Dagur - 17.11.1948, Side 8
8
DAGUR
Miðvikudaginn 17. nóv. 1948
IÞRÓTTA
Þakkað fyrir „Eftirmælið“.
Ritstjóí'i íþróttasíðunnar virð-
ist mjög móðgaður við mig yfir
því, að eg skyldi leyfa mér . að
biðja aðalritstjóra blaðsins fyrir
grein mína, er birtist í næst síð-
asta tölubl. Dags, en ekki hann
sjálfan, Jónas Jónsson frá
Brekknakoti. Eg fæ ekki séð
neina ókurteisi í sambandi við
það, að leggja grein til birtingar
inn á afgreiðslu blaðsins, í hvaða
dálki sem hún svo birtist.
Jónas segir í ,,Eftirmælinu“:
,,Nú loks kom ein grein, óboðin
þó. Og hefði slík grein verið stíl-
uð til annars en þess, sem ábyrgð
ber á þættinum, hefði hún þar
aldrei birzt.“
Einmitt vegna þess, að eg vildi
ekki, að grein minni yrði stungið
undir stól, sendi eg hana til rit-
stjóra blaðsins, sem ábyrgð ber á
íþróttaþættinum eins og öðrum
þáttum í blaðinu.
Jónas sagði í grein sinni, sem
hann stílaði til félaga H. H., að
hann hefði verið fjarverandi úr
bænum á meðan Meistaramótið
fói' fram, enda hlýtur fyrsta grein
hans að vera tilkomin af ókunn-
ugleika á því, hvernig leyst var
úr þeim málum, sem ágreiningur
varð um. Staðhæfingar Jónasar
um slæma framkomu okkar K.
A.-manna í mótinu, eru því
byggðar á sögusögnum annarra,
og er engu líkara, en að einhver
vondur maður hafi skrökvað í
íþróttaritstjórann og hann af
fljótræði sett það á prent. í tveim
löngum greinum hefur hann svo
þvælt málið og í þeirri síðari,
„Eftirmælinu“, heldur hann þvi
ennþá fram, að Þórsstúlkurnar í
80 m. hlaupinu hafi verið lögleg-
ir keppendur í mótinu, og er áð-
ur búinn að segja, að þær hafi
verið útilokaðar frá keppninni
vegna framkomu K. A.-manna.
Eg lýsti því í grein minni, hvern-
ig þetta fór fram og hef nú fengið
því til staðfestingar undirskrifað
skjal frá Frjálsíþróttaráði í. B. A.
og sendi eg J. J. það í ábyrgðar-
bréfi í dag. Frjálsíþróttaráðið,
sem tók að sér að koma keppn-
inni á í þeim íþróttagreinum, sem
framkvæmdanefndin gleymdi,
úrskurðaði stúlkurnar ólöglegar,
einmitt eftir þeirri reglu, sem
Jónas leggur áherzlu á í grein
sinni, að eg skilji.
Eg vil taka það fram, að öll þau
ati'iði, sem ágreiningur varð um
í sambandi við Meistaramótið,
var eingöngu að kenna slæmum
undirbúningi mótsins. Sá ágrein-
ingur var jafnaður á mótsstaðn-
um og þar skorið úr vafaatriðum
af þeim, sem með völdin fóru og
sáu um mótið, íþróttafélaginu
Þór, þar sem J. J. er formaður, og
Frjálsíþróttaráði í. B. A., sem
skipað er tveimur mönnum úr
Þór og einum úr K. A.
Þórsmenn hafa hingað til ekki,
frekar en aðrir menn, látið ganga
á rétt sinn, þegar þeir hafa við
það -ráðið, eins og þeir gátu í
Ritstjóri: JÓNAS JÓNSSON.
þessu máli. Er þessi staðreynd
ein fyrir sig nægileg, til þess að
afsanna það sem Jónas heldur
fram um yfirgang ráðamanna
Knattspyrnufélags Akureyrar í
mótinu.
Að' endingu vil eg taka það
fram, að eg mun leiða hjá mér
frekari blaðaskrif um þetta mál
og skeyti ekki um, þótt Jónas
hafi ennþá einhverju við fullyrð-
ingar sínar að bæta.
Marteinn Friðriksson.
—o—
Skíðabrekkur og skautaís.
Veturinn er genginn í garð.
Hann er venjulega enginn au-
fúsugestur, og allra sízt, þegar
hann rekur sumarið á flótta áð-
ur en þess venjulega kveðju-
stund er komin. En hann hefir nú
þegar til reiðu bæði skíðabrekkur
og skautaís fyrir íþróttafólkið. —
Skíðaráðið er byrjað að undirbúa
vetrarstarfið og hugsa um fyrir-
greiðslu innlendra og erlendra
aðkomumanna, sem væntanlega
munu heimssekja Akureyri í
vetur.
Skautafélagið er byrjað á æf-
ingum á ísnum sunnan við
Leirugarðinn og austan við
Gróðrarstöðina. Það er að vísu
ekki mikið fjölmenni ennþá, að-
allega unglingar úr innbænum
innan við tvítugsaldur. En þeir
eru með lífi og sál í leiknum og
virðast engu síður kunna við sig
þar en á götunni, enda er svellið
ólíkt heppilegri leikvangur.
í. S. í. hefir nú í fyrsta skipti
gert skautaíþróttinni svo hátt
undir höfði, að boða til landsmóts
í henni. Verður það háð í
Reykjavík sunnud. 30. jan. í vet-
ur og er Skautafél. Reykjavíkur
falin framkvæmd þess.
í skautaíþróttinni standa ís-
lendingar mjög að baki öðrum
þjóðum, bæði vegna kunnáttu-
leysis og lélegra skilyrða til æf-
inga í listhlaupi. Vonir standa til
að úr þessu rætist, þegar skauta-
höllin er komin upp í Reykjavík
og íþróttaleikvangurinn á Akur-
eyri.
Verkefnin eru óþrjótandi fyrir
íþróttamenn, svo að naumast er
tími til að hnýflast lengi með
pennum. Formenn félaganna
munu því fremur kjósa að takast
í hendur til samstarfs eins og
þeir hafa áður gert.
A. D.
—o—-
Skíðagangan 1946.
Úrskurður fþróttadómstóls f. S. f.
Á fundi Skíðaráðs Akureyrar,
sem haldinn var fyrir^iokkru, var
lögð fram greinargerð og álykt-
unarorð íþróttadómstóls f. S. f.
út af kæru íþróttabandalags
ÞÁTTUR
Siglufjarðar gegn mótstjórn
Skíðamóts íslands 1946, en þá fór
mótið fram á Akureyri. Tilefni
kærunnar var stytting göngu-
brautar í 18 km. göngu, sem leik-
stjórn í göngu taldi sér skylt að
gera vegna þess hve færi reynd-
ist þungt og keppendur og farar-
stjórar voru ásáttir um. í lok
greinargerðar íþróttadómstóls,
sem er alllöng, segir:
„f máli þessu er kært yfir því,
að leikur hafi ekki verið fram-
kvæmdur rétt. Lítur íþróttadóm-
stóllinn svo á, að hér hefði átt að
kæra leikstjórn leiksins fyrir
mótstjórninni. Samkvæmt 13. gr.
í leikreglum um skíðamót á þvílík
kæra að' sendast mótstjórninni
samdægurs. Engin slík kæra hef-
ir borizt mótstjórninni, heldur
hefir mótstjórnin verið kærð síð-
ar fyrir í. S. í.
Verður kæra íþróttabandalags
Siglufjarðar því ekki tekin til
greina og ber að vísa málinu frá.
ÁLYKTARORÐ:
Kæra íþróttabandalags Siglu-
fjarðar á hendur mótstjórn
Skíðamóts íslands 1946 verður
eigi tekin til greina, og er málinu
vísað ffá dómi.“
í íþróttadómstól í. S. í. eru níu
menn og mun þetta vera eitt
fyrsta málið; sem dómstóllinn af-
greiðir síðan hann var endur-
skipulagður.
(Frétt frá Skíðaráði Akureyrar).
—o—
Fyrir skíðamenn.
Síðastl. laugardag bauð Skíða-
ráð Akureyrar hópi skíðamanna
o. fl. áhugamönnum að sjá kvik-
mynd Edvards Sigurgeirssonar
frá Skíðamóti íslands, sem fram
fór hér við Akureyri sl. vor. Sýn-
ingin var í félagsheimili í. B. A.
í fimleikahúsinu og þótti ágæt. —
Myndin er í eðlilegum litum og
sýnir vel mörg atriði mótsins,
skíðafólk í keppni og að lokinni
raun, áhorfendur í þúsundatali og
fagurt skíðaland við sólskin og
himinbláma.
Að lokinni sýningunni talaði
Herm. Stefánsson nokkur orð og
gerði grein fyrir áætluðu vetr-
arstarfi skíðamanna hér sem nú
er hafið af talsvei'ðum krafti og
'mdir stjórn Hermanns sem áð’tr,
Hermann gaf m. a. þessar upp-
lýsingar:
Skíðamenn hér eru nýbyi'jaðir
að æfa og verður fyrsta svig-
keppnin sunnudaginn 21. þ. m.
kl. 2 í Snæhólum. Farið verður
upp eftir kl 10 um morguninn. —
Keppni fer fram í a-, b- og c-fl.
karla og verðlaun veitt á siaðn-
um. Skíðaráðið vonast eftir að
allir skíðamenn bæjarins mojti á
þessari fyrstu æfingakeppni.
í ráði er að hingað komi í vet-
ur landslið Englands— 3—6 svig-
og brun-menn — og keppi viö
landslið íslands. Skíðaráð Akur-
eyrar hefir boðist til að greiða
fyrir því að af keppninni geti orð-
ið. En hún fer fram í nánd við
Júlíus Gunnlaugsson
Fæddur 31. júlí 1865.
Dáinn 16. september 1948.
Sem foldin með hausti fölnar
svo fölnar allt sjónum manns,
á öndverðu æfihausti
er ellin vitjar hans.
Gott er til hvíldar að ganga
er gjörist langt það haust,
þá heimsins er horfið yndi
en heimvonin góð og traust.
Svo ert þú sjónum horfinn
sviplega, vinur kær.
Lífs eftir langa daginn
Ijúf er þér hvíldin vær.
Um þig er margs að minnast
og mikið starf þú vannst.
— Þú eygðir alltaf markmið
og yndi við það fannst.
Þín bújörð ber þess vitni
að batzt við hana tryggð.
Þú lagðir rækt við landið
og landsins sveitarbyggð.
Þín umhyggja og alúð
og áhuginn þar vann.
í öllum meiri málum
eins mátti finna hann.
Þú glaður varst með vinum
og vart þess minning dvín
og grannanum um greiða
var gott að leita þín.
Með þökkum þú ert kvaddur
er Jarjóta lífsins mið
og blessunar þér biðja
þín börn og skyldulið.
B. í.
Akureyri, ef til framkvæmda
kemui'.
íþróttahúsið lokað.
Vegna lömunarveiki- faraldurs
í bænum hefir héraðslæknir
bannað alla starfsemi í fimleika-
húsinu um óákveðinn tíma. —
Flokkum áhugamanna og félaga
kemur bannið illa og láta ekki vel
yfir því. Mun fulloi'ðnu fólki
minni hætta búin að leika sér þar
í hlýju húsi, stund tvisvar í viku
en að vinna úti í kulda, rása um
götur í misjöfnu veðri og það
jafnvel eftir fleiri stunda svita-
bað í danssal og reykjarsvælu?
Um börn og unglinga í skóla gæti
verið öðru máli að gegna.
En ekki þýðir að deila við dóm-
arann.
Olympíumeistarinn í svigi, Edi
Reinalter, Svisslendingur, kemur
hingað til lands og kennir hér frá
miðjum janúar og fram á vor ef
gjaldeyrisleyfi (ca. 3 þús. kr.)
fæst. Reinalter er tvímælalaust
bezti svigmaður heimsins.
Skíðamenn okkar munu vafa-
laust fagna þessum fréttum og
gera sér vonir um að viðkomandi
nefndir og ráð „þarna syðra“ sjái
sér fært að veita leyfi fyrir því
lítilræði gjaldeyris, sem hér væri
urh að ræða.
„Marteinn Friðriksson á bata-
vegi“. — Smágrein í næsta þætti.
— Einnig vei'ður þá eitthvað sagt
frá nýja íþróttavellinum, áætlun-
um og framkvæmdum þar. J. J.
Kvenfélagið „Freyja44
í Arnarnesshreppi
30 ára
Þið eignuðust hugsjón með
æskuþori
og andans vermandi glóð,
og lögðuð á brekkuna léttar í
spori
af löngun að vinna ykkar þjóð.
Þótt féllu geislar á grýttar brautir
og gleðin ríkti þar heið.
Þá voru það mannlífsins mörgu
þrautir,
sem myrkvuðu fjöldans leið.
Og þið hafið séð á þrjátíu árum
hve þungbær er lífsraun þess
manns,
er siglir á dökkum sorgarbárum
þá sýnin er horfin til lands.
En samúðin eyðir sorta skýjum
á sorganna myrku nótt.
Og dimman hverfum með degi
nýjum;
sá dagur ljær veikum þrótt.
Er þið tendruðuð góðvildar
blysið bjarta
sló bjarma á hinn harða klett,
því þið hafið glatt margt gamalt
hjarta
og gjafir að snauðum rétt.
Þið kunnið listina að mýkja
meinin
og marka hin hreinu spor,
því ykkar er laufguð
græðigreinin,
og göfugt og sterkt ykkar þor.
Og ,,Freyja“ hefir verið vinur
mætur
því veika, sem græðslu þarf.
Og lundurinn fríði við fjallsins
rætur
ber fagran vott um það starf.
í starfi ykkar vermist vorsins
gróður,
er vetrarins græðir sár.
Hinn græðandi máttur er hógvær
og hljóður,
sem himinsins dággáftár.
Svo haldið þið áfi'am á hamingju
brautum
með hug, sem skortir ei þor.
Og fækkið lífs vors fjölmörgu
þrautum,
og fegurstu markið spor.
Og glæðið vermandi eldinn í
æðum,
sem ísinn og hjai'nið fær brætt.
En konungui' lífs gefur kraftinn
frá hæðum,
sem kalsái' dýpstu fær grætt.
S. Sv.
margar tegundir,
mjóg ódýrir.
Sendum gegn póstkröfu.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Sítrónur
Nýlencluvörudeild
og útibú.