Dagur - 06.07.1949, Side 1
Forustugreinin:
Alikálfar íhaldsins þakka
krötunum fyrir sig.
Dagu
Fimmta síðan:
Fjöldaframleiðsla karl-
mannafatnaðar hafin í
Rvík. Vonandi sést eitt-
hvað af afurðum hér.
XXXII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 6. júlí 1949
28. tbL
Merkir íslendingar í boði ríkis-
sfjórnar og Þjóðræknisfélagsins
Dr. Vilhjálmur Stefánsson og Guðm. Grímsson
dómari komu íiingað til lands sl. fimmtudag
Yæntanlegir hingað til bæjarins nú í vikulokin
Dr. Vilhjálmur Stefánsson land-
könnuður og Guðmundur Gríms-
son dómari' og frúr þeirra, komu
hingað til lands frá Bandaríkjun-
um á fimmtudaginn var, í boði
fíkisstjórnarinnar og Þjóðrækn-
isfélagsins.
Gestirnir munu dvelja hér á
landi í boði þessara aðila í hálfan
mánuð, sumpart í Rvík og ná-
grenni, en auk þess er ákveðið að
fara í hringferð með Esju þann 5.
júlí austur um land hingað til
Akureyrar ,en þaðan landleiðina
til Reykjavíkur.
Fjórða skipti, sem Vilhjálmur
kemur til Islands.
Þetta er í fjórða sinn, að Vil-
hjálmur Stefánsson kemur
til íslands. — Fyrst kom
hann sumarið 1904 og kynnti sér
rit og bækur í Landsbókasafninu.
Sumarið eftir kom hann aftur og
ferðaðist um landið og gróf þá
upp dys í Borgarfirði, m. a. 86
hauskúpur, sem fluttar voru til
Ameríku og vöktu mikla athygli
fyrir það, að engar tennur í þeim
voru skemmdar. Þriðja skiptið,
1936, kom hann á vegum Pan
American Aerlines, til að athuga
möguleika á flugsamgöngum um
ísland.
Vinnur að alfræðiorðabók
um Norðurhöf.
Síðan 1935 hefir Vilhjálmur
unnið að alfræðiorðabók um
Norðurhöf, á vegum ameríska
hersins. Bókin verður mjög stór,
um 5 milljón orð og mun vera 12
sinnum stæi'ri en stærstabók,sem
Vilhjálmur hefir áður gefið út.
Fyrsta bindið mun koma út 1950
og það síðasta 1955, Auk hans
vinna 10 manns að samningu
bókarinnar, þ. á. m. Evelyn Stef-
ánsson, kona Vilhjálms.
Er talið barst að bókum minnt-
ist frú Stefánsson á, að hún hefði
séð að bók hennar „Á heimsenda
köldum" hefði komið út hér ný-
lega, og var hún mjög ánægð yfir
því.
Vilhjálmur Stefánsson á stórt
bókasafn, um 3000 bækur á ís-
lenzku og um 1500 bækur um ís-
land á erlendum tungum, aðal-
lega á ensku. En vegna fjárhags-
örðugleika hefir Vilhjálmur þó
ekki getað keypt allar bækur um
ísland eða íslenzkt efni, sem út
hafa komið á þýzku og frönsku o.
fl. málum, en allar bækur á
enskri tungu um þetta efni hefir
hann keypt.
Dimitrov dauður - og
Tito verra en dauður
Guðmundur Grímsson dómari.
Guðmundur Grímsson hefir
verið dómari í Rugby í Norður-
Dakota í 22% ár. Dómarar í Da-
kota eru kjörnir og eru kosningar
ópólitískar. í fyrsta skipti sem
Guðmundur bauð sig fram, var
annar maður einnig í kjöri. Guð- i
mundur vann kösninguna og síð-
an hefir hann alltaf verið einn í
kjöri.
í Norður-Dakota býr mikið af
Norðurlandabúum Þjóðverjum
og Rússum. Guðmundur hefir
komið áður til íslands og var hér
síðast á Þjóðhátíðinni 1930.
Búizt er við, að þessir ágætu
gestir komi með hraðferð Esju
austur fyrir land og hingað til
bæjarins nú í vikulokin .En 11. þ.
mán. halda þeii' héðan landveg
suðui' til Reykjavíkur aftur. Eftir
það ráða gestirnir ferðum sínum
algerlega sjálfir, en líklegt er, að
þeir fljúgi til Norðurlanda og
dveljist þar nokkrar vikur, en
munu koma aftur við hér á landi
á heimleið sinni til Bandaríkj-
anna.
hefur ákveSIS, a8 Laxár-
virkjunin fái þriðjung
arshall-lánsins
Áburðarverksmiðja ríkisins og Sogs-
virkjimin fá hinn hintann
Þau velta nú óðum af stalli hin
fyrri átrúnaðargoð kommúnista í
Balkanlöndunum og raunar víðar
í Austur-Evrópu. Dimitrof er dá-
inn, á sjúkrahúsi í nánd við
Moskvu, en Tito marskálkur er
enn lifandi við beztu lieilsu — og
svo undarlega bregður við, að
kommúnistum þykja hin síðari
tíðindin stórum verri hinum fyrri,
og fer svo jafnan, þegar allt geng
ur niður á við og norður á bóginn.
Fyrir bæjarstjórnarfundi, er baldinn var í gær, lá fundargerð raf-
veitustjórnar bæjarins frá 27. f. mán., en á þeim fundi mætti Bjami
Ásgeirsson atvinnumálaráðherra og skýrði hann frá því, að ákvörð-
un hefði verið tekin í ríkissíjórninni um það, að fé það, er ríkið fengi
sem Marshall-Ián yrði fyrst og fremst látið ganga til virkjunar Sogs-
ins, Laxár og hinnar væntanlegu áburðarverksmiðju ríkisins, og
„yrði þessum framkvæmdum gert jafnt undir höfði með þau fjár-
framlög,“ eins og þetta er orðað í fundargerð rafveitustjórnar, og
ber væntanlega að skilja það svo, að fyrirtæki þessi fái sinn þriðj-
unginn hvert af lánsfé bessu.
Ráðherrann gat þess hins vegar
í þessu sambandi, að ekki væri
enn unnt að ákveða hversu mikill
hluti framkvæmdakostnaðar yrði
lagður fram af Marshallfé, en af-
ganginn yi'ðu aðilar að fram-
kvæmdunum, ríkið, Reykjavík og
Akureyri, að leggja fram af inn-
lendu fé. Nefnd hefði verið skip-
uð til að gera áætlun um útveg-
un innlends fjár, í henni ættu sæti
Stefáni Islandi
heilsað með fögn-
uði og hrifningu
Troðfullt hús eftirvæntingar-
fullra aðdáenda Stefáns Islandi
óperusöngvara, heilsaði lista-
manninum með vaxandi fögnuði
og hrifningu, er hann hélt fyrstu
söngskemmtun sína í Nýja-Bíó
hér í bænum í fyrrakvöld. — Við
hljóðfærið var Fritz Weisshappel.
— Annar kafli söngskrárinhar
var sex smálög eftir íslenzka höf-
unda, en annars flutti söngvarinn
aðallega óperulög eftir erlend
tónskáld. Hin milda, en þó vold-
uga rödd Stefáns, sem þarflaust
er annars að lýsa fyrir söngelsk-
um íslendingum, fór yfirleitt og
langvíðast á sínurrí beztu kostum
að þessu sinni, þótt dálítilli hæsi
brygði fyrir í raddblænum á
stöku stað, en þó hvergi svo, að
verulega skyggði á heildarsvip-
inn, sem var með mildum ágæt-
um, enda var söngvaranum þakk-
að með dynjandi lófataki og fögr-
um blómagjöfum.
Rétt er að geta þess, að það
gerðist til tíðinda á söngskemmt-
un þessarri, og ungbarnsgrátur og
óvitahjal truflaði oft hina djúpu
Sauðlausf verður næsfa ár milli
Héraðsvafna og varnargirðinga
í Eyjafirði
Fjárskipti eru nú ákveðin af öllum, er hlut eiga að máli, á svæðinu
frá Héraðsvötnum að varnargirðingum í Eyjafirði. — Kom fram-
kvæmdanefnd fjárskiptanna saman á fund á Akureyri 27. f. ni.,
ásamt framkvæmdastjóra Sauðfjárveikivarna ríkisins, Sæmundi
Friðrikssyni. Voru þar rædd og ákveðin ýríiis undirbúnings- og
framkvæmdaatriði fiárskÍDtanna.
Ákveðið er, að áðurnefnt svæði
verði sauðlaust í eitt ár, þ. e., að
ekki verði leýfður innflutningur
á nýjum sauðfjárstofni fyrr en
þögn, er annars ríkti meðal
áheyrenda í húsinu, og lá meira
að segja við, að áhrif eins fegursta
og voldugasta lagsins, Addio eftir
Tosti, færu algerlega forgörðum
af þeim sökum. Auðvitað verður
óvitanum sjálfum ekki um þetta
kennt, en furðulega er það fólk
skapi farið, sem lætur það hvarfla
að sér að taka brjóstmylkinga,
eða því sem næst, með sér á slíka
mannfundi, og eiga auðvitað á
hættu að spilla með því listrænni
nautn og skemmtun mörg hundr-
uð manna. Víst mun slíkt fólk
fremur skorta eitthvað annað
dýrmætra, félagslegra eigin-
legleika en kjarkinn — svo að
ekki sé sagt óskammfeilnina—og
(Framhaid á 8. síðu).
haustið 1950. — Þó getur verið
um að ræða, að Saurbæjarhrepp-
ur fái leyfi til lambakaupa á
næsta hausti, finnist engin sjúk-
dómstilfelli þar við niðurskurð-
inn á hausti komanda. Svæði þau,
er sauðlaus eru í eitt ár, fá tvö-
faldan uppeldisstyrk, en séu lömb
flutt inn sama haust, aðeins ein-
faldan. Þá verður einnig slátrun
að hefjast mun fyrr á svæði, sem
lömb fær sama haust. Þá var
samþykkt áskorun til frarn-
leiðsluráðs landbúnaðarins, að
blutast til um, að fjárskiptasvæð-
ið fái hina fyllstu aðstöðu til sum-
arslátrunar og að reynt verði að
h'yggja jöfnuð í því efni.
Mörg önnur fyrirmæli voru
rædd og samþykkt, og verður
fundargerðin í heild send næstu
daga oddvitum og bæjarstjórnum
í hinum ýmsu hreppum og bæjar-
félögum, ér hlut eiga að þessu
máli.
Steingrímur Jónssow, rafveitu-
stjóri, Ásgeir Ásgeirsson, banka-
stjóri, og Vilhjálmur Þór, for-
stjóri. Nefnd þessi sæti nú á rök-
stólum.
Verða þetta að teljast góð
tíðindi og hafa málefni raforku-
vers okkar Akureyringa og nær-
sveitamanna þar með hlotið við-
unandi og sanngjarna afgi'eiðslu
af ríkisvaldsins hálfu að þessu
leyti. Er þess því vicsulega að
vænta, að fullur skriður komist
nú innan skamms á þessar bráð-
nauðsynlegu og aðkallandi fram-
kvæmdir.
Rétt er að getá þess í þessu
sambandi, að samkvæmt upplýs-
ingum efnahagssamvinnustofn-
unarinnar í Washington (ECA)
hefir ísland fengið 7,5 millj. doll-
ara af Marshallfé á síðustu 14
mánuðum, þar af í maímánuði
innkaupaheimild fyrir 1,2 mill-
jónum dollara. Af heildar-inn-
kaupaheimildinni, $ 7,5 millj., er
$ 2,3 millj. varið fyrir matvæli, en
af innkaupaheimildirini • fyrir
maímánuð, $ 1,2 millj., fara um
700 þús. dollarar fyrir íúargs kon-
ar vélrfr og tæki, en 500 þús. doll-
arar fyrir iðnaðarvörur ýmisleg-
ar.
Olíufélagið fii. liyggst
reisa nýja eftiiiits- og
þvottastöð fyrir
bifreiðar
Fyrir bæjarráðsfundi, er hald-
inn var 30. f. mán. lá erindi frá
Olíufélaginu h.f., þar sem farið
er fram á leyfi til þess að byggja
þvottastöð fyrir bifreiðar og bíla-
eftirlitsstöð sunnan Strandgötu,
vestan núverandi þvottastöðvar.
— Bæjarráð ákvað að vísa erind-
inu til umsagnar bæjarverkfræð-
ings.