Dagur - 07.09.1949, Page 8
8
Bagur
Miðvikudaginn 7. september 1949
Bændafélag Suður-Þingeyinga
stofnað um mánaðamótin
150 bændur og húsfreyjur gengu í félagið
á stofnfundinum
Sunnudaginn 28. ágúst var al-
mennur. bændafundur fyrir Suð-
ur-ÞingeyjarsýsIu haldinn ' að
Fosshóli. Þar mættu um 150
bændur og húsfreyjur viðs vegar
að úr héraðinu.
Þeir mynduðu með sér fóiag er
nefnist „Bændafólag Suður-Þing-
eyinga". í félagið geta gengið afl-
ir þeir, er landbúnað stunda,
kaplar og konur ,er náð hafa lög-
aldri, svo og trúnaðarmenn fyrir
félög bænda.
festi félagið sér
hljóðar 3. grein
Á fundinum
samþykktir og
þeirra svo:
„Tilgangur félagsins er hefja
til vegs á ný bændastéttina í
landinu með því:
AÐ hlúa sem bezt að þeim
þjóðfélagsmenningarrafi, sem
horfnar kynslóðir hafa eftir sig
látið,
AÐ efla vald bænda í þjóðfé-
laginu,
AÐ auka skilning alþjóðar á
þeirri miklu nauðsyn, að bænda-
stéttin, sem vinnur að ræktun og
framleiðslustörfum, fái fulla og
verðskuldaða viðurkenningu,
AÐ standa vörð um hagsmuni
bænda á hver jum tíma.“
Félagið kaus sér fimm manna
stjórn og hlutu þar sæti: Jón Sig-
urðsson, Yztafelli, (formaður),
Jónas Baldursson, Lundarbi*ekku,
(ritari), Þrándur Indriðason, Að-
albóli, (féhirðir), Baldur Bald-
vinsson, Ofeigsstöðum, og Jón
Haraldsson á Einarsstöðum.
Það er ætlún stofnenda, að fé-
lagið verði samtök áhugamanna
um viðreisn búnaðar, hvar sem
þeir standa í stjórnmálaflokkum.
Það er von stofnenda að lík félög
rísi í fleiri kjördæmum og vinni
saman. Félagið vill ekki styðja
stjórnmálaflokka né hafa menn
í kjöri.
Hins vegar mun það láta sig
þjóðmálin miklu skipta, og reyna
að hafa áhrif á almenningsálitið.
Eftir að félagsreglur höfðu ver-
ið samþykktar, og stjórn kjörin,
hófust umræður um þjóðmál. Hér
fara á eftir nokkrar tillögur er
samþykki náðu og sýna hvert fé-
lagið stefnir.
„Aðalfundur Bændaíélags Suð-
ur-Þingeyinga lýsir eindregnu
fylgi við grundvallarstefnuna í
stjórnarskrártillögum Fjórðungs-
þinga Norðlendinga og Austfirð-
inga. Hann gerir þá kröfu til
frambjóðenda allra flokka, að
þeir beiti áhrifum.sínum til þess
að tafarlaust verði gengið að því
að setja stjórnarskrá á sérstöku
stjórnlagaþingi, er til þess eins
verður kjörið.“
Svofelldar tillögur voru enn-
fremur samþykktar;
„Fundurinn skorar á væntan-
legan þingmann kjördæmisins að
beita sér fyrir því:
1. Að gagngerðar og róttækar
ráðstafanir verði gerðar til að
fækka ríkislaunuðum nefndum og
gera allan ríkisreksturinn ein-
faldari og kostnaðarminni.
2. Að laun opinberra starfs-
manna verði miðuð við meðal-
tekjur framleiðenda.
3. Að séð sé fyrir því að land-
búnaðurinn fái sinn fulla skerf af
því fjármagni, sem ríkisvaldið
hefir yfir að ráða til atvinnufram-
kvæmda á hverjum tíma.
4. Fundurinn telur að finna
verði réttan fjárhagsgrundvöll
fyrir þjóðarbúið, svo að styrkir
til framleiðslu og niðurgreiðslur
geti faílið niður.
5. Aíi hvers konar verzlunar-
hömlum verði aflétt, svo og toll-
um af heimilisvélum og vörum,
sem miða til aukinnar fram-
leiðslu."
Stofnfundur félags
F ramsóknarkvenna
Danir kenna Ceylon-
búum fiskveiðar
Ríkisstjórnin í Ceylon hefir
mikinn áhuga fyrir að auka fisk-
veiðar landsins og nota til þess
nýtízku skip og veiðarfæri. Hefir
hún samið við danska útgerð-
armenn í Esbjerg um að senda tvo
Esbjérgkúttera til Ceylon til þess
að kanna fiskimið og reyna veið-
arfæri. Kútterar þessir leggja af
stað frá Danmörku nú í þessum
mánuði.
Stundar framhaldsnám
í Bretlandi
Olafur Sigurðsson læknir hér í
bæ er nýlega lagður af stað til
Bretlands, þar sem hann mun
stunda framhaldsném um eins og
hálf sárs skeið við British Post
Graduate School óf Medecine. —
Læknisstörfum hans hér gegna til
næstkómandi áramóta læknarnir
Árni Guðmundsson, Jón Geirs-
son, Pétur Jónsson og Stefán
Guðnason.
morgun
Áhugakonur hér í bænum hafa
nú ákveðið að efla fylgi Fram-
sóknarflokksins á félagssvæðinu.
Auk þess, sem félagið fylgir
stefnu Framsóknarflokksins í
landsmálum mun það einnig
stuðla almennt að velgengni
framfaramála. Mikill áhugi er
ríkjandi um félagsstofnunina og
hafa þegar mjög margar konur
ákveðið að gerast stofnfélagar.
Er þetta mjög ánægjulegur vott-
ur um aukna starfsemi og áhrif.
Þetta er og hvatning og fordæmi
fyrir aðrar konur að hefjast nú
handa um slíkar félagsstofnanir
víðs vegar um landið.
Stofnfundurinn verður haldinn
að Gildaskála KEA fimmtudag-
ipn 8. sept. kl. 9 e. h. Er hér með
skorað á allar frjálslyndar fram-
farakonur að gerast stofnfélagar.
Sérstaklega er ástæða til að
hvetja þær konur, sem ekki hefir
verið haft samband við, að mæta
á fundinum. Með því að gerast
félagar er unnið að auknum
áhrifum heilbrigðra framfaraafla
í landinu svo og auknu félagslífi
bæjarins.
Aðeins 3-4 skip af síldveiðiflot-
anum bera sig fjárhagslega
— segir kunnur útgerðarmaður
Mörg skip hætt veiðum - lítil veiði síðustu daga
Síldarvertíðinni í sumar cr nú
senn að ljúka og eru 30—40 skip
þegar hætt veiðum og önnur um
það bil að hætta. Vafasamt er að
reynt verði að halda skipum úti
marga daga énn.
Lítil veiði hefir verið síðustu
dagana, nokkur skip hafa fengið
smáslatta á austursvæðinu, en
ekki hefir það verið teljandi veiði.
Aðeins örfá skip bera sig.
Utkoma útgerðarmnar á þess-
ari síldarvertíð er hin hörmuleg-
asta og ekki mun útkomin hjá
síldarvex-ksmið j unum tel j andi
betri. T. d. hafa verksmiðjumar á
vestui'svæðinu nær því enga síld
fengið í sumar og flestar hinar
verksmiðjurnar mikils til of lítið
magn til þess að vinnslan væri
ax-ðvænleg. í viðtali við Vísi nú
á dögunum, lét hinn kunni út-
gerðarmaður Oskar Halldórsson
svo ummælt, að einungis 3—4
skip mundu bera sig fjái'hagslega
eftir þessa síldarvertíð, en tap
væri á öllum hinum, á sumum
mjög mikið tap. Alls stunduðu
Kunimr danskur fuglateiknari
myndir úr íslenzku fuglalífi
symr
Hinn þekkti danski fuglamálari
FALKE BANG opnar málverka-
sýningu í Hótel KEA nú um
helgina.
Myndir hans vei'ða aðallega fi'á
Mývatni og frá Vestfjöiðum, en á
þessum stöðum hefir hann aðal-
lega dvalið í sumar og stúderað
fuglalífið. — Falke Bang er
þekktur í Danmörku fyrir fugla-
myndir sínar og hefir hlotið þar
mikið lof fyrir hæfileika sinn til
að sýna hið séi'kennilega í hi’eyf-
ingum og lífi fuglanna. Hann hef-
ir tekið þátt í hinum stói'u, ár-
legu listsýningum í Danmöi'ku og
einnig sýnt rnyndir sínar í Sví-
þjóð og Noi'egi. Hann hefir einn-
ig teiknað myndir í mjög mai'gar
bækur fyrir danska útgefendur á
undanförnum 10 árum og eru
flestar þeirra að meira eða minna
leyti um fugla. Meðal annars má
nefna „Fuglebog" með foi’mála
eftir Johannes V. Jensen, Nobels-
verðlaunarithöfundinn, aðrar sem
heita „Fuglene i dansk Digtning“
og „Fuglereder“ og bókin „Med
Kaj Munk paa Jagt“.
Falke Bang hefir einnig, það ár,
sem hann hefir dvalið hér á landi,
teiknað myndir í nokkrar ís-
lenzkar bai'nabækui, t. d.
„Bernskan", „Hafmeyjan litla“
og „Það er alveg áreiðanlegt" og
mai'gir muna einnig eftir penna-
teikningum hans af ísl. fuglum og
dýrum í dagblöðunum og smá:-
greinum um fugla og önnur dýr.
Myndir þær, sem sýndar verða
hér, -ei’u um 20—30 vatnslita-
myndir og flestallar urn fuglalífið,
allt frá æðarfuglahreiðrum og
hrafnshreiðri í Vigur til straum-
andai'innar við Mývatn og fálk-
ans, nafna listamannsins. — Það
mun án efa verða ómaksins vert
að sjá þessa sýningu um íslenzkt
fuglalíf, og þar sem sýningin
getur einnig haft uppeldislegt
gildi, fá börn í fylgd fullorðinna
ókeypis aðgang.
Þar sem listamaðui'inn hefir
þessa fyi’stu sýningu sína á ís-
landi hér á Akureyri, eftir áskor-
un margra bæjarbúa, ættu bæj-
arbúar að sýna að þeir kunni að
meta það með því að sækja vel
sýninguna þá 4—5 daga, sem hún
verður opin.
hartnær 200 skip síldveiðar f
sumar og má af þessu sjá ,að út-
gerð þeirra hefir ekki reynst arð-
vænlegt fyrirtæki. Er það óleyst
vandamál, hvernig snúast verður
við skuldum og ei-fiðleikum út-
gerðarinnar í haust.
Krossanesvei-ksmiðjan hér hafði
í gær tekið á móti samtals 14.612
málum síldai', og er það um 1000
málum meira en vex-ksmiðjan
fékk á vertíðinni í fyiTa.
- Aðalfundur
Stéttarsambandsins
(Framhald af 1 síðu).
framleiðsluráð landbúnaðarins
o. fl„ skorar fundurinn á stjórn
Sambandsins að vinna að því
við þing og stjórn, að gerðar-
dómsákvæðin verði úr lögun-
um numin á næsta þingi og
bændur geti einir ákveðið verð
á framleiðslu sinni á grundvelli
þeirra fullkomnustu skýrslna,
sem fáanlegar eru, um fram-
leiðslukostnað með hliðsjón af
launakjöruin annarra stétta. —
Fáist þessi krafa ekki fram-
kvæmd skorar fundurinn á
stjórn Stéttarsambandsins að
vera viðbúin öðrum úrræðum
til að knýja frarn rökstuddar
kröfur um verð á landbúnaðar-
vörum, meðal annars með því
að tryggja félagsskapinn enn
betur inn á við.
Fullti'úar á aðalfundinum héldu
flestir heimleiðis fi'á Reykjahlíð
á mánudagskvöldið og gistu
mai'gir þeirra hér í bænum að-
faranótt þriðjudagsins, en héldu
áfram för sinni í gær.
Vísitala landbúnaðar-
afurða hækkar
um 2,5%
Verðlagsnefnd landbúnaðaraf-
urða hefir ákveðið, að verðlags-
vísitala landbúnaðarafurða fyr-
ir árið 1950 hækki um 2.5% frá
því sem nú er.
Enn er ekkei't vitað um hvaða
áhx'if þessi hækkun hefir á verð-
lag einstakra landbúnaðai'afurða
eða hvei-nig henni verður jafnað
niður á afurðirnar.
Fulltrúar framleiðenda höfðu
gert tillögur um að niðurstöðu-
tölur á gjaldalið yi-ðu kr. 48.758.00
en fulltrúar neytenda, að niður-
staðan yrði kr. 38.113.00, en með
atkvæðagreiðslu yfirnefndar var
ákveðið að niðurstöðutölur
gjaldaliðs skyldu vex-a kr.
43.018.00. — Hins vegar var sam-
þykkt á tekjulið, að auka kýi'nyt
úr 15 þús. kg. í 15360 kg. Þannig,
að grundvöllurinn hækkar á
gjaldalið bóndans um kg. 1059.00
eða því sem næst 2.5%.