Dagur - 06.09.1945, Blaðsíða 8

Dagur - 06.09.1945, Blaðsíða 8
8 Úr bæ og byggð KIRKJAN. Guðsþjónusta í Akureyrarkirkju næstk. sunnud. kl. 11 f. h. Próf. theol. Ásmundur Guðmundsson prédikar. Sigur- geir Sigurðsson, biskup og Frið- rik J. Rafnar, vígslubiskup, þjóna fyrir altari. I. O. O. F. = 126978V2 Frá M. A. Inntökupróf í I. bekk Menntaskólans hefjast seint í þessum mánuði. Ennþá er rúm fyrir nokkra nemendur. Frá barnaskólanum. Öll 13 ára börn, sem eiga að taka fullnaðarpróf psesta vor, eru beðin að maeta til sundnáms kl. 10—12 f. h. sömu daga og sl. vor. Látin er hér í bænum frú Þorgerð- ur Helgadóttir, kona Jakobs Jakobs- sonar, skipstjóra, Aðalstræti 42. KvenfélagiS Hlíí hefur hlutaveltu í Samkomuhúsi bæjarins, n. k. sunnu- dag kl. 4 e. h. Margt góðra muna. Norski sendiherrann hér, Torgeir Anderssen-Rysst, hafði hádegisverð- arboð að Hótel KEA sl. fimmtudag fyrir bæjarstjómina, blaðamenn og ýmsa fleíri gesti. Norski vísikonsúll inn hér, J. Jentoft lndbjör fram- kvæmdastjóri, setti hófið og kynnti gestina. í ræðu, sem sendiherrann flutti, færði hann Akureyri kveðju frá Álasundsbæ í Noregi, og þakkaði fyrir 20 þúsund króna gjöfina, sem Akur- eyrarkaupstaður sendi þessum norska bæ. Var það gert í þakklætisskyni fyr- ir drengilega hjálp Álasundsbúa við Akureyri eftir brunann mikla 1906. Jafnframt þakkaði sendiherrann drengilega þátttöku Akureyringa Noregssöfnuninni að öðru leyti og vingjarnlegar móttökur norsks flótta- fólks, sem hér hefir dvalið. Ræða sendiherrans var einkar hlýleg í garð íslands og sérstaklega í garð þessa bæjar og héraðs. Þorsteinn M. Jóns- son, skólastjóri, forseti bæjarstjómar- innar, svaraði af hálfu bæjarins og flutti skörulegt minni Noregs og þakkaði hlýhuginn í garð Akureyrar og þjóðarinnar allrar. Hóf þetta var í alla staði myndar- legt og ánægjulegt. Peningaveski tapaðist sl. laugardagskvöld ein- hvers staðar á leiðinni frá Akur- eyri að Varmahlíð. Finnandi góð fúslega beðinn að, gera aðvart á afgreiðslu Dags. Góð fundarlaunl Iðnnám. Reglusamur piltur, ekki yngri en 16 ára, getur komizt að við iðnnám. — Létt og hreinleg vinna. Góð kjör. — Upplýsing- ar í síma 408. Nokkrar stúlkur vanar karlmannafata- eða kápusaum, geta fengið at- vinnu á saumastofu vorri nú þegar. Nánari upplýsingar gefur Ólafur Daníelsson, klæðskerameistari, eða i síma 305. Saumastofa Gefjunar. Til sölu: 30 hæns, kr. 15 st. 100 þvegnir léreftspokar, 2,50. A. SCHIÖTH KYR TIL SOLU í Þverárdal, Húnavatnssýslu, Upplýsingar hjá Valdemar Baldvinssyni, KEA, ' 8 AGIJR Almennur kirkjufundur á Akureyri dagana 9.-11. september n. k. Umræður um kirkju- og safnaðarlíf Fyrir frumkvæði Gísla Sveins- sonar sýslumanns aðallega, og með aðstoð ýmsra mætra manna, var fyrir 12 árum síðan boðað til hins fyrsta Almenna Kirkju- fundar í Reykjavík. Mættu þar allflestir prestar landsins og kjörnir fulltrúar frá flestum söfnuðum. Hafa fundir þessir síðan verið lialdnir annað hvort ár, alltaf á Suðurlandi, þangað til nú, að stofnað er til hans hér á Akureyri. Hefst hann með guðs- þjónustu í Akureyrarkirkju, sunnudaginn 9. sept kl. 11 f. h. Prédikar þar próf. theol. Ás- mundur Guðmundsson, en fyrir altari þjóna þeir Dr. Sigurgeir Sigurðsson biskup og Friðrik J. Rafnar vígslubiskup. Síðan verð- ur dagskráin á þessa leið: Sunnudaginn 9 sept.: Kl. 2 e. h.: Kirkjufundurinn settur í hátíðasal Menntaskólans. Gísli Sveinsson flytur ávarp. Sálmur sung- inn fyrir og eftir. — Miðstöð kirkju- lefjs menningarstarfs á Islandi. Fram- sögum.: Sigurgeir Sigurðsson biskup og Valdemar Snævarr fyrrv. skólastj. Kl. 8,30 e. h.: Erindi um kirkjur. (Gísli Sveinsson). Mánudaéinn 10. sept.: t Kl. 9,30 f. h.: Morgunbænir (séra Árni Sigurðsson). — Umræður um fundarmál. Kl. 1,30 e. h.: Frumy, milliþinéa- nefndar í skólamálum um barna- fræðslu oé éaéníræðanám. Framsögu- maður: Ásm. Guðmundsson. — Aukið starf presta i fámennum prestaköllum. Framsögum.: séra Gísli Brynjólfsson. Kl. 5 e. h.: Framhaldsumræður. Kl. 8,3Ó e. h.: Erindi: Tímamót (séra Friðrik A. Friðriksson, prófast- ur). Sálmur fyrir og eftir. Þriðjudaéinn 11. sept.: Kl. 9,30 f. h.: Morgunbænir. Kl. 10 f. h.: A) Framhaldsumræður. — B) Aldarafmæli Prestaskólans). — C) Önnur mál. Kl. 2 e. h.: A) Viðhorf kirkjunnar í herteknu löndunum 'séra Sigurbj. Á. Gíslason). — B) Leikmannastarfsemi (séra Óskar Þorláksson). — C) Safn- aðarlíf (Jón H. Þorbergsson). — D) Önnur mál. Kl. 5 e. h.: Framhald fundarstarfa. Kl. 6 e. h.: Fundarlok. Fundirnir verða haldnir x hátíðasal Menntaskólans. Vaxandi fjármálaspilling og siðleysi (Framhald af 1. síðu). j A. Claessen höfðu báðir verið'í sendiförinni góðu til Svíþjóðar. Þetta nýja heildsölufyirrtæki meðmælabréf um innflutning á prentsmiðju fyrir Þjóðviljann. Innflutninginn skyldi S. Árnason & Co. annast (aðaleigandi Jó- hann Þ. Jósefsson). Meðmæla- bréfið var undirritað af Jóhanni Þ. Jósefssyni og Einari Olgeirs- syni. Stjórnarblöðin gátu þess há- stöfum, er fyrsta skipið á vegum Nýbyggingarráðs kom til lands- ins. Hins var ekki getið, að með- eigandi var Jóhann Þ. Jósefsson. Sömu blöð gátu um það, að smíði væri hafin á tankskipum í Svíþjóð fyrirmilligönguNýbygg- ingaráðs. Hins var ekki getið, að einn af helztu eigendum þess fyr- irtækis væri sendimaður ríkisins í Svíþjóð, Gunnar Guðjónsson, meðeigandi heildsölufyrirtækj- anna S. Árnason & Co. og Brynju. Ekkert af þessum atrið- um þótti stjórnarblöðunum þess vert að ræða, ekki einu sinni mál- gögnum „öreiganna", Verka- manninum og Þjóðviljanum. — Hinn 2. ágúst sl. var bent á það í forsíðugrein hér í blaðinu, að algjör þögn ríkti í öllum stjórn- arblöðunum um hneykslismál heildsalanna og helztu atriði þeirra umræðna, sem fram höfðu farið, voru enn rifjuð upp. Enn- þá var dauðaþögn. Stefán Jóhann vekur kommún- istana til lífsins. Um mánaðamótin síðustu var skrásett fyrirtæki nokkurt í Reykjavík (líklega 70. heildsal- an, sem þar rís upp á stríðsárun- um). Eigendur fyrirtækis þessa eru þeir Stefán Jóhann, alþm. og Haukur Claessen, sonur Arents Claessen, og að auki nokkrir Al- þýðuflokksbroddar á borð við prófessor Hagalín. Þeir Stefán og auglýsti, að það hefði einkaum- boð fyrir 50 þekkt fyrirtæki í Svíþjóð og við nánari eftir- ‘1 grennslun kom í ljós, að þessi 50 fyrirtæki verzla með meginið af þeim vörum, sem sendinefndin hafði samið við Svía um kaup á. Hér virtist vera á ferðinni stór- kostlegra mál, eai áður var frá greint um ísskáþa- og rafmagns- vöruumboð Claessens, en eðlis- munur var þó enginn. En nú brá svo við, er Stefán Jóhann Al- þýðuflokksformaður var orðinn aðili, að kommúnistablöðin vöknuðu til lífsins og þóttust liafa orðið vör við stórkostlega spillingu í þjóðfélaginu! Og nú stendur yfir hörð rimma milli stjórnarblaðanna, Alþýðubl. og Þjóðviljans, út af þessu máli, því að Alþýðubl. hefir þegar dæmt Stefán Jóhann sýknan af öllum ósóma í sambandi við þessa nafn- toguðu Svíþjóðarför hans, en Stefán dvelur nú utanlands í þriðju Norðurlandaförinni á sumrinu. Nú er mönnum spurn: Hefðu kommúnistablöðin orðið svo æf, ef Stefán Jóhann hefði ekki verið með í taflinu, lieldur eingöngu einlægir stjórnarsinnar á borð við Jóhann Þ. Jósefsson, Gunnar Guðjónsson, Claessen, og aðra slíka? Hlífiskjöldur kommúnista og Sjálfstæðismanna. Menn geta svarað þeirri spurn- ingu ^jálfir með því að hugleiða röggsemi kommúnistablaðanna í þeim hneykslismálum, sem hér er drepið á að framan. Þá væri ekki úr vegi að menn gerðu sér ofurlitla grein fyrir því hvar „gömlu, góðu“ heildsalamálin eru nú á vegi stödd. Eins og menn muna varð uppvíst um stórkostleg verðlagsbrot ýmsra reykvískra heildverzlana skömmu eftir valdatöku núver- andi stjórnar. Þegar frá er talin réttarsættin góða í máli S. Árna- son & Co. hefir verið næsta hljótt um þau síðan. Almenningur hef- ir undrast þá þögn, sem ríkt hef- ir um þessi mál í blöðum stjórn- arinnar. Einn af lesendum Þjóð- viljans sendi • nýlega fyrir- spurn um það, hvað málunum liði, enda væri þögn stjórnar- blaðsins farin að vekja mikla furðu meðal verkamanna. Þjóð- viljinn svaraði þessari fyrirspurn með' smáklausu og var þar ekki vikið einu orði að því, að nauð- syn væri, að „róta upp í málinu“ eins og fyrirspyrjandinn hafði talað um, heldur var þess eins getið, að málið væri í endurskoð- un hjá málaflutningsmanni kommúnistaflokksins, Ragnari Ólafssyni, „og mundi hljóta sömu meðferð og önnur slík mál og ganga í dóm á sínum tíma.“ — Möguleikar á fleiri réttarsættum fyrir náð stjórnarinnar voru ekki nefndir. Þetta var allt og sumt, er Þjóðviljinn hafði að segja um heildsalamálin, þangað til Stefán Jóhann kom til skjalanna. En þó að Joessi klausa blaðsins væri ekki löng né merkil'eg, gaf hún þó nokkru hugmynd um það, hvernig að heildsölunum er bú- ið, fyrir utan það, að hin ákærðu fyrirtæki stunda verzlunina af mesta kappi, líklega með sæmi- legum hagnaði, og virðast ekki vera í hraki með innflutning. Málaflutningsmaður kommún- ista hefur málið til endurskoð- unar og hraðar þeim ekkert, enda er hann í alls konar snatt- ferðum fyrir kommúnistaflokk- inn, varði t. d. kaupfélagsmál þeirra í Siglufirði á dögunum o. s. frv. Ólíklegt er, að íhaldið í Reykjavík reki á eftir. Þannig liafa valdamestu flokk- ar stjórnarinnar, sameiginlegan Fimmtud. 6. sept. 1945 NÝJA-BÍÓ 1 í kvöld kl. 9: Draumurinn hans Jóa (Amerísk söngvamynd) Föstudagskvöld kl. 9: Tunglskinsnætur Mánudagskvöld kl. 9: Ofsóttur . með JOHN GARFIELD 'og MAUREEN O’HARA j í aðalltlutverkum. Herbergi. Ungan mann, í góðri stöðu, vantar rúmgott herbergi. — Tilboð sendist blaðinu fyrir mánudagskvöld n. k. merkt: Reglusamur. Barnavagn til sölu á Hólabraut 13 (Zíon). STULKUR! Ein eða tvær stúlkur, eða kona eitthvað vön hjúkrun; og unglingsstúlka, óskast í vetur. STEFÁN JÓNSSON, Skjaldarvík. Símastöð. Ung kýr til sölu. HARALDUR DAVÍÐSSON, Stóru-Hámundarstöðum. Unglingsstúlka óskast til að gæta barns. Uppl.-á afgr. blaðsins. Steinway-píanó Nokkur stykki nýkomin. Upplýsingar í Nýlendu- vörudeildinni. < Kaupfélag Eyfirðinga. hlífiskjöld yfir heildsölunum. Blöðin þegja, en valdamenn stjórnarflokkanna geyma málin vel og vandlega og láta fyrnast yfir þau. Gólfklútar enskir — Verð kr. 2.70 Brauns Verzlun Páll Sigurgeirsson. HlllllllllllllllllllllllllllllllllllltMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIItlllllllllllllllllllllMIIIIMIIItllllllllllMlltllltlllllMIMM||k | Nokkur Teikniahöld (Bestik) seljum við með kostnaðarverði í dag og næstu daga. Höfum einnig fengið Teiknitó, mjög vönduð, Reiknings- stokka, Vatnslitakassa, stóra og vandaða, Gatara, Laus- blaðamöppur, Kaffiserviettur, mislitar, Bréfsefnamöppur \ og Skólavörur ýmis konar. Hvergi meira úrval af Sjálfblekungum, Parker 51, Water- I man's og Eversharp, allir með æviábyrgð. B ÓK [ Sími 444 Sími 444 • MilllllllllllHllMlllii|lliilHII|HIIMllillli|i|tlt|i!Ulii|tMt(iMlflilH||MII1tl!lltHMIIMIMMItniMt|ll|IMIMIIHMHMIIIfllMllllM|HHI|lf IMtMtMtlimiltmHHIMIIItlltlltMMtlMIIIIMIIMMIIIIIIIIIIIIIIItl 1111111*11111

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.