Dagur - 25.06.1947, Qupperneq 2
2
D AGUR
Miðvikudagur 25. júní 1947
Línudan
og Jón S
Eitt ógeðslegasta fyrirbrigði í
ís'lenzkum stjórnmálum er daður
kommúnista við minningu Jóns
Sigurðssonar, frelsishetjuna
miklu og forvígismanns allra
framfara liér í landi á sinni tíð.
Jón Sigurðsson liáði þrotlausa
baráttu að því marki að sækja
rétt vorn í hendur útlendri þjóð
og gera íslenzku þjóðina stjórn-
arfarslega sjálfstæða.
í þeirri baráttu sótti hann
aldrei ,,'línu“ til annarrar þjóðar
til að fara eftir. Hann hafði ætíð
sannfæringu sína og réttlætis-
kennd að leiðarljósi. Orðtak
hans var: „Aldrei að víkja" frá
hinu rétta.
Línudansarar nútímans fara
nokkuð öðruvísi að ráði sínu.
Þeir haga sér samikvæmt fyrir-
skipunum frá einvalds'herrum
Rússlands, sem þeir hafa selt sál
sína og sannfæringu. Að þeirra
undirlagi fjandskapast kommún-
istar við vestrænu 'lýðræðisþjóð-
irnar, og undirtónninn í öllum
þeirra hrópurn er þessi: Horfið i
austurátt. Rússland er í austri.
Öll smá ríki, sem einvaldar Rúss-
lands hafa svift frelsi og sjálf-
stæði, lifa nú í sæluástandi.
Aða'l'stefna Jóns Sigurðssonar
var að vinna að gagnsemi Íslands
með því að efla þekking á alþjóð-
legum málum, eftir því sem
reynslan hafði kennt utan lands
og innan. Fjarri eðli hans var að
ganga fram með glannaskap og
J'rekju. Róleg og rökvís íliugun
málefna einkenndi a'lla þjóð-
málastefnu hans. Þess vegna varð
hún svo farsæl og ávaxtarík, eins
og raun ber vitni.
Kommúnistar þykjast vinna í
anda Jóns Sigurðssonar. Þeir
þykjast vinna að gagnsemd ís-
lands með því að rugla dóm-
greind lítt hugsandi rnanna, með
blekkingum og beinurn ósann-
indum um menn og málefni.
Glannaskapurinn og frekjan
gengur úr öllu hófi, og stökk
þeirra frá einni línu til annarr-
ar eru daglegir viðburðir. Aldrei
héfir þetta sannast betur en nú í
síðustu kollsteypum þeirra. Einn
daginn viðurkenna þeir, að dýr-
tíðin sé að sliga atvinnuvegi
þjóðarinnar. Svo að segja næsta
dag berjast þeir af alefli fyrir
aukningu dýrtíðarinnar með
kaupskrúfum og verkfallsbrölti
undir því yfirskyni, að þeir séu
að bjarga verkamönnum frá ör-
birgð með því að fá þá til að
halda að sér höndum og hætta að
vinna fyrir svo háu kaupi, sem
atvinnuvegirnir þola, svo að ekiki
sé meira sagt.
Jón Sigurðsson veitti liðsemd
sína til uppbyggingar atvinnu-
vega þjóðarinnar, eftir því sem
efni stóðu þá til.
Kommúnistar beita áhrifum
sínum að því að grafa grundvöll-
inn undan atvinnuvegunum. —
Þeir beita sér fyrir því að stöðva
framleiðsluna, þegar verst gegn-
ir. Þejr treysta því, að nógu mik-
ið öngþveiti atvinnuveganna
skoli þeim á ný upp í valdastól-
ana.
sararnir
gurðsson
Það er ekkert annað en g'lanna-
leg og frekjuleg . blekkingartil-
raun, er kommúnistar reyna að
gylla sig með því, að þeir starfi í
anda Jóns Sigurðssonar. Öll
starfsaðferð Jreirra og starfið
sjálft brýtur a'lgerlega í bág við
framfara- og menningarstarf
hans á Öllum sviðum. Einkunn-
arorð kommúnista gætu vel verið
á þessa leið, ef þeir segðu hug
sinn allan: Alltaf að víkja fyrir
vilja Rússa!
Þeir, sem Jrví skipa sér undir
merki kommúnista, svíkja stefnu
og starf Jóns Sigurðssonar.
*
Um skaplyndi Jóns Sigurðs-
sonar segir einn af sagnariturum
vorum:
,,Svo var lúndin göfug, að aldr-
ei leitaði hann að hefna sín á
öðrum mönnum, þó að gert
hefðu á hluta hans. . . . Stilling-
in var dæmafá af jafnstórlynd-
um manni.“
Ekkert er ríkara í eðli komm-
únista en hatrið og hefnigirnin
gagnvart þeim, er þeir télja að
gert hafi á hluta þeirra, en það
eru allir þeir, sem ekki vilja í
hvívetna dansa eftir þeirra
pípu. Hatur þeirra gegn núver-
andi ríkisstjórn er gegndarlaust,
og hefndarhugurinn gengur vit-
firringu næst ,fyrir það eitt að
hafa orðið utanveltu við síðustu
stjórnarmyndun, þó að það sé
einvörðungu sprottið af sjáll-
skaparvítum. Svo fangt gengur
vitfirringin, að kommúnistar
hyggjast að skera á lífæð sjávar-
útvegsins að þessu sinni með því
að stöðva síldveiðarnar í sumar.'
Þetta tiltæki er hreinn og beinn
g'læpur gagnvart allri þjóðar-
heildinni, en hann telja komm-
únistar sér heimilt að drýgja til
að koina hefndum fram á ríkis-
stjórninni.
Það er sama hvar skyggnst er
um í pólitísku sálarlífi kommún-
ista, alls staðar blasa þar við ful'l-
komnar andstæður við anda Jóns
Sigurðs'sonar. Þessum nýju frels-
ishetjum Jrjóðarinnar, sem þykj-
ast vera, má líkja við kalkaðar
grafir. Nýjasta dæmi um innræti
þeirra og taumlausa frekju er frá
síðustu þjóðhátíð hér á Akur-
eyri, haldinni á fæðingardegi
Jóns Sigurðssonar. Einn traúst-
asti maður í sjáffstæðisbaráttu
íálendinga fyrr og síðar og ötul-
asti lýðveldissinni, Þorsteinn M.
Jónsson, var af hátíðarnefndinni
kjörinn til að flytja lýðveldis-
ræðu þann dag. Þetta þoldu
kommúnistar ekkí og heimtuðu,
að nefndin tæki Jaessa ákvörðun
sína aftur, sem hún auðvitað
sinnti ekki að neinu. Kommún-
istum hefði að sjálfsögðu þótt
tilhlýði'Iegra að fyrir 'valinu
hefði orðið einhver af þeirra
sauðahúsi, einhver, sem kúnnur
væri að því að halda sér fast við
„línurnar" frá Rússlandi, t. d.
relsishetjan Jön Ingimarss. eða
einhver hans líki að línudansi.
Hitt var „móðgun“ í augum
verkfæra einvejdisins í aústri, að
landskunnur lýðveldissinni flytti
lýðveldisræðu á fæðingardegi
Jóns Sigurðssonar.
*
Á dögum Jóns Sigurðssonar
voru konungkjörnu þingmenn-
irnir helztu dragbítir á frelsis- og
framfaraviðleitni hans, með
undantekningum þó. í raun og
veru voru þetta lieiðursmenn,
sent vildu föðurlandi sínu vel, en
Jreir voru fúlltrúar danska valds-
ins og því að nokkru háðir og
fundu sig því skylda til að taka
meira tillit til vilja Jress en al-
menningi fannst hæfa og voru
því misjafnlega þokkaðir meðal
þjóðarinnar. Fengu þeir oft orð
í eyra, rneða'l annars í kveðlingi
nokkrum, er eitt af andríkustu
sálmaskáldum Jrjóðarinnar orti
og lagði þeim í munn:
Kveðlingur þessi hefst sem hér
segir:
Eg er konungkjörinn,
karl minn, segi ’eg þér;
enda upp lýkst vörin
efri og neðri á mér
aldrei nema á eina lund:
eftir því sem Jaóknast bezt '
Jrjóð við Eyrarsund.
Og hann endar á þessa leið:
Eg er konungkjörinn,
kross og nafnbót fæ.
í mér eykst svo mörinn,
að ég skellihlæ, — .
hlæ, þó gráti þjökuð Jijóð.
Eyrir danska sæmd og seim
sel ég íslenzikt blóð.
Nú eru komnir til sögunnar
hér á íslandi nýir fulltrúar er-
lends válds, og það miklu hættu-
legri en þeir gömlu, Jjví að þeir
svífást einskis og fara frarn með
frekju, yfirgangi og ofbeldi x
Jrjónustu sinni við erlenda vald-
ið, sem er mörgum sinnum fyrir-
ferðarmeira, sterkara og grimm-
ara en daiiska valdið var.
Þessir nýju „konungskjörnú'
skemmdarvargar eru kommún-
istar. Al'lt, sem sagt er í fyrr-
nefndum 4kveðlingi á vjð þá í
stækkaðri mynd með þeirri breyt-
ingu einni að setja Rússa og
Rússaveldi í stað Dana og Dana-
veldis. Aldiei geifla þeir varirnar
á annan hátt en þann, en þeir
telji að Rússum líki. Þeir mæna
eftir laúnum og virðingarnerkj-
um úr austurátt. Þeir koma til
verkamanna í 'ljósenglalíki, en
eru hið innra glefsandi vargar.
Erindi kommúnista til verka-
manna er að lýfta sér til æðstu
valda á öxlum þein a, en ekki að
styrkja verklýðsfélögin, því að
þeir hafa sundiað þeim en ekki
eflt. Æðsta þrá kommúnista erað
öðlást mörvambir slíkai', sem yf-
irmenn í Rússlandi bera á kostn-
að lágstéttanna, og þegar á reynir
bera þeir sæmd Islands í sjóði,
því að í blóði flugumanna Rússa
!ýtur það innræti.
Komúnistar hafa aðeins- eina
afsökun fyrir Rússadekri sínu.
Þeim er ekki sjálfrátt. Hugarfar's-
breyting er það, sem þeir þai'fn-
ast, til þess að eiga það skilið að
heita Islendingar. Kommúnista
dreymir um þjóðféJlagsby11ingu.
En það er önnur bylting, sem
þeim ríður á. Það er hugarfars-
bylting. Eina ráðið til að koma
henni fram er í Jrví fólgið, að
þeir mæti nógu sterkri andúð og
fyrirlitningu þjóðarinnar. Hver
Sumarheimilið
við Ástjörn
I fyrra sumar dvaldi flokkur
drengja, ogsíðan flokkur stúlkna
urn tíma á sumarheimilinu í
hinu inndæla umhverfi Ástjarn-
ai í Kelduhverfi. Blessaðist þessi
litla byrjún fram yfir vonir.
Nú er í ráði að bjóða ungling-
um (11 ára og eldri) austur
aftur í sumar, þannig
að drengjaflokkurinn dvelji þar
frá 5. til 18. júlí; en stúlknaflokk-
ur fi'á 19. júlí til 1. ágúst. Ein
vika íæyndist allt of stutt í fyrra
til að njóta alls, sem náttúran
hefir þar að bjóða. Við ætlum
því í Jietta sinn að láta hvorn
flokk vera þar í hálfan mánuð.
Við höfum fengið róðrarbát á
tjörnina, fótbolta, ikrókett og
ýmislegt annað, til þess að ungl-
ingarnir geti skemmt sér sem
bezt, þegar ekki er verið að skoða
fossana, kanna skógana o. s. frv.
Dvalaikostnaður reyndist ca.
9 kr. á dag í fyrra (fyrir unga
fólkið) og mun sennilega ekkí~
verða miklu hærri í sumar.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir að gefa sig fram við und-
irritaðan sem allra fyrst.
Kómið getur til mála, að eldra
fólk fái dvöl þar eftir 8. ágúst.
Arthur Gook.
F réttatilk ynningar
Á þjóðhátíðardeginum 17.
júní bárust utanríkisráðherra
heillaóskir fiá sendihena Banda-
ríkjanna í Stokkhólmi, herra
Louis G. Dreyfus og frú lians,
nórska sendiherranum, lierra
Torgeir AndersenÆyst, sem
staddur er í Stokkhólmi, herra
Emil Walter sendiherra Tékka á
íslandi og í Noiegi og sendifu'll-
trúa Belgíu í Osló, einnig frá Vil-
hjálmi Finsen sendiherra og Ól-
afi Þórðarsyni framkvæmda-
stjóra, sem staddir eru í Helsing-
fors.
•
Forseti íslands sendi Gústav
Svíaikonungi árnaðaróskir á af-
mæli hans, 16. júní. Hefir kon-
ungur þakkað kveðjuna.
Stjórn Frakklands hefir afnum-
ið áritunarskyldu fyrir ís'lenzka
þegna, sem ferðast vilja til Frakk-
lands til stuttiar dvalar. Þurfa
íslendingar nú eigi að afla sér
fararleyfis til Frakklands eða
dva'Iarleyfis þar, nema þeir ætli
sér að dvelja lengur en þrjá mán-
uði í landinu eða taka að sér
launaða atvinnu.
Reykjavik, 19. júní 1947.
(Fiá iitanri'kisráðuneytinu).
•
Meðal skeyta sexii forseta bár-
ust á þjóðhátíðardaginn voru eft-
irfarandi:
„íslendingar í New York senda
yður, herra forseti,- og íslenzku
veit, nema þeir kynnu þá að vitk-
ast og neyddust til að fara að
vinna í anda Jóns Sigurðssonar
og hættu að skreyta sig með fölsk-
um fjöðrum framan í verkalýð-
inn.
þjóðinni hugheilar kveðjur. Fyr-
ii hönd íslendingafélagsins í
New York, Ólafu rÓlafsson“.
„Islendingar í Danmörku, sam-
ankomnir á fjórðu lýðveldishátíð
Íslendinga, árna yður, herra for-
seti, konu yðar og íslenzku þjóð-
inni allra heilla á komandi tím-
um. íslendingafélagiði og félag
ísl. stúdenta”.
„Nemendasamband Mennta-
skólans í Reykjuvík fagnar því á
árshátíð sinni 17. júní 1947, að
þéi', herra forseti, eruð kominn
heill heilsu heim og sendir yður
kveðju og árnaðarósikir. Fyrir
hönd sambandsins. Björn Þórð-
arson“.
„Árnum foxsetanum og ís-
lenzkii' þjóðinni allra heilla á
fu'llveldisdaginn. Allra viiðjng-
arfyllst. Stefán Þorvarðsson“.
„Islendingar, santankomnir í
Stockholm 17. júní 1947, senda
yður, herra forseti, beztu árnað-
aróskir í tilefni af Jxjóðhátíðai'-
deginum."
Reykjavík, 19. júní 1947.
Um víða veröld
Leitar frummóður spendýranna,
hinnar svokölluðu Indrichoterium, er
litði á Tertiertímanum fyrir 60 mill-
jónum ára, hafa iundizt í Kazakstan
fyrir norðan Aralvatn í Sovét-Rúss-
Iandi. Þessi skepna er talin vera tengi-
liðurinn í milli skriðdýranna o£ spen-
dýranna. Hún var risavaxin, allt að
sjö metrar á lengd og skoltarnir voru
heill metri hvor. í Moskvu er ráðgert
ao senda vísindaleiðangur til þessa
staðar og á hann að vinna að þvt, að
ná beinagrindinni sem heillegastri úr
jarðlögunum og tlytja hana til nátt-
úrugripasafnsins í Leningrad. Ef þetta
tekst verður Leningradsafnið eina
náttúrugripasafnið í veröldinni, sem
á heillega beinagrind af þessu dýri.
*
Danir hafa keypt ullargam fyrir 1,5
millj. króna frá Sovét-Rússlandi, fyrir
hagstætt verð. Þeir hafa einnig keypt
nokkur þúsund tonn af fóðurbæti frá
Rússum.
*
Norskur maður, Odin Andersen, sem
hefir verið búsettur og starfandi í
skozka bænum Aberdeen í nokkur
undanfarin ár, ásamt konu sinni og
börnum, vildi hvetfa heim til Noregs
aftur nú á dögunum. í því skyni
keypti hann sér allstóran vélbát, hlóð
í hann allri búslóð sinni og öðrum eig-
um og hélt af stað til Noregs. Eftir
250 km. siglingu irá Aberdeen gengu
benzínbirgðir bátsins til þurrðar og
varð brezkur tundurduflaslæðari að
taka fjölskylduna um borð en dráttar-
bátur ætlaði með vélbátinn til hafnar.
Á leiðinni hreppti hann vont veður,
dráttartaugin slitnaði og vélbáturinn
sökk. Þar missti Norðmaðurinn al-
eigu sína. Hann hefir nú sezt að í
Aberdeen á ný og er byrjaður að
safna til annarrar heimferðar.
Vinnustofusjóði Kristneshælis hafa
borizt þessar gjafir: Frá Berklavöm
Akureyri,-ágóði af dansskemmtun kr.
623,25, frá G. E. kr. 50,00. — Beztu
þakkir. — Jónas Rafnar.
Dýralæknirinn, Guðbrandur Hlíðar,
verður fjarverandi úr bænum, til
næstk. mánaðamóta.