Dagur - 05.04.1945, Side 1

Dagur - 05.04.1945, Side 1
 ANNALL DAGS :-ú= 27. MARZ. Vamarkerfi þýzka hersins, anstan Rínar, reynist í molum eftir hina geysihröðu stórsókn Bandamanna yfir fljót- ið. Hersveitir Montgomery herða sóknina í áttina tii Ruhr- héraðs. Skriðdrekasveitir Banda- ríkjamanna vaða áfram, taka Limburg, nálgast Wirtzburg. — Rússar sækja fram í Siésíu og Ungverjalandi. Vopnaviðskipti á götum Kaupmannahafnar inilli þýzkra hermanna og Gestapo- manna. Argentína segir Möndul- veldunum stríð á hendur. a 28. MARZ. Hersveitir Mont- gomery taldar um 30 km. frá Múnster. Bandamenn taka Mannheim. Bilið milli hersveita Konievs að austan og Pattons að vestan um 450 kin. Barizt í Frankfurt-við-Mai n. Rússneskir lierir komnir að landamærum Austurríkis. Uppþot í Vínar- borg. 29. MARZ. Fréttabann á fram- sókn Montgomerys inn í Þýzka- land. Taiið er að herir hans sæki hvarvetna fram. Bilið milli herja Montgomery norðaustan Ruhr- héraðs og 1. ameríska hersins, suðvestan héráðsins, um 50 km. Rússar komnir inn í Austurríki. Rússar taka Danzig. Amerískur og brezkur floti gera árásir á Ruyiku-eyjar, norðan við For- mosa. 30. MARZ. Þriðji Bandaríkja- herinn tekur stórborgina Frank- furt-við-Main. Bandamenn hafa nær umkringt Ruhr-hérað. Framhald fréttabannsins á sókn herja Montgomery. Japanar birta fregnir af landgöngu Bandaríkjamanna á Okinava í Ruviku-klasanum. DAGUR XXVIII. arg. Akureyri, fimmtudaginn 5. apríl 1945 14. tbl. Íslendingum var ekki boðið lil San Fransisco ráðstefnunnar Fjárhagsáætlun Akureyrarkaupstaðar fyrir árið 1945. Hæstu niðurstöðutölur í sögu bæjarins. pjÁRHAGSÁÆTLUN kaup-' staðarins var vísað til 2. um- ræðu á síðasta bæjarstjórnar- fundi.og verður hún væntanlega afgreidd á næsta fundi. Niður- stöðutölur áætlunarinnar eru þær hæstu í sögu bæjarins, eða kr. 3.264.160. Árið 1944 var þessi tala kr. 2.580.900. Útsvörin eru áætluð kr. 2.287.160, og er það rösklega 15% hærri upphæð^ en í fyfra, en útsvörin þá lækk-, uðu um 10% l’rá því sem var 1943. Þessi hækkun á útsvorun-; um í Heild mun þó ekki þýða ' sömu hlutfallshækkún á útsvör-' um einstaklinga, Jrví að gjald-J endunr hefir fjölgað. Hækkunin stafar af auknum útgjöldum bæjarins, bæði vegna framlaga til opinberra framkvæmda og auk- ins reksturskostnaðar. Reksturs- ‘kostnaðurinn hefir aðallega aukizt vegna Irreytinga á launa- kjörum starfsmanna í samræmi við þá allsherjar breytingu, senr Lúðrasveit Akureyrar hefur fengið ný hljóðfæri frá Ameríku . -------♦- Reykvískir listamenn halda hljómleika hér í vor og sumar. Á Skírdag buðu Lúðrasveit Akureyrar og Tónlistarfélag Ak- ureyrar bæjarstjórninni og fréttamönnum til kaffidrykkju að Hótel KEA. Tilefni boðsins var að sýna hin nýju hljóðfæri, senr Lúðrasveitin hefir nýlega fengið frá Ameríku<pg skýra frá fyrirætlunum Tónlistarfélagsins. Undir borðum fluttu Stefán Ág. Kristjánsson, form. Tónlistarfé- lagsins, ræðu og skýrði frá hljóð- færakaupunum og fyrirhuguð- um hljómleikum hér á Akureyri fyrir atbeina félagsins. Hin nýju hljóðfæri eru 19 talsins. Eru þau keypt frá Amer- íku fyrir milligöngu KEA og kostuðu röskar 17 þúsund kr. Hafa þau reynst ágætlega. Bæjar- sjóður helir styrkt kaupin með 10 þúsund kr. framlagi. Þá skýrði Stefán Ág. Krist- jánsson frá því, að ákveðið væri, að nokkrir Jrjóðkunnir lista- rnenn frá Reykjavík kæmu hing- að i vor og sumar og héldu hér hljómleika á vegum félagsins. Guðmundur Jónsson söngvari kemur hingað um mánaðamótin næstu og heldur hér hljómleika með aðstoð Fr. Weishappel. Páll ísólfsson kemur í maí og mun halda kirkjuhljómleika. Þá er ákveðið að 12 manna strengja- hljómsveit, undir stjórn dr. Ur- bantschitsch léiki mér fyrri hluta júnínránaðar. Aðrir ræðumenn voru Ólafur Tr. Ólafsson, framkvæmdastjóri Lúðrasveitarinnar og Steinn Steinsen, bæjarstjóri. Að lokum lék Lúðrasveitin, undir stjórn Jakobs Tryggvason- ar, nokkur lög. Tónlistarfélagið biður þess getið, að nýjir styrktarfélagar geti skráð sig í verzl. Ásbyrgi og bókaverzl. Eddu. orðið hefir á launum, eftir setn- ingu launalaga á Alþingi. Af framlögum til opinberra fram- kværnda má helzt nefna til spí- talans 150 þús., til Gagnfræða- skólans 230 þús., til Kvennaskól- ans 50 Jrús, og til Matthíasarbók- hlöðu 50 Jrús. Helztu tekjuliðir eru Jiessir: Skattar af fasteignum 199 þús., tekjur af fasteignum 97 þús., ýmsar tekjur, Jrar á meðal þátt- taka bæjarstofnana í rekstri kaupstaðarins og skattar af ríkis- verzlun 183 þús., framlag trygg- ingarstofnunar og jöfnunarsjóðs til örorkubóta 236 Jnis., hluti bæjarsjóðs af stríðsgróðaskatti 70 þús., skattur af kvikmynda- húsum 13 þús. og útsvör 2.287. 160. Gjaldamegin eru þetta helztu liðirnir: Vextir og afborganir af föst- um lánum 56 þús.'; stjórn kaup- staðarins 197 þús., löggæzla 99 þús., heilbrigðisráðstafanir 31 þús., þrifnaður 110 þús., vegir og bygginganrál 203 þús., til nýrra vega 300 þús., kostnaður (Framhald á 8. síðu). — Upplýsingar brezks blaðs. — Það var New York Times.sem upplýsti, að Rússar hefðu beitt sér fyrir kröfunni um stríðsyfirlýsingu. I London Times 7. marz sl. er skýrt frá boði stórve'ldanna Jn iggja til San Fransisco-ráðstefnunnar, senr hefjast á 25. Jr. m. Eru þar taldar upp 45 Jijóðir, sem taldar eru „hæfar“ til þátttöku og er ISLAND EKKI Á MEÐAL ÞEIRRA. Er þar með ljóstaðuppleynd islenzku ríkisstjórnarinnar um Jietta abriði, en frá henni hefir ekk- ci’t heyrzt, hvorki um þetta atriði né stríðsyfirlýsingarmálið fræga. Verður þó vai'la sagt, að ríkisstjóirnlin sé spör á birtingar fréttatil- kynninga, jafnvel um hina ómerkilegustu hluti. Verður skortur á útsæði í vor? Blaðið hefur komið að máli við Edwald Malmquist, garð- yrkjuráðunaut bæjarins, og spurst fyrir um útlit með nægi- legt útsæði til kartöflusáningar á þessu vori. ,,Það er mikill hörgull á útsæðiskartöflum,“ sagði Malmquist, ,,en hins vegar eru erlendar kartöflur væntan- legar til landsins um næstu mán- aðarmót. Verða það bæði matar- og útsæðiskartöflur. Nokkur hætta er á því, að þetta útsæði komi ekki nægilega snemma hingað norður til þess að það verði nothæft til annars en mat- ar. Með tilliti til þess væri mjög æskilegt, að þeir sem nú eiga kartöflur, sem hæfar eru til út- sæðis, notuðu þær ekki til mat- ar heldur létu þær af hendi við Jrá, sem skortir útsæði. Matar- kartöflur verður áreiðanlega hægt að fá. Ég er fús til að vera milligöngumaður með þetta og vona að menn skilji nauðsyn þessa og bregðist vel við." Hinn 1. marz var skýrt frá því hér í blaðinu, samkvæmt brezk- um og amerískum útvarpsfregn- um, að íslenzku ríkisstjórninni hefði borizt orðsending frá Krím-ráðstefnunni, þess elnis, að íslendingar mundu fá sæti á San Fransisco-ráðstefnunni, ef þeir yrðu búnir að segja iýlöndul- veldunum stríð á hendur fyrir 1. marz. Jafnframt. var Jiess getið, að amerísk blöð teldu kröfuna um þessi skilyiði komna frá Rússum. Þessi blöð hafa nú bor- izt hingað til lands og hefir fregn Dags um þetta Jrar með verið staðfest. Frá þessu er greint m. a. í stórblaðinu New York Times frá 25. febrúar. Segir þar, að fram hafi komið á ráðstefnu Ameríkuríkjanna í Mexico, að krafan um stríðsþátttöku ýmsra þjóða, áður en Jneim væri boðið til San Fransisco, liafi komið frá Rússum. Þessar upplýsingar taka af allan efa um það, hver hafi verið afs.taða kommúnistanna hér til Jressa stríðsyfirlýsingar- máls. Blöð Framsóknarflokksins hafa haldið því fram, að komrn- únistar hafi viljað gera ísland að stríðsaðila. Til þess að fá fulln- aðarsönnun í málinu hefir þess verið krafizt, að öll gögn Jrví við- víkjandi verði birt almenningi. Fyrir atbeina kommúnista í rík- isstjórninni hefir það ekki verið gert, en í krafti þeirrar ósvífnu leyndar, sem stjórnin hefir spunnið um málið, afneita þeir afstöðu sinni og þora ekki við hana að kannast. En saga konnnúnista í utan- ríkismálum er slík, að ekki Jrarf lengur að „dæma þá eftir líkum“ í Jressu máli, jafnvel Jrótt þeim takizt að halda gögnum málsins leyndurn enn um hríð. Afstaða þeirra í þessu máli markast af undirlægjuhættinuín við Rússa. Þetta er engin nýjung um stefnu þeirra í utanríkismálum. Meðan griðasáttmáli Rússa og Þjóð- verja var í gildi nefndu þeir styrjöldina milli vestrænu lýð ræðisríkjanna og nazistanna „auðvaldsstríð". — í nóvember 1939 gerði formaður flokksins, núverandi menntamálaráðherra, þessa grein fyrir hinum stríðandi aðilum: ,,Þó að þýzki nazisminn sé erkióvinurinn á núverandi tímabili, má ekki gleyma hinu, að brezka auðvaldið er sterkasti óvinurinn.“ Þegar setuliðsvinnan hófst hér á landi fjandsköpuðust kommún- istar við því. „Ekkert handtak sem unnið er fyrir hinn brezka innrásarher, er þjóðinni í hag, þvert á móti, þau eru henni öll í óhag“, skrifaði ritstj. Þjóðvilj- ans 31. jan. 1941. Þá var þýzk- rússneski sáttmálinn enn í gildi. Bretar stóðu einir í baráttunni við nazismann. í siglingamálum íslendinga markaðist stefna kommúnjsta af þýzk-rússneska sáttmálanum. Þá fjandsköpuðust þeir við flutningi á íslenzkum matvælum til hinnar stríðandi brezku þjóð- ar. Hinn 18. marz birti Þjóðvilj- inn svohljóðandi fyrirsögn: Þjóðin heimtar að Englandslerð- um togaranna sé hætt. í næstu blöðum Þjóðviljans var því hald ið fram, að senda ætti íslenzk fiskiskip til Newfoundlands og gera Jrau út þaðan. Einn komm- únisti lagði þá til í Þjóðviljan- um, að Rússum yrði sendur fisk- urinn, enda mundu Þjóðverjar óðara leyfa það í krafti vináttu- sáttmálans. Þegar herverndarsáttmálinn við Bandaríkin var á döfinni og fyrir dyrum stóð, að ísland yrði ein hin þýðingarmesta hernaðar- stöð í orrustunni um Atlantshaf- ið, fjandsköpuðust kommúnistar gegn Jrví að sú aðstaða yrði veitt og greiddu loks atkvæði gegn sáttmálanum á þingi. Á því saina þingi vildu þeir að Rússar vrðu beðnir um að taka ábyrgð á sjáll- stæði íslands og hafa síðan klifað á nauðsyn þess í tíma og ótíma. Sú ábyrgð mundi hafa leitt til Jress, að Rússar hefðu fengið hér hernaðarbækistöðvar. Það er óþarfi að taka það. fram, að mál- gagn kommúnista hér var í öllu á sömu „linu“ og móðurskipið í Reykjavík. (Framhald á 8. síðu).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.