Dagur - 12.09.1946, Blaðsíða 1
Ákveðið að hefja
byggingu slökkvi-
stöðvar
Nauðsynlegt skref til lækk-
unar brunabótagjalda
Á það var bent hér í blaðinu á
sl. vetri, að mikið ósamræmi
væri í milli brunaljótiigjalda
þeirra, sem Akureyringum og
Reykvíkingum er gert að greiða.
Mundi lækkun á brunabóta-
gjöldum bæjarbúa, til jafns við
iðgjöld í Reykjavík, nema árlega
a. m. k. 130 þús. krónum, auk
lækkunar á gjöldum af lausafjár-
tryggingum.
Til þess að hægt væri að krefj-
ast jafnréttis við Reykjavík,
þurfti að gera þrennt: byggja
nýja brunastöð, endurbæta
slökkvitækin og koraa upp fastri
brunavörzlu.
Nú hefir verið hafizt handa
um hið fyrsta þessara atriða. —
Brunamálanefnd hefir lagt til
við bæjarstjórnina, að hafizt
verði handa um byggingu
slökkvistöðvar nú þegar, og sá
hluti hússins byggður, sem ætlað-
ur er fyrir áhaldageymslu. Hús-
inu er ætlaður staður við Geisla-
götu, norðan Verzlunarmanna-
hússins. Verður sá hluti, sem nú
er ráðgert að byggja, ein hæð,
27x16 mtr. að flatarmáli. Bæjar-
stjórnin hefir samþykkt tillögu
brunamálanefndarinnar og er
þess því að vænta, að fram-
kvæmdir hefjist hið bráðasta. Er
hvort tveggja, að ný brunastöð er
hin rnesta nauðsyn vegna eld-
hæt-tunnar í bænum og með
byggingu hennar er stigið skref í
áttina til lagfæringar á iðgjöld-
um brunatrygginganna og er það
hið mesta hagsmunamál fyrir
húseigendur.
Þá mun í undirbúningi, að
slökkviliðið fái nýjan brunabíl,
nýja slökkvidælu og brunastiga,
10—12 m. langa.
Samkvæmt upplýsingum frá
slökkviliðsstjóra, hefir brunalið
bæjarins verið kallað út 11 sinn-
um síðan í maí í vor. Slökkviliðs-
menn hér fara nú fram á að fá
greitt sama kaup fyrir störf sín
og greitt er í Reykjavík, og hefir
brunamálanefnd lagt til, að orð-
ið sé við beiðninni.
Kosningar til Alþýðusam-
bandsþings hef jast
Tveir listar á Akureyri
Kosningar í verklýðsfélögum
landsins til 19. þings Alþýðusam-
bands íslands eru nú víðast hvar
unr það bil að hefjast. Kosning
fulltrúa fer fram í Verkamanna-
félagi Akureyrarkaupstaðar um
næstu helgi. Tveir listar eru í
kjöri, listi kommúnista og listi
Alþýðuflokks- og Framsóknar-
manna. Á síðarnefnda listanum
eru þessi nöfn: Árni Þorgríms-
son, Gránufélagsgötu 57B, Har-
aldur Þorvaldsson, Munkaþver-
árstræti 30, Tryggvi Haraldsson,
Hafnarstræti 66 og Kristófer Vil-
hjálmsson, Sniðgötu 3. Til vara:
(Framhald á 8. síðu).
Bændur einliuga um stofnun stéttarsambands
Dansk-íslenzka samninganefndin
heimsækir Akureyri
Síðastliðinn sunnuclag kom dansk-íslenzka samninganefndin, sem undanfar-
ið hefir setið á rökstólum i Reykjavík, í heimsókn hingað til bæjarins, í boði
ríkisstjórnarinnar. Gestirnir komu í Catalina-fiugbát Flugfélags Islands og
flugu samdægurs suður. Þeir snæddu hádegisverð að Hótel KEA, en skoðuðu
síðan bæinn um stund. Veður var hið fegursta þennan dag. Myndin er tekin
að Hótel KEA. Sjást þar, fremsta röð, talið frá vinstri: Halvdan Henriksen,
fytrv .ráðherra, O. Mohr, sendiherra, formaður dönsku nefndarinnar, Jakob
Möller, sendiherra, form. íslenzku nefndarinnar og S. Rytter, landþingsmað-
ur. í aftari röð: Stefán Jóh. Stefánsson, alþm., Eysteinn Jónsson, fyrrv. alþm.,
J. Paludan, ritari dönsku nefndarinnar, Dahl, yfirlæknir í Færeyjum, A. MöII-
er, deildarstjóri, Kr. E. Andrésson, ritstj., H. Thomsen, kaupm., Færeyjum,
Th. Holst, Iandþingsm., S. Grunnet, ritstj. Pressens Radioavis Haraldur Kröy-
er, fulltrui, ritari ísl. nefndarinnar, frú H. Hedtoft, Larsen sendikennari, H.
Hedtoft, fyrrv. ráðherra, og frú Larsen.
Danska nefndin er nú horfin af landi burt. Samkvæmt tilkynningu frá utan-
ríkisráðuneytinu, hefir árangurinn af samningaumleitunum orðið næsta lítill.
Samningar tókust um ýms minniháttar atrið, en frestað var að ræða um fisk-
veiðirétt íslendinga við Grænland og réttindi Færeyinga við ísland. Danska
nefndin taldi sig ekki hafa heimild til að ræða handritamálið.
1200 kindum slátrað á dagfen ríkis-
valdið bannar kjötsölu
Hvar er nú áhugi Morgunbl. fyrir kjötmarkaðinum?
Sauðfjárslátrun hér um slóðir hófst 5. september sl. og verður
slátrað allt að 1200 kindum á dag fram til 9. október, eða alls um
28.300 kindum. Sláturtíð hófst svo snemrna að þessu sinni vegna
þess, að hér fer nú fram allsherjar niðurskurður sauðfjár vegna
mæðiveikinnar og er ætlunin, að fá nýjan fjárstofn í Eyjafjarðar-
og Þingeyjarsýslur. Á öðrum stöðum á l'andinu mun slátrun ekki
hefjast fyrr en um 20. þ. m. Hins vegar hefir hið stjórnskipaða
Búnaðarráð bannað kjötsölu hér um slóðir fyrst um §inn og með
þeim forsendum, að það muni valda óánægju í Reykjavík, ef Akur-
eyringar hefðu nýtt kjöt á borðum á meðan það fæst ekki þar syðra!
Hér ríkir því nú það ástand,
að á annað þúsund fjár er slátrað
daglega. Engu að síður er það á
einskis manns færi að fá nýtt
kjöt. Þessi furðulega íyrirskipun
Búnaðarráðs gerir livort tveggja
í senn, að skapa ranglæti gagn-
vart neytendum hér um slóðir og
spilla kjötmarkaði bænda, sem
venjulega er beztur í byrjun slát-
urtíðar. Á þetta þó sérstaklega
við nú, þar sem slátrun* þing-
eysks fjár hér er lokið 13. þ. m.,
en eftirspurn er jafnan mest eftir
því.
Tvenns konar réttur.
Tillitssemi Búnaðarráðs við
Reykvíkinga í þessu efni er
næsta næsta furðuleg. Ekki er
það neinn ávinningur fyrir þá,
þótt bæjarmönnum hér sé bann-
að að kaupa nýtt kjöt, og minna
má á jjað, að ríkisvaldið hefir
ekki sýnt öðrum landshlutum
slíka tillitssemi, er um vörudreif-
ingu yfirleitt hefir verið að ræða.
Er skemnrst að minnast þess, er
miklar birgðir af ávöxtum konru
til landsins á sl. vetri. Ekki stóð
(Framhald á 8. síðu).
Krefjast svipaðra kjara og aðrar stéttir
njóta og verðlagsvaldsins úr höndum
Búnaðarráðs
Aðalfundur Stéttarsam-
bands bænda var háður að
Hvanneyri dagana 3. og 4.
sept. sl. Fundurinn var á-
gætlega sóttur, sátu hann
45 kjörnir fulltrúar úr öll-
um sýslum, og vantaði að-
eins þrjá fulltrúa á fulla
tölu þeirra. Auk fulltrú-
anna sátu fundinn stjórn
Bifreiðum á Almr-
eyri f jölgar um 200
á þessu ári
Umferðarnefnd kaupstað-
arins gerir tillögur til úr-
bóta á umferðamálum í
bænum
Umferðanefnd sú, sem kjörin
var af bæjarstjórninni í maí sl.
til þess að gera tillögur varðandi
umferðamál bæjarins, hefir nú
skilað áliti. Nefndin birtir ýmsar
upplýsingar varðandi umferðina
og gerir tillögur til lagfæringar á
(Framhald á 8. síðu).
„Géysir“ fær sænskan
söngkennara
í gærkveldi kom liingað til
bæjarins sænskur söngkennari og
tónlistarmaður, Gösta Myrgart
að nafni. Mun hann dvelja hér í
bænum í a. m. k. 2 mánuði og
hafa á hendi söngkennslu, á veg-
um karlakórsins Geysis. Myrgart
er ráðinn hingað til lands af
Sambandi ísl. karlakóra og mun
verða hérlendis í eitt ár og kenna
sambandskórunum. Myrgart er
kunnur kennari og söngstjóri' í
heimalandi sínu.
r
Framkvæmdarstjóri Ut-
gerðarfélagsins ráðinn
Á stjórnarfundi í Útgerðarfé-
lagi Akureyringa h.f. nú fyrir
skemmstu, var gengið frá ráðn-
ingu framkvæmdastjóra. Ákveð-
ið var að ráða Guðmund Guð-
mundsson, skipstjóra, til starfs-
ins, og hefir hann þegar tekið við
því. Búizt er við, að „Kaldbakur“
verði fullbúinn frá skipasmíða-
s öðinni í Englandi í desember
næstkomandi.
sambandsins, form. Búnað-
arfélags íslands, búnaðar-
málastjóri, ritstjóri ,,Freys“
og nokkrir aðrir gestir.
Eftir að flutt hafði verið skýrsla
um störf sambandsins á s.l. starfs-
ári var skýrt frá niðurstöðum at-
kvæðagreiðslu þeirrar, er fram
fór í hreppa'búnaðarfélögunum,
samkvæmt ályktun stofnfundar-
ins á Laugarvatni 7. sept. f.á.,
þar sem leitað var álits bænda
um hvort þeir óskuðu, að sú skip-
an, er þar var samþykkt héldist.
Gild atkvæði voru samtals 4548
og er það um 80% af öllu at-
kvæðamagni innan samtakanna.
Þeir, sem vildu hafa stéttarsam-
bandið í tengslum við Búnaðar-
félag íslands áttu að segja já, hin-
ir nei. Já sögðu 2519, en
nei 2029, auðir seðlar voru 150
og ógildir 18.
Eru því 55,39% með því skipu-
/agi, er Laugarvatnsfundurinn
ákvað, en 44,61% á móti, eða
liðlega 11 á móti 9.
Þátttakan í atkvæðagreiðsl-
unni gefur til kynna, að bændur
standa einhuga um stofnun sam-
bandsins og hin ágæta fundar-
sókn fulltrúanna leiðir ennfrem-
ur í ljós, að áskoranir til bænda
um að fara hvergi á fundinn,
hafa ekki átt miklu fylgi að fagna
og er það vel farið.
Hvanneyrarfundurinn ræddi
því næst samþykktir Stéttarsam-
bandsins og voru samþykktar
nokkrar breytingar á þeim, í einu
hljóði, og er þar með ráðið til
lykta þeim ágreiningi sem verið
hefur um skipan samtakanna.
Þessar breytingar eru að forminu
til háðar því, að Búnaðarfélag ís-
lands breyti lögum sínurn til
samræmis við þær, en engin á-
stæða virðist til að ætla, að þetta
formsatriði verði nein hindrun
á vegi Stéttarsambandsins.
Einingin á Hvanneyrarfund-
inum boðar það vonandi, að öll-
um ágreiningi og úlfaþyt -um
starf þess hafi verið vikið til
liliðar. Eins og flestarekurminni
til, stóðu miklar deilur um það,
hvort sambandið skyldi vera í
tengslum við Búnaðarfélag ís-
lands eða ekki og vildu sumir
sniðganga hin gömlu heildar-
samtök bændanna með öllu.
Gegn þessu risu Búnaðarþings-
fulltrúar og fleiri, en inn í þær
deilur, sem þá urðu, fléttaðist
ýmislegt annað, sem raunveru-
lega var þessum málurn óvið-
(Framhald á 3. síðu).