Dagur - 26.11.1947, Page 1

Dagur - 26.11.1947, Page 1
For ustugr einin: Verðmætin, sem ekki hafa verið nýtt hér. Umræðuefni: Rafmagnsmálin. XXX. árg. Akureyri, miðvikudagur 26. nóvember 1947 Fimmta síðan: Sagt frá frækilegri för norskra vísindamanna á fleka yfir Kyrrahafið. 47. tbl. Kommúnistar hafa lagt. fram sínar „dýrtíðar- tillögur“ Þeir vilja áframhald fiskábyrgðarinnar, milljóna- lántökur og fjárgreiðslur úr ríkisssjóði ásamt afnámi tolla Fregnir úr höfuðstaðnum í gær hermdu að dýrtíðarfrumvarp ríkis- stjórnarinnar — sem öll þjóðin hefir beðið eftir í nær tvo mánuði — væri nú um það bil fullgert og mundi verða lagt fyrir Alþingi nú einhvern næstu daga. Ríkisstjórnin mun hafa unnið kappsamlega að samningu frumvarpsins undanfarna daga og hafa att ýtarlegar viðræð- ur við þingflokkana um efni þess. Ekki hefir verið skýrt opinberlega •frá þeim ráðstöfunum, er í frum- varpinu felast, og er beðið með mikilli óþreyju eftir því að það sjái dagsins ljós. Þessum tíðindum mun verða fagnað af almenningi í land- inu. Men vænta skynsamlegra til- lagna og rösklegrar og réttlátrar framkvæmdar. „Dýrííðarlausn" kommúnista. Kommúnistaflokkurinn á Al- þingi lagði frám dýriíðarfrumvarp sitt á mánudaginn og segir í grein- argerð þess, að þar sé að finna til- lögur fiokksins til bjargar þjóðinni í aðsteðjandi vandræðum. Aöal- efni frumvarps kommúnista er í stuttu máli þetta: Ríkissjóður taki ábyrgð á öllu fiskverði, svo sem gert var í fyrra. Útvegsrnenn þeir, er tapað hafa á síidveiðum sl. sum- ar, fái vaxtalaus lán hjá ríkinu til margra ára. Vextir af lánum til úi- gerðarinnar verði lækkaðir og vá- trj'ggingargjöld færð niður með lagaboði. — Viðgerðarkostnaður slcipa verði fserður niður með sér- stakri verðlagsreglugerð á vinnu vélsmiðja og skipasmíðastöðva. Út- vegsmenn fái einkaleyfi á innflutn- ingi útgerðarvöru og ríkisstjómin einkaleyfi á olíuinnflutningi. Loks verði sett á stofn Innkaupastofnun þjóðarinnar — alisherjar einkasala — er hafi á hendi allan innflutning til landsins nema á útgerðarvörum og olíu. Ríkinu era, samkv. þessu, heimilaðar margar lántökur, þ. á m. 15 millj. kr. lántaka til þess að leggja hinni fyrirhuguðu ríkisein- okun stofnfé. Þá leggja kommún- istar til að tollar á öllum helztu nauðsynjum verði felldir niður. Að öllu samanlögðu mun frum- varp þetta eitt hið furðulegasta plagg, sem sézt hefir á Alþingi. Þar er gert ráð fyrir stórkostlegum nýjum útgjöldum og lántökum rik- isins, áframhz.ldandi ríkisábyrgð og meðgjöf með aðalútflutningsvörum þjóöarinnar cg lækkun tekjustofna ríkisins með tollaniðurfellingum á sama tíma. Fátt virðist því raun- hæfra dýrtíðartillagna í þessu Tyrone Power Kvenþjóðinni leizt vel á kvikmyndaleikarann Sl. sunnudag varð uppi fótur og fit meðal kvenþjóðarinnar í höfuð- staðnum. Orðrómur gekk um að hinn heimsfrægi kvikmyndaleikari Tyrcne Power, væri væntanlegur með flugvél á Reykjavíkurfiugvöll- inn. Þótt allt væri í óvissu um þetta, höfðu samt um 200 ungar stúlkur safnazt saman úti á Reykja- víkurílugvelli eftir hádegiö, og laust fyrir kl. 2 lenti 2-hreyfla Douglasflugvél á flugveliinum, og sat Tyrone Power sjálfur við stýr- ið. Kom flugvél hans frá Shannon á Irlandi og-var á leiö til Ameríku. Power á þessa flugvél sjálfur, og hefur ferðazt með henni víða um (Framhald á 6. síðu). miimmg Þorsíems frá Lóni Karlakórinn Geysir efndi til vígsluhátíð'ar í Geysishúsinu sl. sunnudagskvöld og voru þar samankomnir kórfélagar og nokkrir gestir. Tilefni samkom- unnar var það, að kórinn hafði ákveðið að heiðra minningu Þor- steins Þorsteinssonar frá Lóni, hins ágæta forustumanns Geysis og sönglífs hér nyrðra um langt skeið, með því að skíra húsið honum til heiðurs. Formaður Geysis, Tómas Steingrímsson, flutti stutt ávarp, minntist Þor- steins heitins og starfs hans, og skírði húsið Lón. Geysir söng nokkur lög og síðan veitti kórinn gestum sínum rausnarléga. Lón er ' myndarlegt og rúmgott hús, mun enginn söngkór á landinu nú ráða yfir jafn góðum húsakynn- um til starfsemi sinnar og Geysir. Húsið er einnig á annan hátt stoð og styrkur söng- og tónlistarlífs hér, því að Tónlistarskólinn er | þar til húsa. Líklegt er, að kórinn | reyni enn frekar að styðja tón- j menntarlíf hér í sambandi við jhin nýju húsakynni. Hefir sérstök frumvarpí, en því meíra gert að því |hússtÍórn verið kosin og vinnur að veifa gylliboðum framan í allar j hhn að l-)V' ai') athuga á hvern sténir. Mun frumvarp þetta því jhatt hnsið verði sem hezt nýtt í elcki verða tekið alvarlega yfirleitt. framtíðinni. Ný kvseðabók eftir Davíð Stefánsson frá Fagra' skógi kom á markaðion mn síðustu helgi Þraukar enn Stjórnir koma og fara i Frakklandi, en Georges Bidault þraukar samt rífram sem utanrikisráðherra, og hefir hann rítt sceti i öllum stjórnum Frakklands siðan i stríðslok. Stjórn Ramadiers sagði af sér í lok sl. viku og var búizt við að Leon Blum mundi rnynda stjórn, en honum tókst •það ekki, og varð ur, að SCHUMANN, úr miðflokknum, flokki Bidaults, myndaði stjórnina. Ekki er henni spáð langlifi og segja brezk blöð, að liklegast sé að hún verði aðeins þrep fyrir De Gaulle að stiga á til valdanna. Bidault er nú kominn til London á utanrikis- ráðherrafundinn, sem hófst þar í gœr. Ljóðavinum og öllum þeim, sem íslenzkum bókmenntum unna, mun þykja það tíðindum sæta, að ný kvæðabók eftir skáldið frá Fagraskógi er nú kornin á markaðinn. 11 ár eru Iiðin, síðan síðasta ljóðabók Da- viðs, Að norðan, kom fyrst út. Svo sem alkunnugt er, fer því fjarri, að Davíð Stefánsson hafi hvílzt á lárberjum sínum og haldið að sér höndum á þessu til— tölulega langa árabili. Stór skáldsaga í tveimur þykkum bindum hefir komið út á þessum árum, í tveimur útgáfum, og enn- fremur tvö leikrit, er vakið hafa athygli alþjóðar. Þá hefir skáldið starfað að heildarútgáfu kvæða- safns síns, er út kom árið 1943 í þremur stórum bindum. En þetta breytir þó í engu þeirri stað- reynd, að aðdáendur Davíðs Stef- ánssonar hafa með óþreyju heðið nýrrar ljóðabókar frá hans hendi. Og nú er hún loks komin út. Hið nýja Ijóðasafn Davíðs Stefánssonar nefnist Ný kvæða- bók. Er bókin gefin út í sama broti og hinar fyrri frumútgáfur skáldrita hans 165 bls., og flytur 39 kvæði. Bókaforlag Þorsteins M. Jónssonar á Akureyri gefur ljóðin út, og eru þau prentuð á valinn pappír, yfirlætislaust, en sérlega smekkvíslega hjá Prent- verki Odds Björnssonar á Akur- cyri. Er ekki um það að villast, að mjög er til útgáfunnar vandað af hendi höfundar, útgefanda og prentsmiSju, svo sem skylt er og verðugt, því að öllum öðrum bók- um og höfundum ólöstuðum, er það tvímælalaust, að hér er á ferðinni sú bókin og höfundurinn, sem flestum íslendingum mun mestur aufúsugsstur allra bóka og höfunda á bókamarkaðinum þetta árið. Og er okkur Akureyr- ingum og öðrum Norðlendingum af ýmsum ástæðum þó skyldast að minnast þess og fagna þessum bókmenntaviðburði sem bezt og maklegast Ágætur skíðasnjór - Óveður og ísing rauf háspennulínuna á mörgum stöðum Nokkru eftir hádegi sl. sunnud. varð Akureyrarbær rafmagns- !aus. Var talið að háspcnnulína frá Laxárvirkjun hefði rofnað. Þcnnan dag var vcrsta veður, norðaustan stormur og krapahríð, en frysti á hálcndi cr leið á daginn. Reynt var að mæla frá virkjun- inni, hvar bilunin væri, og benti allt til þess, að hún væri í Vaðla- heiði. Fóru starfsmsnn rafveitunn- ar uppeftir seint á sunnudagskvöld og brutust upp á heiðina um nótt- ina í blindbyl og ófcsrð. Komu þeir ao biluninni undir morgun og var gert við liana fljótlega. Höfðu bindingar á staurunum roínað vegna ísingar og þyngsla á vírun- um. Gerðu þeir síðan aðvart í Skógum, að viðgerð á heiðinni væri lokið. En þessi viðgerð reynd- ist ekki nægileg, því að bilanir komu í Ijós víoar í heiðinni. Fóru menn að austan á sunnudagsmorg- un með línunni, og var gert við jbilun við Vestmannsvatn, en þao jnægði hekíur eklci, því að bilanir voru enn á Fljótsheiði og í Reykja- dal. Var unnið að viögerð þeirra í fyrradag og nótt, og komst sam- band loks á í gærmorgun, nokkru fyrir hádegi. Meginástæða þessarar bilunar, sem orðið hefir mjög bagaleg fyrir ;heimili í bænum og þó sérstaklega j iðnaðarfyrirtæki hér og orsakað j tjón og stöðvun fyrir þau, er sú, að veður voru óvenjulega slæm. Bindingar þær, sem notaðar eru á staurum línunnar, • eru taldar traustar, en reyndust þó ekki ör- uggar. Er aðkallandi að athuga, hvort hægt muni að treysta þær og þá gera aðrar ráðstafanir til þsss aT) fyrirbyggja slíkar bilanir eins og verða má, t. d. með fjölgun staura undir línunfli eða öðrum ráðstöf- unum, er vænlegar þykja. Aðkallandi virðist þao, að raf- veitustjómin taki meira tilíit til almermings en verið hefir og veiti glöggar og skýrar uppiýsingar um raforkumál bæjarins yfirleitt og greini frá þeim leiðum, sem færar þykja til úrbóta, og frá því, hvað gert er tii þess að tryggja crugga starfrækslu rafveitunnar. Atkvæðagreiðsla um ölfrumvarpið s, L máiiudag i Á mánudaginn var loks gcngið til atkvæða um ölfrumvarpið í neðra deild Alþingis, eftir að 1. umræða mólsins hafði með upp- styttum staðið í marga daga. Var frumvarpinu vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar með 19. atkv. gegn 13, en 3 þingmenn voru fjar- staddir. engin sldðamót Ágætur skíðasnjór er nú kom- inn hér, að því er skíðamenn telja, og eitthvað mun skíða- íþróttin stunduð en ekki verulega og eru engin skíðamót ráðgerð fyrr en eftir áramót Er það venj- an, að menn taka að stunda skíðaferðir þá fyrst að ráði, er mesta skammdegið er um garð gengið og daginn fer að lengja. Reykjafoss vænt- anlegur hingað Mánuður síðan skip frá Eimskip hefur komið hér Erfiðlega ætlar það að ganga fyrir Eimrkipafélagi Islands að efna það loíorð, að breyta siglinga- fyrirkomulaginu eftir siríð'slokin og taka upp viðunandisiglingartil helztu haína úti á landi. Ástandið í siglingamálunum hefir sjaldan verið lakara en núna, og ekki verð- ur vart við áhuga hjá forráðamönn- um þar syðra á að bæta úr því ó- fremdarástandi. Nú er liðinn rösk- ur mánuður síðan Eimskip sendi skip síðast hingað, en það var Lag- arfoss, er kom að sunnan. Nú aug- lýsir félagið að Reykjafoss hlaði vörur vestur og norður í Reykjavík nasstu daga og fari 29. þ. m. hingað til Akureyrar cg Kúsavíkur. Engin áreiðanleg áætlun er til um ferðir skipanna, og er ekki vitað, hvemig ferðum verður hagað — ef nokkr- ar verða — um jól og áramót.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.