Dagur - 26.11.1947, Page 4

Dagur - 26.11.1947, Page 4
4 DAGUR Miðvikudagur 26. nóvember 1947 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgrciðsla, auglýsingar, innheimta: Marínó II. Pétursson Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166 Blaöið kemur út A hverjum miðvikudegi Ai-gangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi cr 1. júlí Prentverk Gdds Björnssonar h.f. Akureyri ótt om hin jákvæðu störf 17'YRIR nokkru birtu blööin bér fregn um það, að skip KEA hefði selt bátafisk frá ver- stöðvunum hér fyrir meira en sjö þúsund sterl- ingspund, eða hátt á annað hundrað þúsund kr. Þessi verðmæti sóttu smábátar hér í firðinum og næstu verstöðvum á nokkrum dögum í greipar Ægis. í allt haust og fram til þessa dags, hefir verið mikil fiskigengd hér í firðinum og á mið- unum úti fyrir; Á tímabili í haust gátu smábátar hlaðið á skömmum tíma hér inni í firðinum af verðmætum fisktegundum, ýsu og þorski. En sjómennirnir sóttu ekki fast róðrana að þessu sinni. Erfiðlega gekk að koma fiskinum í verð, hraðfrystihúsin full, saltfiskmarkaður óviss og ísfiskmarkaðurinn — þótt ágætur væri — lokað- ur þeim. Margir bátar, stærri og smærri, lágu i allt haust við stjóra eða landfestar hér inni á Polli. En meðan þannig ríkti kyrrstaða á landi, iðaði allt af lífi í sjónum. Verðmætin — hinri dýrmæti erlendi gjaldeyrir — við borðstokkinn, en lítið aðhafst til þess að ná þeim til handa þjóðarbúinu og til hags og heilla fyrir atvinnu- . vegina og afkomu almennings. Tilraun sú, sem gerð var um flutning bátafisksins til Englands, og nú er nýlega lokið, gefur hugmynd um þau verðmæti, sem látin haía verið ónotuð hér á þessu hausti. Einn farmur, veiddur á nokkrum dögum, seldist fyrir nær 190 þúsund krónur. Markaðui-inn reyndist mikill og góður, miðað við það, sem annars staðar gerizt, en samt fæst sú dapurlega reynsla, að ekki muni fært að haldaf] þessum siglingum áfram, þótt afli og sölur séu | eins og bezt verður á kosið. Útgerðin borgar sig ' ekki. Útvegsmenn fá ekki nægilega hátt verð 'fyrir fiskinn til þess að þeir geti haldið áfx-am að veiða hann til sölu á enskum mai-kaði. Kostn- aður flutningaskipanna er of hár, til þess að söl- urnar geti borið hann. Útkoman verður sú, að árar eru lagðar í bát, fleiri tilraunir verða ekki gerðar að sinni, og þótt aflabrögð reynist mikil og góð ennþá og gæftir sæmilegar, verða þær aðstæður ekki nýttar til fulls til sköpxmar gjald- eyri o.g atvinnu. þETTA ástand hér varpar ljósi á það, í hvert óefni er komið framleiðslumálum þjóðarinn- ar fyrir atbeina dýrtíðar og stjórnleysis. í gjald- eyrisþurrðinni er ekki laga kapp á það að auka útflutninginn. Framleiðslutæki, sem gætu skilað miklum afköstum, þar sem er bátaflotinn hér um slóðir ,eru látin ónotuð Ráðstafanir í gjaldeyris- málunum — eftir að snúið var við á eyðslubraut fyrrv. ríkisstjórnar — hafa aðallega snúizt um takmörkun eyðslu, og var vitaskuld sjálfsagt, að stemma stigu við óhófinu, en hinn þátturinn — aukning útflutningsins og sköpup erlends gjald- eyris — hefir að verulegu leyti orðið útundan. Þess hefir ekki orðið vart t. d., að Alþingi eða ríkisstjórn hafi gert alvarlega tilraun til þess að koma á nýjum samningum um ísfiskflutninga og freista þess þannig, að æysa erfiðasta hnútinn fyrir smábátaútveginn, sem vill gjarnan njóta hins ágæta brezka markaðar. E. t. v. voru mögu- leikar á því, að hrinda þessum útflutningi af stað í haust með nýju samkomulagi sjómanna og út- vegsmanna, ef kapp hefði verið lagt á það. Það er nú augljóst ,að slík lausn hefði orðið til þess að skapa atvinnu og fjármagn í mörgum ver- stöðvum. En í þessum málum hefir ekkert verið gert. Þau hafa, eins og annað beðið þeirra allsherjar tillagna til lækningar á dýrtíðarbölinu, sem von hefir verið á frá ríkisstjórn og Alþingi allt síðan þing kom saman í haust, en ekkert bólar á ennþá. ¥¥ÉR hefir aðeins verið nefnt eitt dæmi um það tjón, sem þjóðarbúið hefir af þeim óheyri- lega drætti, sem orðinn er á að- gerðum i dýrtíðarmálinu. Mörg fleiri blasa við augum daglega. Það er sorgleg reynsla, að þrátt fyrir alla skipulagninguna að of- an, allar stóru skrifstofurnar, ráðin og nefndirnar, er engin til— raun gerð til þess að leysa erfið- asta gjaldeyrishnútinn með auknum útflutningi, með nýtingu þeirra framleiðslutækja, sem til eru í landinu, með því að beina kröftum manna og fjármagni að raunhæfu viðfangsefnum útflutn- ingsverzlunarinnar. Takmörkun á gjaldeyrisleyfa veitingum og eft- irlit með húsbyggingum eru að vísu nauðsynlegar ráðstafanir, eins og nú er komið, en þær-eru ekki aðalatriði þeirrar skipulagn- ingar til endurreisnar, sem koma þarf. Því míður virðist mikið af starfstíma hinna voldugu ráða og sjálfs Alþingis fara í þessar og aðrar slíkar neikvæðar ráðstaf- anir. Það er furðulega hljótt um hin jákvæðu störf — niðurfærslu framleiðsiukostnaðar og aukn- ingu útflutningsins. Fokdreifar Borg í myrkri. AÐ ER GOTT að hvorki æðri né lægri ráðamenn rafveit- onnar okkar munu gæddir neinu sjötta skí ningarviti og sjá því hvorki ne heyra gegnum holt og hæðir. Að öðrum kosti er býsna hætt við því, að svefnfarir þeirra lieíðu gerzt ærið styggar nú að undanföruu og jafnvel sótt erf- iðlega að þeim í vöku. Ef marka má orðræður manna á heimilum cg vinnustöðvum síðustu sólar- hringana, munu bæjarbúar þykj- ast illa sjá fyrirhyggju þeirra, dugnað og árvekni í starfi, þótt langdegi sé og hábjartur dagur, og alls ekki koma auga á þessa ágætu eiginleika þeirra nú í myrkrinu og skammdeginu. Og bráðum verður hvorki hægt að svipast um eftir málsbótum við oL’utýrur né kevtaljós, ef það er satt, sem eagt er, að bæði kerti og steinolía íé þegar til þurrðar gengin í bænum og verða þá allir að biðja bænir sínar — fyrir s’jálf- um sér og rafveitustjórninni — í algeru og glórulausu mj rkri. ANNARS SKAL hér ekkert um það fuílyrt að svo stöddu, hvort þæ<: almennu og háværu édeilur, sem hejrast nú hvar- v etna meðal almennings í garð þeirra, er með málefni og fram- kvæmdir rafveitunnar fara, — eru á fullum rökum reistar. Vel má vera, aö allir þeir góðu menn hafi gildar afsakanir og skýringar á reiðum lxöndum, enda sé það öldungis eðlilegt og sjálfsagt mál, að höfuðstaður Norðurlands sitji sólarhringum saman í svarta royrkri, og öll starfsemi og at- hafnalíf í bænum lamist gersam- lega, hvenær sem gerir talsverða hríð eða golukorn í svartasta skammdeginu, þegar ávallt er þó allra veðra von á þessum slóðum. En séu slíkar skýringar og máls- bætur fyrir hendi, væri forráða- mönnum þessara mála hollast að liggja ekki á þeim, heldur birta almenningi þær vafningalaust ásamt fullnægjandi skýrslu um ástand og horfur, framkvæmdir og fyrirætlanir í þessum málum. Hér er vissulega svo mikið í húfi, að almenningur á heimtingu á því, að honum sé leyft að fylgjast sem bezt með gangi málanna. — Með slíkri skýrslu og greinargerð ætti t. d að vera upplýst, hvað hæft sé í slíkum sögum sem þeirri, er nú gengur manna á meðal, að stór sending af alls konar varahlutum og efnivöru til rafveitunnar hér hafi legið lengi í sumar í reiðuleysi á hafnar- bakkanum í Reykjavík, og hafi henni loks verið ráðstafað til raf- veitunnar á Akranesi, til þess að losna við hana, þar sem réttir að- iljar hafi engar ráðstafanir gert til þess að nálgast hana eða flytja hingað norður. Þá er og talað um stjórnleysi og athafna- leysi í sambandi við nauðsynlegt eftirlit og viðhald háspennulín- unnar hingað. Allt kann þetta að vera ómaklegt og ástæðulaust slúður, en því þá ekki að kveða það niður í eitt skipti fyrir öll með glöggri skýrslu og greinar- gerð ábyrgra aðilja? EN ERFIÐAST mun þó bæjar- búum veitast að sætta sig ’við það, tið eklii skuli vera gerð sköruleg og harðvítug tilraun til þess að undirbúa og hrinda í framkvæmd nýrri og fullnægj- andi rafvirkjun fyrir bæinn og rafveitusvæðið allt án frekari tafar. Menn vænta vissulega skýringar á því ráðslagi, að álag rafveitunnar skuli stöðugt aukið með því að bæta á hana nýjum og nýjum þorpum og sveitum, á sama tíma og spennan fellur stöðugt hér í bænum, svo að til stórvandi-æða horfir. Um þetta berast fréttir og opinberar til- kynningar, en hitt ekki, að unnið sé af dugnaði og fyri.rhyggju að því nauðsynjamáli að stækka og efla raforkuver það, sem bærinn hefir reist og rekið á sinn kostn- að, og fyrst og fremst var ætlað til þess að sjá bæjarbúum hér fyrir nægilegri raforku. Umbætur og framkvæmdir á þessu sviði cru nú orðnar mál málanna fyrir allt athafnalíf og afkomu í bænum og mega með engu móti dragast á langinn. Hafa eyðublöðin gleymzt? Ú ER FRESTUR sá, er Fjár- hagsráð setti til að senda beiðnir um fjárfestingarleyfi til alls konar byggingarfram- kvæmda á næsta ári, bráðum lið- inn, en hins vegar eru nauðsynleg eyðublöð undir þessar beiðnir enn ókomnar hingað norður og því ófáanleg hér. Nú spyrja menn að vonum: Er það meining vald- hafanna að stöðva allar bygg- ingaframkvæmdir hér um slóðir á næsta ári fyrir þá eina sök, að annað tveggja hafa prentsmiðjur höfuðstaðarins ekki undan að prenta öll eyðublöðin og skýrslu- farganið, sem þjóði ner nú södd á, eða þá hitt, að hlutaðeigandi ráðamenn hafa ekki haft fyrir- hyggju á því, að koma afurðum þeirra norður hingað í tæka tíð? Ósennilegt er þetta að vísu, en hver veit þó nema Akureyri hafi ennþá alveg gleymzt í þetta sinn? Stúlka óskast í vist á gott og fá- mennt heimili í Reykjavík. Sérherbergi. A. v. á. Heimilisiðnaður til útfluinings Um þessar mundir stendur yfir sýning í London, ?em vekur mikla athygli og umtal. Langt er þó frá því, að syning þessi berist mikið á hvað húsakynni snertir, því að henni er komið tyrir í einum afkima neðanjarðarstöðvarinnar í Charring Cross, sem engan veginn lætur mikið yfir sér, sem sýningarstaður. En þeir, sem að sýningunni standa hafa eflaust haft annað í huga, þegar þeir völdu staðinn, sem sé bá staðreynd, að um stöð þssa fara og koma þús- undir manna daglega. Sir Stafford Cripps opnaði sýninguna þ. 3. þ. m. að viðstöddu ýmsu stórmenni, en síðan var al- menningi heimilaður aðgangur ókevpis. Það eru konur, sem að starfsemi þessari standa, og hafa bær kallað sýninguna „Heima-unnir doll- arar“. Þetta er nýr félagsskapur, Heimilisiðnaðarfélag kvenna, (Women’s Home Industries I<td.) sem hefð- arfrú ein, forseti Sjálfboðasveitar kvenna (W. V. S.) hefir gengizt fyrir að stofna. Félagið vinnur að því að fá konur til þess að leggja fram krafta sína og kunnáttu og útvega land- :nu dollara, með því að vinna heima muni, sem ílytja á út til Kanada og Bandaríkjanna. Einnig vill félagið hjálpa þeim konum, sem eru bundnar við heimili sín, en gjarnan vilja noía kunn- áttu sína í þarfir framleiðs'annar Sýningin í Charring Cross er fyrsta sýnishorn fé- lagsskapar þessa. Það eru ekki margir múnir til sýnis, en hver þeirra er listaverk á sína vLu. Mesta athygli vekja sex stólsetu-áldæði, sem ekkjudrottning Mary hefur saumað. Nokkur fleiri stol-áklæði. öll saumuð með krosssaum, eru og til sýnis. Þá er nokkuð af prjónuða.n og hekluðum barna- fötum, útprjónaðar peysur, liúfur og vettlingar eru eínnig á boðstólum. Nokkuð er af saumuðum veggmyndum og und- urfögrum teppmn og sjölum, prjónuðum og saum- uðum (applications). Ýmiss annar heimaunninn varningur er sýndur, sem enginn efast um að muni gefa landinu marga dollara, þegar hann kemst yfir hafið til hinna ákveðnu kaapenda. „Ekkert hefur enn verið gert til þess ao koma varningi þessum á framfæri", sagði Sir Stafford Cripps í opnunai’ræðu sinni, „eti sýuing þessi er ár- angur spurningarinnar: Hvernig get ég hjálpað landinu í núverandi örðugl-ikmn þess?“ Eg átti tal við eina af forstoðukonunum og spurði hana hvort mikill áhugi væri ríkjandi meðal kvenna að vinna að þessu málefni. „Meiri, en yður getur grunað,“ svaraði hún. Síðan skýrði hún mér frá því, að skrifstofa þeirra tæld á móti 2—3 hundruð sendingum daglega frá konum úr öllum landshlutum Á skrifstofunni eru þessi sýnishorn skoðuð af sérfræðingum, metin og vegin, því að þær eru mjög strangar og taka áðeins það, sem talizt getur fyrsta flokks bæði hvað vinnu og frágang snertir, sömuleiðis efni og smekk. Mikið af þessum sýnishomum er því endursent senj óhæf útflutningsvara, tn það bezta tekið, og setur þá félagið sig í samband við framleiðandann. Félagið sér síðan um útvegun efnis og greiðir vinnulaun eftir samkomulagi. Mér fannst sýning þessi svo merkileg og eftir- tektarverð, að ég vildi geta hennar með nokkrum orðum. Bretland er ekki eina landið, sem er í dollara- þröng, og eflaust mun bcssi starfsemi enskra kvenna gefa kynsystrum þeirra í öðrum löndum tilefni til þess að spyrja á sama hátt: Hvað get ég gert? London í nóvember. Anna S. Snorradóttir.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.