Dagur - 17.12.1947, Blaðsíða 5

Dagur - 17.12.1947, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 17. desember 1947 D A G U R 5 MARSHALL - áætlunin þokast í áttina til veruleikans Spádómur kommúnista um hrun hins vestræna þjóðskipulags rætist ekki, ef viðreinsnaráform Parísarráðstefnunnar reynast á traustum grunni reist í þessarj grein, sem er að verulegu levti end- ursögn á grein í brezka tímaritinu ,,The Eco- nomist“, er greint frá því, hversu horfir nú um framkvæmd Marshall-áætlunarinnar og í hverju hún verður fólgin. Nauðsynlegur fróð- leikur fyrir alla, sem vilja fylgjast með stórvið- burðtim stjórnmálanna. Áhriif hins nýja kommúnista- sambands. Á ráðstefnu þeirri, sem komm- únistaflokkar nokkurra landa héldu í Póllandi í scptemberlok, til þess að undirbúa endurreisn Alþjóðasambands kommúnista, hélt rússneski ráðherrann Zhada- nov ræðu, sem víðfræg er orðin og oft er vitnað til. Þessi ræða geymir lykilinn að stefnu komrn- únistaflokkanna um gjörvallan heim þessa stundina, eins í Frakklandi og á íslandi. Tilgangurinn er að flýta fyrir hruni hins vestræna þjóðskipu- lags og undirbúa valdatöku kommúnista. í þessari ræðu sinni sagði Zhadanov m. a., að Marshalláætlunin væri tilraun bandaríska auðvaldsins til þess að hneppa Evrópuþjóðirnar í þrældóm. Það væri því skylda allra kommúnistaflokka að féta í fótspor ráðstjórnarinnar og spyrna gegn því, að áætlun Marshall yrði nokkurn tíma framkvæmd. Þessari „línu“ hafi kommúnistar dyggilega fylgt. Eftir endurreisn Komintern, hef- ir áróður gegn Bandaríkjunum margfaldast í blöðum þeirra. — Marshalláætlunin svonefnda hef- ir verið sérstakur þyrnir í aug- um þessara blaða, alveg eins og ráðstjórnarinnar í Moskvu. Hins vegar hafa blöð lýðræðisflokk- anna sum hver gert minna að því en skyldi, en greina frá því, hvers konar starfsemi það er, sem und- irbúin var á Parísarráðstefnunni og nú er rædd í Bandaríkja- þingi. Isíenzku blöðin hafa mjög líticV gei-t að því, að birta gagn- legar upplýsingar um þetta. Hið ágæta brezka tímarit „The Econ- omist“ birti nú nýlega yfirlit um mál þetta, sem er einkar glöggt og áreiðanlegt. Þykir Degi því hlýða að endursegja hér nokkur helztu atriði þessarar greinar hér á eftir. „Neistinn, sem kveikir á vélinni“. Marshalláætlunin er nú að þokast í áttina til veruleikans. Á ráðstefnu hinna 16 þjóða í París, var Mr. Marshall gert það ljóst, hver væri þörf þjóðanna um fé til endurbyggingarinnar, og Harrimannefndin bandaríska, skipuð kunnum fjármála- og viðskiptasérfræðingum, hefir sagt honum, hvers Bandaríkin séu megnug. — Utanríkisráðherrann valdi þ'ann kostinn, að fara bil beggjá í óskum sínum til þingsins. Hann hefir einnig látið svo ummælt, að ekki sé mögulegt að áætla þörfina svo langt fram í . tímann, að tekið sé tillit til áranna 1950 og 1951, og muni hann því ekki fara fram á fjárveitingu til allra fjögurra áranna í senn. Eigi að síður ’ er nú rætt um 16—20 , billjón dollara framlag. Það, sem mest á veltur nú, ér sú upphæð, sem talað er um að veita fyrir árið 1948, eða til 15 mánaða tímabilsins, sem endar 30. júní 1949. Þangað til 1 .apríl 1947 verða Vestur-Evrópulöndin að komast af með bráðabirgðaað- ' stoð þá, sem nú er verið að af- greiða í þinginu til Frakka, ítala og Austurríkismanna, og nemur 597 millj. dollara. Þegar þetta tímabil er liðið, mun Marshallá- ætlunin sjálf koma til fram- kvæmda. Það er augljóst, að til þess að vel fari þarf aðstoðin að bera skjóta ávexti, „verða neist- inn, sem kveikir á vélinni,“ eins og segir í áliti Harriman-ne’fnd- arinnar. Þegar að því kemur, að fram- kvæmdin hefst í vor, munu Ev- rópuþjóðirnar hafa langan vetur fjárhagslegs og pólitísks öng- þveitis að baki og hafa þolað hat- raman áróður gegn Marshall- hjálpinni og með henni. Vonii- þær, sem við hjálpina eru bundn- ar, þurfa að fá skjóta fullnæg- ingu, ef hinna sálfræðilegu áhrifa, sem mikilvæg eru, á að gæta til hins betra. Það er þess vegna mjög mikilvægt, að ekki ber mikið á milli áætlana Parísarráð- stéfnunnar og Harriman-nefnd- arinnar. Samkvæmt áliti Mars- halls var þörfin 7000 millj. doll- ara í 15 mánuði, en Harriman- nefndin áætlar 5750 milljónir í 12 mánuði. Þrjár spurningar. Marshalláætlunin snertir svo mörg málefni og í heimi við- skipta, alþjóðasamstarfs, innan- landsmálefna og utanríkismála, að nokkur hætta er á því, að'um- ræður um hana lendi á villigöt- um smáatriða, í stað þess að halda sér við meginmálið. Spurn- ingar þær, sem viðreisnaráætlun- n vekur nú, og mestu máli skipta, eru þrjár: í .fyrsta lagi, eru upp- hæðir þær, sem áætlaðar eru, nægilega stórar til þess að full- nægja brýnustu þörf Vestur-Ev- rópu? í öðru lagi ,eru skilyrði þau, í stæn-i og .smærri atriðum, sem Bandaríkin setja fyrir hjálp sinni, þess eðlis, að þau geti kall- ast skerða sjálfstæði þeirra ríkja, sem hjálpina fá? Og í þriðja lagi, geta einhver af þessum skilyrðum orðið til þess að spilla því, að til- raun Evrópuþjóðanna til þess að standa eigin fótum, takist? Allar upplýsingar, sem nú eru fyrir hendi, benda til þess að svarið við fyrstu spurningunni sé jákvætt. Áætlanir Parrísarráð- stefnunnar hafa reynst vera full bjartsýnar og það var því ekki nema eðlilegt, að áætlunin um fjárþörfina væri færð niður af sérfræðingum Bandaríkjamanna. Það er ekki frekar til gagns fyrir Evrópuþjóðirnar en Bándaríkin, að meira en brýnasta hjálp sé veitt. Ekkert mundi í rauninni skaðsamlegra fyrir endui'reisn Evrópu en að draumórum væri haldið við líði með dollarainn- sprautun Það, sem Bandaríkja- menn hafa gert, síðan Parísai'ráð- stefnan sendi þeim álit sitt, hefir miðað að því að gera áætlanirnar raunverulegri, nákvæmari og yf- irleitt betur úr garði, og undir- búa verulega hluttöku Alþjóða- bankans og Utanríkisbankans .(Import-Export) í framkvæmd áætlunarinnar. Skynsamleg skilyrði. Svarið við síðari spurningunni er einnig að nokkru leyti jákvætt. Noklcur þeirra skilyrða, sem lík— legt er að Bandaríkin setji, geta kallast snerta algjört sjálfstæði þjóðanna. En þetta er engan veg- inn eins hættulegt og ýmir vilja halda fram og í rauninni ofur eðlilegt. Það hefir frá því fýrsta, að aðstoðin kom til tals, verði vitað, að Bandaríkin mundu binda hana einhverjum skilyrð- um, og spurningin var þá, hvort þau mundu verða í senn eðlileg og viturleg. Samkvæmt áliti Harriman-nefndarinnar — nú áður en þingið leggur síðustu hönd á verkið — eru þau þessi: Að lönd þau, er aðstoðar njóta, skuli gera drengilega tilraun til þess að gera gjaldmynt sína stöðuga og koma á greiðslujafn- vægi á fjárlögum. ítrekuð van- ræksla þessa mundi stöðva að- stoðina. Ennfremur, að þau geri alvarlegar tilraunir til þess að ná því framleiðsluhámarki, sem þau hafa sett sér, og það þýðir m. a. það, að kolaframleiðsla Breta þyrfti að aukast um 25% og þannig mundu opnast möguleikar til kolaútflutnings, en það mundi „breyta ásjónu Evrópulandanna“. Um það verður beðið, að þessi lönd gæti hófs í fjárfestingu, t. d. að þau takist ekki á hendur að umbylta of mörgum iðngreinum í senn. Fé það, sem ríkisstjórnir afla innanlands fyrir vörur, sem Bandaríkin senda þeim að gjöf, verði lagt til hliðar til fram- kvæmda raunhæfra endurreisn- aráætlana í framleiðslunni, en ekki gert að eyðslueyri á fjárlög- um. Stjómamefnd sú, sem sett verður á stofn vestra ,og hafa mun fulltrúa í löndunum, á að gæta þess ,að þessi skilyrði verði uppfyllt, eins og efni standa tiL Það er ekkert í þessum skilyrð- um, sem snertir sjálfstæði þjóð- anna á óeðlilegan hátt og særir heilbrigðan metnað. Að vísu gæti harkaleg krafa um efndir þeirra leitt til árekstra. En það er ekki ósanngjörn krafa, að lánardrott- inn géri það að skilyrði fyrir lán- þiggjanda, að hann geri hreint fyrir sínum dyrum áður en féð er greitt honum. Það er algjörlega réttmætt sjónarmið, að veita þeim fyrst og fremst hjálpina, sem vilja hjálpa sér sjálfir og ástunda sam- vinnu við aðrar þjóðir. Það er hvort tveggja viturlegt og rétt- mætt, að Bandaríkjamenn setji það að skilyrði, að ágóði af sölu þeirrar vöru, er þeir láta af hendi, verði ekki notaður af úrræðalitl- um ráðherrum til þess að koma fjárlagajafnvægi, eða sem eyðslueyrir, heldur til nýbygg- inga. Spádómai', sem ekki mega rætast. Allt þetta er auðvelt að viður- kenna er menn hafa gert sér það ljóst, að tilgangur Bandaríkja- manna eiisá, að stuðla að því að Vestur-Evrópa geti í framtíðinni staðið á eigin fótum, að þjóðirnar sextán, sem þátt tóku í Parísar- ráðstefnunni vinni saman að sameiginlegri endurreisn, en ekki sem málalið amerískrar utanrík- isstefnu. Um þetta atriði er Harrimanskýrslan bæði glögg og djarfmannleg. Það segir, að að- staða Bandaríkjanna hafi í meira en öld „byggst á tilveru allmargra öflugra þjóða í Evrópu, sem að lífsskoðun og sögulegri hefð eru bundnar lýðræðishugsjóninni." Það er því í þágu Bandaríkjanna að stuðla að því, „að lýðræðis- þjóðskipulagið sé þess megnugt, að veita þegnum sínum brýnustu lífsnauðsynjar nú þegar,“ svo að því megi takast, að kveikja á ný vonina um það, að með því að leggja á meira á sig geti þjóðirn- ar öðlast hærri lífstandard. Með öðrum orðum: Spádómar Moskvu og kommúnista, um óhjákvæmilegt hrun hins vest- ræna þjóðskipulags mega ekki rætast. Ef hinar vestrænu þjóðir haga sér viturlega, munu þær ekki spyrna gegn því, að. spádóm- ur kommúnistanna verði fialsspá- dómur. Um þann spádóm Molotovs, að móttaka Marshallhjálpar sé sama og leiða yfir sig „dollaraþrælkun“ er það að segja, að í Harriman- skýrslunni segir, að „ástundun og viðurkenning undirstöðuat- riða lýðx-æðisins sé meginskil- yi'ði þess, að aðstoðin verði veitt áfi'am,‘ ‘en því bætt við, að „ekki verði krafist játningar neins ákveðins fjárhagskerfis, eða af- náms áætlana og áfoi-ma, sem fi'amkvæmdar eru eftir frjálsum og lýðræðislegum leiðum.“ Og Hai-rimannefndin varar landa sína við því, að taka upp óþörf afskipti af innanlandsmálefnum vinsamlegra þjóða. 3500 milljón doHlaia gjöf. Vissulega má eitthvað finna að þeim umræðúm um Marshall- áætlunina, sem nú fara fram í . Bandaríkjunum, og mikið veður er gert út af i sumum blöðum, en meginhlutverk áætlunai'innar má ekki týnast í umi-æðum um smærri atriði. Þær 245 milljónir manna, sem byggja Vestur-Ev- rópu, þurfa að láta sér skiljast, að tveir þriðju hlutar aðstoðar- iiinar eru hrein gjöf, er nema mun 31/2 billjón, dollara og að framkvæmd áætlunarinnar mun hafa í för með sér ei'fiðleika og fói'nir fyrir bandaríska framleið- endur og neytendur og verða til þess að innléiða höft og eftii'lit, sem eru ekki að vilja þeii-ra yfir- leitt. Það eru heldur engin rök gegn áætluninni að segja, að Bandaríkjamenn séu einungis að greiða váti-yggingai-gjald gegn heimatilbúinni kreppu Ef sá væri tilgangui'inn með stefnu Mars- halls, væri vissulega hægt að gera það á ódýrari og hraðvii'kari hátt. Hins vegar er óþai'ft að draga það í efa, að Marshall- áætlunin vei'ður eitt af megin- vopnunum í hendi bandarísku utanríkisstefnunnar. Það er því raunar ekki óeðlilegt, að þeir herrar Molotov og Zhadanov ótt- ist hana þess vegna. Framkvæmd áætlunarinnar stefnir einmitt að því, að hrinda þeim spádómum þeiri'a, að hið vestræna þjóð- skipulag sé dauðadæmt af krepp- um og styrjöldum. Og það er eng- inn efi á því, að mikill meirihluti þjóðanna í Vestur-Evrópu óskar að sjá þeim spádómi hrundið. skagfirzkra kirkjukóra Sunnudaginn 7. des. sl. hélt Samband Skagfirzkra kai'lakói'a söngmót í Varmahlíð. Var mót þetta annað í röðinni, sem gam- bandið heldur. Að þessu sinni tóku þátt í mótinu 5 kórar með alls um 70 meðlimum. Aðalsöng- stjói'i var Eyþór Stefánsson á Sauðái'króki, en auk hans stjórn- uðu þeir Jón Björnsson á Haf- steinsstöðum og Árni Jónsson á Víðimel. Auk söngsins, sera bæði var mikill og góður — meðfei’ð sumra laga ágæt, eins og t. d. lagsins: Þú guð, sem stýrir stjarna her, hjá Kirkjukór Sauð- árkróks — voru fluttar þarna 3 stuttar ræður. Gerðu það sókn- ai'prestarnii', sr. Lárus Amói'sson á Miklabæ, sr. Gunnar Gíslason í Glaumbæ og sr. Helgi Konráðs- son á Sauðárkróki. Mótið var fjölsótt og fór hið bezta fram. Það sýndi glöggt hvei'jum árangri má ná, þrátt fyrir all torleysta erfiðleika, e£ góður vilji og óeigingii-ni eru með í verki. mg. á

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.