Dagur - 21.01.1950, Side 1
XXXIII. árg.
Akureyri, laugardaginn 21. janúar 1950
5. tbL
Illa beittur öngull
lugvalíarmál bæjarins þýðgngarmikið úriausnarefni
Þannig hugsar erlendur skopteiknari (Bimrose í Portland-Oregon-
hm) sér tilraunit- Rússa til þess að fá Vesturþýzka ríkið til þess að
gína við hugmyndimii um „sameinað Þýzkaland“ fyrir forgöngu
kommúnista. Agnið er að vísu lostætt, en samt er öngullinn 'ekki
nægilega vel beittur. — Tilgangurinn er auðsær: að gera allt
Þýzkaland að Icppríki Rússa með tilstyrk heimakommúnista.
39 íbúðarhús fultbyggð hér
á árinu 1949
Þar að auki margar stórbyggingar í smíðum
I skýrslu byggingarfulltrúa
kaupstaðarins um byggingafram-
kvæmdir hér í bænum á árinu
1949, segir, að á árinu hafi vcrið
byggð og tekin til afnota 39 íbúð-
arhús með 54 íbúðum. Þar að
auki eitt verzlunarhús, 3 verk-
smiðjuhús, 12 viðbyggingar og
breytingar á eldri húsum, 3
geymsluhús. Þá voru 25 íbúðar-
hús komin undir þak um áramót.
í þessum húsum eru 29 íbúðir,
24 önnur íbúðarhús eru í smíð-
um og í þeim verða 33 íbúðir.
Stórbyggingar.
Á árinu 1949 var þar að auki
unnið við þessar stórbygginga-
framkvæmdir: Sjúkrahúsinu,
slökkvistöð bæjarins, heimavist-
arliúsi M. A., sundlaugarbygg.
ingu. Þá var og unnið að hinum
miklu byggingaframkvæmdum á
Gefjun, nýbyggingu verksmiðj-
unnar og byggingu ullarþvotta-
stöðvar.
Uppselt á söngskemmt-
un Geysismanna í gær
Kunnir söngvarar úr Geysi
höfðu söngskemmtun í Nýja-Bíó
í gærkveldi, svo sem auglýst var
í síðasta blaði Dags. Um miðjan,
dag í gær var uppselt á söng-
skemmtunina og hefur því verið
ákveðið að endurtaka hana á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h. í
Nýja-Bíó. Söngmennirnir eru:
Guðmundur Gunnarsson, Henn-
ing Kondrup, Hermann Stefóns-
son, Jóhann Guðmundsson, Jó-
hann Ogmundsson, Kristinn Þor-
steinsson og Sverrir Pálsson. —
Árni Ingimundarson leikur undir
á píanó. — Á söngskránni eru 21
Skrítin lögvísindi
Sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn á Akureyri
látast vera ákveðnir í því, að
framfylgja útburðarheimild
húsalcigulaganna. Virðast þeir
álíta að húsaleigunefnd hcfði
átt að fylgjast með því hverjir
flytja í bæinn og láta bera þá
út. Lög um húsaleigu taka þó
skýrt fram, að mál út af brot-
um á þeim skuli farið með
sem opinber mál. Er því auð-
sætt, að það er löggæzlan fyrst
og fremst, sem fylgjast á með
því, að lögin séu eklii brotin,
svo og borgararnir, sem hafa
rétt til að kæra til bæjarfóget-
ans, ef þeir vita um brot á
þessum lögum.
Annars má telja það veru-
lega óskammfeilni af sumiim
„Iistamönnum“ Sjálfstæðisfl. á
Akureyri, að berjast fyrir
þessu stefnuskráratriði, vit-
andi það, að þeir sjálfir hafa
brotið húsaleigulögin, er þeir
fluttu í bæinn. Má telja víst,
að þeir sýni sjálfir þá lög-
lilýðni, að taka saman pjönkur
sínar og flytja úr bænum. Að
óreyndu verður því vart trú-
að, að þeir vilji beita hörku
gagnvart öðrum, sem brotið
hafa lögin, en sleppa sjálfir
við óþægindin. Eða vilja þeir
einungis beita óvinsælum
Iagaákvæðum gagnvart Fram-
sóknarmöimum?
Flugmálaráðherra nýsköpimarstjórnarinnar og
sérfræðingar hans svikust um að framkvæma
nauðsynlegar rannsöknir hér
S'kriður komst á málið á síðastliðnu ári — bæjar-
stjórnin þarf að halda málinu vakandi og
ýta á eftir framkvæmdum
Eins og kunnug er létu setulið Bandamanna, sem hér dvöldu á
stríðsárunum gera flugvöllinn á Melgerðismelum. Flugvöllur þessi
er enn í dag eini lendingarstaður stærri farþegaflugvéla í innan-
landsflugi hér í Eyjafirði.
Lélegur afli
Iijá togunmum
Veiðar togaraflotans hafa geng-
ið seinlega að undanförnu vegna
aflabrests á miðunum og sífelldra
ógæfta. Akureyrartogararnir þrír
hafa verið að veiðum á Halamið-
um að undanförnu og hefur afli
verið tregur. Togarar Útgerðar-
félagsins, „Kaldbakur" og „Sval-
bakur“, voru væntanlegir hingað
í gær og mun annað skipið sigla
með afla þeirra beggja. Jörundur
er að veiðum á Halamiðum og
hefur afli verið rýr.
Verðlag á brezka fisk-
markaðinum hækkar
Sölur togaranna ó brezka mark-
aðinum nú síðustu daga benda til
þess að markaðurinn sé nú aftur
kominn í samt lag eftir verðfallið,
sem varð í desember. Selja tog-
ararnir nú sem næst fyrir há-
marksverð.
lag eftir kunn innlend og erlend
tónskáld, einsöngvar og tví-
söngvar.
Fyrir löngu var augljóst, að
hann er ófullnægjandi margra
hluta vegna. Ymsar ráðagerðir
hafa því verið uppi um nýjan
flugvöll, en það mál komst þó
ekki á rekspöl fyrr en skipt hafði
verið um forustu í flugmála-
stjórninni í tíð fyrrv. ríkisstjórn-
ar og flugráð tók til starfa. Fram
til þess tíma var lítið sem ekkert
gert í flugvallamólum bæjar og
héraðs.
Lítið viðhald.
Þegar árið 1945 var tekið að
benda á þá staðreynd hér í blað-
inu, að Melgerðisflugvelli væri
illa við haldið og ræki að því, að
völlurinn yrði ónothæfur nema
stefnubreyting yrði hjá flug-
málastjórninni. En mest allt það
fé, sem flugmálastjórnin íslenzka
hafði yfir að ráða á þeim tíma,
fór tíl Reykjavíkurflugvallar, en
ekkert teljandi var gert fyrir
flugvallarmálin úti á landi. —
Snemma á árinu 1946 lagði Dag-
ur nokkrar spurningar um þessi
mál fyrir þáverandi flugmála-
stjóra, Erling Ellingsen. í svörum
hans, sem birtust hér í blaðinu
hinn 14. marz 1946, telur flug-
málastjóri að Melgerðisflugvöll-
ur sé ekki framtíðarflugvöllur
fyrir bæinn og komi einkum þrír
aðrir staðir til greina til flugvall-
arbyggingar: Þveráreyrar, hólm-
ar í Eyjafjarðará, norðan brúa,
og Kollugerðis- og Mýrarlóns-
land. í þessu viðtali var því yfir-
lýst, að þessi mál, og ákvörðun
um framtíðarflugvöll á Akureyri,
yrðu afgreidd í sambandi við
væntanlega yfirtöku Melgerðis-
fdlugvallar frá Bandaríkjunum,
þ. e. vorið 1946.
Eíndir urðu engar.
í reyndinni urðu engar efndir
á þessu fyrirheiti. Þær athuganir,
sem á þessum árum fóru fram á
flugvallarmálum hér, voru gerð-
ar fyrir atbeina Flugfélags Is-
lands ,en flugmálastjórnin virtist
aldrei hafa neinn áhuga fyrir því,
að ákveða framtíðarlausn.
Eyjafjarðarárhólmar álitlegastir.
Eftir að nýskipan á flugmálum
var gerð, með tilkomu nýrrar
ríkisstjórnar 1947, var aftur farið
að sinna þessu máli og árið 1948
var það álit sérfróðra manna, eft-
ir að athuganir höfðu verið gerð-
ar hér, að Eyjafjarðarárhólmar
væru álitlegasti staðurinn fyrir
flugvöll. Á sl. sumri dvöldu héi
verkfi'æðingar á vegum flugráðs
til þess að rannsaka jarðveg og
aðrar aðstæður til flugvallar-
byggingar í Eyjafjarðarárhólm-
um. Enda þótt skýrsla þeirra hafi
ekki verið birt, er vitað, að þeim
leizt vel á staðinn og töldu vel
gerlega að koma þar upp góðuro.
flugvelli án þess að kostnaður
yrði óbærilegur.
Leitað til bæjarstjórnarinnar.
Á sl. ári sneri flugráð sér tii.
bæjarstjórnarinnar hér og leitaði.
samninga við hana um land fyrir
flugvöllinn í Eyjafjarðarárhólm-
um. Bæjarstjórnin iók málaleit-
aninni vel og taldi sig fúsa til þess
að lata landið af hendi endur-
gjaldslaust, og hét jafnframt sam-
vinnu um flutning háspennulírtu
af svæðinu, eftir því sem unnt
væri.
Enda þótt flugmálastjórn ný-
sköpunarstjórnarinnar, og þeir
flokkar, sem báru ábyrgð á henni,
væri sofandi í þessu máli og
gerðu ekkert til þess að koma þvi
á rekspöl, má þó kalla að flug-
vallarrnálið hafi ekki verið
flokksmál hér innan bæjarstjórn-
arinnar. Þegar til bæjarstjórnar-
innar hefur verið leitað, hefur
hún brugðist vel við og lagt mál-
inu lið. Nú er augljóst, að þessi
afstaða er ekki nægileg. Halde.
(Framhald á 7. síðu).
Tveir nýir læknar
til starfa í bænum
Tveir nýir læknar eru komnir
til bæjarins til starfa hér. Eru
það þeir Bjarni Rafnar, sem hef-
ur lækningastofu í verzlunar-
húsi KEA, þar sem áður var Ól-
ur Sigurðss. læknir, og Þórodd-
ur Jónasson frá Grænavatni, sem.
opnar lækningastofu, þar sem áð-
ur var Jón Geirsson læknir nú
um næstk. mánaðamót.
Forustugreinin:
Afstaða bæjarblaðanna til
framkvæmdamálanna.
Fimnttasíðan:
Minnzt aldarártíðar danska
skáldsins Öehlenschláger.