Dagur - 07.02.1946, Blaðsíða 5
Fimtudaginn 31. janúar 1946
DACUR
5
Ari Jónsson,
bóndi á Þverá
Hinn 24. janúar síðastliðinn
andaðisl í Sjúkrahúsinu á Akur-
eyri, Ari Jónsson, bóndi á Þverá
í Eyjafirði, eftir langvinnan og
erfiðan sjúkdónr. Með fráfalli
hans er harmur kveðinn, ekki
aðeins að heimili hans, heldur
og byggðarlaginu öllu, því að
liann \ai maður óvenju vinsæll
og átti óskipt traust og hylli allra,
sem kynntust honum.
Hann var fæddur að Þverá á
Staða'byggð 12. júlí árið 1900,
sonur ]óns bónda þar Arasonar,
skálds í Víðigerði og konu hans:
Önnu Magnúsdóttur frá Kálf-
skinni, Flóventssonar. Höfðu
foreldrar hans hafið búskap á
Þverá, laust fyrir síðustu alda-
mót og bjuggu ])ar all blómlegu
búi á þessu fagra liöfuðbóli við
almenna virðingu nágranna
sinna. Jón var söngvinn nraður
og drengur hinn bezti, en andað-
ist á iniðjum aldri, að áliðnu
sumri 1911, frá nokkrum börn-
um í æsku. Bjó þá ekkjan nokk-
ur ár með ráðsmanni á jörðinni,
þangað til Ari óx upp, svo að
hann gæti tekið við búsforráðum
með hcnni. Um það leyti giftist
Þóra, elzta systirin, Árna Jóhann-
essyni, nú oddvita á Þverá, og
hófu þau búskap á hluta af jörð-
inni, að nokkru leyti í samvinnu
með fjölskyldunni. Var nú brátt
tekið til óspilltra málanna um
stórfelldar framkvæmdir, bæði í
húsabóuun og öðrum mann-
virkjum, meðal annars reist eitt
hið stærsta og glæsilegasta fhúð-
arhús hér um slóðir, enda er
Þverá nú bæði sökum staðhátta
og prýi. ilegustu umgengni utan-
bæjar sem innan, orðin eitt af
fegurs.u býlum þessarar sveitar.
Anna Magnúsdóttir var eins og
mörgum er kunnugt, mikil at-
orku- og skapfestukona og færð-
ist hún stöðugt í aukana við bú-
skapinn með ágætri samvinnu
barna sinna. Hún andaðist 4.
október 1940, og hefir Ari síðan
búið á iörðinni ásamt Rósu syst-
ur sini i móti mági sínum, og
hafa þau systkinin búið þar
rausnarbúi í sama horfi og áður.
Ari á Þverá var einkar laginn
og atoTkusamur bóndi, og stóð
framarlega meðal sveitunga sinna
um ýmsa nýbreytni 1 búskapn-
um. Heppnuðust honum slíkar
tilraunir flestum betur, vegna al-
úðar þeirrar og nákvæmni, sem
hann lagði í starfið. En þannig
var um alla hluti, er liann rétti
hendui að. Honum lék hvert
verk í höndum, og var reyndar
listasmiður að upplagi, og kom
sú listfengi hans í ljós í öllum
störfum hans, stórum og smáum.
F.n það, sem mest einkenndi
heimili hans, var fyrst og fremst
sú eindrægni, sem þar ríkti, og
sú hlýja og alúð, sem þar mætti
hverjum þeim, er að garði bar.
Ari gar verið manna glaðastur í
sínum hóp, kíminn og gaman-
samur, þegar svo bar undir, en
hin einstaka ljúfmennska hans,
samfara hógværð og yfirlætis-
leysi, ávann honum hvers manns
vinsældir, er hann hafði nokkuð
við að skipta. Lítt hafði hann sig
frammi til opinberra starfa, ög
olli j)ví bæði eðlisrunnin hlé-
drægni hans, svo og það, að hann
hafði jafnan ærin verkefni fyrir
höndum. Hann kunni jafnan
þeinr störfunum bezt, sem unnu
með gróðuröflunum og horfðu
til umbóta og fegurðarauka.
Jafngamall öldinni, var hann
einn af voryrkjumönnum byggð-
arlagsins, starfaði framarlega í
fylkingu þeirra, sem fundið hafa
gleði sína í því, að gera hina
fögru sveit enn fegurri, og vann
öll sín störf með hinum hljóð-
láta hætti gróandans.
Nú hefir sól brugðið sumri
fyrr en varði. Nri grúfir þögn yf-
ir Þvevárlandi .Vinir og vanda-
menn horf’a saknaðaraugum eft-
ir góðum dreng og hugþekkum
bróður, sem kvaddur er frá erfið-
inu, og genginn er úr leiknum á
bézta aldri.
En skarðið er opið og ófullt
eftir.
B. K.
Guðbjörn Björnsson
Einn af þeim mönnum er
settu svip á bæinn, er horfinn af
sjónarsviði jarðlífsins. Hann var
gæddur óvenjulegum vilja til
starfs á ýmsum sviðum. Hann
var lærður húsasmiður og var
annar yfirsmiður Samkomuhúss-
ins, jregar Templarar á Akureyri
létu bvggja það, og sýndi þá
þann stórhug, sem lengi mun í
minnuvn hafður í Jressum bæ og
víðar. Hann tók alla tíma mjög
mikinn jrátt í starfi Reglunnar
hér á landi og þó sérstaklega í
bænum. var einn af stofnendum
stúkunnar „Brynju" 4. júlí 1904
og hennar styrkasta stoð æ síðan,
og hefir stúkan misst mikið við
fráfall hans. F.innig var hann
einn af stofnendur Iðnaðar-
mannafélagsins og ágætur liðs-
maður jrar, mikils metinn í
Oddfellow-reglunni og góður
liðsmaður Verzlunarmannafé-
lagsins Hann var í Leikfélagi
Akureyrar og þó hann ekki
kæmi á senuna, sem leikari, var
hann ómetanlegur starfsmaður
félagsins ,enda hafði hann þá að-
stöðu lengi og nú síðast unr
margra ára skeið, sem umsjónar-
maður Samkomuhússins, að hann
gat hlúð að leikstarfseminni.
Hann rak lengi verzlun, bæði
hér-og í Siglufirði.
Guðbjörn var fæddur 24. júní
1878 og því rúmra 67 ára er
hann lézt, eftir stutta en þunga
legu á Sjúkrahúsi Akureyrar.
Hann var kvæntur Ölínu Óla-
dóttur, er lifir mann sinn ásamt
dóttur þeirra, ídu. ,
Þó að Guðbjörn tæki svo mik-
inn þátt í félagslífi, hugsaði
hann vel um heimili sitt, og ein
af síðustu framkvæmdum hans,
voru kaup efniviðar til eigin
húss, tr hann hugðist reisa á
næsta sumri. Og siðasta málið,
sem hann vann að fyrir Regl-
una, var stofnun Bíós Témjrlara
í Skjaldborg, sem taka mun til
starfa á þessum vetri.
Guðbjörn var kvaddur hinztu
Samstarf flokkanna
(Framhald af 1. aíðu).
Akureyringa gefinn kostur \ að
kaupa bæði skipin og bærinn og
stofr.anir hans auki þó hlutafjár-
framlag sitt upp í allt að 50%
gegn jafnháu framlagi frá bæjar-
búum.
Fáist það framlag ekki, yfir-
tekui bærinn kaup og rekstur
annars togarans.
Bæjarstjórn stuðli að þvi, að
höfð verði sameiginleg fram-
kvæmdastjórn beggja skipanna.
2. Að unnið verði að hafnargarðin-
um á Oddeyri og honum komið
svo langt á þessu ári, að þar
skapist aðstaða fyrir dráttar-
brautir, og unnið sé að því að
dráttarbraut komizt upp eins
fljótt og unnt er. Ennfremur sé
gerð gangskör að þvi að útvega
nauðsynlegar vinnuvélar til
framkvæmdanna og samið um
leigu á hentugu uppmokstur-
skipi. Fengið verði skipulag af
svæðinu sunnan Strandgötunnar.
3. Nú þegar verði hafinn undirbún-
ingur að stækkun Torfunefs-
bryggjunnar, svo að stór vöru-
flutningaskip geti fengið af-
greiðslu við hana, og stækkunin
verði framkvæmd jafnskjótt og
hægt er vegna dráttarbrautarinn-
ar. Unnið verði einnig að bygg-
ingu hafnarhúss með hæfilegum
vöruskemmum.
é. Tekin verði upp þegar í stað ná-
in samvinna við Nýbyggingarráð
og ríkisstjórn um, að Akureyrar-
bær hljóti verulegan hlut af iðn-
aðarnýsköpun ríkisins, svo sem
niðursuðuverksmiðju, áburðar-
verksmiðju og lýsisherzlustöð.
Verði niðursuðuverksmiðjan ekki
reist af ríkinu, vinni bæjarstjórn
að því ,að aðrir aðilar reisi slíka
verksmiðju hér.
5. Taki ríkið ekki að sér tunnu-
verksmiðju bæjarins, verði þeg-
ar í stað gerðar ráðstafanir til
kaupa á vélum og efni, svo
tunnusmíði geti hafizt ó næsta
hausti.
6. Framkvæmdar verði aðrar að-
gerðir til útrýmingar atvinnuleys-
inu eftir samkomulagi við flokk-
ana. ;
7. Meðan húsnæðisskortur er vinni
bærinn að því, að sem flestar
ibúðir verði byggðar árlega á
vegum Byggingarfélags Akureyr-
ar og samvinnubyggingarfélaga í
bænum, og verði væntanleg lög
um byggingarmál kaupstaðanna
samþykkt, láti bæjarstjórn
byggja 25 íbúðir á ári handa
þeim, sem ekki geta byggt yfir
sig sjálfir. Ef ekki verður af
framangreindri lagasetningu, láti
þó bærinn byggja ekki færri en
10 íbúðir árlega.
8. Hraðað verði byggingu sjúkra-
húss, svo sem framast er unnt.
9. Stækkun Laxárvirkjunarinnar
verði undirbúin og framkvæmd,
og rafveitukerfi bæjarins aukið
eftir þörfum.
10. Bærinn taki upp rekstur kvik-
kveðju í Skjaldborg 25. janúar
og lík hans borið þaðan aí félög-
um ,,Brynju“ og ,,ísafoldar“. Er
út kom té)k stjórn Leikfélagsins
við og bar hann að líkvágni.
Brynjungar báru hann frá lík-
vagni að kirkjndyrum, þar tóku
iðnaðarmenn við og báru í
kirkju. Oddfellowar stóðu lreið-
ursvörð í kirkju og báru Jraðan
út. 1 Skjaldborg flutti Brynleifur
Tobiasson kveðjuræðu og einnig
var jrar flutt kveðja frá „Brynju"
í ljóðum. af æðsta templar stúk-
unnar. Séra Friðrik Rafnar flutti
bæn í Skjaldborg og líkræðu í
kirkju.
Þeim, sem þekktu Guðbjörn
vel og störfuðu með honum, er
mikil eftirsjá að honum og
rnunu lengi minnast hans með
jrakklæti, vinarhug og virðingu.
Reglubróðir.
myndahúss ef hagkvæmt reynist
við rannsókn, og fái lög sam-
þykkt um eignarnám, ef nauðsyn
krefur.
11. Unnið verði að því að bærinn
kaupi Krossanesland og bær eða
riki kaupi verksmiðjuna þar, ef
eignir þessar fást við hagkvæmu
verði.
12. Hafinn verði undirbúningur að
byggingu barnaskóla á Oddeyr-
inni.
13. Unnið verði að því, að íþróttafé-
lögunum verði sem fyrst sköpuð
, góð aðstaða til iþróttaiðkana í
bænum.
14. Byggðar verði hentugar verbúðir
fyrir smóbótaútveg bæjarbúa á
góðum stað við höfnina.
15. Bæjarstjórn stuðli að því, að
Elliheimili komizt sem fyrst upp
í bænum.
16. Bæjarstjórn samþykki að kjósa
bæjarráð, er hafi með höndum
störf eftirtalinria nefnda: fjár-
hagsnefnd, vatnsveitunefnd,
veganefnd, jarðeignanefnd, sund-
nefnd, húseignanefnd, hitaveitu-
nefnd, allsherjarnefnd. Bæjarráð
skipi 4 aðalmenn og 4 varamenn,
allir kosnir innan bæjarstjórnar-
innar. Sé bæði aðalmaður og
varamaður forfallaður, geti flokk-
arnir látið varafulltrúa sína
mæta. Bæjarráð haldi fundi
reglulega einu sinni í viku og oft-
ar ef þörf krefur að dómi bæjar-
stjóra eða tveggja bæjarráðs-
manna. Bæjarráð sé kosið til
eins árs í senn.
Bæjarráðsfundur er lögmætur
séu minnst 3 bæjarráðsmenn
mættir. Laun bæjarráðsmanna
séu kr. 100.00 á mánuði að við-
bættri dýrtíðaruppbót.
Undirritaðir bæjarfulltrúar Alþýðu-
flokksins, Framsóknarflokksins, Sósí-
alistaflokksins og Sjálfstæðisflokks-
ins í bæjarstjórn Akureyrar, hafa
komið sér saman um framangreindan
málefnasamning, sem gildi yfirstand-
ndi kjörtímabil 1946—1950.
Akureyri 4. febrúar 1946.
(Undirskrift allra bæjarfulltrúanna).
l
Bæjaistiórinn.
Eins og sjá má af samningnum
er ekkert samið um bæjarstjóra-
kjörið. Framsóknarmenn féllust
á að styðja Stein Steinsen til end-
urkjörs, ásamt Sjálfstæðisflokkn-
úm, joar sem hann var tvímæla-
laust hæfastur umsækjendanna
um starlið. Horfir nú einnis
n
nokkuð öðruvísi um Jretta starf
en áður, þar sem samningur hef-
ir verið gerður um einstakar
framkvæmdir og nýtt skipulag
er komið á framkvæmdastjórn
bæjarins, jrar sem er hið nýstofn-
aða bæjarráð. Ennfremur er nú
ráðgert að ráða sérstakan bæjar-
verkfra-ðing. — Er aðstaða flokk-
anna til jiess að fylgjast með
framkvæmdum bæjarins í ein-
stökrum atriðum því önnur nú en
á liðnu kjörtímabili. Enginn
hinna flokkanna hafði neinn
ákveðinn ,.kandídat“ fram að
bera til starfsins og Framsóknar-
menn v’oru ófúsir að stuðla að
því að þetta mál yrði óleyst um
næstu fvamtíð.
Því hefir verið lýst áður hér í
blaðinu, að llokkurinn teldi
æskilegt að bærinn hefði ötulari
og áhrifameiri framkvæmda-
stjóra tn Stein Steinsen, þótt
hann sé óumdeilanlega sam-
vizkusamur embættismaður. Á
slíkum framkvæmdastjóra var
nú ekki völ. Flokkurinn mun
því styðja Stein Steinsen á Jressu
kjörtímabili til þess " að fram-
kvæma þá stefnuskrá, sem nú
liefir veiið samið um, og er þess
að vænta, að verkalýðsflokkarnir
báðir stuðli að því, að friður ríki
einnig um jrað starf, enda þótt
þeir hafi ekki gerzt stuðnings-
menn bæjarstjórans til endur-
kjörsins.
K VEN-ARMBANDSÚR
tapaðist sl. mánudag, frá Húsmæðra-
skólanum að Nýja-Bíó. Skilvís finn-
andi skili í Aðalstræti 4, gegn fund-
arlaunum.
j Hearth Club Gerduft
kaupa allar húsmæður
Verðið er nú:
5 lbs. baukur . kr. 9.00
24 oz. baukur .. . — 3.10
10 oz. baukur . — 1.30
I Þetta er lægra verð en annars staðar þekkist!
Nýienduvörudeild K.E.A. og útibú