Dagur - 27.11.1946, Qupperneq 2
2
* D A G U R Miðvikudagur 27. nóvember 1946
Fjóshaugurinn fyrir
kirkjudyrunum
Eitt sinn, er Sæmundur fróði
var að messa í kirkju sinni, gerði
Kölski. honum þann hrekk að
setja fjóshauginn fyrir kirkju-
dyrnar og hugiðst á þann hátt að
loka prest og söfnuðhansinni.En
prestur hafði náð því valdi yfir ó-
vininum, að hann var neyddur til
að bera hauginn á brott og sleikja
laut í helluna, sem vár fyrir dyr-
um kirkjunnar.
Þannig skýrir þjóðsagan frá.
Stjórn auðmanna og verkalýðs
á Islandi reisti nýsköpunarkirkju
mikla og.bauð þjóðinni inn í
hana. Meiri framkvæmdir áttn
að ske á Islandi en nokkrn hafði
dreymt um áður. Þetta var út af
fyrir sig lofsverð hugmynd. En
vegna fyrirhyggjuleysis og stríðs-
gróðavímu stjórnarinnar og
flokka hennar, safnaðist dýrtíðar-
haugur fyrir dyrum nýsköpunar'-
musterisins.og lokaði nýsköpun-
ina jrar inni, svo að úr lrenni varð
ekki| annað en boðun fagnaðar-
erindisins, en engar raunveru-
legar framfarir.
Nýsköpunarfoikólfana skorti
kunnáttu og vilja Sæmundar
fróða til að koma haugnum frá
kirkjudyrunum. Hann situr þar
því enn til eyðileggingar allri ný-
sköpun atvinnuveganna.
—o—
Framsóknarmenn hafa árum
saman sýnt fram á það með gild-
um rökum, að dýrtíðarstefna
stjórnarflokkanna hlyti að véfða
slagbrandur fyrir framkvæmd-
um og leiða til ófarnaðar. Hvað
eftir annað hafa þeir borið fram
tillögur til stöðvunar og lækk-
unar dýrtíðinni. Talmenn stjórn-
arflokkanna gáfu þessari stefnu
Framsóknarmanna nafnið ,,hrun-
stefna" og kölluðu þá, er henni
fylgdu „hrunstefnumenn". Þess-
ar nafngiftir voru ekki annað en
áróður fyrir dýrtíðarstefnu stjórn
arinnar, en auk þess voru þær svo
órökvísar sem mest mátti verða,
enda hefir rökvísin sjaldan ver-
ið margra fiska virði í umræð-
stjórnarliða um dýrtíðarmálin.
Framsóknarmenn vöruðu við
hruni atvinnuveganna af völd-
um dýrtíðar og verðbólgu og
börðust á móti því af öllum
mætti. Það er víst alveg nýtt fyr-
irbrigði í stjórnmáladeilum hér
á'landi að kenna menn til þeirr-
ar stefnu, er þeir berjast á móti,
en það hafa stjórnarflokkarnir
látið sér sæma í þessu falli.
Aftur á móti eru forráðamenn
stjórnarflokkanna allir í samein-
ingu réttnefndir dýrtíðarbanda-
lag, því að í skjóli stefnu þeirra
hefir dýrtíðin aukizt jafnt og þétt
f jóshaugurinn fyrir kirkjudyrun-
um orðið stærri og stærri.
Lengi vel var dýrtíðarbanda-
lagið á einu máli um, að það væri
á réttri leið, en allar viðvaranir
Framsóknarmanna væru villu-
kenningar. Fyrr en alla varði —
jafnvel Framsóknarmenn líka —
hafa staðreyndirnar leitt í ljós,
að Framsóknarmenn sáu rétt,
dýrtlðin er að ríða atvinnuveg-
unum á slig, hrunið, sem Fram-
sóknannenn spáðu og sögðu fyrir
ei þegar komið til sögunnar, og
það svo greinilega að dýrtíðar-
postularnir koma engri vörn við.
Útgerðarmenn votta það ein-
um rómi, að dýrtíðin sé að ganga
af sjávarútveginum dauðum. Þeir
færa skýr rök fyrir því, að á næstu
vertíð verði 74 þús. kr. rekstrar-.
halli á hverjum vélbát og 43 þús.
kr. halli á hverri veiðiför togara,
allt miðað við meðalafla og sölu
fýrir hæsta Verð í Bretlandi. Þessi
sannindi birta svo útgerðarrtienn
í aðalmálgagni dýrtíðarbanda-
lagsins, Morgunblaðinu.
I annan stað m'á geta þess, að
gestir frá Norðurlöndum á nýaf-
stöðnu þingi Alþ^ðusambands-
ins votta það, að leiðtogar verk-
lýðsfélaga í löndum jreirra berj-
ast ákaft gegn dýrtíðinni, því
þeirn sé það fullkomlega ljóst, að
hún komi þyngst niður á verka-
mönnunum sjálfum. Þetta er
sama kenningin, sem Framsókn-
armenn hafa lengi haldið fram
hér, að krónufjöldinn kæmi
verkamönnum og öðrum laun-
þegum ekki að neinu gagni, ef
kaupmátturinn dvínar að sama
skapi. Þetta hafa leiðtoggr verka-
manna hér á landi ekki viljað
heyra. En ef til vill taka þeir
meira tillit til þess, sem stéttar-
bræður þeirra frá öðrum lönd-
um segja þeim af sinni reynzlu.
Þess væri að minnsta kosti ósk-
andi.
—o—
Þegar sýnt var að sjávarútveg-
urinn, sem er aðalundirstaða út-
flutningsverzlunar okkar, var að
stöðvast sökum dýrtíðarstefnu
stjórnarflokkanna, kom upp-
dráttarsýki í ríkisstjórnina.
Kommunistar lögðu fyrstir á
flótta úr stjórninni og hugðust
með því bjarga sínu skinni. Hin-
ir tveir stjórnarflokkarnir höfðu
verulegan meirihluta í Jringinu
og gátu þess vegna setið áfram við
völd. En þá brá svo við að Jreir
treystust ekki til þess, þrátt fyrir
allt skrum sitt um ást þjóðarinn-
ar á nýsköpuninni, sem þeir Jrótt-
ust vera að'frainkvæma. Þá urðu
þeir málskrafsmiklir um að koma
þyrfti á fót sterkri, víðtækri
stjórn, sem yrði þess megnug að
ráða fram úr dýrtíðarvandræð-
unum. í þessum vandræðum
hugkvæmdist Olafi Thors að
rnynda yrði stjórn allra flokka,
en til þess þurfti'að liafa konrm-
únista góða og lrefja umræður
við Framsóknarnrenn. Var það
sannarlega hart aðgöngu fyrir
dýrtíðarbandalagið, að þurfa að
leita á náðir Framsóknarflokks-
ins um þátttöku í ríkisstjórn, sem
á að vinna bug á dýrtíðarvand-
ræðum, sem fyrrverandi stjórn
hefir stofnað til..
Þegar þetta er ritað, er ekki
vitað, hvort viðræður flokkanna
leiða til nokkurs árangurs um
stjórn allra flokka. En meðan á
þeim samningaumleitunum hef-
ir staðið, hefir hrtt og annað smá-
skrítið komið í ljós. Sjálfstæðis-
menn og Alþýðuflokksmenn
kenna brotthlaupi kommúnista
úr stjórninni um öll þau vand-
ræði, sem nú steðj'a að. Þetta er
brosleg og barnaleg ályktun. Öll-
um kemur nú orðið saman um,
að meginorsök vandræðanna sé
dýrtíðin, sem er að leggja at-
vinnuvegi þjóðarinnar í rústir.
Allir vita líka, að þetta mein er
miklu 'eldra en flótti kommun-
ista úr stjórninni, svo að ekki
getur hann verið orsök meinsins.
Málgagn Sjálfstæðisflokksins
hér á Akureyri hefir lengi játað
ást sína á nýsköpun í landinu.
Það kom því eins og Jrruma úr
lreiðskíru lofti nýsköpunaráhug-
ans, þegar „íslendignur" nýlega
hóf upp raust sína og tók að álasa
Sís fyrir nýsköpunarframkvæmd-
ii og fjársöfnun til þeirra. Mæl-
ist þetta frumhlaup ritstj. ísl.
illa fyrir, Jrar á meðal í hans eig-
in flokki.
Afstaða Mbl. til vandamál-
anna og nýrrar stjórnarmyndun-
ar, ei* á þessa leið: Vandamálin
og öngjrveiti Jrað, er sívaxandi
dýrtíð hefir skapað, eiga að leys-
ast með samvinnu og samstjórn
þriggja fyrrv. stjórnarflokka, en
Framsóknarflokkurinn má ekki
koma þar nærri.
í Jressu er nú nokkurt vit, það
er dýrtíðarbandalag þriggja
stjórnarflokkanna, sem öngþveit-
inu veldur. Þeim er Jrví skýldast
að gera hreint fyrir sínum dyr-
um, afmá dýrtíðardrauginn og
sleikja laut í helluna, ef þeir eru
menn til. En það er bara hætt við
að þjóðin treysti þeim ekki til
þess.
UM VÍÐA VERÖLD
Þegar inntökubeiðnir íslands, Afgan-
istan og Svíþjóðar voru ræddar í póli-
tísku nefndinni á þingi Sameinuðu
þjóðarma, varð eitt meiriháttar uppi-
stand í nefndinni. Formaður hennar,
Manuilsky frá Ukrainu, fékk þá eftir-
farandi orð í eyra hjá ameríska þing-
manninum Conneíly: ,Jierra formað-
ur," sagði hinn stóri, góðlátlegi þing-
'maður ftá Texas og þuklaði á skraut-
legri þverslaufunni sirmi með annarri
hendinrú, en barði hinrti sex sinnum í
borðið. „Herra formaður," endurtók
hartn. „Þér eruð þjónn þessarar nefnd-
ar. Þér eruð ekki einvaldur stjórnandi
þessarar nefndar. Þetta er lýðræðisleg
nefnd, herra formaður, og við óskum
að kynna yður starfsaðferðir lýðræð-
isins.“ Mikil fagnaðaríæti kváðu við
um allan salinn og formaðurinn, herra
Manuilsky frá Ukrainu, blóðrauður í
framan, eihs og smádrengur, var fljót-
ut að afturkalía fyrri ákvörðun sína
um að nefndarfundur gæti ekki breytt
reglu um starfsaðferð, er formaðurinn
hafði sett. Aður en Connelly btandaði
sér í málið hafði rimman staðið yfir í
90 mínútur!
Bókbandsskinn
3 teg. svört og
brún, ódýr,
nýkomin
Bókaverzlun
Þorst. Thorlacius
MINNING:
Guttormur Brynjólfsson
A s i
Fæddur 3. desember 1903.
Dáinn 8. nóvember 1946.
Það var 9. nóvember siðastl.,
að eg hlustaði á kvöldfréttir út-
varpsins. 1 þetta sinn birtist frá-
saga af þeim hörmulegustu slys-
förum, er gerzt hafa hér á landi
um langt skeið.
Guttormur bóndi á Ási í Fella-
hreppi hafði þann 8. Jd. nr. farizt
al völdum sprengju, ásamt tveim-
ur dætrunr sínunr, Margréti
Nönnu 8 ára og Droplaugu 7 ára,
ennfrenrur bróðurdóttur sinni,
Ragnheiði Bergsteinsdóttur, 8
ára að aldri.
Við slík voðatíðindi drúpir öll
íslenzka þjóðin lröfði og vottar
aðstandendum sanrúð sína og
hryggð. Manni verður það einn-
ig á að spyrja: Hver sé tilgangur
þess máttar, senr lætur fegurstu
vonir mannlífsins rætast, en skil-
ur á-næstu augnabliknru eftir
auðn eina.
Slík tilhögun væri næsta tor-
skilin, ef þroski nrannanna ynni
ekki stöðugt að Jrví, að lýsa upp
nýjar og óþekktar brautir fram-
þróunarinnar. Síðan mennirnir
fóru að lrugsa unr framtíð sína,
lrefir lrugmyndin um dauðann
verið éitt ægilegasta hugtak
þeirra; veruleiki, sem ekki verði
umflúinn. Á síðari tímum lrafa
menn litið þetta öðrum augum.
Staðreyndir sanna okkur, að hið
tímabundna jarðneska mannlíf,
er aðeins stuttur áfangi á langri
þroskabraut hverrar mannsálar.
Þegar það er haft í huga, geta
jafnvel þyngstu raunir orðið
mildari, við þá hugsun, að máske
sé styttra tíl endurfundanna við
ástvinina, sem fluttir eru á und-
an yfir á landið ókunna, en nokk-
urn grunar.
Heimilið á Ási, eitt mesta
rausnarheimili Fellasveitar, hefir
oft áður goldið Jrungar fórnir af
völdum dauðans, þótt aldrei hafi
verið um svo sárt að binda, sem
nú. Menn og konur í blóma lífs-
ins hafa fallið, fyrir hinum
t^lynga sláttumanni, er slær allt
hvað fyrir er.“ En þrátt fyrir allt,
hefir þetta heimili jafnan átt
þróttmikla og glaða æsku.
Guttormur var fæddur að Ási
3. desember 1903. Foreldrar hans
voru Brynjólfur Bergsson bóndi
á Ási og Margrét Guttormsdótt-
ir kona hans. Guttormur ólst upp
í föðurhúsum, og vandist fjöl-
þættu og stórbrotnu umbóta-
starfi, sem hann síðar tileinkaði
sér í eigin starfi.
Skólaárin 1926-1928 dvaldi
hann við nám við Eiðaskóla og
lauk námi með góðum vitnis-
burði kennara og vináttu skóla-
systkina. Vorið 1935 keypti Gutt-
ormur föðurleyft sína Ás og hóf
þar búskap. Sama ár kvæntist
hann Guðríði Ólafsdóttur, frá
Skeggjastöðum, sem lifir mann
sinn, ásamt tveim börnum þeirra,
Guðlaugu og Brynjólfi. Starfs-
saga Guttorms er lærdómsrík. Á
fáum árum tókst honum, að hefja
sig frá eignalitlum æskumanni,
til bjargálna sjálfseignarbónda,
enda var hann starfsmaður öðr-
um meiri. Fáir voru Jreir erfið-
leikar, er uxu honum 'í augum
og starfsvilji hans svo mikill að
fátítt mun. Með fráfalli Gutt-
orms á Ási, hefir Fellasveit á bak
að sjá dugmiklum bónda og góð-
um dreng. Traustum manni, sem
vildi sveit sinni vel og stóð glað-
ur og reifur til síðustu stundar 1
þrotlausru starfi einyrkjabónd-
ans. En stærst er tapið og óbætan-
anlegast heiinili hans, er hann
unni öllu framar og helgaði allt
sitt star#f.
Ég vil með þessum orðum
minnast Guttorms á Ási, sem
uppeldisbróðurs og samstarfs-
rnanns um margra ára *skeið.
Þakka honum' allar okkar sam-
veru- og ánægjustundir. Þakka
drengskap lians og manndóm í
hvívetna.
Ég vil ennfremur senda frænd-
urn og vinum í Fellahreppi, að-
standendum hinna sviplegu slys-
fara, hugheila samúðarkveðju, og
óska þeim til handa, að guð, sem
öllu mannlífi ræður, megi á kom-
andi tímum, breiða blæju mildi
og miskunnar, yfir þeirra þungu
raunir og sefa sáran harm.
Staðartungu 17. nóv. 1946.
Einar Sigfússon.
ÁminniHG:
Að gefnu tilefni vill undirrit-
aður, mjög eindregið, áminna
Jrá, sem ákvæði almannatrygg-
ingalaganna um elli- og örorku-
lifeyrir, barnalífeyrir, fjölskyldu-
bætur og bætur til ekkna ná til
og koma til framkvæmda um
næstu áramót, að láta ekki drag-
ast að sækja um hinar áskildu
bætur og lífeyrir á skrifstofu
sjúkrasamlagsins, því að hinn
auglýsti umsóknarfrestur ér að-
eins til næstu mánaðanróta.
Er aðvörun þessari einkum
beint til ekkna með börn á fram-
færi, sérstaklega þó þeirra, sem
nú taka meðlög með þeim úr
bæjarsjóði, til öryrkja og ellilíf-
eyrisþega, sem hafa böm á fram-
færi, að gleyma ekki að sækja
einnig um lífeyri fyrir börnin,
til foreldra almennt, sem hafa
fleiri en 3 börn á framfæri, að
meðtöldum kjörbörnum, stjúp-
börnum og fósturbörnum og loks
tíl mæðra er hafa setuliðsbörn á
framfæri.
Farið tafárlaust á skrifstofu
sjúkrasamlagsins. Þar fáið þér
allar nauðsynlegar upplýsingar.
Umsóknareyðublöð og umsóknir
útfylltar ef þér óskið, en aðeins
til næstu mánaðamóta. Látið
þetta berast strax til vina og
vandamanna, sem ætla má að
blöðin fari fram hjá.
Framfærslufulltrúinn.