Dagur - 07.03.1946, Page 10

Dagur - 07.03.1946, Page 10
Fimmtud. 7. marz 1946 10 j - ............—nj Úr bæ og byggð Q Rún 594fi3137 — Frl.: KIRKJAN. Messað í Lögmannshlíð nœstkf sunnudag kl. 1 e. h. Frá starfinu i Zíon. Almenn sam- koma í kvöld kl. 8.30, og síðan á hverju kvöldi til næstk. sunnudags- kvölds, 10. marz. — Bjami Eyjólfs- son og Gunnar Sigurjónsson tala. — Allir velkomnir! Dánardæéur. Hinn 1. marz lézt að elli heimilinu í Skjaldarvík, Arni Frið- riksson, 83 ára að aldri. Árni var Svarfdælingur að uppruna, en dvaldi langvistum hér í bænum. Hans verð- ur nánar minnzt hér í blaðinu síðar. Barnastúkan Samúð heldur fund i Skjaldborg næstk. sunnudag kl. 10 árd. Venjuleg fundarstörf. Inntaka nýrra félaga. Sýnd tvö smáleikrit. Sögð saga o. fl. Börnin eru beðin að fjölmenna á fundinn. Stúkan „Brynja“ nr. 99 heldur fund í Skjaldborg næstk. þriðjudag, 12. marz, kl. 8.30 e. h. Félagar fjöl- mennið stundvíslega. — Komið með nýja meðlimi. Arsskemmtun Barnaskólans verð- ur í Samkomuhúsi bæjarins um n.k. heigi. Sjá götuauglýsingar._____ Meistarakeppni í bridge liefst á sunnudaginn Bridge-keppni sú i I. flokki, er staðið hefur yfir undanfarið, er nú lokið og varð sveit Jó- hanns Snorrasonar hlutskörpust með 5 vinninga og hlaut þar með I. flokks verðlaunin. Meist- arakeppnin hefst n.k. sunnudag kl. I e. h. á Gildaskála KF.A. — Keppendur eru þessar sveitir: Nr. 1: Sigvaldi Þorsteinsson, Jónas Stefánsson, Jónas Hallgrímsson, Baldur Stefánsson. Nr. 2: Þorsteinn Stefánsson, Þor- lákur Jónsson, Jón G. Sólnes, Friðrik Hjaltalín. Nr. 3: Tómas Stejngrímsson, Sig- tryggur Júlíusson, Snorri Guðmunds- son, Halldór Ásgeirsson. Nr. 4: Jóhann Snorrason, Ármann Helgason, Indriði Pálmason, Stein- grímur Bernharðsson. Nr. 5: Jón Steingrímsson, Svavar Zohoníasson, Björn Einarsson, Krist- ján Mikaelsson. Nr. 6: Þórður Sveinsson, Dr. Krist- inn Guðmundsson, Vernh. Sveinsson, Guðmundur Guðlaugsson. K íghóstabólusetning. (Framhald af 1. síðu). meðlimum sínum það- í té ókeypis. — Læknar Sjúkrasamlags Akureyrar munu því bólusetja gegn kíghósta í Barnaskóla Akureyrar næstk. þriðju- dag kl. 2 e. h. og er einkum ráðlegt að láta bólusetja böm á aldrinum V2 —5 ára, þar eð gera má ráð fyrir að börn á þessum aldri verði harðast úti ef þau fá kíghóstann. Bólusetja þarf bömin þrisvar með mánaðar millibili og munu læknarnir taka 10 krónur fyrir hvert barn, og er þar innifalið bólusetningin í öll þrjú skiptin. — Óskað er eftir að greitt sé við fyrstu bólusetninguna. Soussa Melachrino Commander Verzl. Eyjafjörður h.f. 8 AGUR Guit ar lil sölu i Aðalstrœti 23 uppi. - Samtal við skipulaasstjórann - (Framhald af 1. síðu). forráðamenn í byggingarmálum Akureyrar þau ár, sem eg hefi starfað að skipulagningu, þá krefst þróun byggingarmálanna þess, að í höfuðborg Norður- lands sétt sköpuð starfsskilyrði fy.rir einn, og jafnvel fleiri fag- lærða húsameistara." Aukin samvinna um fram- kvæmd skipulagsmálanna. Hvað er í ráði um aðra skipu- lagsskylda staði í þessum efnum? ,,Eg hefi nýlega gert tiílögur til ríkisstjórnarinnar um það, að við teiknistofu skipulagsins verði bætt deild sérfræðinga, er leiðbeini um húsagerð á hinum skipulagsskyldu stöðum. í ferð- um mínum um landið undan- farin ár, hefi eg í æ ríkari mæli sannfærst um það, að hversu haganiega sem skipulagsupp- dráttur kann að vera gerður, er ekkert auðveldara en gjöreyði- leggja þann grundvöll, sem lagð- ur er, með því sem af grunni rís — gerð og útliti húsanna sjálfra. Eru þess því miður fjölmörg dæmi á hinum skipulagsskyldu stöðum, — ekki aðeins í þorp- nm, heldur og í hinum stærri kaupstöðum og bæjum. En skipnlag livers staðar er að veru- legu leyti metið eftir húsunum, sem byggð eru, og ekkert eðli- legra en að þau marki heildar- ásjónu byggðarinnar. Hér er mn mikið alvörumál að ræða, þegar svo til eingöngu er farið að byggja úr varanlegu efni, sem sé steinsteypu. Víxl- sporin í þeim efnum má að sjálf- sögðu kenna ónógri aðstoð sér- fróðra manna á stöðunum sjálf- unt, svo til hvarvetna utan Reykjavík. Teiknistofa Byggingar- og landnámssjóðs á að hafa umsjón með húsagerð svcitanna að vern- legu leyti, og er einskorðuð við jtað verkefni. Húsameistari rík- isins liel’ir í sinni umsjá bygging- ar ríkisins, og eftirlit með þeim. En húsagerð á 50—60 skipulags- skyldum stöðum er að mestu leyti óháð öðrum dómi en þeirn, sem breytilegar bygginganefndir ákveða að hverju sinni, og upp- drættir húsa lélegir eða engir. Þetta er öllum Jieim forráða- mönnum staðanna, er eg hefi rætt þessi mál við, fullljóst, og æskja aukinnar samvinnu til úr- lausna. Tillögur mínar eru því þær, að sérfróðir menn urn húsagerð ferðuðust jafnaðarlega milli skipulagsskyldra staða, gerðu áætlanir með byggingarnefnd- um, leiðbeindu og gerðu upp- drætti að húsum, joar sent þess væri ekki kostur að leita annarra sérfróðra aðila. Að sjálfsögðu er gert ráð fyrir Jrví, að sveitarsjóðirnir standi að nokkru leyti undir kostnaði við slíkt leiðbeiningastarf, svo og að einhverjar tekjur skapizt við teiknistörf fyrir einstaklinga." Hversu horfir um framkvæmd ■ Jiessara tillagna? „Eélagsmálaráðuneytið hefir málið með höndum, og hefir sent tillögur mínar skipulagsnefnd- inni til umsagnar. Álit hennar er ókomið. Hefir ráðherrann tekið mál- inu með velvilja, en enda Jrótt vænta mætti árangurs um fram- kvæmdir nú á Jressu ári, mun skortur fagmanna torvelda allar aðgerðir, og þar næst á málið inikið undir Jrví, að Jrað mæti skilningi og veldvild sveitar- stjórna hinna skipulagsskyldu staða. Annars mun síðar gefast tækifæri til Jress að skýra nánar frá einstökum atriðum öðrum í tillögum þessum.“ Skipulag Akureyrar. Hversu standa sakir um skipu- lagsmál Akureyrar? Þvlí heyrizt oft fleygt, að byggingafram- kvæmdir torveldist af því að standi á upjxiráttum fyrir ýms hverfi. ,,Að mínum dómi hefir Akur- eyrarbær verið betur settur um afgreiðslu sinna skijmlagsmála en margir aðrir bæjir, og reynt hefir verið að fullnægja þörfum hinnar vaxandi byggðar eins og frekast helir verið unnt. Má t. d. geta þess, að nú starfar við teiknistofu skipulagsins fyrrver- andi byggingarfulltrúi Akureyr- ar, Halldór Halldórsson húsa- meistari, sem er vel kunnugur byggingarmálum bæjarins, enda hefir Akureyrarbær verið eitt megin viðfangsefni hans á teiknistofunni frá því að hann byrjaði að starfa þar. Var hann allt sl. suraar nyrðra við mælingar og undirbúning viðbótarskipulags, m. a. á Odd- eyri, og hafa heildaruppdrættir þegar verið sendir bæjarstjórn. Nýlega hefir einnig verið gengið Irá tillöguni um skipulag næst Þórunnarstræti, skv. athug- unum og mælingum er gerðar voru sl. sumar. En eðlilega er margt ógert, og „Róm var ekki byggð á einum degi“.“ Hvað líður skipulagi íþrótta- svæða fyrir bæinn? „Að sjálfsögðu hefir teikni- stofa skipulagsins samráð um þau mál við bæjaryfirvöldin, ekki síður en um skipulag bygg- ingarlóða, en auk Jiess samvinnu við íþróttafulltrúa ríkisins. ÍJnóttafulltrúinn nnin liafæ gert sínar tillögur til bæjar- stjórnar og íþróttafélaganna, og munum við að sjálfsögðu reyna að fella Jiær tillögur inn í ramma skipulagsins, á þann hátt, sem bezt má fara. Skipulag íþrótta- svæða er ætíð mikilsvert atriði á hverjum skipulagsuppdrætti í hverju byggðarlagi, og að öðru jöfnu reynt að hliðra til fyrir þörfum íþróttanna, ef hætta væri árekstra við önnur skipu- dagsatriði. En um einstök atriði þeirra mála ætti blaðið fiekar að ræða við íþróttafulltrúann en mig.“ | J arðarlor mannsins míns, ÁRNA FRIBRIKSSONAR frá Skáldalæk, sem andaðist á elliheimilinu í Skjaldarvík 1. þ. m., fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 8. þ. m. kl. 1 e. h. Ingigerður Zophoníasdóttir. m&mti Innilegustu þakkir til allra, sem sýndu okkur vináttu og sæmd á silfurbrúðkaupsdaginn okkar, þann 5. þ. m. Jónína Þorsteinsdóttir, Árni Björnsson. oW<HKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKf O-OOöB O-ttWtHKi CfíHKiWS; KKmtHKHKmiKHKHKHKHKHKmmKHKHKmiKHKHKriKíi<HKH3-i5-íKí-iKH><H>< Skíðabnxur KARLMANNA og KVENNA Ennfremur: Stormblússur, stormjakkar, skíða- húfur, legglilífar, skíðavettlingar, skíðaleistar, bakpokar, svefnpokar, ullarvettlingar, ullartreflar, ullarpeysur, ullarteþpi. Brauns Verzlun ’ Páll Sigurgeirsson. ^ * KHK<0<HKHKHKHKHKHKH5<HKHKHKHKHKHKHK-0-0000-00-0-a<HK<HKHKHK Suiidhúfur nýkomnar BRAUNS VERZLUN Páll Sigurgeirsson 8><3><í><í*3><í><í><3><S><S><í>3><S><S><í><e><í^>«><S><í>3>'S><M><S><M><»3>3*S><í><í*S><í^^ NÝ HJARTAÁSBÓK: „Drottning óbyggðanna“ (Saga úr Gulllandinu) cftir ÖVRE RICHTER FRICH. Þriðja sagan af hinum vinsælu sögum um Jónas Feld. H inar tvær: „Ránfuglinn" og „Hinir ógn- andi hnefar“, eru að verða uppseldar. „SVÖRTU GAMMARNIR“, fjórða sagan í þesstim sagna- llokki, kemur út í vor. Tilboð óskast í íbúð mína í Laxagötu 2, Akureyri. Húsnæðið er laust 14. maí n. k. íbúðin er 3 herbergi og eldhús. — Tilboðum sé skilað fyrir 15. þ. m. til Þorvaldar Guð- jónssonar, Lundargötu 7. íbúðin til sýnis næstu daga Irá kl. 6-7 og 8—9 e. h. — Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Alfreð Þórarinsson. SÆNSKAR SKILVINDUR, 65 og 100 ltr. STROKKAR, 5 lítra, handsnúnir Verzlunin Eyjafjörður h.f

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.