Dagur - 23.02.1949, Side 8

Dagur - 23.02.1949, Side 8
8 DAGUR Miðvikudaginn 16. febrúar 1949 Deilaii um frjálsa gjaldeyrinn: Dönsk verkfræðinga- Nýr eldvarnafatnaðttr fyrir slökkviliðsmenn Ríkisstjórnin svarar ekki tilmælum útgerðarmannð hér Var samkomulagið við íitvegsmenn í íiaust eingöngu miðað við Faxaflóa? Eins og frá var greint í síðasta blaði fóru útvegsmenn hér fram á það í sl. viku, að þeir fengju til ráðstöfunar gjaldeyri þann, sem fengist við útflutning afurða, cr unnar væru úr smásíldinni, sem veiðzt hefir hér að undanförnu. Var málaleitan þessi byggð á samkomulagsgrundvelli þeim, sem útvegsmenn og ríkisstjórnin gerðu sl. haust, er við sjálft lá að vélbátaflotinn stöðvaðist, en þar var m. a. gert ráð fyrir því, að út- vegsmenn fái til frj-álsrar ráðstöf- unar gjaldeyri þann, sem smá- síldarafli kann að gefa. Þegar rætt var um það hér, að síldar- verksmiðjurnar tækju að bræða síldina og greiða 30 kr. fyrir mál- ið, töldu útvegsmenn það verð of lágt nerna þeir fengju að njóta þeirra hlunninda, sem gert var ráð fyrir í fyrrnefndum sam- komulagsgrundvelli. Þótt bátar hér hafi lagt síldina upp til vinnslu í verksmiðjunum, er allt óráðið um framhald veiðanna meðan ekki fæst lausn á þessu máli . Samkvæmt fregnum, sem blað- ið hafði frá áreiðanlegum heim- ildurn í gær, voru taldar horfur á því, að ríkisstjórnin mundi ekki vilja veita samþykki sitt við málaleitan útvegsmanna hér, en formleg svör höfðu þá engin bor- izt eftir meii'a en vikutöf í Reykjavík. Mun þessi afgreiðsla ríkisvaldsins vekja furðu hér, hvort tveggja, seinlætið að svara og þar með stuðningur við áfram- haldandi nýtingu síldarinnar, og tregðan við að láta ákvæði sam- komulagsins í haust ná til allra landshluta. Ef sú vei'ður reyndin á, að máialeitaninni verður neit- að, og síldveiðin hér hættir, enda þótt gert sé ráð fyrir að síldin gangi aftur í Pollinn með vaxandi straum nú undir vikulokin, mun það ekki þykja óeðlilegt, að ætl- ast sé til þess, næst þegar ríkis- valdið semur við vélbátaeigendur á líkum grundvelli og er var í haust, að því væri bætt í samn- inginn í sérstöku appendixi, að hlunnindi þau, sem útgerðinni Krossaiiessverksmiðjan fær 500 þúsund kr. lán Á fundi bæjarráðs 17. þ. m. var skýrt frá því, að Krossanessverk- smiðjan óskaði heimildar til að taka 500 þúsund kr. lán til greiðslu á lausaskuldum verk- smiðjunnar, þar með talin 200 þús. kr. skuld við þæinn. Bæjar- ráð heimilaði verksmiðjustjórn- inni lántökuna. eru ætluð, ættu aðeins að ná til útvegsmanna í Reykjavík og í öðrum verstöðum við Faxaflóa, en ekki til annarra landshluta, enda skipti það litlu íriáli, hvort reynt væri að hagnýta gæði nátt- úrunnar þar eða ekki. Málgagn brezku stjómarinnar, „Daily Herald“, skýrir frá því nú nýlega, .að tékkneskir þegnar verði nú að afhenda útvarpstæki sín, rétt eins og þeir þurftu að gera meðan landið var hersetið af nazistuin. Fréttaritari blaðsins í Vínarborg skýrir frá því, að mjög róttækar ráðstafanir standi nú yfir í Prag til þess að koma á al- gerri andlegri myrkvun í landinu og slíta síðustu þræðina, sem liggja til hins frjálsa lieims í vestri, en þessir þræðir voru einkum möguleikar til þess að hlýða á erlent útvarp. Síðan kommúnistar hrifsuðu völdin í Tékkóslóvakíu, hafa blöð lýðræðisþjóðanna ekki fengist í landinu og landsmönnum er nán- ast bannað að hafa nokkurt sam- neyti við útlendinga. T. d. þora tékkneskir borgarar naumast lengur að sækja samkvæmi er- lendra sendiherra í Prag vegna þess að þeir eiga á hættu að verða handteknir á eftir og sakaðir um að veita erlendum ríkjum upp- lýsingar, eins og það er kallað á máli kommúnista. Starfsmenn er- lendra sendiráða eru að jafnaði Stjórnarkjör í Verka- mamiafélaginu hér S. 1. sunnudag var haldinn að- alfundur Verkamannafélags Ak- uréyrar og kosin stjórn og trún- aðarráð félagsins. Litlar breyt- ingar urðu í kosningum þessum. Stjórn félagsins skipa nú: Björn Jónsson, form., Stefán Aðalsteins son, ritari, Höskuldur Egilsson, gjaldk., Stefán Árnason og Svav- ar Jóhannesson meðstjórnendur. Stjói'narkjör fór einnig fram hjá Verkamannafélagi Glæsibæjar- hrepps nú um helgina. Var öll stjórnin endurkjörin svo og trún- aðarmannaráð félagsins. firmu fá teikningar og lýsingar fyrirhugaðrar Laxárvirkjunar Raforkumálastjóri ríkisins hefir nú sent dönskum verkfi’æðinga- firmum lýsingar, teikningar, út- boð o. fl. plögg vegna fyrirhug- aðrar virkjunar bæjarins við Laxá. Munu hin dönsku firmu ætla að gera tilboð í verkið. Þá hefir og Köbenhavns Handels- bank fengið ýmsar upplýsingai- um Laxárvirkjunina og mun það standa í sambandi við umleitanir um lán til mannvirkisins. undir eftirliti ríkislögreglunnar og þeim er meinað, eftir því sem unnt ei', að umgangast fólk utan skrifstofa sinna, eins og tíðkast í Moskvu. Samkvæmt frásögn Daily Her- ald hefir innanríkisráðherra landsins tilkynnt, að öll útvarps- viðtæki í einkaeign verði gerð upptæk af ríkinu, sem muni af- henda eigendunum hátalara í staðinn til þess að þeir geti hlýtt á tilkynningar og tilskipanir rík- isstjórnarinnar. Blaðið bendir á, að nazistar hafi ekki gengið svona langt á hernámsárunum. í til- kynningu innanríkisráðherrans er sagt „að þjóðinni beri að fylgja fordæmi Sovétríkjanna í þessu efni, því að það sé í beztu sam- ræmi við hugsjónir sannlýðræð- islegrai' þjóðar.“ í Sovétríkjunum eru ekki aðrar fréttir birtar en þær, sem ritskoð- un Politburau leyfa. Aðrar fréttir má fólkið ekki heyra né sjá. Aðalfundiir Miðstjórn- ar Framsóknar- flokksins Miðstjórn Framsóknarflokksins situr urn þessar mundir á fundi í Reykjavík. Var fundur settur sl. mánudag. Flutti form. flokksins, Hermann Jónasson, ræðu um stjórnmálaástandið og að því loknu fóru fram umræður. Flest- ir miðstjórnarmenn eru mættir til fundar. Búist er við að fund- urinn standi í nokkra daga. Maður fótbrotnar í gær síðdegis varð það slys í grjótnámi bæjarins, að Bergþór Baldvinsson verkamaður fót- brotnaði er steinn valt á hann. Var hann fluttur í sjúkrahúsið. Álgjör andleg myrkvun í Tékkóslövakíu — segir málgagn brezku ríkisstjórnarinnar r Utvarpstæki landsmanna gerð upptæk Aero Medical rannsóknarstofnunin í Bandaríkjunum vinnur m. a. því að rannsaka eldvarnamátt ýmissa efna, scm hæf eru í fatnað slökkviliðsmanna. Sérstaklega hefir verið unnið að því að finna efni, sem dugar við björgunarstarf úr brennandi fluguvélaflökum. Mynd- in hér sýnir svokallaðan „Bunkin“-fatnað, sem bezt hefir dugað. Er hann unnin úr alúminíum og þykir mikil framför frá fyrri fatnaði til notkunar við hættuleg slökkvistörí, sérstaklega á fiugvöllum. Krossanesverksmiðjan hefur tekið á mófi 1550 málum stldar Lítil veiði síðustu dagana í sl. viku lögðu veiðiskipin, sem í tundað hafa síldveiði hér á Poli'- inuni að undanförnu, um 1550 mál síldar upp í Krossanessverk- smiðjuna. Var það afli nokkurra daga. Síðan hafa nokkur hundruð tunn- ur verið frystar til beitu, en afli hefir verið tregur síðustu dagana, t. d. fékkst lítið sem ekkert sl. mánudag. Sjómenn telja að veiðin muni glæðast aftur með vaxandi straum nú í þessari viku og fram yfir helgina, en um þessar mund- ir ei' lágstreymt. Enn mun nokk- ur markaðui' fyrir beitusíld og halda frystihúsin áfram að veita síld móttöku. Vegna stöðugra og langvinnra ógæfta sunnanlands, er beitunotkunin mun minni en venja er á þessum árstíma. Alls hafa verið frystar hér á sjötta þúsund tunnur síidar. Skólastjórar íram- haldsskólanna kér kaílaðir til Reykjavíkur í gær kallaði Menntamálaráðu- neytið þá Þórarinn Bjömsson skólameistara og Þorstein M. Jónsson skólastjóra suður, til við- ræðna um skólamálin hér vegna framkomins frumvarps um gágn- fræðadeild .M. A. Munu þsir j fljúga suður hið fyrsta. 700 manns tóku mænii- veikina samkv. skýrslu heilbrigðisnefndar Eins og áður er skýrt frá hér í blaðinu, lét heilbrigðisnefnd bæj- arins safna skýrslum í vetur um útbréiðslu mænuveikinnar og ástæður á heimilum. Samkvæmt skýrslunni, sem send hefir verið bæjarráði, eru sjúkdómstilfellin 700. Eigi töldu nema 4 heimili sig þurfa á erlendri húshjálp að halda. Þar sem þörfin virðist ekki bi'ýnni en þessar fölur gefa til kynna, ákvað bæjarráð, að bær- inn hefði ekki frekari afskipti af málinu að sinni. Hinir nýju höklar Akureyrarkirkjii iiotaðir í fvsta sirni s. I. smmudag Síðastliðinn sunnudag var guðs- þjónusta í Akureyrarkirkju í fyrsta sinn síðan samkomubann vegna mænuveiki var sett snemrna í vetur. Við guðsþjón- ustuna voru notaðir í fyrsta sinn höklar þeir, er kirkjunni hafa ný- lega borizt að gjöf, frá próf. Guð- brandi Jónssyni í Reykjavík og fi'á Klæðaverksmiðjunni Gefjun. Eru þeii' báðir hinir ágætustu gripir. Nokkur skilyrði fylgja gjöf próf. Guðbrandar og mun blaðið flytja gjafabréf hans í næstu viku.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.