Dagur - 02.03.1949, Blaðsíða 5

Dagur - 02.03.1949, Blaðsíða 5
Miðvikudaginn 2. marz 1949 DAGUR 5 ÍÞRÓTTIR OG ÚTILlF Frá Knattspyrnusamb. islands Samkvæmt till. K. S. í. hefir í. S. í. samþykkt, að landsmót í knattspyrnu 1949 fari fram sem hér segir: 1. Knattspyrnumót íslands í meistaraflokki fari fram í Rvík 2.—20. júní. 2. Landsmót 1. flokks fari fram í Rvík 28. júlí til 13. ágúst. 3. Landsmót 2. flokks fari fram á Akranesi og í Rvík 15. ágúst til 2. september. Fyrirkomulag verði þannig að leikir Akranesinga og úrslitaleikir fari fram á Akranesi, en aðrir leikir í Rvík. 4. Landsmót í 3. flokki fari fram í Hafnarfirði og Rvík 26. júlí til 13. ágúst, með sams konar fyrir- komulagi og ákveðið var um 2. flokk. Knattspyrnuráð Akureyrar reynir vonandi að útvega ein- hvern knattspyrnuþjálfara til Akureyraifélaganna fyrir vorið. Þar fengi góður þjálfari nóg að gera um tíma. —o— Handknattleiksmót Islands fyrir konur, á að verða í Vest- mannaeyjum þetta árið, sennilega á höfuðhátíð þeirra eyjarskeggja, í byrjun ágúst. — Akureyrar- stúlkurnar eru farnar að æfa af kappi eftir „bannfríið1', en hvort þær eru með Vestmannaeyjar bak við eyrað, vitum við ekki! —o--- Ný bók hefir borizt íþróttaþættinum. Nefnist hún Sund og er aðalhöf- undur hennar Jón Pálsson yfir- sundkennari í Rvík. Bókin er helguð minningu Jón- asar Hallgrímssonar skálds, sem telst brautryðjandi í útgáfu kennslubóka í sundi. í formála bókarinnar, sem skrifaður er af Þorsteini Einars- syni íþróttafulltrúa, er gerð grein fyrir tildrögum að samningu og útgáfu þessa rits og í öðru lagi hvað þar er fyrir tekið sérstak- lega. Þar segir m. a.: „Þau atriði sundíþróttarinnar, sem tekin eru til meðferðar í bókinni, eru sniðin eftir þeim kröfum, sem gerðar eru í reglugerð um til- skilda sundhæfni skólanemenda, en ekki farið inn á svið, sem miða að sundþjálfun eða sundæfingum til þátttöku í sundkeppni.“ Bókin hefir þó inni að halda mjög ýtarlega og skýra greinar- gerð um aðferðir og æfingar við sundnám og sundkennslu, leggur mikilsverða áherzlu á það sem krefjast verður til þess að geta fyllilega notið sín í vatninu, auð- veldlega bjargað sér og öðrum — við allar venjulegar aðstæður. — Kennarar geta fengið þar ómet- anlegar leiðbeiningar, og áhuga- samir nemendur í sundi gætu af sjálfsdáðum haft mikið gagn af bókinni. Tilsögnin þar er ljós og ákveðin og góðar myndir fylgja til fyllri skýringar. Kafli fylgir og eftir Jón Oddgeir Jónsson um lífgun úr dauðadái. Bókin, Sund, er gefin út af til- hlutun fræðslumálastjórnar, en útgefandi er Jens Guðbjörnsson. Hún er prentuð á góðan pappír og frágangur er að mörgu leyti ágætur sem vel er — og verðugt slíkri minningu. —o— íþrótta- og „sport“sýning í Stokkhólmi. í sumar — júlímánuði — á að opna einstæða sýningu í Stokk- hólmi — heimssýningu, þá fyrstu í sinni röð. Þar á — með fjöl- breytni og mikilli hugkvæmni — að sýna sem flest er viðkemur íþróttum og „sþorti“ í hinum ýmsu löndum og þróun þeirra mála, bæði íþrótta og íþrótta- tækja, um aldirnar. Þátttaka hef- ir verið boðin öllum löndum að sögn, og mörg þeirra tekið boð- inu. SýriSngin er því talin verða alþjóðleg í fyllsta máta og til hennar stefnt af miklum áhuga víðs vegar frá. Áhugamenn um þessi mál eiga þarna að fá ein- stakt tækifæri til kynningar og fróðleiks. — Framleiðendur íþróttatækja og „sport“vara leggja fram allt sitt bezta. Þjóðir leitast við að kynna sýna aðstöðu og laða aðra til nánari samskipta og heimsókna. Sýningunni er ætlað stórt svæði í dásamlegu umhverfi við Löginn í Stokkhólmi.--------- Þar væri sannarlega gaman að koma — og sjálfsagt fyrir þá að FRÁ BÓKAMARKAÐINUM Gísli Konráðson: Ævisaga Sigurðar Breiðfjörð skálds. Jóh. Gunnar Olafsson sá um útgáfuna. Útgefandi: Prentstofan ísrún h. f. ísafjörður — 1948. Hálf önnur öld er liðin frá fæð- ingu breiðfirzka alþýðuskáldsins ágæta, en ein öld og tveim árum betur frá dauða Sigúrðar í ves- aldómi í Reykjavík — mislinga- dauðanum, sem hugarflug ís- lenzkrar alþýðu og samkennd með ljóðljúflingi sínum breytti fljótlega í hungurdauða — þegar þessi ævisaga hans kemur fyrst á prent. Er hún prentuð eftir handriti í Landsbókasafni, Lbs. 763, 800, en áður hefir Jón Borg- firðingur notað þetta handrit all- ýtarlega til stuðnings, er hann samdi ritling sinn: „Stutt ævi“ minning Sigurðar Breiðfjörðs skálds, en sú bók kom, svo sem kunnugt er, út í Rvík árið 1878. Það er sannast sagna, að góður og ágætur fengur er að þessu kveri, þótt ekki láti það sérlega mikið yfir sér og þess hafi raunar verið fremui' óvíða getið, síðan það kom út skömmu fyrir jólin í vetur, og hefir það þannig að ó- sekju orðið að þoka inn í skugga annarra og ómerkari rita, sem notið hafa öflugra fjármagns og betri aðstöðu útgefanda til þess að bjóða þau með meiri háreysti og faguryrðum á sölutorgum þjóðarinnar. Þá er það og al- kunnugt, að sagnaþættir Gísla sinna því, sem leið eiga þar um á þessum tíma. Hvort um nokkra aðra þáttttöku frá íslandi væri að ræða, veit eg ekki. —o— Frá Akureyri. Síðastl .sunnudag gaf fagurt veður og gott færi, og í brekk- unni ofan við Knarrarberg var fjöldi fólks á skíðum, aðallega á aldrinum 10—15 ára. Magnús B. hafði lagt ágætar brautir, Vík- ingur var mættui' meo lúðurinn og tímaverðir voru tiltækir. Kl. 2 hófst svigkeppni drengja, fyrst 10—12 ára og síðan 13—15 ára. Þarna kepptu rnenn af ýms- um stærðum á misjöfnum skíðum og með ólíkri hæfni. Sumir veltu sér síðustu metrana í markið en aðrir fóru hverja sveifluna af annarri að ofan með þeirri leikni og prýði að hvarvetna gæti sæmt. Keppni og óheppni voru til stað- ar eins og ,oftar og áttu sinn þátt í úrslitum. T. d. virtist ekki óeðli- legt að Magnús Guðm. lenti fram- ar í röðinni að lokum, — mjög efnilegur skíðaðmaðu r. Fleira mætti nefna af þessu tagi, en þarf ekki. í heild voru hóparnir góðir og í þeim margir, sem áreiðanlega verða mjög góðir skíðamenn ef þeir leggja rækt við sína hæfileika og lifa sem íþrótta- menn. Úrslit urðu þessi: Yngri flokkur: 1. Eiríkur Ingvarsson, K. A., 26 sek. 2. Magnús Snorrason, Þór, 26.6 sek. 3. Hörður Steinþórsson, K. A., 29.3 sek. 4. Ingimar Jónsson, Þór, 30.7 sek. Eldri flokkur: 1. Baldur Ágústsson, K. A., 41.1 sek. 2. Hösk. Goði Karlsson, K. A., 41,7 sek. 3. Sigtryggur Sigtryggsson, Þór, 45.3 sek. 4. Magnús Guðmundsson, K. A., 46. sek. Haukui' S. Jónsson var með sama tíma. Bæði Magnús og Sigtr. fengu víti í síðari ferð — áttu áður bezta tíina. Keppendur voru 12 í hvorum flokki. Konráðssonar hins fróða eru harla misjafnlega skemmtilegir aflestrar — sumir þeirra jafnvel óvenjulega þurrir og þvælulegir, — en þessi þáttur um Breiðfjörð er hins vegar vafalaust í fremstu röð hinna skemmtilegustu og læsilegustu þátta, er Gísli hefir skráð, enda er frásögnin mjög krydduð vísum og kvæðum Sig- urðar og annarra, og hefir margt af þeim kveðskap ekki verið prentað áður. Þótt allmikið skorti á, að ævisagan sé í öllum grein- um sannsöguleg, — eins og raun- ar er títt um aðra þætti Gísla — dregur hún þó upp sanna og lif- andi mynd af Signurði, æviferli hans, kveðskap og dagfari öllu. Og útgefandi kversins bætir úr skekkjum þeim og ónákvæmni, sem finnst í frásögninni með leið- réttingum og viðaukum í alllöng- r 5-KRÓNA VELTAN Adólf Ingimarsson skorar á: Hauk Snorrason, ritstjóra. Örn Snorrason, kennara. Hreiðar Jónsson, Klapparst. 3. Ármann Helgason skorar á: Dr. Svein Þói’ðars., M. A.-kenn. Jóhann Þorkelsson, héraðsl. Séra Pétur Sigurgeirsson. Þórður Gunnarsson skorar á: Sigrúnu Brynjólfsd., símamey. Gunnl. Tr. Jónsson, bóksala. Valgerði Vilhjálmsd., símam. Jóhann Guðmundsson skorar á: Óla P. Kristjánsson, póstmeist. Sigrúnu Gíslad., Eyrarv. 9. Hólmfríði Jóhannsd., Hafn. 97. Svan Ingólfsson skorar á: Gest Jónsson, Noi'ðuigötu. Kristján Ólafsson, Gránuf.g. 51. Hinrik Lárusson, Hríseyjarg. 9. Jóhann Guðmundsson skorar á: Ólaf Benediktsson, forstjóra. Jóhann Egilsson, póstmann. Finnboga Jónss., póstfulltrúa. Adólf Ingimarsson skorar á: Jóhann Guðmundsson, Gefjun. Þórhall Guðlaugsson, Gefjun. Hafliða Guðmundss., Sólbakka. María Sigurðardóttir skorar á: Önnu Kvaran, frú, Brekkug. 9. Jenný Jónsdóttur, frú, Brg. 9. Björgu Baldvinsd. kontordömu. Gunnlaug Kristjánsd. skorar á: Rögnu Gestsdóttur, Reyniv. 2. Jóhann Níelsson, M. A., III. br. Kristján Jakobsson, Eyrarv. 29. Björg R, Sigurjónsd. skorar á: Gunnar Jónssori, sjúkrah.gj. Sigurlínu Kristjánsd., Ránar. 2. Erlu Sigurjónsd-, Spítalav. 17. Guðrúri'Sveiris skorar á: Sigrúriu Gíslad.;, Brekkug. 47. Marsilíu Jónsdóttur, Eyrarl-, G.uðm. Guðlaugss., Munka. 25. Stebbi og Hanni skora á: Guðbjörgu Pálmad., Gránu. 5. Signu Hallsd., Hótel Norðurl. Önnu Hjörleifsd., Holtag. 9. Jóhannes Björnsson skorar á: Margrétu Jónsd.', Strand. 25. Oddnýju Kristjánsd., Eyr.v. 29. Önnu Eyþórsd., Brekkug. 32. Magnús Jónsson skorar á: Bóas Jónsson, Gránufélg. 29. Eirík Jónsson, Ægisgötu 4. Þórl. H. Sigfúsd., Gilsb.v. 1. Jón Viðar Tryggvason skorar á: Jakob Bjarnason, Bjarkast. 5. Guðm. Magnússon, múrara. Jakob Snorrason, múrara. Gestur Magnússon skorar á: Hreiðar Jónsson, Klapparst. 3. Hannes Halldórss., Hólabr. 19. Jón Björnsson, húsgagnasm. ■ Ef til vill verður svigkeppni fyrir drengi aftur síðar á vetrin- um, ef færi gefst til að æfa — og þá reynt að ná til enn fleiri. um kafla að bókarlokum. Glöggt má marka það, hversu óbortgjarn orðstír Sigurðar Breiðfjörðs er — ekki aðeins í minningu allrar alþýðu manna, heldur einnig í hugum allra helztu „fagurkera bókmennt- anna“, — á hinni alkunnu víssu Þorsteins skálds Erlingssonar, er hann þykist í kvæði sínu um Eden ganga á fund þeirra „föllnu, sem léku ekki meira“ — látinna góðskálda og þjóðskálda ís- lenzkra. Hann nefnir þar ekki önnur skáld með nafni en Jónas Hallgrímsson og Sigurð Breið- fjörð og segir um þann síðar- nefnda: „-----komdu, hver vísa var vor, nú viljum vér borga þér óðinn; hann léttir oss heiman og heima hvert spor, eg heyri hvert barn kunna ljóðin, Arngrímur Pálsson skorar á: Sigríði Eysteinsd., skrifst.mey. Jóhönnu S. Tryggvad., skrif- stofumey. Gunnar Loftsson, Bílab. KEA. Tryggvi Sæmundsson skorar á: Þorstein Williams, Laxag. 2.' Steindór Jónsson, Ráðhúst. 5. Sæmund Jóhannss., Hót. KEA. Páll Magnússon skorar á: Skarphéðinn Karlss., Pylsug. KEA. Óskar Bernharðss., Pylsug. KEA. Þorgn'm Kristjánss., Pylsugerð KEA. Sigrún Arnórsdóttir skorar á: Gústaf Jónss., Brautarh. Glþ. Sigríði Eysteinsd., Norðurg. 34. Önnu Steindórsd., Norðurg. 15. Lilla Sigurðar skorar á: Ingibjörgu Sigurðar, Víðiv. 10. Bebbu Sigurðar, Víðiv. 10. Emmu Sigurðar Hamarsst. 10. Guðný Valmundar skorar á: Anton Kristjánss., skrifst.m. Gísla Ólafsson, lögregluþj. Lárus Zophóníass., H.m.str. 4. Guðm. Mikaelsson skorar á: Garðar Loftsson, KEA. Mikael Jóh.ss., Eyrarl.v. 20. Jóhannes ónass., Eyrarl.v. 20. Tryggvi Georgsson skorar á: Ingi V. Jónsson, Norðurg. 54. Guðmund Georgss., Ránarg. 6. Rafn Hjaltalín, Grundarg. 8. Guðm. Jónsson skoi'ar á: Jón Sigurjónss., Holtag. 2. Harald Bogason, Norðurg. 36. Finnboga PJónasson, Gránufé- lagsgötu 19. Kristján Kristjánsson skoi'ar á: Jón E. Sigurðsson. O. C. Thorarensen, lyfsala. Sig. O. Björnsson, prentsm.stj. Sveinfríður Kristjánsd. skorar á: Hönnu Tómasd., Hólabr. 19. Guðbj. Tómasd., Grænug. 4. Guttorm Berg, „Þvotti“. Gréta, Dúfa, Anna skora á: Óskar Ingimarss., Aðalstr. Sigurð Jónssori, Hafnarstr. 47. Jóhannes Björnss., Norðurg. 36. Axel Kvaran skorar á: Ágúst Kvaran, Brekkug. 9. Önnu E. Kvaran, Brekkug. 9. Önnu L. Kvaran, Brekkug. 9. Arngrímur Pálsson skorar á: Víking Björnsson, bireiðastj. Pál. Guðlaugss., Brekkug. 2. Gunnar Sigurjónss., Gránuf.g. 41A. Valdimar Haraldsson skorar á: Skarphéðinn Karlss., Þingvalla. Skarphéðinn Ásgeirsson, Þór- unnarstræti 104. Guðr. Kristjánsd., Norð.g. 36. Magnús Bjarnason skorar á: Sigurv. Guðmundsd., Bjarma- stíg 11. Magnús Jónasson, lögregluþj. Björn Ásgeirsson, Vesturg. 9. Gunnar Árnason skorar á: Björgvin Árnas., Eyrarl.v. 4. Valdimai' Tr. Pálsson. Jónas Jónsson, kennara. Nokkuð er enn óprentað af áskorunum vegna þrengsla. — Upphæðin er orðin kr. 1.460.00. og ef að við fellum þig aftur úr hor í annað sinn grætur þig þjóðin.“ Góð mynd eftir teikningu séra Helga Sigurðssonar af Breið- fjörð skáldi er framan við kver- ið, en það er snoturlega prentað á góðan pappíi' og vel til útgáf- unnar vandað í hvívetna, svo sem vera ber, eða eins og Sigurður sagði um sjálfan sig, í öðru sam- bandi, í vísunni alkunnu: — „— skilið á hann þennan heiður“. J.Fr.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.