Dagur - 31.08.1949, Blaðsíða 8

Dagur - 31.08.1949, Blaðsíða 8
Bagub Miðvikudaginn 31. ágiist 1949 VinnubrÖgðin við haínarmannvirkitt þykkja þær og búið að kaupa mikið efni erlendis frá, miðað við þessar framkvæmdir. Þegar svo á til að taka dettur botninn úr öllum áætlunum, þær eru ekki framkvæmanlegar, og þá er í skyndingu samin ný áætlun og hún samþykkt á aukabæjar- stjórnarfundi eftir 1—2 daga viðræður við forráðamenn Vitamálaskrifstofunnar. > if • 4 á m Slælega á málum haldið. Vonlegt er að bæjarmenn séu undrandi yfir þessum vinnu- brögðum öllum og tortryggnir um ágæti hinna nýju áætlana. Sýnt er, að Vitamálaskrifstofan, sem tók að sér yfirumsjón með stækk- un bryggjunnar, hefir unnið mjög slælega að málinu og áætlanir hennar og teikningar hafa ekki verið nægilega undirbúnar. — Ekki verður því þó um kennt, að tíma hafi skort til rannsókna, þar sem málið hefir legi í salti mánuð eftir mánuð. Sýnt er ennfremur, að bæjaryfirvöldin hafa sofið á málinu, hvorki unnið nægilega að því, að málið væri ekki saltað á skrifstofu í Reykjavík, né gætt þéss að teikningar og áætlanir væru framkvæmanlegar, áður en efni er pantað og lagt í annan kostnað. Ber þetta vissulega ekki fagurt vitni árvekni ráðsmanna bæjarfélagsins um velferðarmál þess og hagsmunamál, þótt að- kallandi séu, eins og endurbætur hafnarbryggjunnar. Hin nýja áætlun. Hér skal enginn dómur á það lagður, hvort hin nýja áætlun sé betri eða lakari en hin fyrri. Má og vel vera, að ekki sé óheppileg lausn á bryggjumálum bæjarins, að byggja fyrirhugað bólverk austan Strandgötu. En málið ber þannig að, að ekki er nema von- legt að menn séu tortryggnir og óttist að undirbúningur sé sem fyrr ærið losaralegur. í fundar- gerð bæjarstjórnarinnar frá sl. fimmtudegi segir svo um mál þetta: „Vitamálastjóri leggur til, að haftt verði við að breikka Torfunefs bryggjuna, en járnþil sett suðaustan á hana. Verður [já mikið bryggju- efni afgangs, og leggur vitamála- stjóri til, að það verði notað til þess að gera nýtt bólverk við Strandgötu vestan til. Á bak við bólverkið verði fyllt upp með því efni, sem grafa þyrfti upp framari við það. Astæður fyrir breytingartillögu þessari eru einkum þær, að á þenii- an hátt fæst aukið viðlegúpláss fyrir skip, auk þess telja verkfræðingar vitamálanna sjávarbotninn sunnan við Torfunefsbryggjuna svo lélegan, að vafasamt sé, að bryggjan verði algerlega trygg, ef hún er breikkuð eins og ráðgert hefir verið. Eftir mjög ýtarlegar umræður og athuganir, samþykkti nefndin sam- hljóða tillögu vitamálastjóra. Nefndin fer fram á við vitamála- stjóra, að áætlun um legu og gerð hins fyrirhugaða hafnarbakka sunn- an Strandgötu verði hraðað sem unnt er, svo að hægt verði að byrja á þeim framkvæmdum í næsta mán- uði, ennfremur að hanti leiti sam- þykkis skipulagsnefndar fyrir þessu skipulagi hafnarinnar. Ennfremur fer nefndin þess á leit við vitamálastjóra, að hann leiti eftir leigu á uppmokstursskipi nteð sanddælu." Ekki er ennþá fullkomlega frá því gengið, hvar hinn fyrirhugaði haínarbakki skuli standa, en talað er um ca. 100 m suður af Strand- götu. Þá er gert ráð íyrir, að önnur gata verði sunnan við Strandgötu og einnig verði nægilegt pláss fyrir rúmgott hafnarhús. Þá heiir ekki heldur verið frá því gengið, hvort hafnarbakkinn verður suður af svæðinu milli Gler- árgötu og Norðurgötu eða Lundar- götu og Grundargötu. Norðmenn fjórða mesta fiskveiði- þjóð heimsins Fimm þjóðir veiddu 30% af heildar fiskaflanum Matvæla- og landbúnaðarstofn- un Sameinuðu þjóðanna hefir gefið út skýrslu um fiskveiðar þjóða heimsins á árinu 1948. Er þar að finna margvíslegan fróð- leik uth fiskVeiðar hinna ýmsu þjóða og framleiðslumagn. í skýrsunni segir m .a. að fyrir stríðið hafi Japanar verið mesta fiskveiðaþjóð heimsins, hafi aflað 22% áf öllu fiskmagni, sem á land kom, næst voru Bandaríkin með 11%, Sovét-Rússland 9,3%, Kina 7.9%, Bretland 6,4%, Kórea 5,6%, Noregur 5,4%, índland, ír- an og Burma með 5,4%. Þýzka- land 4,3%, Kanada 3,3%. 1 árslok 1947 voru Japanir farnir að veiða 14% af heildaraflanum og voru þá aftur orðnir mesta fiskveiða- þjóðin. Aðrar þjóðir höfðu veiði sem hér segir: Bandaríkin 12,%, Rússlgnd 9,3%, Noregur 8,7%, Bretland 6,4% og Kanada 5,7%. Veiðimagn Kanada hefir mjög aukizt, eða úr 3,3% fyrir stríð í 5,7% árið 1948. Þetta stafar m. a. af því, að nú er veiðimagn Nýja- fundnalands lagt við. Mikil aukning fiskveiða Norðmanna. Einna athyglisverðast við skýrsluna er það, að aflamagn Norðmanna hefir aukizt um 55%, eða úr 5,6% af heildaraflamagni heimsins í 8,7%. Skýrslan skýrir frá því, að á árinu 1948 hafi 30% af heildar- aflamagninu (5.500.000 tonn) komið frá fimm þjóðum: Banda- ríkjunum, Noregi, Bretlandi, ír- landi, íslandi og Finnlandi. í skýrslunni er ekki getið um hver sé hlutur íslendinga í heild- araflamagninu, en vitað er, að miðað við fólksfjölda eru íslend- ingar mesta fiskveiðaþjóð heims- ins og veiða mest fiskmagn á íbúa. Hljómleikar Rögnvald- ar Sigur jóttssonar verða á fimmtudaginn Rögnvaldur Sigurjónsson píanó- Ieikari mun halda hljómleika hér fimmtudaginn I. n. m. Ber að fagna slíkum viðburði. Rögnvaldur hefir þegar, þó ungur sé, hlotið þau um- mæli, innan lands og utan, að hann sé afburða listamaður, skapríkur, músíkalskur og leikni hans með ó- líkindum. Rögnvaldur mun að þessu sinni leika preludie og fuga í a-moll eftir Bach-Liszt, sónötu í a-moll eftir Schubert, en síðari hluti efnisskrár- innar er eingöngu helgaður Cho- pin, en á þessu ári eru eitt hundrað ár liðin frá andláti hans (hann and- aðist 17. október 1849). Er haris, svo sem eðlilegt er, minnzt á viðeig- andi hátt um allári hinri menntaða heim einmitt um þessar mundir. Mun Rögnvaldur leika eftir hann tvær baílödur (í g-moll og F-dúr), ásamt sex smærri verkum. Þess er að vænta, að Aktireýring- ar fjölsæki jiessa hljómleika. Það er ekki á llverjúm degi, sem þeim er boðið til slíks hnossgætis. Skal illa iiðru trúað, en að þeir fylli sal- inn á fimmtudaginn, og sanni með því þann almannaróm, að gott sé músíkmönnum að gista höfuðstað Norðurlands, enda þótt út af því hafi stundum brugðið á raunaleg- an hátt. S. B. - Félag ungra Framsóknarmanna í Eyj afj arðarsýslu heldur almenn- an fund hér í bænum sunnudag- inn 17. sept. næstk. Fundartími og dagskrá auglýst síðar. Baráttan við malaríuna Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna (WHO) hefir beitt sér fyrir herferð gegn malaríunni, sem er ein hin mesta plága í suðlægum löndum. Notað er nýtt eiturlyf, sem grandar moskítóflugunni, sem sýkina ber. — Myridin sýnir starfsmenn WHO að starfi nálægt Ankara í Tyrklandi. Verklegt nám fyrir pilta úr sveitum í Handíðaskólanum Hefst 1. október næstkomandi Síðastliðin siö ár hefir Handiðaskólinn árlega haldið uppi fjöl- breyttri, verklegri kennslu fyrir efnilega, lagtæka pilta úr sveitum landsins. Sökum þröngra húsakynna hefir að jafnaði eigi verið hségt að veita viðtöku nema 4—5 piltum til bessa náms. Eins og að undanförnu verður þessari kennslu haldið uppi n.k. vetur. Hefst kennslan 1. okt. og lýkur í lok aprílmánaðar. Eru piltarnir við nám að heita má all- an daginn, eða frá kl. 8 að morgni fram til 5—6 síðdegis. Megin- áherzla er lögð á trésmíði. Á und- anfömum árum hafa flestir þess- ara pilta smíðað sér marga góða og vandaða gripi, einkum bús- hluti og húsgögn. Frá því er skól- inn hóf göngu sína fyrir 10 árum hefir í þessari kennsludeild skól- ans mikil rækt verið á það lögð, að finna hentuga, einfalda en fagra gerð húsgagna, er vel henti á íslenzkum sveitabýlum. Fyrir tveimur árum gaf skólirin út teikningar. Eru það nákvæmar vinnuteikningar með öllum mál- um af þessum húsgögnum: Legu- bekkur, armstólar, dagstofustólar, skatthol, tvö borð og bókaskápur. Er gert ráð fyrir því, að lagvirkn- ir menn, sem hafa sæmilega að- stöðu til smíða, geti sjálfir smíðað húsgögn þessi eftir teikningun- um. Teikningarnar eru á fimm blöðum og kostuðu alls kr. 12,50. Teikningarnar munu nú fást keyptar á Teiknistofu landbúnað- arins. Á landbúnaðarsýningunni í Reykjavík árið 1947 voru sýnd dagstofuhúsgögn, sem piltar smíðadeildarinnar höfðu smíðað eftir þessum teikningum og vöktu þau mikla athygli sýningargesta. Hallgrímur bóndi Thorlacius á Oxnafelli í Eyjafirði keypti hús- gögnin. Auk almennra trésmiða fá pilt- arnir kennslu í vinnuteiknun, rennismíði, tréskurði, bókbandi og járnsmíði. Innritunargjald í deild þessa er kl. 150.00, en öll kennslari er nem- endunum að kostnaðarlausu. — Nemendur greiða efniskostnað, enda er það, sem þeir gera, eign þeirra að námi loknu. Með umsóknum, er senda ber skrifstofu Handíðaskólans hið fyrsta, verða að fylgja sem ítar- legastar upplýsingar um umsækj- endur svo og umsagnir dómbærra manna um hæfni umsækjanda til smíðanáms. Með þessari starfsemi, sem gefið hefir mjög góða raun, stefn- ir skólinn að því, að veita dug- miklum, högum piltum, er í hyggju hafa að staðfestast í sveit- um landsins, sem gagngerasta þekkingu í þeim undirstöðuatrið- um smíða, sem sérhverjum bónda eru nauðsynleg; ennfremur að kenna þeim nytsama iðju eins og bókband. Framan af vetri mun einn af færustu skrautmálurum Norðmanna, Kristian Kildal, kenna „rósamálun" í Handíða- skólanum. Ef í hópi nemendanna í smíðadeil dskólans verða einn eða fleiri listfengir piltar, sem hneigð og hæfileika hafa til rósamálunar, mun þeim einnig verða gefinn kostur á námi hjá Kildal. Rósa- málun, t. d. á kistum, kistlum, lokrekkjum o. fl. tíðkaðist all- mjög hér á landi áður fyrr. Væri ánægjulegt ,ef Handíðaskólanum nú tækist að vekja aftur til lífsins þessa fögru, íslenzku alþýðulist og stuðla með því að fegrun ís- lenzkra heimila í sveit.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.