Dagur - 17.04.1946, Side 1

Dagur - 17.04.1946, Side 1
 10 síður Skipting Búnaðarmála- sjóðs lögfest Furðuleg atkv.greiðsla í efri deild Alþingis Síðastliðinn laugardag var lögfest breytingartillaga Jóns Pálmasonar og Sigurðar; | Guðnasonar við búnaðarmála- sjóðslögin, þar sem ákveðið er, gegn eindregnum vilja bændastéttarinnar, að taka yf- irráðin yfir sjóðnum úr hönd- um fulltrúa bænda, og jafn- framt, að skipta sjóðnum upp í milli héraðasambandanna í s'ama hlutifalli og héruðin greiddu framlög til hans. Hef- ir málstaður Jóns Pálmasonar og kommúnista því sigrað í þessu máli í þingi, og er það lærdómsríkt fyrir bændur. At- kvæðagreiðslan lí ed. vakti mikla furðu; gegn málinu greiddu atkv. allir Framsókn- ármenn, nema Jónas Jónsson, tveir Sjálfstæðismenn og einn I; Alþýðuflokksmaður og annar sat hjá. Með frv. greiddu atkv. kommúnistar, Jónas Jónsson og íhaldsmenn. Var frv. sam- þykkt með 9: 7 atkv., en hefði verið fellt með 8 : 8 atkv., ef Jónas Jónsson hefði ekki skip- að sér við hlið kommúnista og Jóns Pálmasonar. Mun fram- koma hans í þessu máli vekja furðu og gremju meðal sjálf- stæðra bænda um land allt. — Ólafur Jónsson framkvæmda- stjóri Ræktunarfélags Norður- lands ræðir nánar um þessi mál á 5. bls. í dag. Framsóknarfélag Akureyrar: Rætt um utanríkismálin og stjórnarskrána Framsóknarfélag A'kureyrar liafði umræðufund um landsmál í Gildaskála KEA sl. mánudags- kvöld. Frummælendur voru Þor- steinn M. Jónsson, skólastjóri, er ræddi einkum utanríkis- og öryggismál landsins, og Ingimar Eydal, fyrrv. ritstjóri, er ræddi um stjórnarskrármálið. Fjörugar umræður urðu á fundinum. Félagið mun efna til annars umræðufundar innan skamms og munu þeir Jakob Frímannsson, framkv.stj. og dr. Kristinn Guð- mundsson þá hafa framsögu. 1 AGUR XXIX. árg. Akureyri, Miðvikudaginn, 17. apríl 1946 9. tbl. FRAMBOÐ í nokkrum kjördæmum ákveðin Framsóknarflokkurinn hefir ákveðið þessi framboð í Alþing- iskosningunum í sumar: I Árnessýslsu: Jörundur Brynjólfsson, Skál- holti, Helgi Haraldsson, Hall- kelsstöðum, Eiríkur Jónsson, Vorsabæ og Þorsteinn Sigurðs- son, Vatnsleysu. I Austur-Húnavatnssýslu: Gunnar Grímsson, kaupfélas- stjóri, Skagaströnd. I Skagafj'arðarsýslu: Steingrímur Steinþórsson, bún- aðarmálastjóri, Hermann Jóns- son, Yzta-Mói, Jón Jónsson, Hofi og Gísli Magnússon, Eyhildar- holti. Lélegur afli og gæftir norðanlands Miklar óstillur hafa gengið yf- ir að undanförnu og lrefir það torveldað sjóróðra, sem hafnir eru fyrir nokkru á ýmsum ver- stöðvum hér við Eyjafjörð og víðar norðanlands. Afli á línu hefir yfirleitt verið mjög rýr, en betur hefir aflast á dragnótabáta. Aflinn er að rnestu leyti lagður inn á hraðfrystihús. Teiknisýning Iðnskólans á Akureyri verður opin fyrir al- menning í skólahúsinu kl. 2—6 síðdegis á morgun — skírdag. — Sýndar verða fríhendis-, flatar-, rúm- og iðnteikningar nemenda allra bekkja. Aðgangur ókeypis. — Brottskráðir nemendur verða kvaddir og skólanum slitið næstk. þriðjudag — þriðja páska- dag — kl. 6 síðdegis. Umreyrarbær heiðrar íjörgvin Guðmundsson tónskáld „Örlagagátan“ flutt Á fundi bæjarstjórnar Akur- reyrar fyrra þriðjudag var sam- y'kkt einróma, að veita Björg- n Guðmundssyni tónskáldi usn frá störifum við Barnaskól- in, með fulhim launum, í við- rkenningarskyni fyrir list hans y störf í þágu íslenzkrar tón- enningar. Vænti bæjarstjórnin þess jafn- amt, að ríkið veitti honum usn frá kennslu í Menntaskól- uim á sama hátt, svo að tón- .áldinu gæfist tóm til að sinna st sinni óhrindraður af öðrum örfura. í annað sinn sl. sunnudag Bæjarstjórnin valdi þennan dag til þessarar viðurkenningar, þar sem liið mikla óratóríóverk tónskáldsins — Örlagagátan — var þá flutt opinberlega í fyrsta skiptið. Tónverkið var flutt í annað sinn sl. sunnudag af Kan- tötukórnum, undir stjórn tón- skáldsins. Bæjarbúar munu fagna því, að bæjarstjórnin hefir fyrir þeirra hönd sýnt Björgvin Guðmunds- syni þennan þakklætisvott og er þess að vænta, að ríkisvaldið sýni sama skilning á málinu. Vaxandi áhugi fyrir na utgriparækl i Eyjafirði Fyrsti Svíþjóðarbáturinn sem kemur til Eyjaf jarðar á leið til landsins Síðastliðinn fimmtudag lagði fyrsti Svíþjóðarbáturinn, sem ey- firzkir útgerðarmenn hafa keypt, af stað frá Svíþjóð, hingað heim. Báturinn kemur við í Noregi á leiðinni, en siglir síðan beint til Dalvíkur, en eigendur hans, h. f. Röðull, eiga heimili þar. Bátur- inn er 50 smálestir og hefir hlot- ið nafnið ,,Bjarmi“. Dalvíkingar sigfa honum heim. Þingmaður kaupstaðarins lætur loks- ins til sín heyra um samgöngumálin Flytur þingsályktunartillögu í Sameinuðu þingi Greinargerðin fyrir till. tekin upp úr Morgunblaðinu Allt frá því, er veruleg brögð fóru að verða að umhleðslufyrir- komulagi Eimskipafélags íslands snemma á stríðsárunum, og sýnt þótti að Reykjavík væri að verða eina innlflutningshöfn landsins, hefir „Dagur“ leitt athygli les- enda sinna að því, hvert stefndi í samgöngu- og innflutningsmál- unum, og skýrt jafnótt frá ráð- stöfunum Éimskipafélagsins og í íkisvaldsins til þess að afskipta Norður- og Austurland frá rétt- mætri hlutdeild í innflutnings- verzluninni og lífsnauðsynlegum samgöngum. Blaðinu hafa borizt þakkir fyr- ir að taka upp baráttu í þessum málum, frá ýmsum aðilum, bæði hér norðan lands og áustan. Á þessu ári hefir ástandið í sam- göngumálunum keyrt. um þvert Ijak, eins og lesendur blaðsins þekkja af eigin reynd og frásögn- um hér í blaðinu. „Dagur" benti á það hinn 27. f. m., að þá væri liðinn nær því mánuður síðan skip kom hér á höfnina. Oánægja almennings, verzlunar- og iðnaðarfyr irtæk j a var um þessar mundir orðin svo megn, að málið varð ekki lengur þagað í hel af stuðningsmönnum ríkis- stjórnarinnar og Eimskipafélags- stjórnarinnar og þá skeði það, að Verzlunarmannafélag Akureyrar samþykkti eindregin mótmæli gegn ríkjandi fyrirkomulagi og um sama leyti rauf íslendingur þögnina úxn þessi mál og tók að rita um þau í svipuðum anda og Dagur. Allan þennan tíma Iteyrð- ist ekki orð frá þingmönnum kaupstaðarins. Fréttir af þeim Ársfundur Mjólkursamlagsins ákvað að styrkja nautgriparæktarfélögin með álitlegri f járupphæð Bændur fengu kr. 1.26 fyrir mjólkurlítrann s. 1. ár Aðalfundur Mjólkursamlags KEA Var haldinn hér í bænum sl. föstudag. Fundinn sóttu 86 Ifulltrúar mjólkurframleið- enda, auk stjórnar KEA, framkvæmdastjóra félagsins, Mjólkursamlagsstjóra og fjölda annarra fundargesta. Á fundinum var birt skýrsla ins á sl. ári. Samlaginu bárust um rekstur og afkomu samlags- alls 4,666,785 Itr. af ntjólk, eða um 500 000 ltr. rneira en á sl. ári, Nemur þessi aukning 11,6% og er það hlutfallslega mesta fram-' leiðsluaukning á mjólkurfram- leiðslusvæðum landsins. Af þessu mjólkurmagni hafði 37% verið selt sem neyzlumjólk, en úr 63% af mjólkurmagninu voru unnar ýmis konar mjólkur- vörur. Samlagið seldi mjólk og mjólkurvörur fyrir kr. 6,857,- 808,53. Rekstur og sölukostnað- ur varð 21 eyrir á lítra. Útborgað var til framleiðenda, samkvæmt reikningum samlagsins, að með- talinni uppbót, kr. 1,23 á tíma- bilinu 1. jan. til 30. sept., en kr. 1,33 á tímabilinu frá 1. okt. til 31. des., eða kr. 1,26 að meðal- tali. Á fundinum voru rædd ýms mál er varða mjólkurframleiðsl- una. M. a. var rætt um naut- griparæktina og starfsemi naut- griparæktarfélaganna. — Hin aukna og bætta mjólkurfram- leiðsla á félagssvaeðinu mun að verulegu leyti að þakka starfsemi þeirra, en þau liafa nú starfað sem heildarsamtök í meira en 15 ár. Meðalnythæð eylirzkra kúa er nú komin í 3,147 ltr., og hefir hækkað mjög á síðustu árum. Áhuga bænda fyrir þessum málum má marka af því, að fundurinn samþykkti einróma, að styrkja samband nautgripa- ræktarfélaganna með álitlegri fjárhæð, sem varið yrði til að hafa að vísu verið heldur fá- skrúðugar yfirleitt þetta kjör- tímábil og Akureyrar er næsta sjaldan getið í sambandi við störf þingsins, enda er bærinn Jmeð öllu afskiptur af stjórnar- ! flokkunum um stuðnin^ við framkvæmdir hér. En nú erti kosningar í nánd og því nauðsyn- legt að hefja undirbúning þeirra. Sá undirbúningur má teljast hafinn með þingsályktunartil- lögu frá Sig. Hlíðar og Garðari Þorsteinssyni, þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hlutast til urn að samgöngur á sjó við Norður- !and komizt í viðunandi horf. Greinargerð -fylgir tillögunni og iFramhald á 8. síðu). Leikifélag Akureyrar: Sýningar á leikritinu „BriíBhljóð44 hef jast í næstu viku Leikfélag Akureyrar hefir að undanförnu æft sjónleikinn Brimhljóð eftir Loft Guðmunds- son. Munu sýningar hefjast í næstu viku. Leikstjóri er Jón Norðfjörð, og fer hann jafnframt með eitt aðalhlutver'kið. Aðrir aðalleikendur eru: Frú Svava Jónsdóttir, l’rú Margrét Kon- drup og Hólmgeir Pálmason. — Leiktjöld málar Haukur Stefáns- son. Leikritið Brimhljóð var sýnt í Reykjavík árið 1939 og vakti þá mikla athygli. Mun það alls hafa verið sýnt 15 sinnum þar og var slíkt fátítt í þá daga. auka starfsemi félaganna. Ragnar Stefánsson majór kominn heim frá Þýzkalandi Ragnar Stefánsson, majór í ameríska hernum, öllum Akur- eyringum að góðu kunnur, hefir dvalið í Þýzkalandi undanfarnar vikur, er nú nýlega kominn til íslands aftur. Ragnar heimsótti m. a. Frankfurt, Berlín, Mún- chen o. fl. borgir í erindum hers- ins. Hann bað blaðið fyrir kveðju til kunningjanna hér, er það átti tal við hann í gær.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.