Dagur - 11.01.1945, Page 8

Dagur - 11.01.1945, Page 8
s D AGUR Fimmtudagirm 11. «jahúar 1945. HEILDSALAMALIÐ Hérmeð tilkynnist vinum og vandamönnum, að móðursystir mín, KRISTÍN KRISTJÁNSDÓTTIR, andaðist þann 8. þ. m. Ákveðið er, að iarðaríörin fari fram að Grund í Eyjafirði, þriðjudaginn 1B. þ. m., og hefst með bæn á heijnili hennar, Skólastíg 7, Akureyri, kl. 11 f. hád. Akureyri, 11. ianúar 1945. Jónas Kristjánsson. Jarðarför SIGURLÍNU JÓNSDÓTTUR frá Látrum, fer fram frá Akureyrarkirkju, föstudaginn 12. ianúar, kl. 1 e. h. Aðstandendur. Árshátið Knattspyrnufélags Akureyrar verður haldin að HÓTEL NORÐURLAND, laugar- daginn 20. p. mkl. 8.30 e. h. — Áskriftarlisti liggur framrni i Bókaverzlun Gunnlaugs Tr. Jónssonar til 18 þ. m. SKEMMTINEFNDIN FATASAUMUR Höíum íengið mikið úrvcri aí íataefnum, bæði í vetrar- og sumarfatnað. Tökum einnig efni til að sauma úr fyrir þá, sem þess óska. SAUMASTOFA KAUPFÉLA.GS VERKAMANNA Strandgötu 7. OÍHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKH ÚR BÆ OC BYCGÐ Rún 59451177.: - Frl. KIRKJAN. Messað í Akureyrar- kirkju næstk. sunnudag kl. 2 e. h. Kveníélagiö „Hlít“ heldur aðal- fund í Skjaldborg miðvikudaginn 17. þ. m. kl. 8.30 e. h. Fimmtugsafmæli átti Tómas Bjömsson, kaupmaður hér í bænum, sl. mánudag. Hjúskapur. Ungfrú Ingunn Hall- grímsdóttir frá Siglufirði og' Friðfinn- ur Gíslason, Hátúni, Glerárþorpi. Hjónaefni. Á gamlársdag opinber- uðu trúlofun sína ungfrú Guðrún Baldvinsdóttir, verzlunarmær, Hrísey, og Björn Björnsson, sjómaður, s. st. Barnastúkan Samúð heldur fund næstk. sunnudag kl. 10 f. h. í Skjald- borg. — Hagnefnd skemmtir og fræðir. Noregssöfnunin. Þakksamlega mót- tekið frá Bened .Einarssyni, Kirkju- bæ, kr. 50.00. Akureyrardeild Nor- ræna félagsins. I. O. G. T. — Stúkan Brynja nr. 99 heldur fund í Skjaldborg þriðjudag- inn 16. jan. næstk. kl. 8.30 e. h. — Erindi (Þorl. Jónsson). — Upplestur. — Framhaldssagan. — Smáleikur. — Félagar fjölmennið. Kvennadeild Slysavamafél. Akur- eyrar heldur fund næstk laugardag kl. 9 e. h. í Geysisskálanum í Grófar- gili. Æskilegt að taka með sér kaffi og handavinnu. Frá Iðju, Almenn atkvæðagreiðsla fer fram 13 .og 14. þ. m. um uppsögn á núgildandi kaupsamndngum við S. í. S. og K. E. A. Bílstjórar skora á bæjarstjóm að kaupa veghefil (Framhald af 1. síðu). nágrenni hans í sæmilegu lagi. Benda þeir og á, að það fé, sem lagt er í viðhald gatnanna verði oft á tíðum að engu, í úrkomu- samri tíð, af því að ekki sé hægt að hefla göturnar. Þá er þess að geta, að hefill get- ur haft þýðingarmiklu hlutverki að gegna að vetrinum til þess að færa snjóinn af götunum. Skapar það mun greiðari umferð um bæinn og mundi ekki sízt sporna við því, að keyrt sé allt í sömu hjólförunum, en það orsakar óeðlilegt slit á malbiki og götunr í heild. Væntanlega tekur bæjarstjórn- in þetta erindi til afgreiðslu og úrlausnar hið bráðasta. Það er mála sannast, að göturnar í bæn- um og á vegum hér í nágrenninu hafa í haust og vetur verið í hörmulegu * ásigkomulagi og bráð nauðsyn að gera þar ein- hverja bragarbót á. Tillaga bíl- stjórafélagsins um nýjan veghefil sýnist eðlileg og sanngjörn og ætti bæjarstjórnin að vinda bráð- an bug á útvegun hefils. Má benda á það, í þessu sambandi, að nú fer fram í Reykjavík sala setuliðsvéla, þar á meðal ein- hverra vegagerða- og vegavinnu- véla. Væri ef til vill hægt að leysa málið á skjótan hátt með kaup- um af þeim eignum. JARPUR KEYRSLUHESTUR í óskilum á Ytri-Bægisá. TILKYNNING frá blindraiðn K. T. Höfum fyrirliggjandi tvaer stærðir af dívönum. Vinnustofan Brekkugötu 15. (Framhald af 1. síðu). að svo sé, er þetta: Kommúnist- ar beina örvum sínum að fyrr\'. ríkisstjórn, en ekki að hinum ákærðu heildsölum og okri þeirra á almenningi. Engin op- inber rannsókn hefir ennþá verið fyrirskipuð í málinu. Rík- isstjórninni þykir ekki ástæða til að einn þeirra manna, sem stjórnar öðru hinu ákærða fyrir- tæki, láti af fyrirhugaðri sendi- för til Svíþjóðar í erindum rík- isins. Skrif kommúnista um fyrrv. stjórn í þessu sambandi eru furðuleg. Saka þeir hana um, að liafa komið i veg fyrir, að hafizt væri handa, fyrr en nú um ára- mótin. Þetta er yfirskin eitt, eins og bezt má marka af því, að fyrrv. stjórn stofnsetti verðlags- eftirlitið og Viðskiptaráðið í nú- verandi mynd. Þessar stofnanir eru allar skipaðar nær því sömu mönnum og í tíð fyrrv. stjórnar. .Undirbúningur málsins hófst í liennar tíð, eins og gleggst má sjá af skýrslu Viðskiptaráðsins, sem birtist í útdrætti hér á eftir. í tíð núverandi stjórnar liefir ekkert sérstakt verið gert í þess- um málum, og engin stefnu- breyting orðið til af hennar völd- um. Það, sem nú er aðAoma í ljós, er árangur af langri rann- sókn verðlagseftirlitsins. Þjóðviljinn hefir einkum reynt að gera Vilhjálm Þór grun- samlegan í þessu sambandi og gefið í skyn, að hann hafi þar einkum borið hag SÍS fyrir brjósti. Þetta er óheyrilega ósvíf- in og andstyggileg aðdróttun. Vilhjálmur Þór mun hafa átt sinn þátt í því, að því skipulagi var komið á verðlagseftirl itið, sem leitt hefir til þessara opin- berana og um SÍS er það að segja, að það hefir aldrei haft neinna hagsmuna að gæta í yfir- hilmingu verðlagsbrota, heldur þvert á móti. Sambandið mun nær því hið eina fyrirtæki, sem jafnan hefir afhent frumreikn- inga til verðlagseftirlitsins, enda öllum landslýð kunnugt, að ameríkuvörur kaupfélaganna hafa í fjölda tilfella verið mun ódýrari, en vörur kaupmanna, sem verzlað hafa við heildsala. Hagur Sambandsins er, að gera sem hagstæðust innkaup og þeirrar skyldu hefir það jafnan gætt af fyllsta trúnaði. Opinber rannsókn óhjákvæmileg. Það, sem mörgum mun þykja ískyggilegt við þetta mál, eru ekki aðeins brot þeirra tveggja firma, sem þegar er kunnugt um, heldur framkoma þeirra firma, sem alls ekki vilja af- henda frumreikningafia. Slíkt getur tæplega skoðast öðruvísi en eins konar sektarjátning. Ástæðan til þessarar fram- komu og margt annað, sem enn er á huldu í þessu máli, þarf að upplýsast til fullnustu. Til þess verða að teljast mjög vafasamar' líkur, að þær upplýsíngar fáist, ef ekki verður beitt öðrum að- ferðum en þeim, sem verðlags- eftirlitið hefir yfir að ráða. markaðir, eins og reynzlan hefir sýnt. Eina vonin til verulegs árangurs í þessum efnum er, að ríkisstjórnin iyrirskipi opinbera allsherjarrannsókn á þessum brotum og öðrum skyldum. Op- inber rannsóknardómari hefir marga' fleiri og betri möguleika og meira vald til sannanaöflun- ar en verðlagseftirlitið og hefir jafnframt betri aðstöðu til að leita samvinnu erlendra réttar- valda, ef þörf krefur. Þess verður því að krefjast, að dómsmálaráð- herrann fyrirskipi tafarlaust op- inbera allsherjanannsókn og sjái um að hún verði framkvæmd nú þegar. F.r það vitanlega sjálfsagt, að sú rannsókn verði fram- kvæmd í náinni samvinnu við verðlagsráð og joessir tveir aðil- ar, ráðið og rannsóknardómar- hin styðji hvorir annan eftii rnegni. Greinargerð Viðskiptaráðs. „Þegar sú breyting var gerð á verðlagseftirlitinu snemma á ár- inu 1943, að það var fengið í hendur Viðskiptaráðinu og sér- stakur verðlagsstjóri var skipað- ur, höfðu ýms fyrirtæki í Reykja- vík umboðsmenn eða útibú í Bandaríkjunum til Jiess að ann- ast vörukaup fyrir sig, auk þess sem nokkrir íslenzkir ríkisborg- arar höfðu sezt jrar að til að kaupa vörur fyrir íslenzk fyrir- tæki í gildandi verðlagsákvæð- um vorti engin hámarksákvæði um umboðslaun slíka aðila: . . . Flálfum mánuði eftir að ráðið var fullskipað til þess að fjalla um verðlagsmál, gaf það út nýj- ar verðlagningareglur, og var þar m. a. ákveðið, að fyrirtæki, sem hefðu umboðsmenn eða úti- bú erlendis, mættu ekki reikna þeirn meira en 5% í umboðs- laun..... Eftirlit með því, hvort fyrir- mælum um að reikna umboðs- mönnum í Ameríku aðeins 5% væri hlýtt, var að ýmsu leyti mjög erfitt, enda höfðu ýmis fyr- irtæki erlenda umboðsmenn. Var þó á ýmsan hátt reynt að fylgjast með þessu m. a. með því að athuga, hvort sambærilegar vörur væru dýrari hjá þeim, sem hefðu fasta umboðsmenn í Bandaríkjunum. en öðrum. — Kom í ýmsum tilfellum í ljós, að svo virtist, jiótt ógjörningur væri að færa sönnur á, hver sökin kynni að vera. í september 1943 komst verð- lagseffcirlitið svo að raun um mjög gildar líkur fyrir því, að ákveðið fyrirtæki í Reykjavík léti útibú sitt reikna sér hærri umboðslaun en heimilt er. Var nú hafinn víðtækur undirbún- ingur að rannsókn Jiessa máls, m. a. með aðstoð ræðismanns ís- lands í New York. í október var ákveðið, að verðlagsstjórinn, sem var á förum til Bandaríkj- anna ,skyldi einnig athuga þessi mál þar. Kom hann aftur til landsins í febrúar 1944. — Skömmu síðar gaf ráðið út fyrir- mæli um það, að óheimilt sé að byggja verðlagningu á vöru- reikningum íslenzkra borgara í Bandaríkjunum og litlu síðar var öllum ínnflytjendum, sgm verðlagt höfðu vörur á grund- vejli reikninga frá íslenzkum TAPAZT HEFIR frá Sigluvík á Svalbarðs- strönd, dökkrauður hestur með litla stjörnu í enni, ó- járnaður, , brennimerktur á framhóf St0x. Ef einhver yrði hestsins var, er hann beðinn að gjöra aðvart, annaðhvort í Sigluvík eða til Stefáns Ingjaldssonar í Hvarnmi, Grenivik. umboðsmönnum eða' útibúum, síðan fyrirmælin um 5% um- boðslaun voru sett, fyrirskipað að senda verðlagseftirlitinu frumreikninga frá erlendum seljendum. . . . Þegar frumreikn- ingar tóku að berast, kom í ljós, að grunur verðlagseftirlitsins hafði við rök að styðjast. Hins vegar hafa ýmis fyrirtæki ekki enn orðið við Jressum fyrirmæl- um, þrátt fyrir ítrekanir og all- langan frest, og hefir Viðskipta- ráðið því ekki séð sér annað fært en að tilkynna þeim, að þeim muni framvegis ekki verða veitt innflutningsleyfi, hafi þau ekki fullnægt umræddum fyrir- mælum fyrir 20. febrúar næstk.“. Síðustu viðbuirðir í málinu. Verðlagseftirlitið hefir kært firmað S. Árnason &: Co. fyrir brot á verðlags- og innflutnings- ákvæðum, Ólafur Johnson, sem gegnt hefir störfum í Innkaupa- nefnd íslenzka ríkisins í Amer- íku, auk þess sem hann hefir veitt forstöðu útibúi O. Johnson & Kaaber í New York, hefir sagt af sér störfum í nefndinni. Þá er uppvíst orðið um skyld verðlags- brot nokkurra skartgripaverzl- ana í Reykjavík. Mun þar um að ræða bæði beiii verðlagsbrot og tollsvik, Nýkomnar: ,,GEVARET“-filmur, stærð 6—9, með járnspólum. Balduin Ryel h.f. Alskozkur hrútur til sölu. Upplýs hjá Ólafi Sigurðssyni, Gilsá eða Aðal- steini Ólafss., Sandhólum. Tilboð óskast í erðafestuland á ágætum stað ofan við bæ- inn. — Upplýsingar gefur Otto Ryel. NÝJA BÍÓ i sýnir í kvöld kl. 9: i Undir oki hernámsinsl j Föstudaginn kl. 9: | I glaumi lífsins I Laugardaginn kl. 6: I Erkiklaufi I Laugardag kl. 9: | Undir oki hernámsins[ I Sunnudaginn kl. 3: | I glaumi lífsins j Sunnudaginn kl. 5: | Fantasía (vegna dskorana) \ Í Kl. 9: s | Undir oki hernámsins Kristján Tryggvason.; Möguleikar þess til að afla pægra sann^na, eru mjög tak-

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.