Dagur - 27.11.1946, Blaðsíða 1
4 Færeyingar semja við *
Breta um fisksölu
500 smálestir á viku
Fiskurinn veiddur af
gömlum ísl. togurum
Brezka blaðið Fishing News
greinir frá því nýlega, að Fær-
eyingar hafi samið um sölu á;;
500 smálestum fiskjar á viku
! til Bretlands. Brezka matvæla
ráðuneytið hefur haft milli
göngu um samninga þessa
Segir blaðið, að færeyskir tog
arar muni flytja þetta fisk
magn til Bretlands, og standi
togarafloti eyjarskeggja betur
að vígi en áður, þar sem hann
hafi verið aukinn mjög með
kaupum skipa frá íslandi.
Blaðið segir enn fremur:
„Fjarvistir flestra íslenzku
togaranna frá Fleetwood hafa
orðið þess valdandi, að heildar
;; fiskmagnið á brezkum mark-
aði hefir minnkað verulega og
atvinnuleysi hefir orðið hjá
hafnarstarfsmönnum í Fleet-
wood. Ástæður hafa stórlega
batnað vegna þessa nýja samn-
ings við Færeyinga."
Templarar heiðra
Sigurgeir Jónsson
Skjaldborgarbíó sýnir Chopin-
myndina frægu, Unaðsóma, til
heiðurs og ágóða fyrir Sigurgeir
Jónsson organleikara, í tilefni af
áttræðis-afmæli hans, sem var
25. þessa mánaðar.
Sýningin verður næstkomandi
sunnudag, 1. desember, kl. 5 e. h.
og hefst með því að Sigurgeirs
Jónssonar verður minnzt með
nokkrum orðum, en þau hjónin
eru boðin á sýningu þessa. Að-
göngumiðar verða seldir með sér-
verði (kr. 5.00) og fer sala þeirra
fram í Verzl. Ásbyrgi á föstudag-
inn, en verði eitthvað óselt þá við
innganginn á sunnudaginn.
Er þess vænzt að templarar
fjölmenni á heiðurssýningu
þessa, svo og aðrir vinir hans,
eldri og yngri nemendurTog unn-
endur hljómlistar yfirleitt.
Blekkingum
Odds Guðjónssonar
hnekkt
Tíminn hefir birt ýtarlega
greinargerð, þar sem hraktar eru
fullyrðingar dr. Odds Guðjóns-
sonar um gjaldeyriseyðsluna í tíð
ríkisstjórnarinnar. Er þar sannað
með óhrekjanlegum tölum, að
það, sem Framsóknarblöðin hafa
sagt um gjaldeyriseyðsluna, 1200
millj., er rétt. Vegna þrengsla í
blaðinu í dag, verður nánari frá-
sögn um þessa athyglisverðu
greinargerð að bíða næsta blaðs.
Gefst þá tækifæri til^þess að
svara stóryrðum síðasta íslend-
ings um afstöðu Framsóknar-
blaðanna til þessa máls.
Fertugur er í dag Jóhann Frímann
skólastjóri.
Sextu&saímæli átti sl. mánudag, 25.
nóv., frú Þórhalla Jón?dóttir, Gránu-
félagsgötu 57, hér í bæ.
Útgerðarmenn lýsa yfir stöðvun fiskiflotans
Kaupfélag Þingeyinga lagði vafaféð í
tryggingarsjóð til hags fyrir útgerðina
“ . , I vetur verður engin
Glæsilegir hljóm- útgerð að óbreyttum
leikar „Geysis46 aðstæðum
Skrif Verkamannsins um málareksturinn gegn K. Þ.
eru illgjörn og villandi —
Verkamaðurinn hér flutti lang-
lokugrein sl. laugardag í tilefni
þess, að fallinn er dómur í
Hæstarétti í máli, er sjómaður í
Húsavík höfðaði gegn kaupfélag-
inu þar, til greiðslu á arði af fisk-
verzlun. Hafði félagið keypt fisk-
inn föstu verði, samkvæmt fisk-
verðlagi því, er þá ríkti í landinu
að tilhlutan Fiskimálanefndar.
Með hækkandi verði í stríðsbyrj-
un varð rösklega 40 þúsund
króna hagnaður af fiskkaupum
félagsins af sjómönnum í Húsa-
vík, og kröfðust þeir þá arð-
gréiðslu. Félagið taldi hins vegar,
að verðið hefði verið fyrirfram
umsamið og vildi ekki greiða arð-
inn, en tók til greina varákröfu
sjómanna að féð yrði lagt í trygg-
ingasjóð til þess að mæta halla er
kynni að verða í framtíðinni á
síldarsölureikningi félagsins og á
rekstri hraðfrystihússins. Einn
sjómannanna höfðaði eigi að síð-
>ur mál og fékk sér dæmdar 7500
krónur sem arð á fiskkaupum'fé-
lagsins af honum. Dómur þessi
hlýtur að byggjast á því, að ekki
hafi verið talið sannað, að maður
þess'i vissi að um fast verð væri að
ræða, en ekki á því, að kaupfé-
Ritgerðasafn
Sigurðar skólameistara
komið út
lögum, sem öðrum verzlunarfyr-
irtækjum, sé ekki heimilt að gera
samninga um kaup fyrir fast
\ierð. Eru því útskýringar yerka-
mannsins út í hött. Vitaskuld get-
ur það komið fyrir, og kemur oft
fyrir, að félagsmenn óska heldur
áð félagið-taki á sig áhættuna af
verzlun með ýmsar vörutegundir
og óski að fá greitt fast verð.
Kemur tæpast til mála, að ekki sé
hægt að gera slíka samninga,
enda eru dæmi þess, að félags-
menn séu ófúsir að láta af hendi
vörur, ef hætta er á að þeir fái
bakreikninga vegna halla af söl-
unni. Er og hætt við, að enginn
málarekstur hefði verið rekinn
gegn félaginu, ef sú hefði orðið
raunin á í þetta sinn, að halli
hefði orðið á sölunni, sem vel gat
komið fyrir, því að verðlag allt
var óvíst er salan fór fram.
Þótt þessi dæmi séu til um
starfrækslu kaupfélaganna er hitt
þó vitaskuld algengara, að félög-
in hafa vörur félagsmannasinnaí
umboðssölu og er það vísvitandi
blekking rithöfunda Verka-
mannsins, er þeir gefa í skyn, að
svo sé ekki. Situr illa á þeim
herrum, er vörðu hneykslin í
Siglufirði um árið, að gera mik-
ið veður út af þessu atriði, sem
þrátt fyrir þennan dóm, hlýtur
alla tíð að vera mikið vafamál að
skilningi flestra réttsýnna
manna.
Gösta Myrgart.
Karlakórinn Geysir hafði
hljómleika í Nýja-Bíó sl. sunnu-
dag, undir stjórn Gösta Myrgart
söngkennara. Húsfyllir var á
hljómleikunum og söngmönnun-
um ákaft fagnað. Bárust söng-
stjóranum blóm. Á efnisskránni
voru lög eftir innlend og erlend
tónskáld. Einsöngvarar voru
Hreinn Pálsson, Guðmundur
Guonarsson, Jóhann Guðmunds-
son, Skjöldur Hlíðar og Gösta
Myrgart. Kórinn söng sænskár
þjóðvísur, Pílagrímskórið úr
Tannhauser og íslands lag eftir
Björgvin Guðmundsson. —t Var
söngurinn mjög fágaður, hreinn
og glæsilegur. Einsöngvurunum
var ágætlega fagnað, enda var
frammistaða þeirra með ágætum.
Geysir syngur aftur annað kvöld
í Nýja-Bíó.
Nýlega er komið út ritgerðar-
safn eftir Sig. Guðmundsson,
skólameistara. Nefnir hann bók-
ina „Heiðnar hugvekjur og
mannaminni". Tónlistarfélag
Akureyrar gefur út. Bókarinnar
verður nánar getið hér í blaðinu
síðar.
Bæjarstjórn hefir kosið
stjórn fyrir Krossanes-
verksmiðjuna
Síðasti bæjarstjórnarfundur
kaus nefnd til þess að hafa með
höndum stjórn Krossanesverk-
smiðjunnar og gera tillögur um
framtíðarfyrirkomulag hennar. í
nefndina voru kosnir þessir
menn: Guðmundur Guðlaugs-
son, Jón G. Sóines, Jón M. Árna-
son, Steingrimur Aðalsteinsson
og Steinn Steinsen. Nefndin hef-
ir skipt með sér verkum og er
Guðmundur Guðlaugsson for-
maður hennar en Jón G. Sólnes
ritari.
r ■
Iþróttamenn vilja fá yfirbyggða sundlaug
Aðalfundur íþróttafélagsins „Þórs“ sendir bæjarstjóm
erindi um sundlaugarmálin og varar við ástandinu
í áfengismálum þjóðarinnar
Aðalfundur íþróttafélagsins
Þórs var haldinn í íþróttahúsinu
hér sl. föstudag. — Fundurinn
gerði tvær markverðar ályktanir,
aðra um sundlaugaimál bæjarins
en hina um áfengismálin. f er-
indi til bæjarstjórnar Akureyrar,
sem samþykkt var á fundinum,
segir:
„Aðalfhndur Iþróttafélagsins
Þórs 1946, bendir á þá staðreynd,
að sundlaug bæjarins er æ minna
sótt og er af mörgum talin svo
köld mikinn hluta ársins, áð
varla sé hæf til sundnáms börn-
um og óhörðnuðu fólki. Jafn-
framt bendir fundurinn á, að á
þessu ári hefir verið ákveðið að
verja úr bæjarsjóði allríflegri
fjárupphæð til að koma hér upp
yfirbyggðri sundlaug. Samkvæmt
þessu skorar fundurinn fastlega á
háttvirta bæjarstjórn Akureyrar,
að taka sem fyrst til athugunar
möguleika á að koma upp yfir-
byggðri laug í gilinu norðan við
íþróttahúsið, þegar á næsta sumri
og gera ráðstafanir til tryggingar
á vinnukrafti og byggingarefni
þegar til framkvæmda kemur.“
Fundurinn gerði eftirfarandi
ályktun um áfengismál:
„Aðalfundur Iþróttafélagsins
Þórs, beinir þeiná spurningu til
háttvirtrar ríkisstjórnar, hvort
hún telji heppilega þjóð og ríki
þá stefnd; er nú ræður í áfengis-
málum hér á landi og hvort hún
telji að ekki sé hægt að stjórna
landinu án þeirra varasömu
tekna, sem fást af áfengissölu,
eins og nú er.“
Fréttamenn blaða og útvarps
voru sl. fimmtudag kvaddir á
fund formanns og framkvæmda-
stjóra Landssambands ísl. útvegs-
manna, þar sem þeim var skýrt
frá því, að mikill meirihluti út-
vegsmanna í landinu hefði lýst
yfir því, að þeir treystu sér ekki
til að gera skip sín út, nema út-
gerðinni væri tryggður stórum
hagkvæmari starfsgrundvöllur.
Fer hér á eftir yfirlýsing um
þetta efni, sem umræddir forráða
menn L.Í.Ú. afhentu blöðunum:
Eins og kunnugt er, hefir full-
trúaráðsfundur Landssambands
ísl. útvegsmanna setið að störfum
undanfarna daga. Útgerðarmenn
hafa gert forráðamönnum þjóð-
arinnar kunnugt um, hve alvar-
lega horfi um rekstur fram-
leiðslutækjanna til sjávarins, fef
ekki fást verulegar breytingar á
þeim aðstæðum, sem nú eru fyrir
hendi um rekstur þessa atvinnu-
vegar með þjóðinni. Fulltrúaráðs
fundurinn hefir bent á það, að
raunverulega væri komin stöðv-
un á fiskiskiptaflotann og mundi
verða alger stöðvun og engin
vetrarvertíð, ef ekki tækist að
leysa þau vandamál, er nú steðja
að útgerðinni. Þetta álit fulltrúa-
ráðsfundarins hefir ekki verið vé-
fengt, en til frekari staðfestingar
á því, að svo væri komið, sendi
stjórn Landssambandsins öllum
deildum sambandsins skeyti þess
efnis, að spurzt var fyrir um það,
hvort útgerðarmenn mundu
treysta sér til þess að halda áfram
útgerð að óbreyttum aðstæðum.
Þetta var ákveðið á kvöldfundi
fulltrúaráðsfundarins hinn 15. þ.
m., en síðar varð fundinum frest-
að til þriðjudagsins 19. þ. m., og
voru þá komin svör frá flestum
deildum sambandsins, sem voru
öll á einn'veg, — það er að segja,
að stöðvun fiskiskipaflotans ís-
lenzka væri raunverulega skollin
á, og að þeir mundu ekki treysta
sér til útgerðar, eða hefja útgerð,
eins og nú væri málum komið
fyrir útgerðinni í landinu. Hér
er um svo alvarlegt mál að ræða,
að stjórn Landssambandsins tel-
ur rétt og sjálfsagt að gera blöð-
unum og ríkisútvarpinu aðvart
um þetta, og þess vegna var for-
manni Landssambandsins, fram-
kvæmdastjóra þess og fundar-
stjóra á fulltrúaráðsfundinum,
falið að kalla þessa menn á fund
sinn og skýra þeim frá þessu og
afhenda þeim svör deildanna.
Að sjálfsögðu var fulltrúaráðs-
fundinum á þriðjudaginn skýrt
frá svörum deildanna og voru
(Framhald á 8. síðu).