Dagur - 26.09.1946, Blaðsíða 4
4
D A G U R
Fimmtudagur 26. september 1946
DAGUR
Ritstióri: Haukur Snorrason
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Marínó H. Pétursson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166
Blaðið kemur ut á hverjum fimmtudegi
Árgangurinn kostar kr. 15.00
Gjalddagi er 1. júlí.
Prentverk Odds Bjömssonar
I fótspor Rússakeisara
trOMMÚNISTAR hafa lýst yfir því, að ef upp-
kast Ólafs Thoars að samningi við Bandaríkin
verði samþykkt, muni þeir slíta stjórnarsamstarf-
inu. Það er því viðbúið, að þjóðin eigi eftir að
vera vitni að því, að hin nausturlenzki einræðis-
flokkur yfirgefi hið sökkvandi skip stjórnarsam-
starfsins á flothylki ættjarðarástar, en „nýsköpun-
in“, dýrtíðarmálin og gjaldeyrisástandið, hverfi í
hafið með stjórnarskútunni. Þesssi viðskilnaður
kommúnista — ef hér er um annað og meira en
venjuleg hreystiyrði að ræða — er þess virði, að
alþjóð gefi honum sérstakan gaum.
þAÐ VAR SAGT um Rússakeisara fyrr á öld-
um, að þeir hefðu alla jafna haft á takteinum
eitt óbrigðult ráð, er í 'móti blés í innanlandsmál-
unum og erfiðlega gekk að halda lýðnum í skefj-
um. Það var að fara í stríð. Með hornablæstri og
gunnfánum tókst að leiða athyglina frá ástandinu
'heima fyrir og endurreisa trúna á handleiðslu
stjórnarvaldanna.
gOMMÚNISTARNIR hér hafa undanfarna
daga fetað dyggilega í fótspor þessara löngu
liðnu þjóðhöfðingja. Þeir hafa rekið sig á þá
óþægilegu staðreynd,, að gamli lofsöngurinn um
„nýsköpun“ og „blessun dýrtíðarinnar“ er hættur
að hrífa hugi fólksins. Sjóðirnir eru þurrausnir,
en erfiðleikar framundan. Til þess að mæta þeim
þarf karlmennsku og þegnskap. Á þeim vettvangi
kenna kommúnistar vanmáttar síns. Þeir treysta
sér ekki til þess að vera foryztumenrí í stjórn, sem
hefir annað og stærra verkefni en eyða fjármun-
um þjóðarinnar og grafa unda^ fjárhagsöryggi
hennar. Til uppbyggingarinnar duga engar lýð-
æsingar; aðgerðir þær, sem óhjákvæmilegar eru
til þess að lækna dýrtíðarmeinið og koma fjármál-
unum aftur á réttan kjöl, eru ekki líklegar til
þess að afla grunnsigldum æsingaflokki kjörfylg-
is. Þess vegna er nú gripið fyrsta tækifærið, sem
gefst, til þess að „fara í stríð“. Með öllum þeim
hávaða, gauragangi, æsingum og upphrópunum,
sem" kommúnistar hafa -svo mikla æfingu í að
beita, er nú reynt að æsa fólk upp gegn ímynd-
aðri hættu, sem þjóðinni stafi af Bandaríkja-
mönnum. Hinn fyrirhugaði samningur um ís-
lenzk yfirráð Keflavíkurflugvallarins ásamt leyfis-
veitingu til hinnar vinveittu stórþjóðar um tak-
mörkuð afnot vallarins, meðan Bandaríkin þurfa
að hafa á hendi stjórn í stórum hluta Þýzkalands,
er túlkaður sem „landaafsal" og allt gert, sem
unnt er, til þess að telja fólki trú um, að hér sé á
ferðiríni dulbúin aðferð til þess að leggja ísland
undir Bandaríkin. Þessi söngur er kyrjaður af
tvöfaldri ákefð, af því að svo vel hittist á fyrir
kommúnistaforsprakkana, að jafnframt því sem
þessi leikur á að verahæfilegdulmálningáástand-
ið í fjár- og viðskiptamálum þjóðarinnar, er hann
jafnframt í fullu samræmi við gildandi „línu“ frá
Moskvu, sem keppir að því, að gera fyrirætlanir
Bandaríkjamanna og Breta sem allra tortryggileg-
astar og ætla hverja viðleitni lýðræðisþjóðinna til
.þess að korna á jafnvægi í heiminum, sprottna af
illurn hug í garð Sovét-Rússlands og leppríkja
þess.
TjAÐ ER-HÖLlKLEGT, að hornaskak og vopna-
^ sveiflur kommúnista blekki marga íslend-
inga. Þjóðin hefir lýst yfir þeim vil ja sínum, að
vilja engar herstöðvar, en hún mun áreiðanlega
vilja vinsamlega sambúð við lýðræðisríkin í
vestri, sem fyrst allra ríkja viðurkenndu sjálfstæði
Islands og lögðu ómetanlegan skerf til framtíðar-
öryggis íslenzku þjóðarinnar. Leyfi til fianda
amerískum flugvélum í Þýzkalandsferðum, til af-
Náttúruhamfarir á
haustj'afndægrum.
gTÓRRIGNINGARNAR um síð-
ustu helgi breyttu Akureyri í eins
konar Feneyjar á norræna vísu. Sjald-
an eru, sem betur fer, flóðgáttir himn-
anna opnaður öllu rækilegar en þetta
sinn yfir okkur, syndugum Eyfirðing-
um og bæjarmönnum, sem annars
byggjum tiltölulega þurrviðrasamt
hérað. Vatnsflaumurinn ofan af
brekkunum um allar götur og húsa-
sund var með eindæmum, og stór
svæði á Oddeyrinni neðanverðri lögð-
ust algerlega undir vatn. Vantaði þá
ekkert nema gondóla þeirra Feneyj-
armanna til þess að fleyta sér á um
hinn nýja Stórasjó, þar sem göturusl-
ið og sprekin dugðu ekki sem stiklur.
En norðanstormurinn annaðist báta-
söngvana sannarlega með nægilegum
krafti og myndugleika. Víða þurftu
húsbændur og húseigendur að standa
í stóraustri til þess að verja íbúðir
sínar og sölubúðir í kjöllurum og
neðstu hæðum húsanna ágjöf og
vatnsflóði, og mun þó sums staðar
ekki hafa hrokkið til. Urðu nokkrar
skemmdir allvíða á vamingi og híbýl-
um manna af völdum vatnsflaumsins.
Víða breyttust niðurföllin í götunum
í talsverða gosbrunna, því að vatns-
þrýstingurinn í skólpræsunum varð
svo mikill, að rörin höfðu hvergi
nærri undan að skila vatnsmagninu til
sævar.
Stopul mannvirki.
^NNARS ÞARF vissulega ekki sér-
lega mikið til, svo að þessi nauð-
synlegu mannvirki bæjarfélagsins,
skólplueiðslumar og göturennumar,
gangi úr skorðum eða hrökkvi ekki til
nota af flugvellinum, innan um-
saminna takmarka, eru á engan
hátt nein skerðing á fullveldi
landsins og á ekkert skylt v-'ð
,,landaafsal“. Slíkt leyfi er aðeirs
vottur um vinsamlega og tor-
tryggnislausa sambúð þjóðanna.
HITT er svo rétt að benda,
að uppkast það, sem for'sæt-
isráðherra hefir upp á eigið ein-
dæmi fjallað um og lagt fyrir
þingið, þyrfti nokkurra breyt-
inga við, til þess að enginn vafi
leiki á um einstök samnings-
atriði. Vonandi er þessu máli
ekki svo komið, í höndum utan-
ríkisráðherrans, að ekki sé á færi
Alþingis að gera slíkar breyting-
ar. Úr því mun reynslan skera
næstu daga. Yfirleitt mun það
síður en svo hollt fordæmi, í lýð-
ræðisríki, að utanríkisráðherr-
ann fjalli upp á eigin spýtur um
viðkvæm utanríkismál, sem
þetta, án samráðs við utanríkis-
málanefnd þingsins eða stjórnm.-
flökkana. Þetta tiltæki Ólafs
Thors mun sízt hafa gert málið
auðveldara viðfangs. Engir af
ábyrgum stjórnmálamönnum
landsins munu vilja sýna Banda-
ríkjamönnum fjandskap eða
ástæðulausa tortryggni. Með sam-
ráði lýðræðisflokkanna hefði
mátt leysa þetta mál á auðveldari
hátt og gera allan stríðsbúnað
kommúnista að athlægi þegar í
upphafi. En kannske kann for-
sætisráðherrann því ekki illa, að
stríðsmálning kommúnista skýli
enn um stund ástandinu í innan-
landsmálunum, sem skapast hef-
ir fyrir tilverknað þeirrar stjórn-
ar, sem hann veitir forstöðu.
að gegna ætlunarverki sínu, svo að í
lagi sé. Það er nefnilega allalgeng
sjón, strax og nokkuð tekur að rigna
að ráði, að sjá regnlækina grafa sig
niður hvar sem verkast vill á götun-
um, einkum þó í þvergötunum á
Brekkunum. Myndast oft allferleg gil
og gljúfur á alfaraleiðum borgaranna
með þessum voveiflega hætti. Er þá
tíðast, að verkvöldum og mannvirkja-
fræðingum bæjarins verður það fyrst
fyrir, þegar upp styttir, eða leysingar-
vatnið er runnið burtu, að láta hrúga
nýrri möl, leir og sandi ofan í þessa
leiðu grafninga og slétta svo laglega
yfir ummerkin á þennan vísdómsfulla
hátt. Lítur þetta ekki ólaglega út í
bili, en gallinn er bara sá, að þessi um-
búnaður er harla losaralegur og tilval-
inn leiksoppur fyrir nýja vatnavexti,
og er þá sami leikurinn endurtekinn
aftur og aftur, ár eftir ár, án þess að
leitað sé nýrra úrræða eða vinnuvís-
inda. Sem dæmi um árangur þessarar
tegundar gatnagerðar má nefna gang-
stéttina, sem lögð var í fyrra upp
Laugarskarð, sunnanvert við andakíl-
inn. Var laglega gengið frá henni í
fyrstu — á yfirborðinu — svo sem
vera ber. En nú er svo komið, eftir
ekki lengri tíma en þetta, að stétt
þessi er öll snúin og skæld og sums
staðar grafið undan henni af reg-i og
leysingarvatni, svo að hún hefir hrap-
að niður í farveginn og lætur þar
fremur lítið yfir sér og framsýni feðra
sinna og vjrksviti, og fer óneitanlega
bezt á hóglætinu úr því, sem komið
er.
Ný samgöngubót.
1?N FYRST vatnsföll í smáum stíl
hefir borið hér á góma, er rétt að
minnast einnig að nokkru hinna stærri
vatnsfalla og brúargerða á þeim, þótt
illa takist stundum til, þegar leysing-
arlækirnir á götum bæjanna skulu
beizlaðir Nú hefir verið hafizt handa
að brúa eina verstu ótemju í hópi ís-
lenzkra straumvatna, sjálfa Jökulsá á
Fjöllum. Nýja brúin verður reist und-
an Grímsstöðum og skal verkinu lok-
ið á næsta sumri. Þetta verður mikið
mannvirki og hin þarfasta samgöngu-
bót, styttir leiðina til Austurlands um
80 km., og það um versta kafla leiðar-
innar, þar á meðal hina snjóþungu
Reykjaheiði.
TÖKULSÁRBRÚIN nýja er byggð
• fyrir fé úr brúarsjóði, en sá sjóður
var myndaður fyrir nokkrum árum
fyrir forgöngu Eysteins Jónssonar og
Páls Zophoníassonar. I sjóðinn rann
hluti af benzínskatti, og skyldi fénu
varið til stórbrúa, sem annars væri
erfitt að fá fjárframlög til eftir venju-
legum fjárlagaleiðum. Var jafnframt
ákveðið í sjálfum lögunum, að byrja
skyldi á Jökulsárbrúnni. Án brúar-
sjóðs hefði sennilega dregizt lengi
enn, að þetta nauðsynlega mannvirki
yrði reist. En nú er Pétur Magnússon
búinn að koma lögunum um brúarsjóð
fyrir kattarnef og þar með er hætt að
leggja fé til sjóðsins á sjálfri nýsköp-
unaröldinni! Önnur lög og óþarfari
hefðu gjarnan mátt verða fyrr fyrir
réttlætissverði landbúnaðarráðherr-
ans en þessi.
til sölu. — Upplýsingar í
síma 363.
Starfsstúlkur
vantar á Sjúkrahús Akureyr-
ar nú þegar eða 1. október.
Upplýsingar í síma 107.
Börnin og kvöldröltið
Það hefir oft verið rætt mikið og ritað um úti-
vistir barna og unglinga á kvöldin og ýmsar sam-
þykktir verið gerðar í því sambandi.
Sannarlega er hér um vandamál að ræða og
mikið verkefni fyrir heimilin og þá sennilega
einkum fyrir húsmóðurina.
Öllum er ljóst, að hin dimmu haust- og vetrar-
kvöld eru ekki að neinu leyti æskilegur tími til
leikja eða útivistar yfirleitt.
Auk þess ber að hafa í huga svefntíma barna og
unglinga nú, þegar skólar eru að hefjast, og nám-
ið krefst þess, að nemandinn sé vel sofinn og
hvíldur, ef vel á að ganga.
Mörg heimili hafa, sem betur fer, sín eigin lög
í þessum efnum.
* Slík óskráð lög heimilanna er hið æskilegasta
fyrirkomulag, því að sífellt tal um bann og bann-
lög er ekki heppilegt við alla unglinga og leiðin-
legt er að þurfa yfirleitt að nefna lögreglu í þessu
sambandi.
Hér er það reglusemi og festa foreldranna sem
þarf að vera að 'verki. Sé barnið vanið á vissan
háttatíma og þar á engar undantekningar gerðar,
mun málið auðvelt viðfangs, því að maðurinn er
yfirleitt afar vanafastur og þá einkum hinn ómót-
aði maður — barnið. — Það er jafn auðvelt að
temja barninu góðar venjur og slæmar, og því er
um að gera að halda sér að þeim góðu, þegar í
upphafi. — Útivistir barna og unglinga á kvöldin
er ósiður, sem allir verða að hjálpa til að vinna á
móti. P.
HVAÐ SEGIR VERA?
Kjóll, sem hægt
tr að nota jafnt
heima og úti, í boð-
urn og heimsókn-
um, verður að telj-
ast hentug flík.
Þessi kjóll á að
þjóna ofangreind-
um tilgangi. Hann
er úr dökkbláu
,crepe‘ og er jakka-
kjóll. Hnapparnir
eru þaktir sama
efni.
Það, sem setur
svip á kjólinn, er
doppótta stykkið,
sem er dregið í
gegn á annarri
hliðinni og þar út-
búin öfug slaufa og
endinn látinn
hanga niður. —
Stykki þetta er
hvítt en doppurn-
ar dökkbláar eða í
sama lit og kjóllinn
sjálfur.
EINKARÉTTINDI.
Hin stórgáfaða menntakona, frú Sigrún P. Blöndal,
sem stofnaði Húsmæðraskólann á Hallormsstað, og
veitti honum forstöðu til dauðadags (1944), komst svo
að orði eitt sinn er hún kvaddi námsmeyjar sínar:
,,.... Sína innstu, helgustu köllun sem kona,
uppfyllir hún ekki úti í þjóðfélaginu, heldur á
heimilinu sem móðir og eiginkona. — Eg held, að
eitt mein vorra tíma liggi í því, að konur van-
rækja þessa köllun og hafa hana ekki nógsamlega
í heiðri, líta ekki á hana heldur sem þjóðfélags-
lega skyldu, en kasta henni oft frá sér fyrir falskar
frelsiskröfur og annað fánýti. — Of margar konur
hafa lært að líta á móðurstarfið sem skyldu,
hjónabandið sem þrælkun og heimilið sem
þröngan hring. — En mig langar til að snúa þessu
við og segja: Allt þetta eru einkaréttindi ykkar,
sem þið eigið að vernda, vaka yfir og verja til
hinztu stundar. — Og það er af því, að þið eruð
hvergi í fullu samræmi við það bezta í sjálfum
ykkur nema þarna. . . . “