Dagur - 06.07.1949, Page 2
2
ÐAGUR
Miðvikudaginn 6. júlí 1949
Afsfaða sfjórnarflokkanna
til kommúnisfa
í öllum löndum vestan járn-
tjaldsins er gengi kommúnista á
hraðri niðurleið. Við nýafstaðnar
kosningar í Belgíu hafa þeir tap-
að helmingi þeirra þingsæta, er
þeir áður höfðu. Þetta er vel
skiljanlegt. Lýðræðissinnaðir
menn sjá æ betur, að stefna
kommúnista í öllum löndum er í
því fólgin að þjóna skilyi'ðislaust
og í fullkominni blindni heims-
yfirráðastefnu valdhafanna í
Moskva, lúta þeirra vilja í öllu,
þó að það komi í bága við hags-
muni og velferð þeirra eigin
þjóða. Þjónar Stalins hér á landi
eru ekki eftirbátar annarra sam-
herja sinna um þrotlausa hlýðni
og þrælslega undirgefni gagnvart
fyrirskipunum frá Moskva. Það
sýnir m. a. hamslaus barátta
þeirra gegn þátttöku íslendinga í
Atlantshafsbandalaginu og aðstoð
þeirri til þrautpíndra þjóða, sem
kennd er við Marshall.
-k
Forvígismenn Sjálfstæðisfl.
ganga þess ekki duldir, að yfir-
gnæfandi meiri hluti íslenzku
þjóðarinnar er með öllu andvígur
hinni óþjóðhollu stefnu komm-
únista og baráttuaðferðum þeirra.
Þess vegna leggja þeir nú mikla
áherzlu á að láta líta svo út, að
þeir séu sjálfkjöinir til að berjast
gegn kommúnistaflokknum hér
á landi og kveða hann niður. Þess
vegna er Morgunblaðið dagsdag-
lega látið flytja háværar og stór-
yrtar skammagreinar um komm-
únista, sem ætlast er til að sýni
barúttuhug Sjálfstæðisflokksins
til þessara þjóna Stalins. „Sendið
mig í málmagný móti þessum
fjanda“ er undirtónninn í
skammagreinum aðalmálgagns
Sjálfstæðisflokksins um komm-
únista.
Andstæðingar kommúnista,
hvar í flokki sem eru, harma það
að vísu ekki, að Mbl. segi komm-
únistum rækilega til syndanna í
dálkum sínum. Það er út af fyrir
sig góðra gjalda vert. Þó er enn
þyngra á metunum, að Mbl. og
Sjálfstæðismenn yfirleitt sýni
andúð sína gegn kommúnistum í
verki, en ekki aðeins í orðum,
en á þetta hefir mjög skort á und-
anförnum árum og gerir enn. —
Skal þetta nú rökstutt hér á eftir.
*
Þann 20. febr. 1942 farast Mbl.
svo orð um kommúnista:
.„Kommúnistum er það ljóst
ckki síður en öðrum, að því meiri
sem dýrtíð verður í landinu, því
erfiðara verður björgunarstarfið,
og cf ekkert er aðgert er alls-
hcrjarhrun óumflýjanlegt. En
það er einmitt það, sem kommún-
istar sækjast eftir, því að þá er
von til þess, að jarðvegur fáist
fyrir undirróðurs- og byltinga-
starf þeirra.“
Þessi ummæli Mbl. er ótvíræð'-
ur vitnisburður um það, að leið-
togai- Sjálfstæðisflokksins vissu í
ársbyrjun 1942, að tilgangur
kommúnista var að koma á alls-
herjarhruni hér á landi. Forvíg-
ismenn Alþýðuflokksins sáu þetta
einnig.
Um þessar mundir gaf Mbl.
kommúnistum þann vitnisburð,
að þeir væru „gersneyddir allri
ábyrgðartilfinningu og ættu eng-
an tilverurétt.“
í þingræðu 1942 lýsti Ólafur
Thors hinu ægilega ástandi, er
vaxandi dýrtíð myndi skapa. Að
því loknu sagði. hann:
„En kommúnistar vilja þetta.
Þeir skilja það hvað í vændum er,
ef þjóðin æðir áfram í gullleit og
gróðavímu á feigðarbraut vax-
andi dýrtíðar. Þeir sjá hrunið,
sem þá bíður Islendinga, verð-
leysi peninganna, afnám eignar-
réttar, upplausn sjálfs þjóðskipu-
Iagsins“.
Um sömu mundir kallar Ólafur
Thors kommúnista „þjóna erlends
k.úgunarvalds“, sem hafi „löngun
til að láta illt af sér leiða“, og
séu ekki svaraverðir.
Af slíkum hreystiyrðum úr
herbúðum Sjálfstæðisflokksins
um ska.ðsemi kommúnista er
nægur forði, þó að hér verði ekki
fleira tilgreint. En öll reyndust
stóryrðin aðeins „orð, orð innan-
tóm“. Verkin gengu í þveröfuga
átt við órðagjálfrið. Leiðtogar
Sjálfstæðisflokksins tóku ásamt
Alþýðuflokksforingjum höndum
saman við kommúnista um að
leiða yfir þjóðina bölvun dýrtíð-
arinnai',. sem Ólafur Thors og
Mbl. höfðu verið svo margmál um
áður.
*
Samstarf Sjálfstæðisflokksins
og Alþýðuflokksins við kommún-
ista endaði með skelfingu eins og
kunnugt er. Erlendi gjaldéyririnn
var þrotinn, ríkissjóðurinn févana
og aðalatvinnuvegirnir reknir
með tapi. Sjálfstæðisflokkurinn
ber aðalábyrgðina á þessu
ástandi. Hann vildi óðfús hníga í
faðm hinna rauðu til stjórnar-
myndunar, að því er Gisli Sveins-
son hefir frá skýrt. Hann hjálpaði
kommúnistum til aukinna áhrifa
í verkalýðsfélögum og Alþýðu-
sambandinu og hlóð þannig undir
þá á ýmsan hátt. Það er því Sjálf-
stæðisflokkurinn, sem um árabil
ól kommúnistasnákinn við brjóst
sér og efldi hann til áhrifa í því
apgnamiði að láta hann lyfta sér
til æðstu valda til hagsældar auð-
kóngum og braskaralýð höfuð-
staðarins ,en til niðurdreps fyrir
farmleiðsluna og atvinnulífið í
landinu. Þenna sapnleika mega
kjósendur ekki láta sér úr minni
líða þegar kemur að næstu kosn-
ingum.
Sjálfstæðismenn áfellast komm-
únista harðlega fyrir ofbeldistil-
raunina gegn Alþingi, þegar sam-
þykkt var þátttaka íslands í Atl-
antshafsbandalaginu. Þetta athæfi
kommúnista fordæma allir rétt-
sýnir menn. Þó hafa kommúnist-
ar eina afsökun, þó að þeir muni
ekki hafa brugðið henni fyrir sig.
Þeir höfðu fyrirmynd frá Sjálf-
stæðisflokknum. Sú fyrirmynd
fólst í skrílvikunni 1931, sem
Sjálfstæðisflokkurinn efndi til, og
var svo æðiskennd að óttast var
um líf nokkurra. fyrirliða Fram-
sóknarfl. í Reykjavík. Þjóðin
fordæmdi aðfarir Sjálfstæðis-
flokksins 1931, og hún fordæmir
skrílslæti kommúnista 1949.
*
Þegar litið er á afstöðu núver-
andi stjórnarflokka til kommún-
ista á undanförnum árum, kemur
það í ljós, að annan sprettinn hafa
Sjálfstæðismenn legið í illdeilum
við þá, en hinn sprettinn í inni-
legum, pólitískum faðmlögum.
Alþýðuflokkurinn hefir tekið
þátt í hvorutveggja. Nú stendur
yfir illindatímabil. En sagan get-
ur endurtekið sig. Mbl. hefir áður
ausið kommúnista skömmum og
svívirðingum, stimplað þá leigu-
þræla erlendrar kúgunar og
skaðræðisgripi á innlendum vett-
vangi, alveg eins og nú, og síðan
í skyndi sætzt við þá fullum sátt-
um. Svo var það 1942, þegar
Sjálfstæðismenn settust að völd-
um í skjóli kommúnista og Al-
þýðuflokksins, og þó einkum
1944, þegar tveir af núverandi
stjórnarflokkum gengu í flat-
sængina með kommúnistum. Að
vísu losnaði þá fjórði hluti Sjálf-
stæðisflokksins í bili úr tengslum
við hann af þessum sökum, svo
ofbauð honum „kollsteypan". Og
hver getur treyst því, að ný „koll-
steypa“ verði ekki aftur gerð,
þrátt fyrir allar yfirlýsingar
Sjálfstæðisflokksins ög Alþýðufl.
um það, að Sósíalistafl. sé ekki
samstarfshæfur lengur?
Framsóknarflokkurinn einn
hefir aldrei bundizt kommúnist-
um til stjórnarsamvinnu. í það
eina skipti, er það kom til tals,
sneru Framsóknarmenn frá þeirri
samstarfstilraun með viðbjóði og
lýstu yfir því, að enginn ábyrgur,
frjálslyndur lýðræðisflokkur gæti
bundið bagga með þeim.
Það er því hámark ósvífninnar,
þegar blöð Sjálfstæðisflokksins
eru við og við að ympra á því, að
þjóðinni stafi hætta af löngun
Framsóknarmanna til stjórnar-
samstarfs með kommúnistum.
Það voru ekki Framsóknarmenn,
sem gerðu dýrtíðarbandalagið
við kommúnista 1944, sem hefir
haft svo örlagaþrungnar afleið-
ingar. Það var Sjálfstæðisflokk-
urinn og Alþýðuflokkurinn, sem
það gerði.
Þess vegna er það skylda allra
þjóðhollra, frjálslyndra umbóta-
manna í landinu að stj’ðja Fram-
sóknarflokkinn og veita honum
öruggt fylgi . Á þann hátt er bezt
unnið á móti skemmdarstarfi
kommúnista, enda er þeim ekki
eins illa við neitt og frjálslyndan
umbótaflokk.
komið aftur.
Hárgreiðslustofan
BYLGJA,
•.iiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimiiiimMiiiiiMmiiiiimiiiiiiiiiiniiiimiiiiiiiiminiiiiiiiimimi 111111111111111111111111111111 ,
I Kappreiðar |
Hestamannafélagið Léttir efnir til kappreiða á i
i skeiðvelli lelagsins sunnudaginn 24. jiilí næstk. i
Í kl. 2 e. h. Lokaæfing miðvikudaginn 20. s. m., |
i kl. 8 að kvöldi. — Þátttaka tilkynriíst í síðasta i
i lagi á lokaæfingunni. i
STTÓRNIN
immimmmmmmimiMimm
HÚS
IMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMI
í Efri hæð og hálfur kjallari á Klapparstíg 3 er i
i til sölu, ef viðunandi boð fæst. Til sýnis á mánu- i
i dag, þriðjudag og miðvikudag, í næstu viku, kl. i
| 6—8 e. h. — Tilboð óskast send á Eyrarveg 14 i
i fyrir 20. þ. m. s
| GÍSLI IvRISTINSSON f
• •'inmuiimmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmí
MlMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMI IIIIIIIIIII11IIIIII11IIIIIIIIIIIII111IIIIIIIII111IIIIIIIIIIIIIIIIIIII
ÍTJÖLD |
I 2—4 — 6 rnanna i
TJALDBOTNAR,
BAKPOKAR,
HLIÐARTÖSKUR,
SNYRTIÁHALDAPOKAR,
REIÐHJÓLATÖSKUR, stórar,
VEIÐIFLUGUVESKI,
o. m. fl.
BRYNJÓLFUR SVEINSSON H.F
Sími 580. - Pósthólf 125.
Tæki
og efni til innrömmunar
til sölu í
Skipagötu 4.
Önnurast
alla garðvinnu,
svo sem:
VORVINNU,
ÚÐUN,
GRISJUN,
VIÐHALD
HARMSEN & MÖLLER
Sími 406.
Nófakorkur
Jdrn- og gleruörudeild.
Gullhrin gur,
með steini, hefir tapazt á
leið frá kirkjugarðinum,
norður Þórunnarstræti, nið-
ur Bjarkastíg og Krabba-
stíg og norður Oddeyrarg.,
að Hólabraut 15. — Finn-
andi skili ;í lögregluvarð-
stofuna gegn fundarlaununt
IIIIMIII.Mlllllllllll.IMMMMMIIIMIMI.MIIIIMMl
Góður harnavagn
til SÖlll í
Norðurgötu 47 (uppi).
Sjóklæði
Útgerðarvörur
afls konar.
Fjölbreytt úrval.
Jdrn- og glervörudeildin.
Stálvírar
5/s- %■ 1. 1/4. llA’
uy4, 2, 214 og 2i/2"
Benslavír
J/4- 5/l0. Ys"
Vírmanilla
I/2- 1%- 2, 2i/4,
2/2"
Járn og glervörudeild.