Dagur - 07.05.1947, Side 5

Dagur - 07.05.1947, Side 5
Miðvikudagur 7. maí 1947 5 DAGUR Gunnar Jónsson, sjúkrahússgjaldkeri: Innflutningsverzlunin fyrr og nú Emokunin á 17. öld flutti vörur beint á 21 höfn í öllum landsf jórðungum - heildsalarnir á 20. öldinni flytja vörur til einnar hafnar Þegar athuguð er verzlunarsaga okkar íslendinga, er því jaínan við brugðið, hve verzlunaránauðin hafi þjakað landsinenn og þá sér- staklega um miðja 17. öld Er því íróðlegt að bregða upp mynd al innflutningsfyrirkomulaginu þá og bera saman við það, sem nú er. Árið 1655 þegar Henrik Bjelke var höfuðsmaður, galt Verzlunarfélagið konungi gjöld eftir verzlunina, 30 krónudali i'yrir hvert skip og 24 krónudali fyrir hverja höfn og auk þess 1200 krónudali fyrir Vestmanna- eyjar, eða samtals 2344 krónudali iyrir verzlunina á öllu landinu. Var því greitt af 21 höfn og 21 skipi. Um þetta leyti, 1655, var cinokunarverzlunin búin að standa í 36 ár. Má því gera ráð fyrir, að ástandið hafi ekki verið gott. Myndin af dreifingu vör- unnar, beint frá útlöndum á bafnir landsins, var þessi: V iðskiptaupphæö í krónudölum Vestmannaeyjar 1683 Berufjörður 4978 Vopnafjörður 552 Húsavík 14972 Eyjafjörður 13823 Hofsós 11740 Skagaströnd 9766 ísafjörður 9840 Dýrafjörður 6341 Bíldudalur 6206 Patreksfjörður 6289 Stykkishólmur 7497 Kumbaravogur 8681 Rif 12141 Stapi 11963 Hólmur, Rvík 13402 Hafnarfjörður 12645 Keflavík 9933 Bátsendi 11324 Eyrarbakki 22332 Reyðarfjörður 6907 eða samtals 218000 krónudalir. Uppskipun Hafnargjald 307.20 30.70 Þannig skiptist innflutningur- inn beint á hafnir landsins í þá daga. Hvernig er nú umhorfs í inn- flutningsmálunum á íslandi? Nokkrir nýríkir lieildsalar, sem allir sitja í Reykjavík, hafa nú meirihlutann af innflutning landsins í sínum höndum, með aðstoð ríkisvalds og Viðskipta- iáðs. Verzlunarágóðann af nær öllum innflutningsvörum lands- manna fær Reykjavík. Stórfelld- ur skattur er lagður á alla lands- menn utan Reykjavíkur, með aukaflutningskostnaði. — Sem dæmi vil eg nefna eftirfarandi: Viðskiptaráð neitaði nýja sjúkrahúsinu á Akureyri um öll innflutningsleyfi, svo að nýbygg- ingin neyddist til þess að kaupa alltefni hjá heildsölum. Nú vant- aði steypujárn og vaið að taka það frá Reykjavík. Lítur sá reikningur þannig út: 7.680 kg. járn ár. 1.15 8.832.00 Fragt 1.360.00 Vátrygging 97.60 tíðina. En í kjölfar þessara ofbeldisað- gerða siglir meira: Komizt áætlun kommúnistanna i framkvæmd, er skapað það ástand, að lítill minnihluti getur með ofbeldi stöðvar alla fram- leiðslu og haft vilja meirihluta Alþing- is og þjóðarinnar að engu. Hin komm- únistiska áætlun er beint tilræði við þingræði og lýðræði í landinu, auk þess sem hún stuðlar að því að leiða efnahagslegt hrun yfir þjóðina. Menn spyrja: Hvar eru hinar marglofuðu gáfur Islendinga, ef þeir sjá ekki hvert hér er stefnt og spyrna fótum við í tíma. Samtals kr. 10.627.50 eða kr. 1795.50 kr. hærri upp- hæð, en járnið kostaði í Reykja- vík. Þetta gerir 20,3%. Jafnframt greiðir nýbyggingin að auki upp- skipun, hafnargjöld og heildsala- álagningu til Reykjavíkur, af þessu sama járni. Þetta verzlunarfyrirkomulag er óþolandi ölum landsmönnum ut- an Reykjavíkur. Þótt einokunar- verzlunin væri slæm árið 1655 var liún þó að því leytinu betri en heildsalan í Reykjavík, að hún fragtaði skip sín og flutti varning sinn beint á 21 höfn á landinu og hagaði verzluninni að þessu leyti, að því er virðist, nokkuð eftir fólksfjölda í hinum ýmsu lands- hlutum. í dag hefir dreifbýlið — 60% þjóðarinnar — innan við 5% af heildarinnflutningi lands- ins. Reykjavík isitur yfir 95%. Nú hafa kaupfélögin tekið að sér verzlun dreifbýlisins að verulegu leyti, en svo er þrengt að inn- flutningsleyfaveitingum til þeirra, að þau hafa orðið að kaupa vörur frá heildsölunum í Reykjavík á undanförnum árum fyrir margar milljónir, og lands- menn hafa mátt bera allan þann óþarfakostnað, sem af þessu hefir leitt. Þetta sjúklega ástand, að verzl- unarágóðinn í Reykjavík leggist á alla landsmenn, verður að læknast. Gunnar Jónsson. (Framhald af 4. síðu). stjóra Nýbyggingarráðs og fela honum daglega umsjá með gjaldeyrisinnstæð- um landsmanna. Fyrir atbeina þeirra manna, er hinir afdönkuðu kommún- istaráðherrar saka nú um „heildsölu“, var þessu vinarbragði við landslýðinn afstýrt. Man nú enginn Siglufjörð? íy IÐSKILNAÐUR kommúnistanna ' í ríkisstjórninni er nú smátt og smátt að koma fram í dagsljósið. Allt þar minnir á reksturinn á kaupfélag- inu í Siglufirði hér um árið, er komm- únistar fóru þar með völd. Nú hefir kaupfélagið þar rétt sig úr kútnum aft- ur með ábyrgri stjórn. Hlutverk nýju stjómarinnar er að vinna að endur- reisn atvinnuveganna og fjárhagsaf- komunnar eftir óstjórnartímabil kommúnista og samferðamanna þeirra úr öðrum flokkum. í Siglufirði ætluðu kommúnistar að beita ofbeldi og meina félagsmönnum að hafa áhrif á gang málanna með því að reka þá úr félaginu fyrir engar sakir. Á þjóðmála- sviðinu hyggjast kommúnistar einnig beita ofbeldi til þess að fyrirbyggja endurreisnarstarf það, sem ríkisstjórn- in vinnur að. Með ofbeldi ætla þeir nú brjóta á bak aftur tilraunir þær, sem gerðar eru til þess að stöðva dýr- EGGERT STEFÁNSSON kominn „til þess að þakka fyi 44 rir sig Eggert Stekánsson söngvari er nýkominn í bæinn, ásamt hinni ítölsku frú sinni. „Eg er hér til less að þakka fyrir mig,“ sagði Eggert, er blaðið ræddi við hann í gær. „Eg á margar ágætar minn- ingar héðan frá Akureyri, allt frá því að eg söng hér fyrst 1922. Þá kom maður ríðandi sunnan yfir lieiðar og söng í kirkjum og sam- komuhúsium á leiðinni. Það var a-vintýralegt og úr þeirri för á eg ógleymanlegar minningar. Eg eignaðrst strax marga ágæta vini hér á Akureyri og það er til þess að þakka þeim — og Akureyring- um — fyrir viðtökurnar fyrr og síðar að eg er kominn hér.“ Eins og kunnugt er hefir Eggert ákveðið að hætta að halda opin- bera ikonserta en helga sig rit- störfum framvegis. Konsertar þeir, sem hann liefir haldið í Reykjavík — og nú hér — nefnir hann kveðju til söngsins. Ákveð- ið er að Eggert syngi í Nýja-Bíó nasstk. föstudag.Á söngskránni eru lög eftir Sigvalda Kaldalóns — bróðir söngvarans, hið kunna nýliðna tónskáld — og ítölsk lög. Þá mun Eggert einnig lesa ,upp úr ritverkum sínum. Aðgöngu- miðasala er hjá Þorst. Thorlaci- u's. — Eggert mun aðeins hafa skarnma viðdvöl hér að þessu sinni. Eörinni er heitið héðan suður og þaðan til Ítalíu, en þar hyggjast þau hjónin dvelja fram á haustið. Leiðrétting Eg liefi orðið var við allvíðtæk an misskilning hjá bæjarbúum hvað viðkemur atkvæðagreiðslu í Bílstjórafélagi Akureyrar um vinnustöðvun. Þessi misskilning- ur er aðallega tvenns konar: í fyrsta lagi, að deila þessi standi um hækkun á ökutaxta bifreiða. Og í öðru lagi, að hér sé um póli- tískt verkfall að ræða. Vegna þessa tel eg rétt, að taka fram eft- irfarandi: Hér er ekki um að tæða leigugjald bifreiða, heldur kaup og kjör launþega í Bíl- stjórafélagi Akureyrar. Hér er eingöngu um faglegt mál að ræða, sem sést meðal annars á því, að kröfur þær, sem Bílstjóra- félagið gerði, voru settar fram áður en vitað var um þær tolla- hækkanir sem nú eru orðnar að Jögum. Uppboð Uppboð verður haldið að Krossastöðum miðvikudaginn 14. maí n. k„ kl. 1 e. h. Þar verður selt: rakstrarvél, kerra, langgrind, skilvinda, mjólkurdunkar, girðingarefni (járn- staurar), setuliðsbraggi og margt fleira. Krossastöðum, 5. maí 1947. Tryggvi Jóhannesson.. . IIIMIMimillllllMIIMIIKIIIIIIUIIUMIMMIIIIMIIIMIIMm 1111111111IIIIIIIIIIIHIIIIIIIMIIIIKIIIIII11111IIIIIIIIIIIHIIMH Þriðjudaginn 3. júní n. k. verður uppboð haldið í Mið- gerði í Grýtubakkahreppi og þar selt, ef viðunandi boð l'æst: Trjáviður, járn, kerra, aktygi, hnakkar, beizli, 6—7 kýir, 4 hestar og ýmsir búshlutir. Uppboðið hefst kl. 12 á hádegi. Miðgerði, 5. maí 1947. Ad'albjörn Krisljdnsson. iiiimii 1111111 iii ii 11111111111 ii iiiini iiiiiiiiiiiiiii ii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii IIIIMMIIIIIIIIIIIIl illtlttllllllllllllllllllllllllltlllllllllllllllllldllfflllllHdlK^IKI^I^It^ Drengjaskátabuxur n ý k o m n a r Kaupfélag Eyfirðinga V efnaðarvörudeild. -ciiiitiiiitiitiiiiiKiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiciiiiiiiiiiiiiiiitiaiiiiiiiiiiiiiiiiittiiiiiiiKiiiKiiiiiiiiiiiiiitiiitiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiimtiiiiiiiiitviT *iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiIiiiiiiiiiiIiiiiiii,iiiiii» | Fermingargjafir: | Kvenveski [ } U n d i r f ö t ! Náttkjólar { V a s a k 1 ú t a r | 1 Silkisokkar | Eyrnalokkar H a n z k a r } o. m. fl. I Kaupfélag Eyfirðinga. = Jl O * O : = Vefnaðarvömdeild l miiiiMiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii 1111111111111111111111ii iiiiii11111111111111111 v O fi o o ó Hafsteinn Halldórsson. Góður tau- og fataskápur til sölu með tækifærisverði. Upplýsingar í síma 574. Vinnufatnaður: Samfestingar Ruxur, margar tegundir Jakkar Sloppar, brúnir Drengjasamfestingar, á 4-16 ára Kaupféiag Eyfirðinga Vefnaðarvörudeild.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.