Dagur - 08.11.1945, Blaðsíða 1

Dagur - 08.11.1945, Blaðsíða 1
Menntaskólinn á Ak- ureyri settur Skólameistari ræðir um áfengismál Formleg skólasetning Mennta- skólans fór frarn í hátíðasal skól- ans sl. sunnudag. Skólinn hóf starf á tilsettum tíma í haust, en skólasetningunni var þá frestað sökum þess, að skólameistari var fjarverandi um þær mundir. Dvaldi hann í Reykjavík til þess 'að vinna að ráðningu kennara hingað. Við skólasetninguna á sunnu- daginn var- fjölmenni saman komið í hátíðasalnum. Skóla- meistari, Sig. Guðmundsson, gat fyrst um þær breytingar, er orð- ið hafa á kennaraliði skólans, og hefir þeirra áður verið getið hér í blaðinu. Að því loknu flutti hann merkilega ræðu um áfengis- nautn þjóðarinnar. Lýsti hann ofnautn áfengis, sem sjúklegu fyrirbæri og rakti orsakir þess, að menn drekka frá sér vit og rænu. Meginástæðu ofdrykkj- unnar taldi hann lífshatur og hugleysi og vitnaði í því sam- bandi í niðurstöður nútíma sál- fræðinga. Einnig taldi hann mjög skorta á, að almennings- álitið væri nægilega harður dóm- stóll gagnvart þeim mönnum, er í ölæði brjóta almennar velsæm- isreglur. Skólameistari lét svo ummælt, að hann væri ekki bannmaður og hefði enga tilhneigingu til þess að ræða rnálið einhliða. Hófiega drukkið vín gæti glatt hjarta mannsins, en ekki væri á færi annarra en fullþroskaðra og sjálfstæðra manna, að urngang- ast Bakkus, sem væri öfganna guð. Þess vegna þyrfti meðal annars að taka áfengisnautn unglinga öðrum tökum en drykkjuskap fullorðinna. Skólameistari taldi, að bjarg- ráðið í þessu efni væri aukin trú á gildi lífsins og á það, sem gott er og fagurt, og aukin virðing fyrir persónuleika mannsins og helgi sálar hans. KENNARAR KEPPA í KNATTSPYRNU Skólastjórar í marki! Ráðgert er, að knattspyrnu- kappleikur fari hér fram næsta i sunnudag — ef veður og færi leyfa — milli kennara Barna- skóla Ak. og liðs úr hópi kenn- ara Gagnfræðaskólans og Iðn- skólans sameiginlega. Skólastjór- ar verða í marki. í hvoru liði er kappaval mikið og má því búast við nrjög skemmtilegum leik. Leiktími er 40 mínútur. Þess var óskað að kennarar Menntaskólans tækju þátt í keppninni — þriðja lið — en því miður töldu þeir sér ekki fært að vera með. Fé því, sem inn kemur, á að verja til stuðning mikilsverðrar framkvæmdar til almennings- heilla: skólaheimili fyrir vand- ræðabörn. Hér er ekki rúm til (Framhald á 8. slðu), DAGUR XXVIII. arg- Akureyri fimmtudaginn 8. nóvember 1945 FRÁ BÆJARSTJÓRN: Áfengisútsölunni verði lokað, ef rík- isstjórnin fækkar lögregluþjónum Ríkisstjórnin hefir sagt fjórum lögreglu- þjónum upp störfum frá næstu áramótum Ríkisstjórnin liefir sagt upp störfum þeim l jórum higregluþjón- um, er bætt var við lögregluliðið hér árið 1940, frá áramótum að telja. Mál þetta hefir að undanförnu verið rætt í fjárhagsnefnd kaupstaðarins og í fyrradag var málið ádagskrábæjarstjórnarinnar. Kom í ljós, að bæjarstjórnin er algjörlega andviíg því, að lögreglu- mönnum sé fækkað meðan ástandið í áfengismálum er óbreytt. Mun bæjarstjórnin krefjast þess, að áfengisútsölunni hér verði lokað, ef ríkisstjórnin heldur fast við þá ákvörðun, að fækka lög- regluþjónum. SAMVINNULEIÐTOGI Bæjarstjórnin samþykkti svo- fellda ályktun frá fjárhagsnefnd- inni: „Þegar setuliðið kom til Akur- eyrar var lögregluliðinu fjölgað um 4 menn, sem ríkissjóður launaði. Þann tíma var áfengis- útsalan lengst af lokuð. Þessum 4 lögregluþjónum hefir ríkis- stjórnin nú sagt upp störfum frá næstu áramótum. Það er skoðun margra borgara og. þeirra, sem til þekkja, að mest af störfum lögreglunnar sé unnið í þágu ríkisins, enda ræð- ur stjórn kaupstaðarins svo að segja engu um störf lögreglunn- ar, og hin mikla þörf fyrir lög- reglumenn er fyrst og fremst vegna áfengisneyzlunnar og af- leiðinga hennar. Yfirlögregluþjónninn, framvegis eins og að undanförnu laun fjögra lögreglumanna, en Akureyrarbær haldi áfram að greiða öðrum fjórum. Verði rík- issjóður ekki við þessari beiðni, gerir bæjarstjórn kröfu til, að áfengisútsölunni hér verði lok- að, svo fækka megi lögreglunni". Undir þetta álit bæjarstjórn- arinnar mun allur þorri borgar- anna vilja taka. Niðurjöfnunarnefnd kosin menn: Dr. Kristinn Fómas Björns- Á bæjarstjórnarfundi í fyrra- dag var kosið í niðurjöfnunar- nefnd kaupstaðarins og var nefndin frá í fyrra endurkosin. í yón henni eiga sæti, auk bæjarstjór- Benediktsson, segir meðal ann- ans> þessir ars í álitsgerð sinni, dags. 28. okt. Gttðmundsson, þ. á.: Þótt erlenda setuliðið son, Áskell Snorrason og Hall- skapaði lögreglunni áhyggjur og dór Friðjónsson. Varamenn eru: erfiði, þá var slíkt smáræði í j Brynjólfur Sveinsson, Erlingur samanburði við þá spillingu og, Friðjónsson, Eyjólfur Árnason áhyggjur, sem áfengisflóðið Jahob O. Pétursson. skapar, enda hefir það komið fyrir að hátt á annan tug manna hafa verið sektaðir hér fyrir einnar nætur afglöp í ölvunar- ástandi, og sala áfengis kvað hafa komizt upp í fimmtán þúsund krónur á klukkustund hér í út- sölunni". Ennfremur segir hann: ,,— að ölvun og næturslark, sem fylgi í kjölfar áfengisútsölunnar, bindi að minnsta kosti helming lögreglunnar við störf á kvöldin og nóttunni".. — Hér mun rétt frá skýrt, og er því ekki hægt að'fækka lögreglu- þjónum, enda er áfengissal.an í fullum gangi. Hins vegar er það kunnugt, að í ríkissjóð renna tekjurnar af áfengissölunni og virðist því ekki ósanngjarnt, að ríkissjóður launi þessa lögreglu- menn, sem þörf er á eingöngu vegna óreglu, er stafar af áijeng- isútsölu ríkisins. Leggur fjárhagsnefnd því til; að bæjarstjórn ákveði að fara þess á leit að ríkissjóður greiði Aðalfundur „Þórsu skor- ar á bæjarstjórnina að hraða stofnun íþrótta- svæðis íþróttafélagið Þór hélt aðal- fund sinn að Hótel KEA fyrra miðvikudag. Félagið varð 30 ára sl. sumar og var þess minnzt með afmælismóti í júní, svo sem greint var frá hér í blaðinu á sínum tíma. Mikið fjör hefir verið í starfi félagsins á liðnu starfsári og hefir íþróttahúsið átt mikinn þátt í að efla íþrótta- lífið. Á aðalfundinum var rætt um fyrirhugað íþróttasvæði á Akur- Dagur ílytur að þessu sinrii mynd af aðalleiðtoga brezka samvinnumanna- flokksins á þingi. Er það A. V. Alex- ander flotamálaráðherra. Hann hefir alla tíð verið kjörinn af samvinnu- mönnum, sem hafa verið i kosninga- bandalagi við Verkamannaflokkinn. Þingmenn samvinnumanna hafa notið aðstoðar Verkamannaffokksins til þess að forða samvinnufélögunum frá skattaofsóknum íhalds og auðkýfinga. 44. tbl. Akureyrarbær kaupir málverk af Oddi Rjörns- syni, prentmeistara Á fundi bæjarstjórnarinnar í fyrradag var samþykkt, að kaupa málverk af Oddi heitnum Björnssyni préntmeistara, er Freymóður Jóhannsson listmál- ari hefir boðið bænum til kaups. Ætlast bæjarstjórnin til, að mál- verkið verði geymt í fyrirhug- uðu bókasafni bæjarins. Málvert þetta var á sýningu Freymóðs hér í bænum, fyrir nokkrum ár- um, og munu margir bæjarbúar muna eftir því. . Fundur um áfengismál Þingstéika Akureyrarumdæm- isgengst fyrir fundi um áfengis- mál í kirkjukapellunni næstk. mánudagskvöld kl. 8.30 e. h. — Verður þar rætt um ástandið í þessum málum óg tekin ákvörð- un um, hvort boða skuli til al- menns borgarafundar, til þess að ræða þessi efni. Bæjarstjórn Ak- ureyrar var boðið að senda full- trúa á fundinn, og var Jakob Frí- mannsson framkv.stj. kjörinn til þess á bæjarstjórnarfundinum í fyrradag. Stofnun tónlistarskóla hér á Akureyri er „skemmtilegt viðfangsefni' »Ff Skortur á hljóðfærum í heimahúsum er þrándur í götu f jölhreytts tónlistarlífs Samtal við frk. Margréti Eiríksdóttur píanóleikara um dvöl hennar meðal brezkra listamanna og fyrir- hugað starf hennar hér Fyrir nokkrum dögum átti eg stutt samtal við unga, ljóshærða og hljóðláta stúlku, sem er ný- konrin hingað heim eftir mai'gra ára dvöl í Lundúnum og ætlar nú að setjast að hér á meðal okk- ar og kenna börnum okkar að leika á píanó og opna augu þeirra fyrir yndi klassiskrar tón- listar. Þetta er frk. Margrét Ei- ríksdóttir, píanóleikari. Hún brosti þegar eg benti henni á erfiðleikana, sem hljóta að verða samfara því, að hefia slíkt braut- ryðjendastarf hér, og sagði að ef áhuginn og viljinn hjá fólkinu væri nógur, væri öllu óhætt. Eg geri ráð fyrir, að lesendur Dags hafi gaman af að kynnast eyri og ríkti mikil óánægja út af þér ofurlítið, fyrst þú ert ákveð- þeim töfum, sem orðnar eru á in að koma hingað. Viltu ekki endanlegum ákvörðunum um ,ce?ja okkur eitthvað af dvöl (FramhalcJ á 8. síðu), Jiinni í Bretlandi? — Það er svo sem sjálfsagt, en raunar er ekki frá miklu að segja. Eg er búin að dvelja við nám í Englandi nærri því sex ár, þar af þrjú síðustu árin — eða þar til fyrir þremur vikurn síðan — samfleytt í London. Eg byrj- aði að læra hjá Lamond, Beet- hovenleikaranum fræga, í Glas- gow, en mér féll ekki alls kostar vistin þar og afréð því að fara til London og þar hefi eg dvalið síðan, aðallega hjá The Royal College of Music. Kennari minn þar hin síðari ár hefir verið frk. Kathleen Long, sem er einn af kunnustu píanóleikurum og músíktúlkendur Bretlands. — Og nú er námstímanum lokið? — Námstímanum verður nú raunar aldrei lokið. Alltaf er (Framhald á 8, síðu).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.