Dagur


Dagur - 14.12.1949, Qupperneq 6

Dagur - 14.12.1949, Qupperneq 6
6 D A G U R Miðvikudaginn 14. desember 1949 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, auglýsingar, innhcinua: Marínó H. Pétursson Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166 Blaðið kcmur út á hverjum miðvikudegi Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí. l’RENTVERK ODDS BJORNSSONAR H.F. Enn segir fáti af stjórninni ENN ER NÆSTA tíðindalítiS af nýju ríkis- stjórninni okkar og enda naumast varlegt að gera róð fyrir stórtíðindum úr þeirri átt í bróðina a. m. k. Tilkoma stjórnarinnar var með þeim hætti, og boðskapuí hennar þannig vaxinn, að líkur benda til þess að hún muni reynast aðgerðarlítil eða að- gerðarlaus í vandamálum þjóðarinnar og nálgist því hvergi það hlutverk, sem ríkisstjórn þarf að gegna á erfiðleikatímum, að hafa forustu um úr- ræði og úrbætur og dug og þrek til þess að taka vandasamar og e. t. v. óvinsælar ákvarðanir. Enda er það sannast sagna, að því var aldrei um Álfta- nes spáð, að ættjörðin frelsaðist þar, og engum skyni bornum manni dettur í hug, að Ólafur Thors muni ætla sér að feta til baka slóðina, sem hann skálmaði svo drýgindalega í fylgd með kommúnistum hér á árunum. FÁÐU MÉR AFTUR HERSKARANA mína, Varus, sagði rómverski keisarinn forðum, en þeir herskarar voru þá gengnir fyrir ætternisstapann Þjóðin mun heldur ekki fá aftur í hendur gjald- eyrismilljónimar, sem sólundað var hér fyrr á árum, þótt íhaldið sé nú sest við stjórnartaumana. Hún getur virt þær fyrir sér, þar sem þær eru geymdar í milljónahöllum höfuðstaðarins, og hún getur hugsað til þess allsnægtatímabils, sem ríkti hér skamma hríð, meðan verið var að koma gjaldeyrissjóðunum í lóg og búa til nýja milljón era hér í þessu kotríki. En þótt lærdómsríkt sé að líta til fortíðarinnar, leysir það ekki vandann nú. Urræði framtíðarinnar — hið máttuga „penna strik“ — er það, sem máli skiptir. Hvernig verður „pennanum" beitt, og hvenær? Um það spyr þjóðin, en fær ékki svar. ÞEGAR HINN NÝSKIPAÐI forsætisráðherra kom fram fyrir Alþingi á dögunum, ræddi hann að vísu um erfiðleika þá, sem þjóðin á nú við að stríða, en hann gaf enga vísbendingu um það. hvernig stjómin ætlaði sér að snúast við þeim og hverjar ráðstafanir hún hefði á prjónunum til þess að standa undir því ábyrgðarmikla hlutverki, sem íorsetinn fékk henni í hendur. En það hlutverk var, að hans dómi, alveg óvenjulega erfitt og þýð- ingarmikið og ekki mátti dragast lengur en íil sl. mánaðamóta, að hafizt væri handa um björgunar starfið. Nú er senn miður desember, en ekki verð- ur enn vart nokkurrar viðleitni af þeirra hálfu sem töldu sig færa um að gegna þessu hlutverki, til þess að hefja björgunarstarfið. Og enginn boð skapur um það, hvernig því verði hagað, hefir verið birtur þjóðinni. Það segir enn fátt af stjórn- inni og hennar úrræðum. „Pennastrikið“ máttuga, er enn ókomið. Samt situr sá maðurinn á forsæt- isráðherrastóli, sem lýsti því yfir eitt sinn, að með því leynivopni mætti bjarga efnahag þjóðarinnar ef dýrtíðin færi að gerast of nærgöngul við hann. ENDA ÞÓTT ÚTLITIÐ í efnahagsmálum landsins væri ekki of glæsilegt, er Alþingi var kvatt saman, má þó fullyrða, að það sé öllu lakara nú. Dýrtíðin heldur áfram að vaxa jafnt og þétt, Neytendur rekast nær daglega á einhverja vöru tegund, en þeim er nauðsyn að fá, sem hefir hækkað verulega í verði síðustu vikurnar eða síð ustu dagana. Afkoma launþeganna fer versnandi. dýrtíðin er farin að gera drjúgum betur en gleypa allar „kjarabæt- urnar“, sem mest hefir verið státað af á undanförnum árum. Þannig hefir orðið endirinn á íeifri „dreifingu stríðsgróðans", sem nýsköpunarpostularnir pré- dikuðu hæst um hér um árið. Það er augljóst mál, að hin aukna dýrtíð og lakari afkoma launa- stéttanna hlýtur að leiða til nýrr- ar kaupgjaldsskrúfu og enn auk- ins framleiðslukostnaðar, ef ekki verður undinn bráður bugur að íví að afstýra slíkri þróun með )ví að auka kaupmátt pening- anna í'stað þess að fjölga krón- unum. Framsóknarmenn fluttu í sumar ýmsar tillögur, er að þessu miða. Sjálfstæðisflokkurinn barð ist gegn þeim og er þeim andvíg- ur enn í dag. En flokkurinn hefir tekið að sér að leiða þjóðina á þessum erfiðu tímum og gegna forustuhlutverki. Það er skylda hans að greina frá því, hver úr- ræði hann hefir upp á að bjóða. Hverjar tillögur hefir Sjálfstæð- isfiokkurinn og nýja ríkisstjórn- in til lausnar á aðkallandi vanda- málum? Hvernig er hið mjög um talaða „pennastrik“? Þjóðin bíð- ur svarsins. Naumast munu landsmenn una því, að algjör þögn um þessi mál ríki á hæstu stöðum til langframa. FOKDREIFAR Bærinn setur upp jólasvip. UM sl. helgi gerði bærinn heið- arlega tilraun til þess að setja upp jólaandlitið, sem okkur hef- ur oft virzt bjart og hlýtt, en það fór fyrir honum eins og leikara, sem aldrei kemst almennilega inn í rulluna, jólasvipui'inn varð á- kaflega dauflegur í þetta sinn. Á bak við andlitsfarðann grillti í gamalkunna ásjónu ljósaleysis og vöruskorts. Ljósin voru að vísu komin aftur eftir myrkra- tímann í sl. viku, en dauf voru þau á stundum, enda naumast hægt að segja að maður sakni þess verulega að ljósadýrðin, sem upplýsir vöruskortinn í búðar- gluggunum sé langt frá því að standa 220 volt; 110 mun vera nær lagi og hæfir raunar betur því, sem til sýnis er. Það hlýtur að hafa verið erfitt starf og sál- ardrepandi fyrir verzlunarfólk þessa bæjar, að útbúa jólaútstill- ingar í ár. Oft hefir vöruúrval verið fátæklegt á þessu landi, en aldrei fátæklegar en nú í augum þeirrar kynslóðar, sem enn er á léttásta skeiði. Hin opinbera skipulagning á verzlunar- og gjaldeyrismálum okkar eru búin að koma verzluninni í það horf, að naumast mun hægt að finna þann mann, sem hefur ánægju af því að koma í búð og reyna að velja sér vöru við sitt hæfi, svo að ekki sé nú tglað um þá áriægju, sem lítil, vel og smekk- lega valin jólagjöf getur veitt, bæði gefanda og þiggjanda. í verzlunum er ekki annað að finna lengur en gráan hversdagsleik ann og meira að segja er hann vandfundinn á stundum, a. m. k. þegar maður gengur búð úr búð í leit að þokkalegum sokkum eða skyrtu. Hversdagslegasti og nauðsynlegasti klæðnaður virð ist vera orðinn lúxus í þessu landi, sem kostar auk fjármun- anna; m. a. að raða sér í biðröð löngu fyrir birtingu, án þess þó að hafa nokkra vissu fyrir því að fá í aðra hönd annað og meira en hroll og skjálfta og tilheyrandi kvef. Hinn óttalegi leyndardómur. ÞAÐ ER leyndardómur, sem leikmönnum gengur illa að skilja, hvernig hinni opinberu skipu- lagningu hefir tekizt að skapa þetta ástand hér, í kjölfar sjálfr- ar „nýsköpunarinnar“ og þeirrar staðreyndar að heildargjaldeyr- istekjur þjóðarinnar eru nú margfalt meiri en þær voru fyrir stríð; við óðum ekki í axlir í lúx- us í þá daga hér norður á hjara veraldar, en við gátum þó lifað sómasamlegu og manneskjulegu lífi og fætt okkur og klætt. Er það hægt nú, þrátt fyrir „kjara- bætur“, ,,nýsköpun“ og hvað þau nú öll heita nýyrði hinna „æfðu stjórnmálamanna“, sem drýgst hafa reynst til atkvæðaveiða á undanförnu árum? Það þarf ekki nema líta í verzlanir landsins nú fyrir þessi jól til þess að fá svarið við þessari spurningu, ef menn hafa ekki fyrir löngu tekið svarið út á sínum eigin skrokk. Leik mönnum virðist undarlegt að gjaldeyrisskortur sé orsök þessað hér er nú minna um nauðsynja- varning í verzlunum en í ná- grannalöndunum, enda þótt sum þau lönd týndu fjármunum sín- um og framleiðslutækjum að verulegu leyti í ægilegri styrjöld. Þeim virðist sumum hverjum a. m. k. að hinn óttalegi leyndar- dómur sé frekar í hinni „opin- beru skipulagningu", í ranglátri og' heimskulegri stjórn verzlun armálanna en í lítilli gjaldeyris- öflun þjóðarinnar. Það er aug- ljóst, að við svo búið má ekki standa. Það er ekki hægt til lengdar, að halda áfram að fram- lengja skömmtunarseðla, sem ekkert fæst út á, ekki hægt að halda þjóðinni áfram í viðjum þessa gráa og drungalega skorts brýnna nauðsynja á sama tíma og alls kyns ónauðsynlegur varn- ingur blasir við augum hvar vetna. Þjóðin hlýtur að sjá og skilja, að hin opinbera skipu lagning gjaldeyris- og innflutn- ingsmálanna hefir stórlega mis- tekizt og leitt öngþveiti yfir þjóð- arbúið. Það má því ekki dragast lengur að gera verulega bragar bót á þessum málum og hefja hana með því að afnema það fyr irkomulag á stjórn þessara mála sem nú ríkir ,og notið hefir ást- ríkrar umönnunar sumra ráða manna Sjálfstæðisflokksins fram að þessu. Grár hestur, dekkri á fótum, 7—8 vetra er í óskilum í Hrafnagils hreppi. Markið er: Fjöður aftan hægra. Hesturinn er haltur og þolir ekki úti göngu. Gel i eigandi sig ekki fram innan lögboðins tíma verður hesturinn seldur sem annað óskilafé. Hrepjistjóri. KÖKU FORMAR margar tegundir Járn og glervörudeild. Sársaukalausar barnsfæðingar Getur barnsfæðing verið sársaukalaus? Allir vita að læknar hjálpa mæðrunum á síðustu augnablik- unum með því að gefa þeim deyfilyf, en áður en að 3ví kemur, hafa þær tekið út miklar þjáningar. Nú hefir ungur danskur læknir, Brendstrup að nafni, gert tilraunir með nýja aðferð, sem miðar að því að gera fæðingar sársaukalausar, án þess að notuð séu deyfilyf. Leyndardómurinn er fólginn í því að kenna konunum að „slappa af“ á réttan hátt er fæðingarhríðirnar byrja. Þessi aðferð er sögð hafa heppnast sérlega vel, að því er dönsk blöð herma. Mæðurnar, sem reynt hafa, hafa fætt „med et smil paa læben“, segir Pólitíkin! Fæðingarnar voru stundum erfiðar, en þær voru samt sársaukalausar. Konur óttast barnsburð. 1 viðtali við Pólitíkina, segir þessi danski læknir meðal annars: „Þessi aðferð var fyrst notuð af enska lækninum Dick Reed, og nú í seinni tíð er hún einnig notuð á nokkrum amerískum fæðingarstofnúnum. Reed hafði lengi furðað sig á því, hversu misjafnlega auðveldlega heilbrigðum, normal konum gekk að fæða. Sumar konur tóku út miklar þjáningar, en aðrar fæddu án þess að leggja mikið á sig. Hann komst að þeirri niðurstöðu að þær konur, sem tóku út miklar þjáningar, fengu þær vegna þess að vöðvarnir störfuðu ekki á réttan hátt.. Ef konan getur lært að „slappa af“, getur hún líka fætt sárs- aukalaust. Þetta segir læknirínn að gildi um 95% heilbrigðra kvenna. Það er eðlilegt, að kona, sem er með fæðingar- hríðir, herpi vöðvana saman. Hún gerir það af ótta. Frá því að konan var 13—14 ára gömul, hefir hún jafnan heyrt að mikill sársauki sé samfara barna- fæðingum, og það er því eðlilegt að konan sé hrædd þegar að því kemur að hún er sjálf að fæða. Lækn- ar vita nú ,að sársauki er óþarfur, en fæstar konur vita það og ótti þeirra er eðlilegur. Á þremur til fjórum vikum má kenna konum hina réttu „af- slöppun“. Einnig er nauðsynlegt, að kunnáttunaað- ur í þessari grein sé til staðar við fæðinguna. Hann leiðbeinir konunni og róar hana, þegar fæðingar- hríðirnar byrja. Læknirinn segir ennfremur frá því í þessu við- tali, að enski læknirinn Reed hafi skrifað bók um þessi mál og þessi bók sé nú að koma út í danskri þýðingu. Hvetur hann lækna, ljósmæður og mæð- ur til þess að kynna sér efni hennar. BÖRN OG SKÓFATNAÐUR. Ensk blöð greina frá áhyggjum lækna þar í landi út af fótum og fótalagi ungu kynslóðarinnar í Bretlandi. Ber verulega á því, að fætur barna og unglinga séu ekki rétt lagaðir og telja læknarnir að þetta muni há þeim verulega, er þau vaxa upp. Skýrlngin á þessu fyrirbrigði er sú, að á stríðsár- unum skorti mjög hentugan barnaskófatnað. í barnmörgum fjölskyldum urðu yngri börnin að notast við skó þeirra eldri jafnótt og þau uxu upp úr þeim. Þessir skór voru þá e. t .v. orðnir skakkir og skældir og áttu ekki við fótlag yngri systkin- anna. Afleiðingin er svo afmyndun fótarins að meira eða minna leyti. Þessar fregnir frá Englandi minna á hversu þýðingarmikið er að eiga völ á hentugum barnaskófatnaði og gæta þess, að skóm- ir hæfi barninu. Þetta er atriði, sem almenningur ætti að gefa gaum.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.