Dagur - 07.03.1946, Blaðsíða 9
Fimmtudaginn 7. marz 1946
D A G U R
9
MiwtH sem fiér steifad
niimn
HIIUIU
steikir fiezt- krúnar kezt
FERMINGARKÁPURI
ávallt fyrirliggjandi. -
Unnar úr einlitum og köfl-
óttum, fallegum ullarefn- |
um. — Verð kr. 280.00 og
310.00.
Komið — skoðið — kaupið. |
Saumastofa Gefjunar
Húsi KEA, 3. hæð.
NÝKOMIÐ:
Léreft:
Rósótt og einlitt
Kaupfélag Eyfirðinga
FANGI í FIMM DÆGUR
Framhald af 5. síðu
Karl á Knútsstöðum klæddi
sig úr skjólfötum og dreif mig í
þau. Auk þess hafði Jónas á Síla-
kek ullarteppi meðferðis, svo að
mér var vel hlýtt á hestinum.
Um kvöldið leið mér ágætlega,
var aðeins lítið eitt máttfarinn.
Neytti eg eins bolla af súkku-
laði og tveggja af spenvolgri ný-
mjólk.
Fyrir íorgöngu fóns á Laxa-
mýri og Þorvalds Árnasonar bif-
reiðarstöðvarstjóra í’ Húsavík.
fór bíll frá Bifreiðastöð Þingey-
inga með menn frá Húsavík um
kvöldið, til að taka þátt í leii-
inni. Færð var ill og var bíllinn
lengi á leiðinni. Þegar hann kom
suður hjá Laxamýri, var þangað
komin \itneskja um, að eg væri
lundinn og sneri hann þar við.
Þess má geta að lokum, að eg
sval vel um nóttina, kenndi
einskis mei.ns um morguninn og
!ióf kennslu litlu seinna en
venjulegt var.
Fftir nokkra daga kom eg aft-
ur að gjánni, var þá í henni all-
djúpt vatn.
A svæðinu vestur og suðvestur
if Laxárbrú er rnikill fjöldi af
gjám og eru þær yfirleitt svipað-
ar þeirri, er hér hefir verið sagt
frá. Ekki var mönnum kunnugt
ura þessa gjá, öðrum fremur.
F.g vil biðja ,,Dag“ að flytja
þeim, sem þátt tóku í leitinni,
beztn þakkir frá mér. Eg þakka
fólkinu á Sílalæk umhyggju þess
og alúð. Eg þakka Jóni á Laxa-
mýri og hjónunum á Fjalli mik-
ilsverðan þátt þeirra í björgun
minni. Ennfremur þakka eg alla
þá velvild, öll þau hlýju hand-
tök og hamingjuóskir, sem eg
hefi orðið aðnjótandi, síðan eg
kom aftur upp á yfirborðið.
Steingr. Baldvinsson.
ÞÉR GEFIÐ
Ð BEZTA /
Þönglabakkaprestakall.
Slys á Flateyjarhöfn.
Áríð 1861 byrjuðu búskap á tveim
Flateyjarjörðum, Uppibæ og Neðri-
bæ, hjónin Jóharm Jóhannsson og
Áliheiður Björnsdóttir; voru þau ætt-
uð úr Þingeyjarsýslu og var mér sagt
af gömlum manni, sem mundi þessi
búendaskipti, að þáverandi umboðs-
maður Norðursýslu hefði fengið þessi
hjón til að flytja til Flateyjar, í þeim
tilgangi að efla framtak í eynni, og
reyna þar ýmsa nýbreyttni, serstak-
lega að auka æðarvarp og þúfnaslétt-
un og túngirðingar. En vera Johanns
varð stutt í eyrmi, svo að af þeim sök-
um varð lítið úr framkvæmdum; þó
var mér tjáð að hann hefði fyrstur
manna komið með kerru til eyjarinn-
ar og gert akfært frá sjó heim að
Neðribæ og í öðru Iagi hefði hann
gert fyrsta matjurtagarð í eynni, í
varpanum í Neðrabæ; sér þar enn
fyrir vallgrónum torfgarði, þó að nú
sé hann að mestu jafnaður við jörðu.
Afdrif Jóhanns urðu þau að hann
drukknaði á Flateyjarhöfn eftir rúma
ársdvöl í eynni; fór hann á lítilli
fleytu í skip á höfninni, en er hann
ætlaði í land, hvolfdi bátkænunni.
Alfheiður, ekkja Jóhanns, bjó 3 ár i
eynni eftir dauða manns síns, en
flutti þá aftur til fyrri heimkynna,
sonur þeirra var Björn, sem Iengi bjó
á Ljósavatni, faðir þeirra Þórhalls
smíðakennara á Laugum og Tómasar
kaupmanns á Akureyri.
★
Árið 1884, hinn 14. maí, lá segl-
skipið „Fiskarirm“ á Flateyjarhöfn,
höfðu skipverjar, sem flestir voru af
Flateyjardal og Flatey, farið til heim-
ila sinna og voru aðeins tveir menn
um borð yfir nóttina; um morguninn,
er skipverjar komu úr landi, sváfu
báðir mennirnir svo fast að ekki tókst
að vekja þá; hafði kolsýringur frá
slæmu eldstæði fyllt káetu skipsins,
voru lífgunartilraunir árangurslausar,
og var þó farið með þá til læknis á
Húsavik. Menn þeir er þarrta Iétu líf-
ið hétu Kristján Elíasson og Jónas
Gíslason, bróðir Þórsteins á Svínár-
nesi, en Kristján var bróðir Jóns Elí-
assonar, sem seinna byggði nýbýlið
Útgarð í Flatey og rak þar verzlun í
nokkur ár. Voru báðir þessir menn
hinir efnilegustu og áttu hluti í þessu
skipi, sem varð þeim að aldurtiila á
þennan sorglega hátt.
Varð þetta óhapp meðfram til þess
að þessi tilraun Flateyinga, að eignast
fiskiskip, sem á þessum tíma var tal-
ið mikil framför frá því sem tíðkast
hafði, varð endaslepp, félagið Ieystist
upp og skipið selt til ísafjarðar. Skip-
stjóri á „Fiskaranum“ var Jónas Jóns-
son, síðar bóndi í Utibæ í Flatey og
um , langt skeið oddviti Flateyjar-
hrepps.
(Framhald).
B. J. B.
Fluorecenf
ijósrör
48”
40 watta
Kaupfélag Eyfirðinga
_