Dagur - 23.03.1949, Page 1
Forustugreinin:
Mannkynssagan og kenni-
setningarnar. Sýnishorn af
málflutningi kommúnista-
flokksins.
Dagu
Fimmta síðan:
Frásögn Manchester Guardian
af þrælabúðum Rússa.
XXXII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 30. marz 1949
13. tbi.
Heimavktarbúsið nýja
Myndin er af heimavistarhúsi Menntaskólans hér, sem nú er í
smíðum. Er enn langt í land, að húsið verði fullbyggt og hæft til af-
nota. I fjárlagafrumvarpi því, sem nú liggur fyrir Alþingi, er gert
ráð fyrir 400 þús. kr. framlagi ríkissjóðs til áframhalds byggingar-
innar, en einn af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, Sigurður Krist-
jánsson, hefir flutt tillögu um að fella fjárveitinguna niður.
Togaradeilunni
lokið
Kaldbakur farinn
á veiðar
Aðfaranótt sl. sunnudags lauk
atkvæðagreiðslu sjómanna og út-
gerðarmanna um síðari mála-
miðlunartillögu sáttanefndarinn-
ar og fór svo, að tillagan var sam-
þykkt aí báðum aðilum á flestum
stöðum á landinu. Hér á Akur-
eyri sögðu 22 sjómenn já, en 13
nei. Togararnir fóru þá þegar að
búa sig á veiðar. Kaldbakur fór
héðan síðdegis á sunnudag. Mun
skipið selja afla sinn í Þýzkalandi
í næstu utanferð.
Tvö skip
Sambandsios
losa vörur hér
Tvö af skipum Sambands ísl.
samvinnufélaga hafa að undan-
förnu losað vörur á höfnum Vest-
ur- og Norðurlandsins. Leigu-
skipið „Vigör“ kom hér í gær og
losar hér salt. „Hvassafell" kom
í nótt að vestan, og losar hér se-
ment. Leiguskipið Herma, sem
hingað kom á vegum SÍS með kol
og varð fyrir vélarbilun, var hér
enn í gær, en viðgerð þá um það
bil lokið og mun skipið væntan-
lega sigla til Noregs í dag eða
nótt.
ísland gerist stofnaðili Atiantshafsbandalagsins
Áfengisverzlunin
græddi nærri 53 millj.
kr. á s. 1. ári
í nefndaráliti Fjárveitinga-
nefndar Alþingis, um fjárlaga-
frumvarpið, kemur það fram, að
rekstrarafgangur Áfengisverzl-
unar ríkisins á sl. ári varð 52.89
millj. króna. Mun þetta langmesti
gróði fyrirtækisins til þessa.
Vantraustið fellt
með 37:9
Við lok útvarpsumræðunn-
ar frá Alþingi sl. mánudags-
kvöld voru greidd atkvæði um
vanstrauststiílögu þá, er
kommúnistaf höfðu borið
fram á ríkisstjórnina. Var til-
laga þeirra felld með 37 atkv.
gegn 9. Finnn þingmenn sátu
lijá. Einn var fjarverandi
vegna veikinda, Steingr. Að-
alsteinsson. Þeir fimm þing-
menn sem sátu hjá voru Her-
mann Jónasson, Páll Zóphóní-
asson og Skúli Guðmundsson,
Framsóknarfl., og Gylfi Þ.
Gíslason og Hannibal Valdi-
marsson, Alþýðufl. — Gerðu
þingmennirnir allir grein fyr-
ir því, hvers vegna þcir sátu
hjá.
Kommúnisfar boða handtökur - jafnve! aftökur -
andstæðinga sinna!
Kommúnistar hai’a síðustu dagana færst svo í aukana í
áróðri sínum gegn Atlantshafsbandalaginu, að þegar rökin
liefir þrotið hafa þeir gripið til liótana. Það vakti athygli al-
þjóðar í útvarpsumræðunum í fyrrakvöld, er formaður
Kommúnistaflokksins, Brynjólfur Bjarnason,
hótaði þingmönninn því, að með þá skyldi síðar meir farið
eins og Kvisling (þ. e. þeim stillt upp við vegg og þeir skotn-
ir), ef þeir samþykktu inngöngu íslands í Atlantshafsbanda-
lagið.
Annar af foringjum kommúnista hefir látið svipaðar hótan-
ir frá sér fara í Þjóðviljanum. Segir þar svo 25. þ. m.:
„.... Þeir íslendingar, sem nú hafa forustu í því, að við
göngum í Atlantshafsbandalagið, yrðu dæmdir stríðsglæpa-
menn (þ. e. þegar kommúnistar hefðu náð völdunum eftir
sigur Rússa á ,,auðvaldsríkjunum“) og endalok þeirra yrðu
sennilega litlu véglegri en viðskilnaður stórnazistanna í
Númberg....“ En nazistaforingjarnir voru, sem kunnugt
er, hengdir.
Þessi málafærzla kommúnista sýnir ofbeldisinnrætið og hina
takmarkalausu fyrirlitningu á skoðanafrelsi einstaklinganna.
Þarf nokkur að efast um, hvernig yrði háttað einræði kornrn-
únistaflokksins hér, fengi hann utanaðkomandi liðstyrk til
þess að koma því á? Yfirlýsingar kommúnistaforingjanna nú,
sýna greinilega, hvers konar kúgunar- og ofbeldisstjórn
kommúnistar helzt hugsa sér. Þessar vesælu hótanir fyrirhitta
þó enga hér, í lýðfrjálsu landi, nema ofbeldismennina sjálfa,
og vekja fyrirlitningu allra sæmilegra manna.
Mörg eyfirzk skip
stunda togveiðar
og fiskflntninga
Mörg eyfirzk skip stunda um
þessar mundir togveiðar hér fyrir
norðan eða á fiskimiður sunnan-
lands og munu sjálf sigla með
aflann á erlendan markað.
Þessi skip eru m.b. Auður, m.b.
Narfi, v.s. Súlan, m.b. Eldey og
m.b. Haukur. Þá er v.s. Snæfell
að búa sig á togveiðar. E.s. Bjarki
hefir að undanförnu stundað
línuveiðar og sigldi fyrir
skemmstu með aflann til Bret-
lands. Seldi hann þar 1538 kits
fyrir 4553 sterlingspund í sl.
viku. A. m. k. þrjú skip héðan
hafa keypt fisk til útflutnings.
M.s. Stjarnan er nú á leið til
Bretlands með fiskfarm héðan úr
Eyjafirði, m.s. Akraborg hleður
hér um þessar mundir og m.s.
Sæfinnur hefir verið í fiskflutn-
ingum frá Austfjörðum.
Tillaga um að fela ríkisstjórninni að
undirrita sáttmálann til umræðu
á Alþingi í gær
Utanríkisráðíierrann flýgur vestur um haf
nú í vikunni
Síðastl. mánudag lagði ríkisstjórnin fram á Alþingi tillögu
til þingsályktunar um þátttöku íslands í Norður-Atlantshafs-
bandalaginu. Samkvæmt tillögunni er ætlast til að ísland ger-
ist stofnaðili að varnarsamtökum lýðræðisþjóðanna.
Tillagan er svohljóðandi:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórniimi að gerast stofnaðili
fyrir íslands hönd að Norður-Atlantshafssamningi þcim, sem
fulltrúar Bandaríkjanna,' Belgíu, Bretlands, Frakklands,
Hollands, Kanada og Lúxembúrg hafa orðið ásáttir um og
prentaður er sem fylgiskjal með ályktun þessari.
Umræður á Alþingi í gær.
Tillaga ríkisstjórnarinnar kom
til fyrri umræðu á Alþingi í gær.
Hófst umræðan kl. 10 árd. og stóð
Úthlutun skömmtunar-
seðla hafin
Uthlutun skömmtunarseðla fyr-
ir næsta skömmtunartímabil er
hafin í úlhlutunarskrifstofunni
hér og á henni að vera lokið 31.
marz. Nú um mánaðamótin falla
úr gildi kornvöru-, kaffi- og
hreinlætisvörureitirnir af núgild-
andi seðli, sömuleiðis skammtar
nr. 4 og 5 út á smjör. Ennfremur
falla úr gildi skammtar 9 og reit-
irnir L2—L6 úr skömmtunarbók
f. árs (smjörlíki). Vefnaðarvöru-
reitir, skómiðar og sokka-
skammtur (skammtur 2 og 3)
halda gildi sínu þetta ár. Ráðlegt
er að geyma reitina skammtur 1,
6 og 7, ef ske kynni að þeim yrði
gefið gildi síðar.
Kaupdeiluimi
í Ðalvík lokið
Hinn 24. þ. m. hófst verkfall í
Dalvík hjá verkalýðsfélaginu þar.
Höfðu samningaumleitanir fé-
lagsins og atvinnurekenda þá
strandað eftir að hafa staðið lengi
yfir og málinu skotið til héraðs-
sáttasemjara Þorst. M. Jónsson-
ar. Verkalýðsfélagið fór fram á
sama kaupgjald og greitt er fyrir
hliðstæða vinnu hér á Akureyri.
Sáttasemjari bar fram miðlunar-
tillögu, og á fimmtudaginn fór
fram atkvæðagreiðsla um hana.
Var tillagan þá felld með litlum
atkvæðamun. Kom þá til fram-
kvæmda áður boðað verkfall, en
það stóð stutt, því að á sunnu-
dag komu deiluaðilar sér saman
um lausn deilunnar og var sam-
komulagið að mestu leyti byggt á
miðlunartillögu sáttasemjai-a,
með nokkrum breytingum þó,
aðallega á kaupi kvenna.
mestan hluta dags. Var jafnvel
búizt við því í Reykjavík í gær-
kveldi að hún mundi standa fram.
á nótt, en annars mun ætlunin
hafa verið að hefja 2. umræðu
strax að 1. umræðu lokinni og af-
greiða málið í nótt. Ef kommún-
istar hins vegar tefja fyrri um-
ræðuna með málþófi fram á nótt-
ina, má búast við að 2. umræðan
verði ekki fyrr en í dag og ljúki
þá í kvöld eða nótt. — Umræð-
urnar í gær voru allhvassar á
köflum og héldu kommúnistar
uppi árásum á fyrirætlanir rík-
isstjórnarinnar og lýðræðisflokk-
anna. Aðrir höfðu ekki talað
gegn tillögunni, er blaðið ræddi
við fréttaritara sinn í Reykjavík
í gær.
Allt rólegt í Reykjavík.
Kommúnistar höfðu haft við
orð að hindra Alþingi með ofbeldi
að taka ákvörðun í málinu, en
ekkert bar á þeim viðbúnaði í
gær. Var allt með kyrrð og spekt.
Lögregluvörður var þó hafður
við Alþingishúsið. Margt manna
var á áheyrendapöllum allan
daginn. Þurftu menn aðgöngu-
miða að pöllunum og fengu þing-
menn 3 aðgöngumiða hver til af-
hendingar.
Utanríkisráðherran mun fljúga
vcstur.
Fyrirfram er vitað, að tillaga
ríkisstjórnarinnar verður sam-
þykkt með yfirgnæfandi meiri-
hluta. Hafa miðstjórnir og þing-
flokkar allra lýðræðisflokkanna
þegar lýst fylgi sínu við þátttöku
íslands í bandalaginu. Undir-
skrift sáttmálans mun fara fram
í Washington hinn 4 .apríl næstk.
og verða utanríkisráðherrar
bandalagsríkjanna þá saman-
komnir þar. Ætlað er að Bjarni
Benediktsson utanríkisráðherra
muni fljúga vestur nú seint í vik-
unni og undirrita sáttmálann af
hálfu íslands.