Dagur - 06.07.1949, Side 8
8
Daguk
Mi'ðvikudaginn 6. júlí 1949
Sönguu sólskin og fögnuður í fylgd með Sunnukórnum imi Norðurland
Sunnukórinn frá ísafirði koin hingað með Esju á
föstudagsmorgun. — Allir kórar bæjarins tóku á
móti sönggestunum á bryggjunni.
Var Sunnukórnum heilsað með því, að Kan-
tötukór Akureyrar söng undir stjóm Björgvins
Guðmundssonar, síðan flutti Ármann DalmannS-
son kórnuín ávarp, en karlakórar bæjarins Sungu
eitt lag sameinaðir undir stjórn Ingimundar
Árnasonar.
Sunnukórinn svaraði með ávarpi, sem förmaður
þeirra, Ólafur Magnússon, flutti, en síðan söng
kórinn eitt lag. — Að þessu loknu fóru allir kór-
arnir til kaffidrykkju á Hótel KEA.
Sunnukórinn liélt fyrsta samsöng sinn í Nýja-
Bíó á föstudagskvöldið undir stjórn Jónasar
Tómassonar. Húsfyllir var og almenn hrifning. —
í byrjun samsöngsins reis Kantötukór. Akureyrar
úr sætum sínum á svölum bíósins og söng eitt lag
eftir songstjóra Sunnukórsins, Jónas Tómasson.
Síðan flutti kórinn söngskrána við mikil fagnaðar-
læti. Bárust kórnum og einsöngvurum mikill f jöldi
blóma og varð flokkurinn að endurtaka ýms lögin
og syngja mörg aukalög. Er söngskránni var lokið,
kvaddi Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri sér hljóðs
og flutti söngstjóranum og kórnuip þakkir áheyr-
enda og bæjarins, en formaður Súnnukórsins
þakkaði. Eftir óskum formanns og söngstjóra
Sunnukórsins, kom Kantötukór Akureyrar upp á
söngsviðið til Sunnukórsins, og sungu kórarhir
saman „íslands lag“ eftir Björgvin Guðmundsson, undir stjóm höfundar. — Undirleik fyrir Sunnukórinn annaðist Ragnar II. Ragnars söngkennari. — Sunnukórinn söng
hér aftur á laugardaginn kl. 2 og hélt síðan auslur í Vaglaskóg í boði bæjarkóranna. — Á sunnudaginn söng kórinn í Laugaskóla kl. 2 og á Húsavík sama dag kl. 9 um
kvöldið. — En kirkjuhljómleika hélt kórinn hér í gærkvöldi. — Héðan mun för hans heitið til Siglufjarðar.
Útsvarsskráin komin út
Heildarupphæð útsvaranna hærri en nokkru
sinni áður
Niðurjöfnun útsvara og álagningu skatta hér á Akureyri er ný-
lega lokið, og kom útsvarsskráin út sl. fimintudag — heilmikil bók
og prentuð í þetta sinn, en ekki aðeins fjölrituð, eins og verið hefir
að undanfömu, og frágangur allur betri en áður — hið ytra a. m. k.
hvað sem innihaldinu líður, en um það munu auðvitað harla skiptar
skoðanir eins og lengstaf áður. — Hér skal getið einstaklinga og
stofnana, er bera 10 þús. kr. útsvar og þar yfir, og ennfremur
þeirra, er hafa 15 bús. kr. tekjuskatt og þar yfir.
Leikför Leikfélags Reykjavíkur:
Yolpone hefir hlotið góða dóma
Leikurunum fagnað vel á frumsýningunni
Einstaklingar:
Auðun Auðunarson stýrimaður
15860, Aspar Jón loftskeytamað-
ur 13920, Eðvarð Sigurgeirsson
ljósmyndari 13650, Egill Jó-
hannsson skipstjóri 12110, Frið-
jón Skarphéðinsson bæjarfógeti
10070, Friðrik Magnússon lög-
fræðingur 12180, Gaston Ás-
mundss. byggingameistari 12550,
Guðmundur Karl Pétursson
sjúkrahússlæknir 11440, Helgi
Skúlason augnlæknir 17320
Indriði Helgason rafvirkjameist-
ari 17980, Jakob Frímannsson
framkvæmdastjóri 10420, Jakob
Karlsson afgreiðslumaður 21560,
Jóhann Guðmundsson sjómaður
12500, Jónas Þorsteinsson stýri-
maður 14000, Kristinn Guð-
mundsson skattstjóri 10840,
Kristján Jónsson bakarameistari
22710, Kristján Kristjánsson bif-
reiðaeigandi 17480, Páll Sigur-
geirsson kaupmaður 12340, Stefán
G. Reykjalín byggingameistari
10200, Sigurður O. Björnsson
prentsmiðjustjóri 11200, Sæ-
S. R. byrjar síldarmót-
töku á morgun
Enn er ekki vitað endanlega um
þátttþáttöku í síldveiðunum, en í
gær höfðu um 100 skip gert lönd-
unarsamninga við Síldarverksm.
ríkisins. Búast má við að nokkru
fleiri skip bætist í hópinn, áður en
síldarmóttaka hefst.
mundur Auðunarson skipstjóri
33250, Valgarður Stefánsson
kaupmaður 24710, Þorsteinn M.
Jónsson skólastjóri 11510, Þór
Sverfir skipstjóri 10930.
Stofnanir:
Amaro klæðagerð h.f. 41320,
Bifreiðastöð Akureyrar h.f. 31390,
Bókaforlag Þorst. M. Jónssonar
19390, BSA-verkstæði h.f. 18940,
Byggingavöruverzlun Akureyrar
h.f. 13360, Kaffibrennsla Akur-
eyrar h.f. 18590, Kaupfélag Ey-
firðinga 101540, Nýja kjötbúðin
h.f. 11160, Olíuverzlun íslands h.f.
19000, Prentverk Odds Björns-
sonar h.f. 19570, Samband ísl.
samvinnufélaga 84180, Skóverk-
smiðja J. S. Kvaran h.f. 10960,
Smjörlíkisgerð Akureyrar h.f.
29050, Stefnir bifreiðastöð s.f.
10270, Steinsteypuverkstæði Ak-
ureyrar s.f. 22200, Sælgætissalan
s.f. 10080, Útgerðarfélag Akur-
eyringa h.f. 27240, Útgerðarfélag
KEA h.f. 15210, Valhöll h.f. 11460,
Verzlun Eyjafjörður h.f. 13350.
Skattar.
Skatta yfir 15,000 kr. hafa
þessir: Kaupfélag Eyfirðinga
292,606, Sæmundur Auðunarson,
skipstjóri, 61,906, Amaro, klæða-
gerð, 25,744, Steinsteypuverkst.
Akureyrar s.f. 21,660, Valgarður
Stefánsson, heildsali, 21,216,
Skömmtunarreitir,
sem halda gildi sínu
til næstu mánaðamóta
Ákveðið hefir verið, að ýmsir
skömmtunarreitir á þeim tveimur
skömmtunarseðlum, sem gefnir
hafa verið út fyrri hluta þessa árs,
haldi gildi sínu til næstu áramóta.
Af fyrsta skömmtunarseðli
þessa árs eru það vefnaðarvöru-
reitirnir 1—400, skómiðarnir 1—5
og skammtarnir 2—3 (sokkamið-
ar). Af öðrum skömmtunarseðli
þessa árs halda gildi sínu vefnað-
arvörureitirnir 401—1000 og
sokkamiðarnir 1—2.
Auk þessa gildir yfirfataseðill-
inn til septemberloka eins og áð-
ur hefir verið skýrt frá.
Fólki er bent á að geyma vand-
lega skammta 8—11 af öðrum
skömmtunarseðli þessa árs, ef til
þess kæmi, að þeir yrðu látnir
taka gildi síðar.
—■ Stefán Islandi
(Framhald af 1. síðu).
ætti slíkt aldrei að líðast átölu-
laust. En ekki verður þó sagt, að
þeir (að vísu örfáu) áheyrendur,
er leyfðu sér að vera að skrjáfa í
sælgætispokum, meðan á söngn-
um stóð að þessu sinni, taki að-
standendum hins saklausa barn-
vesalings stórum fram um
smekkvísina, félagsþroskann og
tillitssemina við náungann.
Óperusöngvarinn endurtekur
söngskemmtun sína í kvöld í síð-
asta sinn.
Kristján Kristinsson, forstjóri,
20,119, Þorsteinn Auðunarson,
skipstjóri, 19,972, Jakob Karlsson,
afgreiðslumaður, 19,871, Bifreiða-
stöð Akureyrar, 18,188, Kristján
Jónsson, bakari, 16,031, Helgi
Skúlason, augnlæknir, 15,180,
Smjörlíkisgerð Akureyrar 15,044.
Frumsýning Leikfélags Reykja-
víkur á Volpone var fjölsótt og
ánægjuleg. Leikararnir skiluðu
hlutverkum sínum með mikilli
prýði og sumir sem sérstökum
ágætum, svo að vafasamt er,
hvort jafnbetur hafi verið leikið
öðru sinni á leiksviði hér af svo
fjölmennum hópi. Leikritið sjálft
er raunar ekkert sérstakt lista-
verk, þótt það sé eftir Ben gamla
Jonson, (sem sennilega hefir ver-
ið íslenzkrar ættar og ætti því
líklega að réttu lagi að heita rétt-
ur og sléttur Benzi Jónsson á
okkar máli) þótt honum tækist á
sínum tíma að slá meira ryki í
augu enskra leikhússgesta en
sjálfum Shakespeare, og væri því
um skeið haldinnmeirisjónleikja-
höf. en hann. En leikurinn er
hressilegur og „spennandi“ á
köflum ,en mundi þykja grófur
og ruddalegur úr hófi fram, ef
hann væri t. d. eftir íslenzkan nú-
tímahöfund. En miðaldahöfundar
gátu brugðið slíkum munnsöfnúði
fyrir sig, þegar þannig stóð í bólið
þeirra, engu síður en nútíma-
menn, en í dauðum munni og
framandi fer slíkt auðvitað ætíð
betur að öðru jöfnu en i lifandi
og nálægum, eins og annar skáld-
skapur og andlegheit.
Að sýningunni lokinni voru
leikararnir og leikstjórinn, Lárus
Pálsson, ákaft hylltir með lófataki
og blómagjöfum. Formaður L. A.,
Guðm. Gunnarsson, og Steindór
Steindórssonmenntaskólakennari
ávörpuðu gestina með velvöldum
þakkarorðum, en formaður L. R.,
Gestur Pálsson, þaltkaði fyrir
hönd gestanna.
Blaðið hefir ekki átt þess kost
að fylgjast með því, sem síðar
gerðist í sambandi við leikför
þessa, en leikurinn mun þó hafa
verið oftar sýndur en í þetta eina
sinn, og tilheyrandi veizluhöld
farið fram á réttum stöðum og
stundum.
Elliheimilinu ætlaður
staður við Þórunnar-
stræti, norðan
Búðargils
Gamli spítalinn og lóðir hans
ekki álitinn hentugur staður íyrir
slíka stofnun, svo sem áður liaíði
verið ráðgert.
Bæjarráð hefir á fundi sínum
30. f. mán. tekið til athugunar
bréf frá Kvenfélaginu Framtíðin,
þar sem félagið sækir um að því
verði ætluð lóð austan Þórunn-
arstrætis og norðan Búðargils
fyrir væntanlegt elliheimili, þar
eð það telur ekki ráðlegt að nota
gömlu byggingar sjúkrahússins
eða þær lóðir, sem áður var ráð-
gert að nota undir elliheimilið. Þá
fer kvenfélagið fram á að bærinn
heiti félaginu fjárhagslegum
stúðningi í stað þess framlags,
sem áður var fyrirhugað með af-
hendingu gamla sjúkrahússins til
félagsins.
Bæjarráð leggur til að kvenfé-
laginu verði afhent umbeðin lóð
samkvæmt nánari útmælingu og
að fengnum tillögum skipulags-
nefndar ríkisins, en frestað sé að
taka ákvörðun um fjárhagslegan
stuðning að svo stöddu.