Dagur - 01.09.1948, Blaðsíða 8
8
Dagub
Miðvikudaginn 1. september 1948
Rússneskur verkamaður verður
að vinna 580 klst. fyrir alklæðn-
aði, svissneskur verkamaður í 78
og hálfa klukkustund
Lærdómsríkar upplýsingar um raunveruleg
Lætur af ríkisstjórn
lífskjör í „sæluríkinu44 í svissnesku blaði
Það er venjulega miklum erfiðleikum bundið að gera raunhæfan
samanburð á lífskjörum fólks í hinum ýmsu löndum. Veldur margt,
t. d. hin misinunandi gengisskráning, verðbreytingar og skortur á
fullnægjandi skýrslum og tölum. En til bess að menn geti gert sér
nokkra hugmynd um ástandið í hinum ýmsu löndum og um raun-
veruleg laun verkafólks fyrir vinnu sína, er auðveldast að reikna út
hversu margar vinnustundir hver verkamáður verður að inna af
hendi til þéss að geta keypt ákveðna nauðsynjavöru í hverju landi
fyrir sig.
Nýlega hefir svissneskt blað,
„Bau- und Holzararbeiterzeit-
ung“, gert slíkan satnanburð á
raunverulegum launakjörum
verkafólks í þremur löndum,
nefnilega í Sviss, Rússlandi og
Frakklandi. Samkva.Tnt niður-
stöðum þessarar íannsóknar
skýrir hið svissneska Wað frá því,
að rússneskur verkamaður verði
að vinna í 580 klst. og 15 mínútur
til þess að geta keypt sér einn
fatnað. Franskur verkamaður
þarf ekki að starfa nema í 145
klst. til þess að geta keypt fatnað-
inn og Svissneskur verkamaður
aðeins í 78 klst og 34 mín. Síga-
rettupakkinn (20 stk.) kostar
Rússann 2 klst. og 4 rnín. vinnu,
Frakkann 48 mín. og Svisslend-
inginn 47 mín. Ef Rússinn vill
kaupa mjólkurlítra jafngildir
verð hans 3 klst. og 54 mín. vinnu,
en Frakkinn kemst af með 26 mín.
og Svisslendingurinn 10 mín.
Karlmannsskór kosta Rússann
104 klst. vinnu, Frakkinn þarf
ekki að vinna nema 20 klst. og
Svisslendingurinn í 13 klst. og 13
mín til þess að uppskera andvirði
skónna. Rússinn þarf að strita í 5
klst. og 40 mín. fyrir sykurkíló-
inu, Frakkinn í 1 klst. og Sviss-
lendingurinn í 23 mínútur. Kjöt-
kíló kostar Rússann 11 klst. og 25
mín. Frakkann 6 klst. og 15 mín.
og Svisslendinginn 2 ldst. og 3
mín. Upptalning svissneska
blaðsins er mun lengri, en þessi
dæmi nægja til þess að sýna hinn
gífurlega mismun. Mer.n geta svo
gert sér það til gamans að bæta
íslenzkum tölum við þennan sam-
anburð og sjá þar svart á hvítu,
hversu gífurlega raunveruleg
lífskjör íslenzkra verkamanna
ei u betri en stéttarbræðra þeirra
í Rússlandi og er þá að engu
metið frelsið, sem hér ríkir, og
kúgunin og öx-yggisleysi þegn-
anna fyrir austan járntjaldið. —
Það er eftirtektarvert að komm-
únistablöðin íslenzku, sem jafnan
eru fleytifull af fregnum um
heildarafköst í einstökum fram-
leiðslugreinum Sovétríkjanna,
forðast það eins og heitan eldinn
aldrei vera að þau óttuðust sam-
anburð á lífskjörunum í „sælu-
ríkinu" og möguleikum alþýðu í
hinum óguðlegu, kapítalísku
löndum.
Wilhelmína Hollandsdrottning
átti fimmtíu ára ríkisstjórnaraf-
mæli í gær og lét þá jafnframt
stjórnartaumana í hendur Júlí-
önu prinsessu, dóttur sinnar, og
manns hennar, Bcrnhards prins.
Mikið hefir verið um dýrðir í
Hollandi þessa síðustu daga. Hef-
ir drottningin verið heiðruð á
margvíslegan hátt og menn hafa
minnzt starfa hennar fyrir land
og þjóð, sérstaklega er mönnum
kær þáttur hennar í baráttunni
gegn kúgun Þjóðverja á stríðsár-
unum síðustu. Myndirnar eru af
*
Wilhelmína t. h. og Bernhard
prins tengdasyni hennar t. v.
Skemmtileg bók um ísland
nýkomin úf hjá amerísku forlagi
Höfundurinn er amerísk kona, sem hér
dvaldi í fyrra
í fyrra dvöldu hér á landi um
tíma amerísk lijón, prófessor
Harry Eogers Pratt og kona
hans, Agnes Pratt.
Frúin er kunnur rithöfundur og
skrifar undir nafninu Agnes
Rothery. Maður hennar er pró-
fessor við háskólann í Virginía-
fylki. Frú Pratt — eða Miss Rot-
hery, eins og hún kallar sig —
kom hingað í þeim erindum að
kynnast landi og þjóð og skrifa
síðan bók um veru sína hér.
Ferðaðist hún víða um landið og
munu margir landsmenn hafa
kynnst henni á þessum ferðum.
Nú fyrir nokkrum vikum kom
bók liennar út á vegum Viking
Press í New York. Er þetta
stærðar bók, 215 bls. og prýdd
mörgum myndum frá íslandi.
Heitir hún „Iceland, New World
Outpost", eða ísland, útvirki nýja
heimsins. Bókinni er skipt í 16
kafla, er heita m. a. Atlantshafs-
flugvölilur, Reykjavík, Einstakl-
ingshyggjumenn og sjálfstæði,
Blessun náttúrunnar, Við sjóinn,
Akureyri og veðuifarið, Tré,
blóm og konur, Hin forna tunga
Bækur og bókabúðir, ísland og
Ameríka o. fl.
Leizt vel á Akureyri.
Frúin getur víða í bókinni veru
sinnar hér á Akureyri og í Eyja-
firði og ber frásögn hennar það
með sér ,að henni hefir litist vel á
sig hér. Rómar hún mjög nátt-
úrufegurðina, legu bæjarins og
telur hann sjálfan sérstaklega að-
að upplýsa íslenzka verkamenn j laðandi og skemmtilegan dvalar-
um raunveruleg lífskjör alþýðu | stað. Þá hefir hún orðið mjög
manna í Rússlandi. Það skyldi þó ' hrifin af kirkjunni hér og telur
hana mikið listaverk hið ytra,
sem innra. Um framkvæmdir
samvinnumanna hér hefir hún
margt að segja. Hún heimsótti
verksmiðjur SÍS og KEA og
fannst mikið til um þann mynd-
arbrag, sem þar var á öllu og um
Hótel KEA segir hún, að það sé
þægilegasta hótel landsins. í sam-
bandi við frásögn sína af sam-
vinnustarfinu á Akureyri segir
frúin m. a. svo: „Fólk á Akureyri
virðist naumast meðvitandi um að
bævinn er glæsilegur merkisberi
mikils félags- og fjármmálakerfis,
sem náð hefir geysilegri út-
breiðslu í Evrópu, og nokkurri
fótfestu í Bandaríkjunum og
Kanada. En íbúar bæjarins hugsa
samt um bæinn sinn, sem sér-
stæðan bæ, og að þessu leyti eru
víst flestir íslendingar sammála
þeim....“
Bók þessi er yfirleitt vinsam-
lega skrifuð. Gefst e. t. v. tæki-
færi til þess að rekja cfni hennar
nánar síðar.
Mikil þröng við vöru-
úthlutun KEA
Á föstudag, laugardag og mánu-
dag, fór fram vöruúthlutun í
vefnaðarvörudeild KEA samkv.
áður auglýstu fyrirkomulagi. -
Fengu félagsmenn þar nokkur'n
skammt af nauðsynlegri vefnað-
arvöru, fyrsta daginn bæjarmenn,
en síðari daginn félagsmenn úr
sveitum. Úthlutun þessi fór vel
og skipulega fram, en mikil þröng
var við dyr vefnaðarvörudeildar-
innar alla dagana.
Sjómenn vongóðir um sæmilega
síldveiði í nokkurn tíma enn
Bezta veiði sumarsins á
Á sunnudaginn var - fékk vél-
skipið Helgi Helgason úr Vest-
inannaeyjuin beztu veiði sumars-
ins á Þistilfirði, eða 1400 mál, er
skipið kom með til Raufarhafnar.
Nokkur önnur skip fengu allgóða
veiði. Talsverð síld hefir verið á
Þistilfirði og einnig hér úti á
Grímseyjarsundi og liafa nokkur
skip fengið þar nokkurn afla, er
að mestu leyti hefir farið í salt.
Sjómenn eru enn vongóðir um
að sæmileg veiði muni fást í
nokkurn tíma enn. Veiðisvæðið
hefir verið mun líflegra undan-
farna daga en oftast áður í sumar,
en hins vegar dregur nú að hausti
og veiðitíminn hlýtur að fara að
styttast. Mundi ein aflahrota
naumast geta bjargað því, að
þessi vertíð verði sú lélegasta,
sem arðið hefir síðan síldveiðar í
stórum stíl hófust hér við land.
Talsverð söltun.
Samkvæmt skýrslu Fiskifélags
fslands nam heildaraflinn sl.
laugardagskvöld 326.033 hektó-
lítrum til bræðslu og búið var að
salta í 93.473 tunnur (þessi tala er
nú komin yfir 100 þús. tunnur). í
fyrra var heidaraflinn á sama
tíma 1.246.910 hl. og söltun 58.146
tn. Afli eyfirzku skipanna var sl.
laugardagskvöld, samkv. skýsl-
unni, sem hér segir, 1000 mál og
þar yfir: Alden Dalvík 1634, Auð-
ur Ak. 2962, Bjarmi Dalv. 2520,
Eldey Ak. 2438, Ester Ak. 1132,
Þistilfirði s.l. sunnudag
Kristján Ak. 1303, Narfi Ak. 3059,
Njörður Ak. 2450, Pólstjarnan
Dalv. 3553, Snæfell Ak. 3395,
Stígandi Ólafsf. 3894, Straumey
Ak. 2159, Súlan Ak. 2543, Sædís
Ak. 1157, Sævaldur Ólafsf. 1212,
Ver Hrísey 1318, Von Grenivík
1566 og Vörður Grenivík 1969. í
tölur þær, sem blaðinu bárust í
gær vantaði afla Gylfa og Garð-
ars frá Rauðuvík, en þeir eru
báðir með aflahærri skipum hér.
Þess ber að gæta, að mörg fram-
antalin skip hafa komið með
nokkurn afla að landi síðan á
laugardagskvöld. í gær var norð-
austan bræla á miðunum og lítil
veiði.
70% landsmanna
nota raforku til
heimilisþarfa
Aðalfundur Sambands ísl'. raf-
veitna var nýlega haldinn í Rvík.
Var þar rætt um erfiðleika raf-
veitnanna vegna gjaldeyris-
ástandsins og ýmsar nxarkverðar
ályktanir gerðar. Á fundinum var
m. a. upplýst, að 70% landsmanna
nota nú raforku til heimilisþarfa
um að nær því allur iðnaður
lándsmanna byggist á ráforku.
Fulltrúi rafveitunefndar Akur-
eyrar á þinginu var Indriði
Helgason bæjarfulltrúi, og flutti
hann erindi á þinginu.
Ungir Framsólmarmenn í Eyjafirði
efla samtök sín
Á síðasta flokksþingi ungra
Framsóknarnianna, sem haldið
var hér á Akureyri á sl. vori,
notuðu nokkrir eyfirzkir fulltrú-
ar tækifærið, er þeir voru hér
saman komnir, til þess að ræða
möguleika á því að cfla samtök
ungra Framsóknarmanna í Eyja-
fjarðarsýslu.
Fram að þessu hefir ekki verið
stai-fandi félag ungra Framsókn-
armanna fyrir alla sýsluna, held-
ur hafa aðeins nokkur hreppafé-
lög starfað. Fulltrúarnir voru
sammála um að æskilegt væri að
stofna allsherjarfélag í sýslunni
og kusu nefnd manna til þess að
undirbúa málið. í nefndinni eiga
sæti: Stefán Valgeirsson í Auð-
brekku, Baldur Halldórsson í
Hvammi, Steingrímur Bem-
harðsson, Dalvík, Ingimar Bryn-
jólfsson, Ásláksstöðum og Óttar
Björnsson, Laugalandi. Að und-
anförnu hafa nefndarmenn ferð-
ast um héraðið og rætt félags-
stofnunina við ýmsa áhugamenn.
Segja þeir mikinn áhuga fyrir
málinu og hefir nú verið ákveðið
að efna til stofnfundar hér á Ak-
ureyri sunnudaginn 12. sept. n.k.
kl. 3 síðdegis. Fundurinn verður
væntanlega haldinn í S^mkomu-
húsi bæjarins, en nánara fyrir-
komulag auglýst síðar í útvarpi.
Á fundinum mun Bernharð Stef-
ánsson alþm. flytja ávarp. Urn
kvöldið verður haldin skemmti-
samkoma fyrir flokksmenn í bæ
og héraði, unga og aldna. Verður
tilhögun hennar einnig auglýst
nánar síðar. Þessi fyrirhuguðu
samtök ungra Framsóknarmanna
í sýslunni eru líkleg til þess að
verða mikil stoð fyrir flokksstarf-
ið í heild. Munu flokksmenn allir
fagna þessu framtaki hinna ungu
manna og óska þessum fyrirhug-
uðu samtökum góðs gengis.
Baldur Möller skák-
meistari Norðurlanda
1948
Baldui1 Möller, skákmeistari
íslands, vann glæsilegan sigur á
Norðurlanda skákmótinu í Öre-
bro í sl. viku. Varð hann efstur
og skákmeistai-i Norðurlanda
1948. Er þetta glæsilegasti sigur,
sem íslenzkur skákmaður hefir
unnið á erlendum vettvangi. —
Baldur Möller er sonur Jakobs
Möller sendiherra.