Dagur - 07.03.1946, Síða 3

Dagur - 07.03.1946, Síða 3
Fimmtudaginn 7. marz 1946 DAGUR 3 Ctilíf og ÍÞRÓTTIR Úr S.-Þingeyjarsýslu. Héraðssamband Þingeyinga hefir tekið að sér að sjá um íþróttamót U. M. F. í. á kom- andi sumri. Á það að verða um iy.rstu helgi í júlí að Laugum, en stórfelldar umbætur voru gerðar á íþróttavellinum þar sl. sumar. Völlurinn er þar vestan við ána í lægð milli hólanna og er um- hverfi hans skemmtilegt. Er vonandi og mjög mikilsvert að vel takist Þingeyingum að sjá um þessa merkissamkomu. Um það verða allir aðilar að leggja sig fram og undirbúa sem bezt íþróttamótið. Hróar Björnsson frá Brún starfar að íþróttakennslu í sýsl- unni í vetur á vegum héraðs- sambandsins. Á Húsavík hafði hann námsskeið fyrir jólin og var þátttaka allgóð, — 65 manns karlar og konur — og lauk því með sýningum, er þóttu vel tak- ast. Jafnframt sá Hróar um byrj- unarnám barna í dansi á Húsa- vík. Er það vel ráðið hjá Húsvík- ingum, að láta kenna börnum dans og mættu það fleiri gera. Dansinn er óneitanlega ein höf- uðskemmtun okkar, en ekki þarf víða að fara eða margt að sjá, til þess að komast að raun um það, að áferðarfalleg er sú skemmtun ekki nærri alltaf. Og stundum a. m. k. er orsökin sú, að viðkom- andi vita ekki sjálfir, hvernig að skal fara, hvernig standa og stíga og bera sig svo að viðunandi sé og vera mætti. Sérstök ástæða væri og að kenna og æfa „gömlu dansana". Þeir hvorki eiga né höfðu af skyndingu konrið þess- ari skemmtun af stað. En kaffi- borðið, senr sezt var við til að byrja með, var þó ekki af nein- unr vanefnum búið, og langt frá því að vera hroðið að lokunr, þótt 60 nranns fengi þar nreira en nægju sína. Ein unga sti'ilkan flutti stutta ræða, en svo snjalla og efnisgóða, að vanir ræðu- nrenn nrega tala lengi til að ná jafngóðum árangri. Var aðalefn- ið þ(> ekki langsóttara en það hvetnig fólk fer að því að skemmta sér og lrvað þarf til þess að gera samkomu sem þessa öll- um viðstöddum gleðilega og góða. Mikið og vel var sungið yfir borðunr. Þar sem mér var boðið til þessa gleðifundar, var mér bæði ljúft og skylt að tala dálítið undir borðum, og er það ekki frekar umtalsvert. Fleiri tóku þarna til máls. En að loknu borðhaldi var dansað fram eftir nóttu. Og dansinn var fjörugur vel — en þó stöðvaður um stund til að syngja. Var þá sungið fjór- raddað — undir stjórn einnar ungu stúlkunnar — mörg eldri og yngri lög — af áhuga og lagni, því að flest þetta unga fólk er sönggefið vel, — borðar mikinn silung og „fiskurinn hefir fögur hljóð“ — hvort sem þaðan gætir áhrifanna! En það er líka flest vant að syngja frá barnæsku og meira og minna þjálfað í kór Nú, hitt getur líka átt einhvern þátt í þessu, og var a. m. k. mjög ánægjulegt, að etiginn sást tott- andi tóbakssnúð þarna inni og ekki svælu vottur! Slíkur hópur af ungu fólki, áhugasamt til mega hverfa í skuggann fyrir hin- starfa Qg iþrótta og lika hæft að um ný]u Eftir nýárið var fimnr vikna fimleikanámsskeið í Reykjadal — í gamla þinghúsinu á Breiðu- mýri. Aðstaðan er þar ekki góð, áhöld ekki nema dýna og snæris- spotti, til að vippa sér yfir, og ekkert bað. Þátttakendur voru skemmta sér sjálft á svo lieil brigðan hátt, ætti skilið að fá betri húsakynni til sinna æfinga og skentmtana. Húsrúmið er þarna varla meira en nægilega stórt þessum hóp. Fjarverandi er sjálfsagt annar eins — og vitan legt, að flest það unga fólk, sem þ° ^ ~ Þai a* júml. 20 skóla- Upp e]7t j Mývatnssveit, þráir að börn — og áhugi mikill. T. d. , vera ]ieima vinna þar, gleðjast má geta þess að jafnvel unglings-1 j3ar lifa og deyja. Því betur fer nú fleirum að skapast lífsmögu leikar í þessari undrasveit há stúlkur gengu dag eftir dag 25 km. leið — alls — til þess að geta ! verið með. Glímur voru líka | æfðar. Lauk námsskeiðinu með ! samkomu, þar sem flokkar sýndu ! fimleika og piltar glímdu. Nú er Hróar í Mývatnssveit, 1 með námsskeið á Skútustöðum fyrst, síðan í Reynihlíð fyrir1 norðausturhluta sveitarinnar. í Mývatnssveit er margt af unga fólkinu að heiman í vetur, fjöldi í Reykjavík, en þó er all- margt eftir í sveitinni. Sýnir þetta unga fólk mikinn dugnað og áhuga fyrir íþróttanáminu, fiml. og glímu. Eg var svo heppinn að fá tæki- færi til að vera á æfingu á Skútu- stöðum, sunnud. 17. f. m. — og um kvöldið á skemmtun með unga fólkinu í sveitinni. Vegna þess hve fátt er nú í flestum sveitum af ungu fólki, munu fá- tíðar samkomur af þessu tagi upp á síðkastið, og langar mig að segja um hana nokkur orð: Stúlkurnar á námsskeiðinu fjallanna, með aukinni ræktnn heilbrigðari bústofni, fjölbreytt ari og fnllkomnari búskaparhátt um. Má það vera fleiri mönnum en Mývetningum gleðiefni. Og ólíklega líða mörg ár áður en Mývetningar koma sér upp myndarlegu samkomuhúsi og skólasetri. Jónas frá Brekknakoti. Bændur! Veluppalið dráttarhestsefni 6 vetra, er til sölu. Upplýsingar hjá Eðvald Malmquist Skpagötu 1 — Sími 497 r FRÁ BÓKÁMARKAÐINUM SÓL ER Á MORGUN. Kvæða- safn frá 18. öld og fyrri hluta 19. aldar. Snorri Hjartarson setti saman. Útg.: H.f. Leiftur. Prent- smiðjan Hólar h.f. Rvík 1945. í ágætri ritgerð sinni um sanr- hengið í íslenzkum bókmennt- um kernst Sigurður prófessor Nordal einhvers staðar svo að orði ,að ekki sé það „nemá fá- fræði eða makræði, sem kemur mönnum til Jæss að nenia staðar rjá Bjarna Thorarensen og Fjölni, eins og á þverhníptri fjallsegg, horfa Jraðan yfir á gullaldarroðann hinum megin, áta fjögra alda bókmenntir hverfa sér í móðu og mistni, en tala um endurreisn, eins og þeir Fjölnismenn hefði stokkið al- brynjaðir handan tir forneskju. í raun og veru skiptu Jreir arfi 18. aldarinnar með sér, og voru vel sæmdir af.“ — Rétt er Jrað og, sem safnari ljóða þeirra, er hér verða lauslega gerð að umtals- efni, segir í formálsorðum bók- arinnar, að enda þótt 18. öldin liafi ekki átt því láni að fagna að eiga í hópi afreksmanna sinna neitt stórskáld eða höfuðsnilMng á borð við þá frændur, Hallgrím og Jónas, á öldinni næst á undan og eftir, er hið sama að segja um fleiri aldir í sögu þjóðarinnar, og á þessu tímabili áttum við þó mörg skáld og góð, er hófu hin forna menningararf til nýs vegar og greiddu götu þess, er koma skyldi. Það væri meira en meðal ræktarleysi, ef við létum þessi ágætu skáld hverfa okkur sjón- um í ljómanum af hinum yngri bókmenntum, sem eiga þeim svo mikið að þakka — „ræktar- leysi, ekki aðeins við hin gömlu skáld, heldur við sjálf okkur um leið, við sóldaginn, sem þau horfðu svo fast fram til um langa nótt áþjánar og hörmung- ar. Þótt margt hafi rætzt, höfum við ekki ráð á að gleyma.“ Nei, vissuiega höfum við ekki ráð á að gleyma þeim Páli Vída- lín, Þormóði í Gvendareyjum, Þorláki Þórarinssyni, Snorra á Húsafelli, Hallvarði á Horni, Látra-Björgu né Sigurði Péturs syni, svo að fáein góðskáld séu nefnd úr þeim fjölmenna hópi, sem Jrarna mæclr á skáldaþingi. Og Jrví síður höfum við ráð á því að gleyma höfuðskáldum samtíðar sinnar á borð við þá Jón Þorláksson, Eggert Ólafsson, Benedikt Gröndal (eldra) eða Gunnar Pálsson, né heldur snill- ingnunt Sveinbirni Egilssyni. Og ekki dugar heldur að týna lausa- vísunum, stökunum snjöllu, eft irr nefnda höfunda og ónefnda Margt þeirra ber með sér ilm og angan horfinna daga og ljúf sárra minninga, sem vekja nú tímamanninn til nýs skilnings á sjálfum sér, upphafi sínu, erfð- um og forsögu. sannarlega heidur ekki markað- ur bás áramóta né aldahvarfa. fremur en frumhvatir mann anna og innsta eðli er bundið við stund og stað. Bragarháttur- inn, orðavalið og ljóðavalið get- ur breytzt með nýjum tímum, en „andinn lifir æ hinn sanni.“ Eða hvort nryndu geðhrif Jrau, sem Páll Vídalín lýsfr í þessari inan- vísu sinni, stórum torskildari og Ijarlægari nútímamönnum en Jrau voru sanrtíðarmönnum lians- — Mættu ekki ýmsir Jieir höf- undar, er nýtízkari Jrykjást og meiri fyrir sér, öfunda gamla manninn af lörmi og mynd, orðavali og innilelik kvæðisins? Enn nærist elskan sanna, enn kærleiks funinn brennur, enn leiftrar ástar tinna, enn kviknar glóð af henni, enn giftiist ungur svanni, enn sarnan hugir renna enn gefast meyjar mönnum, menn hallast enn til kvenna". „Sól er á morgun“ er allmikið rit, 272 bls., þéttletraðar, prýði- lega snoturlega prentað, og út gáfan vönduð í alla staði, enda virðist kvæðavalið hafa tekizt sérlega vel. Ánægjuleg og ómiss- andi eign er rit þetta hverjum bókavini, safnara kvæðanna og útgefanda til sóma, en unnend- um fagurra ljóða og íslenzkrar menningar til yndis og ánægju. * Þrjár bækur hafa blaðinu ný- lega borizt frá Prentstofunni ís- rún á ísafirði. Nefnist minnsta kverið Paradís skíðamanna — Seljalandsdalur og er eftir Hannibal Valdimarsson skóla- stjóra. Er þar lýst aðal-skíðasvæði ísfirðinga, framkvæmdum og út- búnaði skíðamanna Jrar og skíða- lífinu að nokkru. Önnur bókin nefnist Trú og skylda — minn- ingar um Kaj Munk. Er hér um að ræða dálítið sýnishorn af ræð- um og sálmum Jiessa kunna hetjuskálds og stríðsprests Dana og minningarræðu um hann. ei Gustav Aulen biskup flutti í Stokkhólmi. Séra Jónmundur Halldórsson hefir valið kaflana og þýtt þá, nema 3 sálma eftir séra Munk, en Jreir eru þýddir af Sigurði Grímssyni. — Loks er þriðja bókin: Síðasta nóttin, her- náms- og stríðslokasaga frá Tékkoslóvakíu eftir brezku skáldkonuna Storm Jameson. Birgir Finnsson og Guðmundur Hagalín hafa þýtt bók þessa, en hún er látlaus og hlutlaus lýsing á ógnum hernámsins og styrjald- arinnar, og rituð með meiri hóg- værð og skilningi en títt er í garð hins óbreytta þýzka hermanns, sent notaður hefir verið sem morðtól og kvalari í höndum einráðra og miskunnarlausra stjórnarvalda herveldisins mikla, sem nú er loks brotið á bak aftur og glefsar grinrmúðlega frá sér í fjörbrotunum „síðustu nóttina". — Allar eru bækar þessar snotrar og vandaðar að ytra búnaði. J. Fr. Býlið Brautarholt í Glerárþorpi er til sölu og laust til íbúðar n. k. vor. íbúðarhúsið er t'ir steinsteypu og fylgir ræktaður tún- blettur. Kauptilboð sendist fyrir 25. marz n. k. til undirritaðs, sent gelur nánari upplýsingar. Réttur á- skilinn til að taka livaða tilboði sent er eða hafna öllum. Laugalandi, 4. marz 1946. Einar G. Jónasson. lKHKHWHKHKKKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK«HKHKHKt<HKHKBKHKH KHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHK<«HKHKHKHKHKHKHKHKHKHK«HKHK Kafmagnsverkfæri: Sagir, 8 og 9” Smergelskífur, f. 6 og 8” Borvélar 1/4, 5/16, 3/8, 1/2 og 3/4” Kaupfélag Eyfirðinga Járn- og glervörudeildin. — Mér er ekki markaður bás meir en svona og svona," kvað Leirulækjar-Fúsi forðum. Og ljóðum góðskáldanna er- Notii Flóru oa Gula bandið!

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.