Dagur - 07.05.1947, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 7. maí 1947
DAGUR
3
I ÞROTTASIÐAN
RITSTJORI: JONAS JONSSON
FIMLEIKASYNINGAR
Síðasta vetrardag hafði Gagn-
fræðaskóli Akureyrar skemmti-
kvöld í Samokmuhúsi bæjarins.
\7ar það fjölbreytt skemmtun og
húsið þéttskipað áhorfendum. —
Meðal 'skemmtiatriða voru fim-
leikasýningar kvenna og karla.
sýndu þar 24 nemendur skólans,
!2 í hvorum flokki. Kvennafl.
stjómaði ungfrú Þórhalla Þor-
steinsdóttir, en karlafl. Haraldur >
Sigurðsson. Ef dæma má eftir
þessum sýningum hefir náðst
góður árangur af vetrarstarfinu,
og þær gáfu meðal annars til
kynna, að hér er fyrir hendi fjöld-
inn allur af ungu fólki, sem getur
náð mikilli leikni og listfengi í
líkamsæfingum, ef það helgar
þeim eitthvað af hug sínum og
tómstundum. — Kvennaflokkur-
inn bar af að stílfegurð og skipu-
lagningu og æfingar á slá voru
yfirleitt vel gerðar. Bolfettur í
staðæfingum liefðu mátt vera
betri. Piltarnir stóðu ekki eins
skipulega í röðum og bar meira
á mistökum hjá þeim, en margar
æfingar gerðu þeir vel og sá ár-
angur, sem þeir hafa náð í stökk-
um sýnir, að þeir geta orðið
prýðilegir fimleikamenn með
áframhaldandi þjálfun.
Laugard. 26. apríl hafði
Iþróttafél. Þór fimleikasýningu í
Samkomuhúsinu. Sýndi þar 10
manna karlaflokkur undir stjórn
Tryggva Þorstéinssonar. — Að
þessu sinni vor,u undantekning-
aTlítið nýliðar í sýningarfl. Þórs,
og með tilliti til þess má segja, að
sýningin hafi vel tekist. Þeir
sýndu áberandi falleg höfuðstökk
og straumstökkin voru flest all-
vel ferð, einnig flugstökk. Aftur
á móti höfðu þeir ekki góðan stíl
í kraftstökki og ekki fullt vald yf-
ir hásveiflur, eða handstöðu á
hesti. En þeir virðast hafa bæði
vilja og getu til að sýna enn betri anir
árangur síðar.
Laugard. 3. þ. m. hafði Knatt-
spyrnufélag Akureyrar fimleika-
sýningu kvenna, einnig í Sam-
komuhúsi bæjarins. Stjórnandi
tlokksins ungfrú Þórhalla Þor-
steinsdóttir. Heildansvipur þeirr-
ar sýningar var mjög líkur og hjá
kvennafl. Gagnfræðaskólans. Þó
var meiri fjölbreytni í henni, en
öryggi í sláæfingum ekki eins
jafngott. Yfirleitt var æfingakerf-
ið stílhreint og vel útfært.
Þátttakendur allra þessara sýn-
inga, skólinn, kennarar og
íþróttafélögin, sem að þeim stóðu
eiga þakkir skilið fyrir það starf,
sem á bak við þær liggur. Fim-
ieikasveitir, eins og söngsveitir og
hljómsveitir, hafa æfinlega eitt-
livað af listrænni fegurð að flytja,
auk þess, sem æfingarnar veita al-
hliða líkamsþjálfun og þroska.
------ Á. D.
Það verður að viðurkenna, að
áliugi fyrir fimleikum er ennþá
af skornum skaminti hér á Akur-
eyri. Að vísu er fimleikahúsið
ekki búið að vera lengi starfandi
og salur Menntaskólans á Akur-
eyri einnig nýlega tekinn í notk-
un á ný, en samt ætti aðsóknin og
starfið að vera meira nú þegar, en
raun ber vitni.
Þessar sýningar, sem um er get-
ið hér að framan, voru að vísu
góðar — og í vissum greinum
ágætar, þegar miðað er við alla
aðstöðu, — en þær eru allt of fá-
mennar. Reyndar er varla fært
að sýna fleiri í senn á leiksviði
Samkomuhússins en 12, en hér
virðist varla um stærri sýningar-
flokka að ræða, a. m. k. ekki frá
íþróttafélögunum. Skólarnir
ættu að geta komið fram með
miklu stærri flokka og þeirra er
ldutverkið — öðrum fremur — að
auka fimleikunum fylgi ,einmitt
með stórum hópsýndngum. En til
þess vantar enn salarkynni, en
vorið oftast of kalt til að sýna úti
— fyrr en skólafólk er allt tvístr-
að.
Menntaskólinn á Akureyri
hefir stundum haft allfjölmenn-
ar fimleikasýningar, enga ennþá
á þessu vori, — en vonandi er það
bara eftir. Reyndar hefir heyrzt,
að próf í fimleikum falli niður í
vor í sumum eða jafnvel mörg-
um bekkjum Menntaskólans. —
Sýnist Jrað næsta óeðlileg ráða-
breytni, þar sem ekkert virðist
skorta á góða aðstöðu til fim-
leikaiðkana — og sennilega holl
námsgrein menntaskólafólki sem
öðru námsfólki. — Og námi þessu
fylgir oftast próf, þótt um nyt-
semi Jress geti verið skiptar skoð-
Sé í þessu efni um mis-
hermi eða misskilning að ræða,
skal hér með þökkum tekin leið-
rétting.
I fimleikahúsinu hefir starfið
— í mörgum greinum — gengið
vel. En fimleikatímar voru oft fá
sóttir. — Saumakonuklúbburinn
virðist eiga þar heiðurssætið hvað
snertir sókn og áhuga. Sennilega
býður hópur sá ekki upp á sýn-
ingu, en fátt mundi nú líklegra
til að auka mikilsverðan áhuga
fyrir þessari fögru undirstöðu
grein heilbrigðs lífs og svo ann-
arra íþróttagreina.
En kvenfólkið, saumakonum
ar, búðarstúlkurnar, húsmæðurn-
ar EIGA líka að iðka leikfimi —
vitanlega hver við sitt hæfi. í síð-
asta hefti Samvinnunnar er grein
er nefnist: „Frúin er í leikfimi".
Ungfrú Elly Löfstrand segir þar:
„Húsmæðraleiklimin — en svo köll-
um við starfsemi okkar — varð til
1942," sagði ungfrúin. „Þá var mikið
talað um heilsuvernd í Svíþjóð. Við
sluppum við liörmungar annarra Ev-
rópuþjóða, og áhugi var uppi fyrir því,
að láta menningarlega framför ekki
staðna á þeim erfiðu árum. Samvinnu-
menn ræddu um, hvaða skerf þeir gætu
lagt til þeirrar uppbyggingar. Eg starf-
aði J>á hjá Konsum-kaupjélaginu í
Stokkhólmi. Eg gerði j>að þá að tillögu
minni, að félagið byði húsmæðrunum i
Stokkhólmi í leikfimisstund á einu
helzta íþróttasvæði borgarinnar. Til-
lögunni var vel tekið, og mér var falið
að framkvæma hana. Þetta var ákaflega
einfalt .Við létum boð út ganga, að
konum félagsmanna væri boðið í leik-
íimisstund sér til upplyftingar og hress-
ingar. Þátttökugjald var ákaflega lágt.
Og það, sem meira var um vert: Við til-
kynntum, að húsmæðurnar gætu tekið
börn sín með sér. Félagið sá um gæzlu
þeirra og umönnun — ókeypis — á með-
an mæðurnar voru við æfingarnar. —
Þetta þóttu óvenjuleg og einkennileg
skilaboð. Svona húsmæðraleikfimi var
gjörsamlega óþekktur lilutur hér — já,
og alls staðar annars staðar. Sænsku
húsmæðurnar eru víst þær einu í Ev-
rópu, sem hafa tekið upp svona starf-
semi enn þann dag í dag. — Þátttakan
var því heldur dauf til að byrja með.
Þær voru 17, sem mættu í fyrsta tíman-
um — en áhorfendurnir voru margirl
Þetta þótti nefnilega skrítið fyrirtæki.
Etl þessar 17 létu ekki á sig fá, þótt
horft væri á þær, og brátt vaknaði
áhugi fleiri kvenna, en liægt gekk til að
byrja með. Eftir þrjár vikur vorum við
orðnar 70 talsins. Ekki há tala í stórri
borg. En máttur auglýsinganna er mik-
ill. Það þóttu fréttir í Stokkhólmi árið
1942, að liúsmæður yfirgæfu heimili sín
til þess að stunda líkamsæfingar á
íþróttasvæði í öðrum enda borgarinn-
ar. Starfsemin varð umtalsefni blað-
anna, og þar með var athygli þúsund-
anna vakin. Eftir það hefir þetta verið
ein sífelld sigurganga. Nú höfum við
100 hópa í Stokkhólmsborg einni sam-
an, og í hverjum hópi eru 75 til 100
húsmæður. Kaupfélögin úti um landið
liafa tekið þessa starfsmi upp, og okkur
telst til, að í dag séu a. m. k. 30.000
húsmæður, víðs vegar um landið, J>átt-
takendur í þessu starfi, fyrir forgöngu
kaupfélaganna. Innan tveggja ára — á
100 ára afmæli samvinnuhreyfingarinn-
ar — gátum við auk heldur tekið mynd-
arlegan [>átt í hátíðahöldunum. Þá
sýndu 1000 húsmæður á Stadion í
Stokkliólmi, og vakti J>essi þáttur mikla
athygli, já, og mikla gleði i hjörtum
þátttakendanna sjálfra."
Hr. Mikson hefir verið í lands-
!iði Eistlendinga lengi, keppt í
J)\’í 19 sinnum og alltaf sem
markvörður. Hann er nú á fer-
tugsaldri, en áhugasamur og
kraftmikill til starfa, — enda lief-
ir hann æft knattspyrnu í 25 ár —
auk fimleika og ýmissa frjálsra
íjarótta, m. a. verið í landsliði
Eistlendinga í „ishocky“. Komið
getur til mála að hann kenni hér
einnig frjálsar íþróttir að ein-
hverju leyti.
Við bjóðum lir. Mikson hjart-
anlega velkominn og óskum þess
i starfið megi verða honum
ánægjulegt og sem flestum ung-
um — og eldri — bæjarbúum til
heilla. Vellirnir eru að þorna og
lagast. Meira þarf þó við. En fyrr
en varir verður farið að hrópa
liér: „Allir út á völl í kvöld!“
í. B. A. hefir ráðið til sín knatt-
spyrnukennara og starfar hann
næstu mánuði — um óákveðinn
tíma — hjá K. A. og Þór.
Kennarinn, Evald Mikson, sem
et Eistlendingur, kom hingað sl.
sunnudag og er þegar byrjaður
að þjálfa knattspyrnumennina. —
N'ámss'keiðið er ekki til fulls
skipulagt enn, en til að byrja með
mæta félagar frá K. A. annað
kvöldið og Þór hitt.
Er vonandi að ungir menn og
drengir noti nú tækifærið — eftir
því sem mögulegt er — að æfa sig
og fá leiðbeiningu góðs kennara.
Útiíjiróttamótin byrjuðu hér
eiginlega sl. sunnudag og nú með
nýju, skemmtilegu boðhlaupi.
Filaupið var eftir aðalgötum
Oddeyrinnar, alls 1600 m. og var
endamark við Nýja-Bíó. Sveitirn-
ar voru fjórar, frá: í. M. A., í. G.
Á., K. A. og Þór, en í hverri sveit
10 keppendur. Sprettir voru 6x
100 m., 3x200 m. og 1x400 m.
í. M .A. tók þegar forustuna —
og þar á eftir kom Þór. Hélzt svo
hálfa leið. En á 400 m. spretti
breyttist röðin svo að K. A. komst
næst í. M. A., þá í. G. A. og Þór
síðast og breyttist ekki sú röð í
mark. Skiptingin gekk víða vel
og jafnvel ágætlega — og þarf þó
meiri æfingu sá liður hlaupsins.
Fími í. M. A. var 3 mín. 25 sek.
Tímd K. A. var 3 mín. 40.8 sek.
Tími I. G. A. var 4 mín. 2. 1 sek
Tími Þórs var 4 mín. 10.8 sek.
Veðrið var yndislegt og áhorf
endur þúsundatal. Nefnd, ‘skip-
uð mönnum úr öllum félögu
um, sem kej)j)t.u, sá um mótið. —
Var margt vel undirbúið — en
brestur á í öðrum atriðum. T. d
hefði þurft fleiri og röskari um-
'S'ónarmenn, til að halda í ein-
hverjum skefjum mannfjöldan
um. — En — hlaupið var
skemmtilegt og gott að hlauparar
okkar eru komnir af stað — eða a.
m. k. hafa séð aðra komast a1:
stað, þetta er hvatning. Komið
fleiri í hópinn!
í sveit í. G. A. hljóp 400 metra
sprettinn Jiekktur hlaupari utan
úr Svarfaðardal. Ekki er hann
nemandi skólans, en þó sagður
meðlimur í íjrróttafélagi skólans
Skilja ekki nema sumir hvernig
Jiað má vera samkv. gildandi regl
um um skólafélÖg.
Að þessu sinni getur þetta ekki
taiist koma að sök nerna sem for
dæmi, en áframhald á þeirri leið
hlyta að skoðast athugavert.
10—11. maí. Hraðkeppni í
knattspyrniu; í. M. A. sér um.
14. maí. Knattspyrna, 3. fl.; K.
A. sér um.
15. maí. Hraðkepjani í hand-
knattleik; I. M. A. sér um.
17. —18. maí. Frjálsíþróttamót
— í. M. A. og Akureyrarbær; — í.
M. A .sér um.
18. maí. Sundmót — boðsund;
K. A. sér um.
26. maí. Hvítasunnuhlaupið;
1. B. A. sér um.
26. maí. Knattsjryrna, 1. fl.;
Þór sér um.
4. júní. Knattspyrna. meistara-
flokkur; Þór sér um.
6.—10. júní. Afmælismót Þórs;
Þór sér um.
9.-26. júní. Knattspyrnumeist-
aramót íslands, Reykjavík.
14. júní. Knattspyrna, 2. fl.; K.
V. sér um.
15. júní. Handknattleiksmót
Akureyrar, konur og karlar; Þór
sér um.
17. júní. Hátíðahöld; í. B. A.
sér um.
1. —9. júlí. íslandsmót í knatt-
sjtyrnu, 1. fl.; I. B. A. sérum.
L—10. júlí. Handknattleiks-
mót Islands.
19. —20. júlí. Frjálsíþróttamót
drengja; K. A. sér um.
2. -3. ágúst. Handknattleiks-
rnót Norðurlands á Húsavík.
30.—31. ágúst. Sundmót Akur-
eyrar; Sundráð sér um.
13. sept. Knattspyrna, 2. fl.;
! Jór sér ium.
14. sept. Knattspyrna, meist-
araflokkur; K. A. sér um.
21. sept. Knattspyrna, 1. fl.; K.
A. sér um.
24. sept. Knattspyrna, 3. fl.;
Þór sér um.
27. -28. sept. Rnattspymumót
Norðurlands á Akureyri; Þór sér
um.
í desember. Handknattleiks-
mót, innanhúss; K. A. sér um.
Febr.—Marz. Skautamót Akur-
tyrar; Skautafél. sér um.
í marz. Stórhríðarmótið;
Skíðaráð sér um.
í marz. Handknattleiksmót
Akureyrar, innanhúss.
Marz-apríl. Skíðamót Akureyr-
?r; Skíðaráð sér um.
Marz-apríl. Flokkur á Skíða-
mót íslands.
Marz-apríl. Fimleikamót.
Frjálsíþróttamót Akureyrar er
áætlað seint á sumri, en mun hafa
lallið niður á þessari skrá.
Tek að mér
að kenna á bíl.
Haratdur Kjartansson,
Oddeyrargötu 4.
Mótaskrá 1947—48.
4. maí. Boðhlaup; nefnd frá
öllum fél. sér um mótið.
Stúlka,
helzt vön strauningu, getur
fengið atvinnu á Jivottaluis-
inu, strax. U]>pl. á staðnum
(ekki í síma).
H.F. ÞVOTTUR
Til sölu
Borðstofuhúsgögn, úr eik,
tauskápur, barnarúm (enda-
dregið), borð, nokkri stólar,
rafeldavél, rafofn, 3 kw. —
Munirnir eru til sýnis í
Strandgötu 35, austurdyr.