Dagur - 30.03.1949, Blaðsíða 8

Dagur - 30.03.1949, Blaðsíða 8
8 Daguk Miðvikudaginn 23. marz 1949 Deilan um bókainngflutninginn: Reykvískar bókaverzlanir fengu sjö sinnum meiri leyfi en allar bókaverzlanir úti á landi Gengið verður eftir því, að bækur komi út á veitt bókakaupaleyfi Blaðinu hefur borizt „fram- haldsathugasemd“ um bóka- og tímaritainnflutninginn á s. 1. ári frá formanni Fjárhagsráðs. Er þar greint frá- leyfis'veitingum Viðskiptanefndar til bóksala og annarra stofnana, en í fyrri greinargerð hafði Fjárhagsráð haldið því fram, að ónógum leyf- isveitingum væri ekki um að kenna að erlendar bækur og tímarit eru því sem næst horfin af bókamarkaði þjóðarinnar. Reykjavík fékk sjö sinnum meira en allir aðrir. í greinargerðinni er greint frá leyfisveitingum til 20 bókaverzl- ana í Reykjavík, samtals 633.000 krónur á s.l. ári, en utan Reykja- víkur fengu 17 bókaverzlanir leyfi fyrir 97.753 krónum, eða eklti nema um það bil 1/7 af þeirri fjárupphæð, sem reykvískir bóksalar fengu til umráða. Eru þetta fróðlegar upplýsingar og athyglisverðar og allgott sýnishorn af réttlæt- inu, sem ríkir í leyfisveitingum ríkisvaldsins. í greinargerðinni segir enn- fremur, að stofnanir, bókasöfn og skólar hafi fengið leyfi fyrir samtals 378.125 krónur, og loks að „ýmsir aðrir“ hafi fengið leyfi fyrir 179.752 krónur, eða nær því helmingi hærri upphæð en allar bókaverzlanir úti á landi fengu á árinu. Engar upplýsingar eru um það, hverjir þessir „ýmsir aðrir“ aðilar eru. Samtals verða því leyfisveitingarnar til bóka-, blaða- og tímaritakaupa á árinu 1948, skv. greinargerðinni, kr. 1.288.630. Greiðsla gamalla skulda. Eftir að hafa rakið þessar furðulegu leyfisveitingar þannig, segir formaður Fjárhagsráðs: „Við árslok hafa ekki verið ónotuð leyfi, svo að til framleng- ingar kæmi nema um 80.000 kr. Bækur blöð og tímarit ættu því að hafa komið inn í landið fyrir um 1.200.000.00 krónur, eins og áður var sagt. f yfirlýsingu formanns Bók- salafélagsins voru á hinn bóginn ekki taldir nema nokkrir leyfis- hafanna, og hún haggar því engu um þetta, þó að hún að öðru leyti geti verið rétt. í þeirri yfirlýsingu virðist ymprað á því, að allmikið af þessum leyfum hafi farið í greiðslur eldri skulda. En samkvæmt skýlausum yfir- lýsingum viðskiptanefndar og eftir athugun á leyfunum, er öll þessi leyfaupphæð bundin við innflutning bóka, blaða og tíma- rita og því óheimilt að nota leyf- in til annars. Hafi lítið komið af þessum vör- um til landsins á síðastliðnu ári, virðist því skýringin helzt vera sú, að bókaverzlanir eða aðrir hafi notað gjaldeyrishlið leyfanna til þess að greiða bækur, blöð eða tímarit, sem flutt hafa verið inn einhvern tíma fyrr, en þá ekki borgað, og valdið með því fá- tæktinni í bókabúðunum. Verði því haldið áfram má bú- ast við að lítið verði af útlendum bókum og tímaritum hér fram- vegis þó að ríflega séu veitt leyfi. Leyfisveitingar okkar fara þá til þess að borga löngu lesin og týnd ,,hasarblöð“, „móðinsblöð“ og aðrar betri bókmentitir undan- farinna ára. Skýrslur Hagstofunnar um bókainnflutning eru ekki full- komlega öruggur mælikvarði á innflutninginn. Þar er farið eftir tollaafgreiðslum einum, en þær skýrslur geta borizt seint, ekki sízt af þeim sökum að hér er ekki um tollvörur að ræða. Lögð hefir verið áherzla á það, að nú yrði gengið ríkt eftir, að bækur, blöð og tímarit komi raunverulega út á leyfin, sem veitt verða, og verður fróðlegt að sjá, hvort úr rætist.“ Lélegur afli hjá Húsavíkurbátum Frá fréttaritara blaðsins. Nokkrir bátar hafa stundað línuveiðar frá Húsavík í þessum mánuði ,en afli hefir verið mjög tregur það sem af er. F ramsóknar-whist annað kvöld Framsóknarfélag Akureyrar hefir Framsóknar-whist og dans að Gildaskála KEA annað kvöld kl. 8.30 e. h. Aðgöngumiðar við innganginn. Menn eru éminntir um að hafa með sér spil og blý- ant. Frumsýning á Mennta- skólaleiknum Nemendur Menntask. höfðu frumsýningu á sjónleiknum „Ærsladraugurinn" eftir Noel Coward s.l. mánudagskvöld. Leikstjóri er Jón Norðfjörð. Sýninga leiksins verður nánar minnst hér í blaðinu síðar. Skákþing Norðlendinga: Júlíos Bogason sigraði í meistara- flokki Skákþingi Norðlendinga, sem jafnframt var 30 ára afmælismót Skákfélags Akureyrar, lauk s.l. sunnudag. í síðustu umferð sigr- aði Júlíus Bogason Skákfél. Ak. Reykjavíkurmeistarann Eggert Gilfer og trj'ggði sér þannig sig- urinn í meistaraflokki. Gilfer tefldi á mótinu sem gestur. Júl- íus hlaut 51'2 vinning. Næstir urðu þeir þrír Eggert Gilfer, Jóhann Snorrason og Guðmund- ur Eiðsson með 5 vinninga hver, þá Jón Ingimarsson með 3 V2 vinning, Ottó Jónsson og Hallgr. Benedikttson með IV2 og Stein- þór Helgason með 1 vinning. í I. flokki sigraði Björn Hall- dórsson með 4V2 vinning. ■— Annai’ varð Haraldur Bogason með 4 vinninga og þriðji Albert Sigurðsson með 3V2. í öðrum fl. sigraði Sigurður Halldórsson, hlaut 8 vinninga. Að skákþingi loknu, hafði Skákfélag Akureyrar kveðju- samsæti fyrir Rggert Gilfer að Hótel KEA. Var jafnframt minnst 30 ára afmælis félagsins. Eggert telfdi í gær samtímaskák við nemendur Mentaskólans. í kvöld tekur hann þátt í hraðskákkapp- móti Skákfélagsins. Veglegur verðlaunagripur. Þeir Sigurður Hlíðar alþm. og Guðbrandur Hlíðar dýralæknir, hafa gefið veglegan verðlauna- grip til þess að kepa um á skák- þingum Norðlendinga. Var hann afhentur í hófinu að þessu móti loknu og hlaut Júlíus Bogason hann fyrstur manna. Gripur þessi er útskorinn taflkóngur, haglega gerður af Geir Þormar. Sá, sem vinnur hann þrisvar í röð, fær hann til eignar. •J. Góður fengur á Akureyrarpolli Frá því var sagt í síðasta tbl. er m.b. Gylfi fékk um 600 tn. síldar hér á Pollinum í fyrri viku. Fékk hann síldina í einu kasti. Lauk skipið við að háfa upp úr nótinni við bryggju á Oddeyrartanga og og þar tók Edvard Sigurgeirsson þessa ágætu mynd. Hafin úfgáfa ritsafns um Eyjafjörð Fyrsta bindi Eyfirðingarita, Lýsing Eyja- fjarðar eftir Steindór Steindórsson frá Hlöðum, kemur út bráðlega Eyfirðingafélagið hér er nú um það bil að hefja útgáfu ritsafns þess um Eyjafjörð, sem fyrirhug- uð var við stofnun þess. Innan skamms mun fyrsta bindi þessa ritsafns koma á markaðinn. Er það „Lýsing Eyjafjarðar“ eftir Steindór Steindórsson frá Illöð- um, auk háplöntuflóru héraðsins eftir Ingimar Óskarsson grasa- fræðing. Eýfirðingafélagið í Reykjavík stendur einnig að þessari útgáfu. Rit Steindórs ei’ landfræðilýsing héraðsins og er prýtt fjöldamörg- um myndum. Ætlast er til að seinna komi framhald ritsafnsins. — Verður þar gerð nánari grein fyrir nátt- Lömunarveikin (Framhald af bls 1) unni. Annars má segja að lömun- arveiki sé sjúkdómur, sem fylgir menningunni, ef svo má segja, og hann er útbreiddastur í hinum tempruðu beltum heims. Við búumst við því, að sjúk- dómsfaraldrar haldi áfram að koma upp hér í landi og það er ólíkt þvi, sem áður var. En nú erum við betur búnir að taka á móti með þvi að senda sérfróða menn þegar á vettvang, og ham- ingjunni sé lof fyrir það, að nú er hægt að gera miklu meira fyrir hvern einstakling, sem illa fer út úr veikinni, en maður gat látið sig dreyma um fyrir nokkrum árum. — Þannig lýkur þessu athyglis- verða viðtali. Til fróðleiks má geta þess, að þeir Akureyringar, sem nú dvelja erlendis vegna lömunar eru allir.undir umsjá dr. Clemmesen. úrufari héraðsins, gróðui’fari al- mennt, jarðfræði, dýrafræði og loftslagi. Þá yrði einnig lýst at- vinnuháttum, menningu, félags- lífi og raktar lýsingar á héraðs- búum, eftir því sem heimildir fást. Um þessa útgáfu segir Steindór Steindórsson svo í for- mála að riti sínu: „.. .. Hversu greiðlega gengur um samningu þess hluta, er mjög háð undir- tektum manna, um upplýsingar, því að mörgu af því efni verður einungis safnað meðal héraðsbúa sjálfra.“ Vafalaust munu héraðsbúar fagna því, að þessi útgáfa er hafin og stuðla eftir mætti að því, að framhald verði á henni á næstu árum. Blaðið mun síðar geta ýt- arlegar um þetta fyrsta bindi. Mjólkursamlaginu neitað um gjaldeyris- leyfi til flöskukaupa allt s. 1. ár. Blaðið hefir núið sér til Jónas- ar Kristjánssonar mjólkursam- lagsstjóra og spurt hann hvenær vænta megi þess að mjólk á flöskum verbi aftur á boðstólum í Mjólkursamlaginu. En eins og kunnugt er hefir mjólkursamsal- an í Reykjavík nú auglýst að hún muni hefja mjólkursölu á flösk- um bráðlega og hafi hún nægar flöskur fyrirliggjandi. — Jónas Kristjánsson sagði að allt síðast- liðið ár hefði samlaginu hér verið neitað um leyfi til þess að kaupa 20 þúsund flöskur til samlagsins. En leyfi hefði verið veitt nú í þessum mánuði og pöntun í iflöskurnar þá þegar gerð.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.