Dagur - 07.02.1946, Page 6
6
D A G U R
Fimmtudaginn 7. febrúar 1946
BjHttHKKKKKKKHKKKKHKKKKKKKKKHKKHKKKKHKHKKKKHKKHKKKKHKKattHKKKKKKKKKKKKKBKKKKKKKKKKKKKKKKKKKHKKKKKKKKKKKKK^^
★ Ofar stjörnum ★
Saga eftir IIRSULU 1‘ARROTT
khkhkhkhkhkhkhkhkhkbw
lOtKHKHKHKHKHKHKHKHKKH
(Framhald).
svaraði henni svo ónærgætnislega. En nú blossaði hann upp aftur.
„Þú þarft ekki að vera með nein ólíkindi, því að þér er eins innan-
hrjósts eins og mér. Og þú hefir aldrei kysst neinar finnn þúsund
og tólf stúlkur. Ekki einu sinni tólf, það er eg viss um.“
,,Það er sjaldgæft, þegar fallegar stúlkur, eins og þú, eru jafn-
iiamt afburða gáfaðar og skarpskyggnar," sagði hann, stríðnislega.
,,Æi, hættu þessu," sagði hún. ,,Eg veit núna að þú ert ástfang-
inn.“
1 iann sagði ekkert, var alvarlegnr á svipinn. „Þá það,“ sagði hann
síðan. „En þú verðir búin að gleyma því á morgun, eins, og eg."
Gína lagði handlegginn um hálsinn á honum, Hann var svo
miklu iiærri en hún, að hann varð að beygja sig. En ef gamla konan
væri nú búin að borða brauðsneiðina og gæti athugað þau í mak-
indum?
„Hvaða vitleysa, Derek. Við elskum hvort annað. Við opinber-
um trúlofun okkar, giftum okkttr, eignumst börn og verðum ham-
ingjusöm alla ævi.“
Hann kyssti hana aftur og sagði síðan: „Þannig eltir hver atburð-
urinn annan í Ameríku, en þú gleymir því, Gína, að þetta er ekki
Ameríka.
Hún svaraði engu, en hjúfraði sig upp að honum.
Seinna um kvöldið gengu þau lieini á leið, og leiddust um göt-
urnar. Einhvers staðar, í öðru borgarhverfi, brunnu miklir eldar
eftir loftárásina og rauðum bjarma sló á himininn.
„Þetta verður allt saman gleymt á morgun, Gína," sagði hann.
„Eg vil ekki hafa þessar sífelldu úrtölur," sagði hún. „Komdu
með heim og eg skal lesta hnappinn í frakkann þinn.“ Hún vildi
gjarnan lengja samverustundirnar.
„Nei, þakka þér fyrir,“ svaraði hann. „Eigðu heldur hnappinn
til minningar um kvöldið."
Hún svaf það sem eftir var næturinnar með hnappinn í lófanum.
Ilún tók samanbrotið símskeyti og opnaði það.
EIEFI ORLOF FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG.
GETURÐU KOMID?
Frænkur hennar í London unnu við greiðasölu hermanna. Þann-
ig atvikaðist það, að Iöngu áður en faðir hennar kom heim frá ítal-
íu hafði hún gerzt sjálfboðaliði viðsömu störf.
Derek var um þessar mundir í flugsveit, sem hafði aðsetur í út,-
jaðri London og Jtess vegna var auðveldara fyrir hann að komast
inn í borgina en ferðast til Devonshire og þetta vissi Gína. Þess
vegna var henni svó mikið áhugamál að vera kyrr í London. En
hún fann líka ánægju í starfinu. Hún hafði aldrei áður þvegið gólf
og diska og henni fannst rnikið til um það, að geta nú lagt fram
krafta sína og séð Jrá koma að notum.
Gína starfaði í West End, þeim hluta borgarinnar, sern liingað
til hafði sloppið við loftárásir að mestu leyti. Hún hafði því lítið
séð af hörmungum stríðsins, enn sem komið var; hún hafði séð að
fólkið var hughraust og brosandi, þótt það væri yfir sig þreytt. Hún
hafði séð menn brosa þótt þeir hel'ðu misst allar sínar eigur á einni
nóttu. Hún hafði séð menn og konur gráta yfir ættingjum og vin-
um, sem farizt, höfðu, en hún liafði ekki séð blóð og dauða með
eigin augum. Ágústmánuður var tiltölulega friðsamur í hennar
umhverfi. '
Neyðaróp bárust utan úr myrki inu,, en úr nokkurri fjarlægð þó.
En þótt dauðinn væri ekki við næsta fótmál var liann þó svo nær-
göngull að jafnvel þá var tilhugsunin um friðsamt, rólegt og ham-
ingjuríkt líf, fjarlæg. Stríðið hafði, þrátt fyrir allt, svipt öllu úr
skorðum, jafnvel tilfinningum og fyrirætlunum þeirra, sem sízt
skildu hættuna sem yfir vofði.
Flún hafði búizt við Jrví að hverl’a heim til Bandai íkjanna í októ-
ber og byrja þar skemmtilegt, áhyggjulaust líf ungrar stúlku í góð-
um efnum, sem er að byrja að taka þátt í samkvæmislífinu. Hún
vissi aðhún mttndi ganga augu karlmannanna og hún hafði ímynd-
að sér að eftir eitt til tvö ár mundi hún giftast, með mikilli viðhöfn,
í hvíta brúðarkjólnum hennar móður sinnar. Hún hafði aldrei
gert sér í hugarlund hvernig hinn tilvonandi maður hennar mundi
líta út. Hann var enn, sem komið var, aðeins andlit í þokunni, en
svip hans og andlitsfall hafði hún aldrei greint.
En nú vissi hún, að hún mundi ekki hverfa lieim í október. Hún
var búin að finna draumamanninn sinn, Jrokunni hafði verið svipt
frá og nú vissi hún livað framtíðin bar í skauti sér. Hún neitaði að
taka tillit til tímahna og lifði í sælli trú allra elskenda: að þau hefðu
fæðzt til þess að elska hvort annað um aldur og ævi; að jafnvel á
þessu ári ntikilla atburða Og stórra harma mundi forlaganornin
(Framhald).
Eversharp
sjálfblekungar
og blýantar
(Uii koninir aflur í miklu úrvali. —
Eins og áður get ói’ afgieitt úl unt
laml til ritfangaver/.lana og annarra.
Tryggið yður góðan penna með æ-
varaiuli ábyrgð. Viðgerðir leystar af
lientli kostnaðarlítið, aðeins burðar-
gjalil og tollverð varalilutauna tckið.
Þorst. Thorlacius
ttKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKtiKHKHKHKHKHKíOiKHÍOtKHKHKHKKH
CHKKKKKKKKHKKKKKKKKHKKHKKKKKHKKHKHKKKKítiKHKKKiK ÍHK KK
VERSHARP
OG ÞÉR GEFIÐ
HIÐ BEZTA /
Agætar
tegundir af:
Silkisokkum
(svissneskum)
og
bómuliarsokkum
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudei Id.
KHKKKKKHKHKHKKKKKKBKHS-tK-K<HKHK-K<HKK<HKHK«KKKHKHKKHK
H5ÍKKCK0<H>0O-a<H3KHHKHKH>CH>0<HKH>tKH3KK<HKHK<K»D<KHKKKH-
g 1 e r
Pétur Þórberg
ííansen
Fæddur 9. október 1927.
Dáinn 21. október 1945.
Hver art þú, sem ei kippist við
þá hvín við byssuskot
og íturvaxna ungmennið
fser af þvi dauðarot?
Og klökknarðu ekki, klökkna menn,
svo hversdagslegt það er,
að heyra dóma og drunur enn,
sem dauða leiða af sér?
Þú öld, er sveltir saklaus börn
og saurgar heilög vé,
inunt ekki á tár og ástúð gjörn
þó öllum meðfædd sé.
En þei.-, sem fluttu úr fjalli ná
og færðu vinum heirn,
og þerruðu und á bleikri brá
— var blóðið kalt í þeim?
Og komu ekki í augu tár,
þá ástrík móðirin
með blíðu kyssti kaldar brár
og kvaddi harmþrungin?
Og þetta mesti myndarsveinn,
og mömmu sinnar hann
zar einkabarn og augasteinn
af ungsmanns þrám er brann.
\
°g han’1 var eftirmynd þess manns
*5r móðurinni hvarf,
og barnið líka brosið hans
hið bjarta, fékk í arf.
En nú var brostið bros og mál
og brjóstið kyrrt að sjá.
En minning drengsins dyggð og sál
þó dauðinn skal ei fá.
Og harmfró streymdi í huga inn
nú heyrði hún rödd hans vel
er sagði: „Vertu ei sorgbitin,
þinn sonur Jifir hel“.
1 fyrirheiti frelsarans
hún fann sig styrkta, nú.
Af líkir.u hún leit til hans
í lotning, bæn og trú.
t þeirri vissu þerrar kinn
að þreytt er hvílist senn;
þann da.; hún finni drenginn sinn,
sem dó, — en lifir enn.
Emilía Siguröardóttir.
3 mm., kr. 360.oo kistan (300 ferfet)
4 mm., kr. SOO.oo kistan
Einnig 5 mm. gler
Hatnrað gler fyrirliggjandi
Kaupfélag Eyfirðinga
Byggingarvörudeild.
ÍHKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKKHKKKKKHK
Auglýsið í
DEGI
MUNIÐ:
MIKIÐ ÚRVAL AF
ALLS KONAR
SNYRTIVÖRUM
Stjörnu Apótek