Dagur - 17.12.1947, Side 1
Forustugreinin:
Þýðing fiskflutninganna til
Bretlands á stríðsárunum og
afstaða kommúnista þá.
Fimmta síðan:
Marshalláætlunin og þjóðirn-
ar í Evrópu.
Umræðuefnið:
Dýrtíðarfrumvarpið.
XXX. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 17. desember 1947
50. tbl.
íðrnr er
ms ko
Þannig lítur hann út, nýji brezki togarinn „Fairfree“, sem nú er að
búa sig á veiðar i Ardrossan í Skotlandi. Fairfree er brezkur tund-
urduflaslæðari, sem hefir verið endurbyggður í nýtízku togara, sem
nefna mætti fljótandi fiskvinnslustöð. Skipið er 1500 smálestir að
stærð, það hefir ýmsan’nýjan togarabúnað, og auk þess liraðfrysti-
tæki og kælirúm og ýmsar vélar til bess að vinna til fulls úr fiskin-
um. A skipinu verðnr 40 manaa áhöfn.
Fljótandi fiskvinnslustöð
5 f :
ii frf1
Bæjarráð hefir samþj’kkt að
fela bæjarstjóra að skrifa nú
þegar öllum helztu kaupstöðum
norðanlands og austan og stinga
upp á því, að þeir sendi, ásamt
Akureyrarbæ, fulltrúa, einn eða
fleiri frá hverjum bæ, til Reykja-
víkur til þess að vinna sameigin-
lega að þeim málum, scm fjallað
er um í nýlegri ályktun bæjar-
stjórnarmnar hér.
Ályktun þessi var birt hér í
blaðinu fyrir skemmstu, og fjall-
aði um hið óviðunandi ástand í
siglingamálum verzlunarstaðanna
úti um land, úthlutun gjaldeyris-
leyfa og nauðsyn þess, að breyta
fyrirkomulagi þeirra mála að
verulegu leyti.
Bæjarráð ákvað einnig, að
senda Eimskipafélagi íslands og
Fjárhagsráði ályktun sína frá því
um daginn og óska eftir syari
þessara aðila um, hvers bær-
inn megi vænta í þessum máhjm
í framtíðinni.
Það er gott til þess að vita, að
bæjarstjórnin hefir í hyggju að
fylgja fast eftir salnþykkt sinni
frá um daginn, og er þess að
vænta, að aðrir verzlunarstaðir
úti á landi, sem við sama ófremd-
arástandið búa, taki höndum
saman við bæjarstjórnina hér og
freisti þess í sameiningu að fá þá
leiðréttingu þessara mála, að allir
megi sæmilega við una.
Fjölmeimi á Locíu-
hátíð Karlákors
Aureyrar
Karlakór Akureyrar hélt sam-
söng og. Lúcíuhátíð í Nýja-Bíó sl.
laugardag og var húsið þéttskipað
og söngnum ágætlega tekið. Ein-
söngvarar voru frk. Guðrún
Tómasdóttir, Jóhann Konráðsson
og Sverrir Pálsson. Á söngskrá
voru 14 lög, 2 íslenzk og 12 erlend.
í lok samsöngsins gekk hin helga
Lúcía fram á sviðið og meyjar
hennar. Var sungið Santa Lúcía
og að lokum Ave María eftir
Schubert. Söngstj. Áskell Jónss.
M.I). „Auður“ strandar
Á mánudagsmorgun strandaði
m.b. Auður héðan úr bænum við
Engey við Reykjavík. Skipið náð-
ist út síðdegis í gær, óskemmt.
Margir bæjarbúar
eiga eftir að sækja
nafiiskírteinin
Afhending nafnskírteina hér í
bænum fór fram á bæjarfógeta-
skrifstofunni á útvarpsauglýst-
um afhendingartíma í sl. viku, en
annað tveggja hafa menn ekki
heyrt útvarpsauglýsingarnar eða
ekki kært sig um skírteinin, því
að' í gær átti mikill fjöldi Akur-
eyringa eftir að sækja skírteini
sín. Rétt er að benda á, að það
getur valdið miklum óþægindum
við seðlaskiptingu og skömmtun-
armiðaafhendingu, ef nafnskír-
teini eru ekki fyrir hendi. Ættu
menn ekki að láta það dragast að
sækja þau. Framvegis verða þau
afhent á bæjarfógetaskrifstofunni
á venjulegum afgreiðslutíma, kl.
10—3.
II
menn
fóru
Vísitalan bundin í 300 stigum, íilut-
fallsleg lækkun innlendra afurða,
fiskábyrgðin framlengd og niður-
greiðslum haldið áfram
Nýr skattur á eignaaokningu áranna 1940-1947
Ríkisstjórnin hefir nú loksins lagt fram frumvarp það um dýrtíð-
arráðstafanir, sem Iöngu var boðað, og beðið hefir vcrið eftir með
mikilli eftirvæntingu. Með frumvarpi þessu er stefnt að því að stöðva
dýrtíðina og færa hana niður, en naumast getur bað kallast allsherj-
arlækning á dýrtíðarbölinu. Fái það samþykki Alþingis, sem lík-
legt má telja, munu þessar ráðstafanir þó duga til þess að koma báta-
útgerðinni af stað í vetur og leysa erfiðasta hnút framleiðslustöðv-
unarinnar og gjaldeyrisvandræðanna.
héðan í atvinnu
til Siglúf jarðar
í gær
Leitað var eftir því til Vinnu-
miðlunarskrifstofunnar hér nú
um helgina, að hún útvegaði 15
menn til síldarvinnu í Sig'lufirði,
en atvinna er þar nú geysimikil
vegna síldveiðanna. í gær fóru 11
menn með póstbátnum héðan til
Siglufjai'ðar og verða þeir a. m.
k. til jóla og e. t. v. lengur, ef at-
vinnan helzt.
Frumvarpið hefir ekki borizt
hingað í heilu lagi enn þá, en þettá
munu vera helztu atriði þess:
Ríkissjóður heldur áfram að á-
byrgjast fiskverðið til bátaútvegs-
ins og hraðfrystihúsanna með sama
hætti og verið hefir. Niðurgreiðsl-
um á landbúnaðarafurðum verður
og haldið áfram. Verðlagsvísitalan
verður fastbundin við 300 stig, og
verð landbúnaðarafurða verður
lækkað hlutfallslega, þannig, að
tekjurýrnun bænda verði hlutfalls-
lega jöfn og launþega við bindingu
vísitölunnar. Er talið, að raunveru-
leg vssitala muni lækka í 312 stig
vegna þessarar lækkunar landbún-
aðarafurða, en vísitalan er nú, sem
kunnugt er, 328 stig.
Eignaaukaskattur.
Þá er gert ráð fyrir eignaauka-
skatti á eignaaukningu, sem fram
,hefur komið á árabilinu 1940—=47.
j 100 þús. kr. aukning er ekki skatt-
r-kyld samkvæmt frumvarpinu, en
af 100—200 þús. kr. aukningu
'greiðist 5 þús. kr., og fer skatturinn
síðan stighækkandi þannig:
Af 200 þús. kr.: 5 þús kr. og
10% af afgangi í 400 þús. kr.
Af 400 þús. kr.: 25 þús. kr. og
15% af afgangi, upp í 600 þús. kr.
Af 600 þús. kr.: 55 þús. kr. og
20% af afgangi upp í 800 þús. kr.
Af 800 þús. kr.: 95 þús. kr. og
25% af afgangi upp í 1 millj. kr.
Af 1 millj. kr.: 145 þús. kr. og
30% af afgangi.
Reglur eru settar um verðgildi
fasteigna, sem til hafa orðið á
þessum árum, og skal fasteignamat
1942 lagt til grundvallar, að við-
bættu 25—500% álagi, eftir því.
hvenær eignin hefur orðið til. Þá
er og gert ráð fyrir nokkrum mis-
mun þessa álags, eftir því hvar á
landinu fasteignir eru.
Undanþegnir skattinum eru ný-
byggingarsjóðir útgerðar, varasjóð-
jir hennar og varasjóðir samvinnu-
!félaganna. Enn fremur Eimskipa-
félag Islands.
Söluskattur.
Til þess að afla ríkissjóði tekna
til þess að standa undir fiskábyrgð-
inni, er lagt til að lagður verði á
söluskattur á alla innflutta vöru,
2% af heildsölu og 1—W2V0 af
smásölu, og kemur þessi hækkun
beint á neytendur.
í fyrradag
Von var á sunnanbílum í gaerkvölcii, og samgöng-
ur innanhéraðs hér og í Þingeyjarsýslu eru
nú mun léttari en áður
’Um 10. desember brá til þíð-
viðra hér nyrðra, en veruleg
brögð urðu þó ekki að hlákunni
fyrr en um sl. helgi, en þá gekk
yfir sunnan hlýviðri með 10 stiga
hita og þár yfir og hefir tekið upp
geysimikinn snjó þessa síðustu
daga. Á mánudaginn lét Vega-
málastjórnin vinna að því að opna
Oxnadalsheiði og var því verki
lokið þá um kvöldið og suðurleið-
in talin fær í gær. Var von á póst-
bílunum hingað í gæi'kveldi að
sunnan. Ágætt færi er héðan í
Bakkasel og yfir heiðina, en erf-
iðasti kaflinn er Norðurárdalur,
en svellalög eru sums staðar á
veginum þar.
Bílferðir teknar upp
innanhéraðs.
Samgöngui' hér innanhéraðs
eru nú mun léttari en áður og' má
heita að allir vegir séu sæmilega
færir, nema vegurinn til Greni-
vjkur. Mun ekki fært lengra en
að Nolli enn sem komið er.
Vaðlaheiðai'vegur er einnig
ófær. Hins vegar er nú fært frá
Húsavík víða um Þingeyjarsýslu,
t. d. til Mývatnssveitar og sömu-
leiðis um Köldukinn.
i Niðurfærsla vöruverðs.
Þá eru ákvæði um niðurfærslu
|VÖruverðs. Skulu verðlagsyfirvöld,
i þegar eftir gildistöku laganna, gera
'ráðstafanir til þess að færa niður
verð á hvers konar vörum, verð-
mæti og þjónustu, til samræmingar
við niðurfærslu vísitölunnar, þ. á
m. verziunarkostnaði, dreifingar-
kostnaði, flutningsgjöldum, greiða-
sölu, veitingum, skemmtunum, gasi
og rafmagni. Ber að gæta þess, að
þeir kostnaðarliðir, sem stafa af
vinnulaunum, lækki a. m. k. í fullu
hlutfalli við niðurfærslu vísitöl-
unnar.
Ríkisstjórninni er enn fremur
heimilt að leggja fyrir húsaleigu-
nefndir að færa niður um allt að
[lO af hundraði húsaleigu í húsum,
sem reist hafa verið eftir órslok
1941, svo og húsaleigu í eldri hús-
|Um, þar sem nýr leigusamningur
hefir verið gerður eftir árslok
1941.
(Framhald á 8. síðu).