Dagur - 02.03.1949, Síða 2
2
DAGUB
Miðvikudaginn 2. marz 1949
Áburðarverksmiðjumálið
■Fýrir nokkrum árum boðuðu
kommúnistar þá stefnu, að land-
búnaðurinn ætti að lúta stjórn
frá kaupstöðunum. Kringum þá
átti að rækta landið, og skyldi
landbúnaðurinn aðeins vera hjá-
leigubúskapur atvinnuveganna
þar, en fjarlægari staði ætti að
leggja í auðn.
Eftir að vinátta tókst með
kommúnistum og íhaldinu, lét:
Sjálfstæðisflokkurinn kommún-
ista móta stefnuna í landbúnað-
armálunum.
Á tímabili .utanþingsstjórnar-
innar bar hún fram frumvarp
um stofnun áburðarverksmiðju,
er framleiða skyldi köfnunarefn-
isáburð eftir þörfum landbúnað-
arins í sveitum landsins. Með
þessu var stefnt að aukinni alls-
herjar ræktun í landinu.
Um þessar mundir fluttu Fram-
sóknarmenn frumvarp að nýjum
jarðræktarlögum, er stefndi að
því, að bændur yrðu sérstaklega
studdir til þess að koma öllum
heyskap sínum í nýtízku horf á
næstu 10 árum, svo að hann yrði
þá allur tekinn á ræktuðu vél-
tæku landi.
í samræmi við þessa stefnu
Framsóknarmanna voru þeir
fylgjandi frumvarpi stjórnarinnar
um áburðarverksmiðju. Þeim var
það ljóst, að stofnun hennar
styddi mjög að því, að framan-
greindu ræktunarmarki yrði náð.
Hinir flokkarnir sameinuðust
allir gegn breytingunni á jarð-
ræktarlögunum og vísuðu henni
frá samkvæmt tillögu fulltrúa
sinna í landbúnaðarnefnd með
þeim rökstuðningi, að „bráða-
birgðaákvæði þau, sem nú eru í
jarðræktarlögunum, eru að svo
komnu máli nægileg 10 ára áætl-
un.“
Þessi bráðabirgðaákvæði, sem
nægðu stórhug hinna þriggja ný-
sköpunarflokka, voru þess efnis,
að þúfnasléttun í túni skyldi
styrkt nokkru meira en áður.
Ekki fékk áburðarverksmiðju-
málið betri útreið. Fyrst þótti
Sjálfstæðismönnum það ganga
hneyksli næst, að gert var ráð
fyrir að verksmiðjan kynni að
verða reist utan Reykjavíkur. í
öðru lagi urðu forkólfar Sjálf-
stæðisflokksins lostnir skelfingu
út af því, að framleiðsla verk-
smiðjunnar kynni að sprengja
þjóðina í loft upp!
Kommúnistar hjálpuðu síðan
sálufélögum sínum í Sjálfstæðis-
flokknum til þess að kistuleggja
málið.
Svo liðu nýsköpunartímar Ol-
afs Thors og kommúnista. Þá átti
þjóðin miklar innstæður og nóg
fé fyrir hendi. En ekki hreyfði
nýsköpunarstjórnin né flokkar
hennar við áburðarverksmiðju-
málinu. Það er ekki fyrr en ný-
sköpunarstjórnin hefir hrökklast
frá völdum og nýr landbúnaðar-
ráðherra úr Framsóknarflokkn-
um er kominn til sögunnar, að
málið er á ný vakið til lífsins.
Ráðherrann lætur undirbúa og
leggja fram frumvarp um áburð-
ar verksmiðju, sem á að tryggja
landsmönnum nógan köfnunar-
efnisáburð á hverju sem kann að
velta með utanríkisviðskipti. Á
þenna' hátt vinnst m. a. stór-
felldur gjaldeyrissparnaður.
Nú munu taldar horfur á, að
mál þetta sigli hi’aðbyri gegnum
þingið. Jafnvel kommúnistar,
sem áður svæfðu málið og lágu á
því allan þann tíma, er þeir sátu í
stjórn, eru nú óánægðir yfir því,
að ekki skuli byggð mörgum
sinnum stærri verksmiðja en
ráðgert er. Þeir vilja láta reisa
reglulegt risafyrirtæki, sem birgt
geti allan heiminn að áburði!
Þessi stórhugur kommúnista
kemur fyrst fram, þegar þeir eru
komnir úr stjórn og búnir að eyða
öllum gjaldeyrissjóðum upp í
mold .Jafnframt lýsa þeir yfir því,
að íslendingar megi ekki taka
gjaldeyrislán erlendis og allra
sízt Marshall-lán. En hvar á þá
að taka féð? Því geta kommúnist-
ar ekki svarað.
Opið bréf til
Björns Kristjáns-
sonar kommónista
1 Hiisavík
Eg þakka þér fyrir bréfið, sem
eg fékk frá þér í „Verkamannin-
um“. En þó skömm sé frá að segja,
skil eg það ekki.
Eg hefi fengið mörg bréf um
æfina, en ekkert þeirra hefi eg lagt
svo frá mér, að mér hafi ekki verið
vel ljóst innihaldið. Það fyrsta sem
kom í hug minn eftir að hafa les-
ið bréfið, var það, að undir þetta
hefði Björn Kristjánsson lánað
nafn sitt, svo ólíkt fannst mér það
þér. En ef svo hefir verið, þá hefir
vegur þinn lítið vaxið við það hér
í Húsavík a. m. k.
Þegar mér var sagt frá því að þú
ætlaðir að skrifa grein, sem ætti að
vera svar við grein minni í ,.Degi“,
sem út kom laus teftii áramótin,
hlakkaði eg satt að segja til þess
að lesa hana.
Eg hafðí ofurlitla ástæðu til að
ímynda mér að þú værir ekki sá
ólíklegasti af kommúnistum hér til
að ræða með fullri hreinskilni og
án undanbragða þann alvarlega at-
burð, sem þú og þínir trúbræður
voru valdir að hér í Húsavík i
haust, og sem grein min fjallar um.
Eg hafði haft af þér þau kynni,
að eg gat hugsað mér, ef þú fengir
að hugsa sjálfstætt og án áhrifa írá
þér verri mönnum, þá mundir þú
vilja ræða með skilningi og dreng-
skap þann hrottaskap og þá óverj-
andi framkomu ykkar í garð sak-
lausra verkamanna hér i Húsavik,
og jafnvel játa sök þina. Ástæðan
fyrir því, að eg hugsaði svona, er
byggð á margra ára kynnum við
þig, og þó eg hafi oft fundið til
þess hve næmur þú ert fyrir vél-
ráðum óvandra manna og oft sam-
þykkur þér verr hugsandi og
heimskari mönnum, þá hefir mér
þó alltaf fundist eg sjá það mikla
mannkosti leynast hjá þér, að
aldrei kæmi til mála að þú yrðir
dæmdur úr neinum leik, vegna
þess að þú vildir ekki læra og
temja þér almennar leikreglur. En
við lestur bréfsins sé eg að mér
hefir eitthvað skjátlast, þvi að þar
örlar ekki á mannkostum né mann-
dómi. Þess vegna skildi eg ekki
bréfið. Eg skil ekki, hvaða innlegg
þú telur það fyrir þig að skrifa
persónulýsingu á mér, og hana
miður vingjarnlega, í stað þess að
rölcræða þetta alvarlega mál.
Eg skil ekki þann hugsunarhátt
hjá manni í þinum sporum núna,'
sem ekki kýs heldur að þegja, en
samþykkja á þennan hátt, sem þú
gerir, alla söguna mína sanna og
rétta.
Það er háttur litilla manna að
ráðast á andstæðing sinn með per
sónulegu níði þegar rökin þrjóta,
að vísu er ekki hægt að segja að
rökin hafi þrotið hjá þér,því að þau
voru aldrei nein.
Með þessu og fleiru hefir þú
lýst yfir því, að þú vilt ekki temja
þér almennar leikreglur og hefir
dæmt sjálfan þig úr leik. Þetta er
ef til vill skiljanlegt, en ekki er
það mannlegt.
Þú hefir vitað það fyrir fram að
eg mundi aldrei fást til þess að
ræða á opinberum vettvangi um
mína eigin persónu og þá iýsingu,
sem þú gefur á henni, þetta er rétt
og þess vegna hefir þú ekki þorað
að fara aðra leið að mér. Enda
varla von.
Þú segir í bréfinu, að aldrei hafi
verkamönnum komið það til hug-
ar, að hafa mig fyrir fulltrúaefni
sitt í félagsmálabaráítunni. Því er
til að svara af minni hálfu, að eg
hefi aldrei stolið helgasta réttin-
um af neinum manni mér til fram-
dráttar. Hverjir gerðu það hér í
Húsavík í haust? Líklega ekki þú,
Björn? Það getur verið hættulegt
að kasta grjóti og búa sjálfur í
glerhúsi.
I öðru lagi segir þú i bréfinu, að
eg hafi látið ljós mitt skina í
„Degi“. Gerðir þú þér það nokkuð
ljóst, yfir hvað það var, sem þetta
ljós kastaði birtu sinni? Eg er
hræddur um að það hafi farið fram
hjá þér. Ljós þetta lýsti inn í það
einræðis- og ofbeldismyrkur, sem
kommúnistar allra landa eru nú,
með ógeðslegum áróðri, að reyna
að fjötra allar frjáisar þjóðir í.
Ljós þetta brá birtu yfir menn þá,
sem virðast vinna eftir fyrirfram
gerðri áætlun frá erlendu stórveldi.
I þriðja lagi segir þú í bréfi þínu,
að eg hafi ekki vit á því að gera
greinarmun á eiginhandarundir-
skrift og prentuðu nafni.
Kom ekki einhver inn til þin,
þér verri og heimskari maður, sem
plantaði þessu blómi í sálarakur
þinn? Um „skömmina og heiður-
inn“ tala eg við þig á öðrum vett-
vangi.
Eg heyri sagt, að m_ rglr séu á
mælendaskrá, margir kommúnistar
ætli að svara grein minni. Ef þau
svör verða i sama tón og þitt svar
— ef svar skyldi kalla — þá ætla
eg að safna ósómanum saman og
senda hann heim til föð'urhúsanna
við tækifæri.
Að síðustu vildi eg segja þetta.
(Framhald á 7. síðu).
| Akureyrarbær. Laxárvirkjan.
TILKYNNING
Hinn 23. febrúar 1949 framkvæmdi notarius publicus
! í Akureyrarkaupstað liinn árlega útdrátt á skuldabréf-
I um bæjarsjóðs Akttreyrar fyrir 6% láni til raforkuveitu
I frá Laxárvirkjun, teknu 1939.
j Þessi bréf voru dregin tit:
! Litra A: Nr. 10 - 30 - 48 - 105 - 125 - 141 - 148.
! Lilra B: Nr. 15 — 20 — 29 — 48 — 115 - 130 - 136 -
| 156.
j Litra C: Nr. 10 - 34 - 52 - 67 - 69 - 100 - 130 -
138 - 147 - 149 - 182 - 196 - 203 - 215 -
j 216- 230 - 248 - 276 - 307 - 336 - 360 -
| 406 - 436 - 454 - 456 - 472 - 491 - 499 -
{ 523 - 576 - 579 - 596 - 614 - 627 - 655 -
j 656 - .657 - 685 - 686 - 696.
Í Skuldabréf þessi ver.ða greidd á skrifstofu bæjargjald-
i kerans á Akureyri þann 1. jttlí 1949. ásamt hálfum vöxt-
j um fyrir yfirstandancli ár.
i Bæjarstjórinn á Akureyri, 23. febr. 1949.
I Þorsteinn Stefánsson
i — settur. —
I Akureyrardeildar K. E. A.
i sem féll niður 23. febrúar s. 1., verður hald- l
i inn í Samkomuhúsi bæjarins föstudaginn 4. \
\ marz n. k. og hefst kl. 8.30 síðdegis.
| Deildarstjórnin. i
h.MMIMIIMIIMIMIMMIIIMIIIMMIIIIMMMMIIMIIIMMIIIIMIMIIIMIIIMIIIIIIMIIMIIIMMMIMIIIIMIIIIIIIIIIIIMIIIMIIIIMIIIMIIM
ÁRSHÁTÍÐ
Vramsóknarfélaganna á Aknreyri
i verður Italdin að Hótel KEA laugardaginn 5. marz n.k. \
i og hefst kl. 8 e. h. — Þar fer fram: Ræðuhöld, söngur, i
Í gamanþáttur og dans. Hljómsveit spilar lyrir dansinum. \
| Framsóknarmenn! Fjölmennið á árshátíðina og takið i
Í með ykkur gesti. \
1 STJÓRNIR FÉLAGANNA. {
Í . vanar karlmannafata- eða kápusaum, geta fengið i
atvinuu á saumastofu vorri nú þegar.
Konur, sem vildu sauma jakka eða buxur í |
heimahúsum, ættu að tala við okkur sem fyrst. i
Nánari upplýsingar hjá Ólaji Danielssyni, klæð- i
Í skerameistara, eða Arnpóri Þorstcinssyni, síma i
{ 305. |
j SaumastofaGefjunar I
| Húsi K. E. A., III. hæð. í
r ‘ =
..................................................................................................................
Saoma- og bókbandsiiámskeið
HEIMILISIÐNAÐARFÉLAGS NORÐURLANDS
i hefjast að nýju 11. marz næstk. — Þeir, sem ekki lcomust að á i
i síðustu námsskciðum sitja nú fyrir, gefi þeir sig fram í tíma. i
Í Sími 488 eðs 2G. {
-■ f IIIMIIIIII1111111111111 MllllltIIIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIMlnM4l 1111111 llllIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIHItlltlM^flA. IflflflMflflttCflfl?
IIIMMIIIIIMMIMIIIIIIIMIIIMMIMMIIMMIIMIIIMMMIIIIIIMIIMIIIMIIIMIUIIIIIIMIIIMIMIMIMIMIMIIIUIIIIIIMIIMIIIUIIIIIIUIIIIIMMMMIMIIIIIHMIIMIMIIMI