess flokks,
tel eg það gæti ekki samrýmst
stefnu Sjálfstæðisíilokksins að
taka upp við hann nána sam-
vinnu, sent veitir þessum flokki
ómetanlegan stuðning og tæki-
færi til þess að koma ár sinni vel
fyrir borð.
2. Ég tel hlut Sjállstæðisflokks-
ins í ríkisstjórninni svo veikan
að ekki sé viðunandi, þar sein
flokkurinn hefir aðeins 2 af 6
ráðherrum stjórnarinnar og það
því fremur, þegar svo er ákveðið,
að öll mikilvæg mál og nýmæli
skuli borin upp á ráðherraftmd-
um, en af því leiðir, að Komm
únistar og Alþýðufl. geta liaft ölj
Noregssöfnunin
(Framhald af 1. síðu).
182 — kvennærfatnaður,
174 — karlmannafrakkar,
220 — karlmannanærfatn.,
397 — kvenkápur,
18 — karlmannastakkar.
327 pör vetlingar,
311 stk. húfur,
201 sett karlmannafatnaður*
35 stk. kvenbnxur,
531 — barnaföt,
327 — kvenkjólar,
40 — drengjaföt,
92 — barnakápur,
535 — barnanærföt,
340 — karlmánnatreflar,
125 —, kvend.ragtir,
145 — Ýmsar vörur,
171 pör skófatnaður.
Enn fremur bárust eftirtaldar
peningagjafir frá ýmsum bæjar-
búurrí þennan dag:
Guðm. Pétursson, útgm. 500.00
Kjart. Sigurtryggvas. Odd. 50.00
Kristín Sigurbj.d. Oddeyri. 50.00
ráð á þeim fundum, ef þeir verða
sammála.
3. Meiri Jiluti ríkisstjórnarinn-
ar, Kommúnistar og Alþýðufl.,
og blöð þeirra, hafa verið mjög
óvinveitt bændum og landbún-
aðinum á undanförnum þing-
um. Ég tel því mikla hættu á, að
hlutur sveitanna verði fyrir borð
l)orinn, og þótt ráðherrar Sjálf-
stæðisfl. vilji vel, þá verði þeir
ofurliði bornir um það er máli
skiptir, eins og stjórnin og stuðn-
ingslið hennar er nú skipað.
4. Ég óttast enn fremur mjög,
að fjármálaráðherra verði bor-
inn ráðum og fái við ekkert ráð-
ið, þrátt fyrir ein'lægan vilja til
að halda í jármálum okkar á rétt-
um kili. Þessi ótti er byggður á
því, að í stuðningsfl. stjórnarinn-
ar eru sem kunnugt er, aðal-
eyðslumenn þingsins í yfirgnæf-
andi meirihl. og geta með atkv.-
magni ráðið öllu innan stjórnar-
flokkanna um afgreiðslu fjárlaga
og annarra stórútgjalda. Það spá-
ir heldur ekki góðu, að Sjálfstæð
isfí. meirihlutinn varð að skuld-
binda sig til að samþykkja ný
'aunalög, þegar allt er á há-
punkti dýrtíðarinnar, og sem
^osta ríkið um 5 milj. kr. í aukn-
um launagreiðslum og enn frem-
ur atvinnuleysistryggingar með
meirti, Jöggjöf, sem ætlaði
nokkru eftir éyrri heimsstyrjöld
að setja brezka heimsveldið á
höfuðið, og svo I járfrek reyndist
hún, að hætta varð við hana þá
um sinn. Tekjur ríkissjóðs fara
sýnilega þverrandi á næstu árum.
Til þess að mæta þessu og stór-
auknum.útgjöldum, verður ekki
komizt hjá að leggja á nýja
skatta, sem áætlað er að nemi allt
að 60 milj. kr. Slík blóðtaka hlýt-
ur að hafa í för með sér stöðvun
eða tafir á ýmsum nauðsyrilegum
framkvæmdum sýslu- og sveitar-
félaga og einstaklinga.
5. Ég býst við, að viðleitnin til
að jioka dýrtíðinni niður verði
lögð á hilluna, því kommúnistar
virðast skoða það sem fjandsam-
'ega ráðstöfun ef dýrtíðarupp-
bótin lækkar. í samræmi við þá
skoðun fengu kommúnistar því
framgengt að ríkisstjórnin beiti
sér fyrir, að kaupgjaJd skuli ekki
lækka í 14 mánuði eða þar tiil í
janúar 1946, hvað sem líður út-
flutningsverði á framleiðsluvör-
um okkar.
6. Loks virðist ástæða til að
ætla, að með nýsköpun Jieirri, er
svo niikið er rætt um í stefnuskrá
stjórnari'nnar sé tilgangur meiri-
hluta hennar að koma á ríkis-
N. N. 5.00 rekstri í ýmsum fyrirtækjum, er
N. N. 5.00 hafi meðal annars það hlutverk,
N. N. 10.00 að halda uppi óeðliega háu kaup-
N. N. 10.00 gjaldi í landinu miðað við mark-
N. N. 20.00 aðsverð erlendis, en ríkisstjóður
N. N. 20.00 látinn bera hallann. Kommún-
N. N. 10.00 istar vita vel að þetta er fljótvirk
N. N. 90.00 aðferð til Jiess að lama einkafram
N. N. 10.00 takið í landinu.
Árni íóhannesson og Krist- Samningur þessi með þeim
ín Árnad. Hríseyjarg. 100.00 undirmálum, er honum. fyilgja,
N. N. 30.00 líkist um of í mínum augum eig-
N. N. 10.00 in víxli, sem kommúnistar hafa
N. N. 105.00 fengið meirihluta Sjálfstæðisfl.
N. N. 50.00 til að ábyrgjast greiðslu á.“
N. N. 60.00 Þettá álit reyndustu þing-
Frá gamalli konu 50.00 manna Sjálfstæðisflokksins á stjórnarsamvinnunni mun vissu-
Samtals kr. 1185.00 lega meira í samræmi við skoð-
Enn þá berast gjafir, bæði í anir hugsandi Sjálfstæðismanna
fatnaði og peningum. 1 í landinu en þvættingur sá og
Móðir okkar,
Pálína Guðjónsdóttir,
andaðist að heimili sínu, Lækjargötu 11 A, þann 27. desember.
Helgi Sumarliðason, Þórdís Sumarliðadóttir.
Maðurinn minn,
Þórður Sigurvin Sigurjónsson,
Hvammi, — Amarneshreppi,
andaðist að heimili sínu 23. desember.
Jarðariörin er ákveðin íöstudaginn 12. janúar n.k., og hefst
irá heimilinu kl. 12. á hádegi.
Magðalena Sigurgeirsdóttir.
FNJÓSKDÆLINGAR!
Við sendum ykkur beztu jóla- og nýársóskir, með innilegri
þökk fyrir sendinguna.
Karitas Sigurðardóttir Karl Kr. Arngrímsson.
Úthlutun skömmtunarseðla
fyrir tímabilið janúar—júní 1945, fer fram
þessa dagana, frá kl. 10—12 f. h. og 1—6 e. h.,
nema laugard. frá kl. 10—12 og 1—4 e. h.,
og á þá skömmtun að vera að ftillu lokið. —
Nýir seðlar aðeins afhentir gegn greinilega
árituðum stofnum. — Fólk er- alvarlega
áminnt um að sækja seðla sína fyrir framan-
greindan tíma, því eftir áramót verða engir
skömmtunarseðlar afhentir.
Úthlutunarskrifstofa Akureyrar.
Eldfast GLER
Kaupfjelag Eyfirðinga
Járn- og glervörudeild.
I DAGUR
þakkar lesendum sínum liðið ár og
óskar þeim gæfu og gengis á hinu
nýja ári.
NÝJA BÍÓ
Föstudag kl. 9:
Texas
Laugardag kl. 6:
Fantasia
(barnasýning)
Laugardag kl. 9:
Texas
Nýjársdag kl. 3, 5 og 9:
Rio-Rita
(barnasýning kl. 3.)
skrurn, sem daglega gefur að lesa
um hana í Mbl. og öðrum máÞ
gögnum stjórnarsinna.
[Gleðilegt nýtt ár!
Þökk fyrir viðskiptinl
á liðna árinu.
Nýja fiskbúðin
Vilhelm Hinriksson.
20—30 þúsund manns
vf6«v©gar á landinu
l«aa Dag dS staÖaldri.
AuglÝMadurl
AÖiuglð a6 Dagur «
b«zta auglý«lngabla6
<irelfbýll*in».