Dagur - 15.01.1947, Síða 4

Dagur - 15.01.1947, Síða 4
4 Miðvikudagur 15. janúar 1947 DAGUR Rltatjórl: Haukur SnorroBon Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Marínó H. Pétursson Skrifstofa í Hafnarstraeti 87 — Sími 166 Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi Árgangurinn koetar kr. 15.00 Gjalddagi er 1. júlí. / Prentverk Odds Bjömssonar 1—..... -.r, — r Ulfseyru einræðisins J|KKI ER ÓSENNILEGT, að tvær ráðstafanir ríkisvaldsis hafi þessar síðustu vikur va'kið okkur Norðlendinga til sérstakrar umhugsunar uni eðli og at'hafnir þjóðskipulags þess, sem við 'búum^við. Önnur er hin stórkostlega hækkun á gjaldskrá landsímians. Hin er stórfellt skattlagn- ing síldarútvegsins í þágu annarrar útgerðar, og þá einkum þorskveiðanna við Faxaflóa. jyjIKILL EÐLISMUNUR er að vísu á þessum tveim ráðstöfunum, þótt báðar séu þær ger- ræðisfullar og tilfinnanlegar. Hér er ekki átt rið það, að í öðru tilfellinu er um smáupphæðir að ræða í samanburði við fjárfúlgur þær, sem lögin um „síldarkúfinn" gera ráð fyrir, að teknar verði af „útskæklunum" og fluttar til höfuðstaðarins og næstu verstöðvar. Ekki er hér heldur að því vikið, að hin smærri upphæðin, hækkun land- símagjaldanna, dreifist fyrst í stað á stórum fleiri gjaldendur en hin stærri, iþví að báðar upphæð- irnar hljóta þó — fyrr eða síðar — að m,æða á öll- um almenningi með þunga sívaxandi dýrtíðar og öngþveitis í fjárhagsmálum þjóðarinriar. J7ÐLISMUNUR SÁ, sem fyrst og fremst gætir í þessari tvenns konar skattlagningu ríkisvalds- ins á borgurunum, kemur aðallega fram í því, að lögin um „síldarkúfinn" eru þó, að vissumarki, tilkomin á lýðræðislegan hátt, þ. e. þau eru ákveð- in af „löglega" kosnu fulltrúaþingi þjóðarinnar, þótt því verði hins vegar ekki neitað, að kosn- ingalög þau, sem nú eru í gildi og þjóðin hefir með refslegum hætti verið flekuð til að sam- þykkja, eru fremur afkáraleg ólög en skynsamleg og lýðræðisleg lög. En einstakir þingmenn og þingflokkar verða þó enn að svara til saka, á per- sónúlegan hátt að ofurlitlu leyti, gagnvart kjós- endum og Jrjóðinni allri, þegar um að ræða lagasetningu á borð við þessa, svo að gjörræði slíkt sem þefta hefir 'þó á sér yfirskin lýðræðisins, þótt veikt sé og vanburða. JJÆKKUN gjaldskrár landsímans er hins vegar ákveðin á næsta ópersónulegan og einræðis- legan hátt. Þar kynnast menn ríkisrekstri, eins og hann verður ávallt og alls staðar, þegar til lengd- ar lætur. Segja má, að fjárpíning og yfirgangur slíkra stofnana-verði ópersónulegur og ábyrgðar- laus eins og óáran náttúruaflanna, eldgos, hafísar og hvert annað hallæri. Slík ríkisstofnun getur gert kröfur án þess að rökstyðja þær fyrir öllum almenningi, fremur en henni sjálfri gott þykir eða treystir sér til í hverju einstöku tilfelli.í þetta sinn eru kröfurnar sagðar vera byggðar á reikn- ingshalla landsímans síðastliðin ár, en reikningar þessarar einokunarstofnunar eru öllum almenn- ingi algerlega lokuð bók. Því hefir t. d. verið haldið fram með fullurn líkidnum, ^ð þe ssi svo- kallaði reikningshalli^sé að mestu leyti þanníg til- kominn, að eignaaukning landsímans sé á hverj- um tíma talin til árlegra rekstursgjalda stofnun- arinnar, þannig, að símanotendur verði jafnóð- um að borga upp endurbætur og viðauka síma- kerfisins í landinu. Vitanlega nær slfk reiknings- færsla engri átt, en ráðamenn Jressarar ríkisstofn- unar verjast vandlega allra sagna um þetta og láta 'hvers konar gagnrýni sem vind um eyrun þjóta. jyjEÐ NOKKRUM rétti má því líta á hina stór- kostlegu skattlagningu aðalútvegs okkar DAGUR % „Bjartsýnir af þrælsótta“. PUM MÁLGÖGN stjórnarflokkanna hafa fundið að því, að formaður Framsóknarflokksins hafi verið svart- sýnn í áramótahugleiðingum sínum í Tímanum nú á dögunum. Réttara væri nú samt að orða það svo, að hann hafi verið raunsýnn, í mótsetn- ingu við hina tilbúnu og óraunhæfu bjartsýni og svikagyllingu formanna tveggja stjórnarflokkanna, er þeir létu til sín heyra í tilefni áramótanna, og fengu þeir þó illa dulið tómleikann og kvíðann, sem inni fyrir bjó. — Cianö greifi kemst á einum stað í dagbók sinni svo að orði: „Niður með alla þá, sem eru bjartsýnir af þrælsótta ein- um saman! Þeir hafa steypt okkur í glötun.“ Hann átti við það, að herfor- ingjar og stjórnmálamenn hefðu þrá- sinnis villt um fyrir einræðisherrun- um með því að gefa þeim óhóflega bjartsýnar og óraunhæfar skýrslur um ástandið, af því að þeir þorðu ekki að segja þeim sannleikann. Höfundar „nýsköpunarinnar“ á íslandi þora ekki framar að gefa þjóðinni réttar og raunhæfar skýrslur um ástandið í fjármálum og stjórnmálum þjóðarinn- ar. Af þrælsótta einum saman þykjast þeir bjartsýnir á hag og horfur, þptt undir niðri skjálfi þeir á beinunum af ótta við að eigin gerðir og ráðleysis- fálm á liðna árinu. QJUNNAR prófessor Thoroddsen var í útvarpinu nú á dögunum og talaði þar um daginn og veginn. Mæltist honum víða vel, en hvergi ágætlega. Kynlegast var, þegar prófessorinn fjölyrti um galla lýðræð- isins, sem bæta þyrfti um með nýrri stjórnarskrá og kosningalögujn, er Norðlendinga, síldarútgerðar- innar, til hagsbóta fyrir þorsk- veiðarnar — aðalútveg höfuð- staðarbúa og nábýlinga þeirra — sem rétta mynd af göllum lýð- ræðisins, sem að vísu eru tilfinn- anlegir, en standa þó til bóta og leiðréttingar, ef almenningur er vakandi á verðinum. fyrir hag sínum og samskiptum við ríkis- valdið. En á hinn bóginn eru at- hafnir lögverndaðrar einokunar- stofnunar á borð við landsímann lítil, en þó fnrðu glögg spegil- mynd af því, sem f yændum er, er ríkishugsjón hins einræðislega sósíalisma, kommúnisniinn, skyldi ná hér undirtökunum: Hvers konár gagnrýni ýmist hundsuð eða bönnuð með öllu, og almenningur verður ^ð taka því, sem að honum er rétt, þegj- andi og möglunarlapst. Hinn eini lögleyfði og lögverndaði flokkur og framkvæmdavald hans, ríkið og einokunarstofnan- ir þess, verða þá allsráðandi og óvefengjanlegar og geta skammt- að almenningi rétt og skylduf úr hnefa að eigin geðjrtkta, án per- sónulegrar ábyrgðar eða reikn- ingsskila gagnvart öðrum en ein- ráðum flokksforingjum og trún- aðarmönnum Jreirra. — Þjóðin ættí víssulega að athuga Jressi dæmi vandlega og draga af þeim lærdóma sína, áður en hún gengur lengra en þegar er orðið, eða nauðsynlegt og óhjákvæmi- legt er, í því efni að afsala sér lýðræðislegum réttindum í hend- ur ríkisstofnana eða þjóðfélags- legra einokunarverzlana á nú- tíma vísu. tryggðu þjóðinni jafnan styrka og lýð- ræðislega stjórn. Hann gleymdi nefni- lega algerlega að geta þess, þegar hann talaði um, að ný stjórnarskrá þyrfti að koma sem fyrst, að sjálfur var hann sendur utan fyrir löngu síð- an til þess að kynna sér fyrirkomulag þessara mála hjá helztu lýðræðis- þjóðum í álfunni. Síðan er mikið vatn runnið til sjávar, en ekkert hefir þó enn bólað á minnsta árangri þeirrar utanfarar né nokkrum efndum stjórn- arliðsins á þeim loforðum að setja nýja og viðunandi stjórnarskró. Og sjálfir hafa þessir herrar ruglað kosn- ingalögin svo mjög, — og það á allra síðustu tímum — að varla sést nú örla þar á nokkru viti né hollustu við lýðræðislegar venjur og stjórnarhætti, heldur eru þessi Jög nú aðeins orðin sorglegur vitnisburður um eiginhags- munabaráttu stjórnarflokkanna og pólitíska sérréttindastreitu höfuð- staðarbúa á kostnað annarra lands- hluta. Og svo koma þeir sömu legátar, sem dyggilegast hafa að þessari ófremd unnið, fram fyrir þjóðina við hátíðleg tæikfæri, berja sér á brjóst, tala fjálglega um galla og óstarfhæfni lýðræðisskipulagsins, sem þeir sjálfir hafa verið að kveða í kútinn að und- anförnu og hrópa loks á breytingar og úrræði, sem þeir sjáffir hafa lofað að finna og koma í kring, en jafnan svik- ið og dregið þrotlaust á langinn. Samtök norskra freðfiskframleiðenda Nýlega hafa norskir útgerðar- menn og frystihúsaeigendur stofnað ineð sér félag, er nefnist i „Andelslaget Norsk Frossenfisk". Samkvæmt frásögn norskra blaða verður hlutverk þessa félags að afla markaða fyrir frosin fisk, endurbæta vörudreifinguna, hafa eftirlit með vörugæðum og vöru- vöndun og hafa með höndum upplýsingaþjónustu um norskan freðfisk. Horfur eru á, að þátt- takan verði mjög mikil og að nær því allir frystihúsaeigendur landsins taki*þátt í þessum sam- tökum. Á nýlegum stofnfundi félags Jtessa í Oslo kom í ljós, að for- vígismenn samtakanna telja horfa mjpg vænlega með splu á norskum frgðfiski á þessti ári: Verkamannafélagið hefur útgáfu mánaðarrits Verkamannafélag Akureyrar- kaupstaðar hefir byrjað útgáfu máriaðarrits. Er fyrsta tbl. Jress nýkomið út og nefnist „Félags- mál“. Eins ogf nafnið bendir til, ° v ei ritinu ætlað að ræða mál, er varða Verkamannafélagið sér- stak'leaa osr verkamenn almennt. í þessu fyrsta blaði er grein frá stjórninni, er nefnist „Fylgt úr hlaði“, fróðleg grein um Krossa- nesverksmiðjuna, eftir Árna Þor- grímsson, Trúnaðarmenn á vinnustöðum, eftir Björn Jóns- son, þýdd saga, kvæði eftir Hösk- uld Egilsson og Tryggva Emils- son, fréttamolar o. fl. — Ritið er prentað í Prentverki Odds Björnssonar. vösum, - (Vera Winston). Það gengur á ýmsu í heimi tízk- unnar. Hér sjáið þið jakka,. sem' Hka gæti heitið blússa, úr dökkbrúnu lláueli. — Jakki þessi er ætlaður ungum stúlkum aðallega. Ermarn- ar eru mjög víðar og ekki fullrar síddar. Hnappar í hálsi og á belti eru þaktir efninu sjálfu. — Hægt er að nota Jjunna blússu undir jakkanum, en einnig án þess, að sjálfsögðu. — Pils- ið er ljósbrúnt með ópressuðum f e 11 i n gum að framan og'hliðar’ * * Orð í tíma töluð i Eitt atriði er jrað, sem eg hefi lengi ætlað að minnast a í dálki þessum, en einhvern veginn hef- ir Jaað alltaf þokað fyrir öðru og orðið útundan þangað til nú. Það kann að vera , að einhverjpm ykkar np§- líki við mig fyrir að ynipra á þessu, en það verður að hafa það — eg get ekki lengur orða bundizt. Hvaða ósköp er þér niðri fyrir, kona! — segið þið sjálfsagt. — Ja, það er bezt að hafa formálann ekki lengri. — þetta atriði er: Kvenhattarnir í kvikmyndahústfnum. Þegar við förum í b’íó þá förum við til þess að sjá — heyra líka, að sjálfsögðu. Við eigum ekki kost á að skipta um sæti, þótt við höfum orðið svo ólánssamar að útfjaðraður, uppmjór kvenhattur, eða borðumprýddur og barðastór sé í næsta sæti fyrir framan og breiði úrt lim sitt yfir meginhluta flatarins sem myndin kemur fram á. Finnst ykkur ekki ósanngjarnt að 4 þennan hátt sé hægt að eyðileggja skemmtun fyrir bíógesti, sem hefir kopiið með sanra liugarfar og við — sem sé að sjá. Eg ætla ekki^að fjölyrða um þetta. — Þið skiljið allar við hvað eg á, og eflaust hafið þið einhvern tíma haft ill orð um einhvern slíkan hatt og hugs- að eigandanum þegjandi þörfina. — Það rétta í málinu og hin sanngjarna krafa er að taka ávallt •af sér liatt í kvikmyndahúsi, nema um litla „kollu“ eða alpahúfu sé að ræða, eða setið sé í aftasta bekk. Þær, sem ekki vilj-a taka af sér hattana ættu æv- inlega að velja sér öftustu bekki í húsinu. Erlendis þykir það sjálfsögð kurteisi að taka af sér hatt, Jregar í byrjun sýningar og sú, sem kann að gleyma eða gæta ekki að sér, fær sjaldan að sitja lengi án þess að vera ónáðuð af þeim, sem situr að baki. Hann ber léttilega á öxl henni og segir: „Vilduð þér gjöra svo vel að fjarlægja hatt- inn.“ — Til þessa er hver bíógestur talinn hafa fullan rétt og venjulega er það alls ekki'illa tekið upp af þeim með hattinn, Takmarkið og kjörorðið er því: Niður með kvenhattana, — ekki að fullu og öllu né alls stað- ar, aðeins í kvikmyndahúsum. „Puella“.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.