Dagur - 01.03.1950, Blaðsíða 4
Miðvikudaginn 1. marz 1950
D AGUR
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Marínó H. Pétursson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 166
Biaðið kemuT út á hverjum miðvikudegi
Árgangurinn kostar kr. 25.00
Gjalddagi er 1. júlí.
PRÉNTVERK ODDS BJORNSSONAR H.F.
Gengislækkun í bæjardyrunum
endurbætur á frumvarpinu reiðir
af.
ENDA ÞÓTT samþykkt yrði
frumvarp um raunhæfar dýrtíð-
araðgerðir, sem þjóðin mætti
sæmilega við una eins og taflstaða
hennar er í dag, er augljóst, að
á mjög miklu veltur, hvernig
framkvæmd málsins færi úr hendi
ríkisstjórnar og hverjir þar fjalla
um málin. Ljóst er nú orðið, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefur metið
það mikils, að hans menn hefðu
flesta meginþræðina í hendi sér
og mun hafa slitnað upp úr samn-
ingaumleitunum flokkanna á
þeim forsendum. Sýnir þessi af-
staða furðulegt ábyrgðarleysi og
meira tillit til sérhagsmuna hópa
og einstaklinga en ætla mátti að
óreyndu að jafnvel Sjálfstæðis-
flokkurinn treysti sér til á slíkum
tímum, er nauðsyn á samheldni
og heiðarlegum vinnubrögðum
dylst engum þjóðféíagsþegn.
Framsóknarmenn hafa nú flutt
vantraust á núverandi ríkisstjórn
með þvi að þeir treysta henni ekki
til þess að framkvæma raunhæfar
dýrtíðaraðgerðir þannig, að hag
almennings sé þar gætt sem
skyldi. Verður sú tillaga rædd í
þingi í dag í áheyrn alþjóðar.
Mun sú umræða væntanlega
verða til þess að skýra málin og
afstöðu flokkanna og er þess full
þörf.
’ í KOSNINGUNUM sumarið 1946 heldu Fram-
sóknarmenn því fram í blöðum sínum og á mann-
fundum, að áframhald stjórnarstefnunnar hlyti
að leiða til gengisfellingar. Andstæðingarnir höfðu
svörin við þessum ábendingum jafnan á reiðum
höndum: „Hrunsöngur“, „barlómsvæl“ hétu þær
á máli „Morgunblaðsins11 og „íslendings". Fram-
undan var „birta“ og „blómi“ og áframhaldandi
„nýsköpun“. Nú hefur reynzlan fellt sinn dóm um
réttmæti þessara ábendinga. í sl. viku flutti
Sjálfstæðisflokkurinn frumvarp um stórkostlega
gengislækkun íslenzku krónunnar og margvísleg-
ar aðrar hallærisráðstafanir. Afleiðing stjórnar-
stefnu undanfarinna ára hefur því orðið gengis-
felling eins og Framsóknarmenn sögðu fyrir. Um
það þarf ekki að deila lengur.
ÞEGAR ÞETTA er ritað hafa aðalatriði stjórn-
arfrumvarpsins, sem byggt er á tiíiögum hagfrseð-
inganna Benjamíns Eiríkssonar og Ólafs Björns-
sonar, verið birt í útvarpi, en frumvarpið sjálft
hefur ekki borizt hingað norður mfeð því að póst-
samgöngur eru strjálar og óáreiðánlegar á þessum
árstíma. Er ekki auðvelt að átta sig til hlýtar á
einstökum atriðum frumvarpsins af- einni eða-
tveimur útvarpsþulum. Menn þurfa að lesa frum-
varpið og greinargerðina fyrir því tíl þess að skilja
hverja afleiðingu einstök atriði þess munu hafa í
framkvæmdinni. Nokkur atriði liggja þó ljós fyrii
við fyrstu athugun: Gengisfellingin er miklu stór-
kostlegri en menn hafði yfirleitt órað fyrir. Doll-
arinn á að kosta röskar 16 krónur og sterlings-
pundið 45 krónur. Hlýtur verðhækkun erlends
varnings því að verða meirí en búizt var við, einn-
ig vegna þess, að ekki virðist gert ráð fyrir eins
mikilli niðurfellingu tolla og sumir höfðu ætlað,
til þess að forða því að gengisfellingin yrði tíl mik-
illa þyngsla fyrir almenning. Ekki mun gert ráð
fyrir því, að kaupgjald lækki beiníínis, og er það
ekki bundið, eins og' margir höfðu spáð að gert
mundi. Yfirleitt virðist það einkenna frumvarpið,
að mjög skorti að gert sé ráð fyrir margvíslegum
hliðarráðstöfunum samhliða gengislækkuninni, til
þess að forða því að verðhækkun erlenda varn-
ingsins lendi á almenningi af fullum þunga, og til
þess að haldið verði upp fullri atvinnu í landinu.
eins og kunnugt er lögðu Frams.m. megináherzlu
á nauðsyn slíkra hliðarráðstafana samfara gengis-
lækkun, í tillögum þeim, er þeir lögðu fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn óg Alþýðuflokkinn á sl. sumri.
Fengust flokkar þessir ekki til þess að samþykkja
þær ráðstafanir, né yfirleitt gera raunhæfar dýr-
tíðaraðgerðir þá, og leiddi það til haustkosning-
anna. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn tekið geng-
isfellingu á stefnuskrá sína, en enn skortir á að
hann hafi tekið fullt tillit til annarra nauðsynlegra
aðgerða. Mun Framsóknarflokkurinn bera fram
ýmsar breytingartillögur við stjórnarfrumvarpið
til þess að bæta úr ágöllum þess, og auka við það
ráðstöfunum, sem miða að heill almennings. l^erð-
ur á þessu stigi málsins ekkert sagt um það, hverj-
i ar undirtektir þær tillögur fá hjá hinum flokkun-
i um, en Framsóknarmenn hafa lýst því yfir, að af-
staða þeirra til stjórnarfrumvarpsins í heild muni
i
| íara eftir því á síðari stigum, hvernig tillögum um
FOKDREIFAR
Opinn bréfmiði til Jóns í
Grófinni
viðvíkjandi vesaldardropum. —
(Sbr. íslending 9. tbl. þ. á., bls. 2,
3. dálkur).
Konráð Vilhjálmsson skrifar
blaðinu.
EG SÉ, að þú hefur lesið 1.,
blaðsíðu af nýlegri skáldsögu,
„Allt heimsins yndi“, er eg hef
síðast þýtt. Þykist þú hafa rekið
þig þar á „ískyggilegan sjúkdóm"
í sambandi við/neðferð þágufalls,
þar sem svo sé til orða tekið í
þýðingu minni: ,,og strauk nú
vcsáldardropum frá nefinu á sér“.
Máður skyldi ætla, að þú værir
einhver sérstakur þágufallsspek-
jngur — og ennfremur: að þú
hefðir aldrei komizt í kýnni við
það hvimleiða fyrirbæri, sem
kallaðar eru prentvillur. Er það
síðara þó ólíklegt, af því að þú ert
kunnuguí fslendingi og öðrum
syndumspilltum nútíðarblöðum.
— :Eg hlýt. strax að hryggja þig
rrteð þvi, áð 'þ ú hefur hér slegið
vindhögg, því að þetta, sem þú
fæst um, er p'rentvilla, sem eg
hafði ekki gætt að áður. Getur þú
sannfærzt um sannleik þeirra
orða, ef þú vildir við tækifæri
skreiðast upp úr Grófinni og sjá
handritið hjá mér, sem enn er
víst.
En ekki get eg stillt mig um að
bæta því við, að það er engu lík-
ara, en að þú hafir viljað veita
mér eða áminnztri bók einhverja
bakslettu. — Þú segist hafa heyrt
talað um að þurrka eða strjúka
dropa, en ekki dropum, tár, en
ekki tárum. Um það get eg fús-
lega fekið undir með þér. En
hvernig gat þér þá komið ,í hug,
að „viðurkenndur þýðandi og ís-
lenzkumaðui'11, eins og þú kemst
sjálfur að órði, væri þeim mun
málheimskari en þú, að hann
hefði fundið upp á slíkrí firru,
sem hvorugur okkar hefur áður
heyrt? — Eg þekki þig ekkert —
nema af mynd þinni, þeirri, er
sfendur yfii' dálkum þínum í ís-
lendingi, og þykir mér hún ekki
auðveld til rannsóknar.
EG SKAL taka það fram, að eg
hef ekki tekið eftir, að }dú eða
héraðsmenn þínir væru öðrum
brotlegri um ranga notkun þágu-
falls. Aftur á móti hef eg orðið
þess var, að þeir hafa löngum
verið næsta breyskir um ranga
meðferð þolfalls, sem virðist þó
sízt vandameiri. Auglýsist það
bezt á því, hvernig þeir hafa leik-
ið, bæði í ræðu og riti, ýms falleg
bæjarnöfn í héraðinu, er þau
koma fyrir í þolfalli- Eg veit, að
þú kannast við „Vallni", „Hlaði“
(eða jafnvel ,,Hlaðni“) og „Upsi“
(eða þá „Ufsi“, — allt í þolfalli).
— En ef þú ert sannur málhreins-
unarmaðúr, hefði þér verið
sæmra að vanda um slíkt, en að
finna þér til eina prentvillu í bók
sem annars er sæmilega vönduð
að frágangi.
Eyddu ekki tíma til að elta
málvillur mínar, ef þér er annt
um að lækna þágufallssýki eða
aðra málgalla.
Jæja, — vertu svo sæll og bróð-
urlegast kvaddur, Jón minn! Ég
óska þér allra þrifa með þágu-
fallslækningar þínar.
Ráðþægur röksnillingur.
í SfÐASTA pistli mínum hér
benti eg Kominform-p.iItunum á
það, hvernig heritast væri fyrir þá
að rðkræða bæjarsfjófakjörið
hér, sém og önnur ágreiningsefni
við Dag. Væri aðferðin einfald
lega sú, að halda áfram áð nota
ameríska heiðursmerkið sem
sönnunargagn í hverju máli og
láta það aldrei úr hendi sleppa
enda mundu bæjarmenn kannast
við háralagið á Kominform-mál-
gagninu þótt það brygði fyrir sig
dálítið torskilinni röksemda
færslu á stundum. Piltarnir virð
ast hafa lagt sér þessar ráðlegg
ingar vel á hjarta, og í föstudags-
útgáfu Verkamannsins er veru-
legur skammtur blaðsins helgað-
ur heiðursmerkinu. Sannast og
þar, að ráðleggirig Dags ætlar að
duga þeim jafnvel enn betur en
ætla mátti, með því að merkilegra
lesefni er ekki að finna í blaðinu
Verður vonandi áframhald ;
þeirri viðleitni Kominform-pilt
anna, að taka ekki önnur efni til
meðferðar en þau, sem þeir ráða
sómasamlega við.
Erfitt færi á bíó.
Egill Jóhannsson skipstjóri
skrifar blaðinu 27. þ m.:
„EG FÓR í Skjaldborgarbíó
gærkvöldi. Út af fyrir sig er það
ekki í frásögur færandi þó að
farið sé í bíó á sunnudagskvöldi
því að það gera svo margir, en
þessi bíóferð rnín var að því leyti
frábrugðin öðrum mínum bíó
ferðum, að minnstu munaði að eg
beinbrotnaði þegar eg ætlaði að
ganga upp útitröppui' þessa bíó
húss. — Tröppurnar upp að úti
dyrum hússins voru sem sé fullar
af gleráhlum klaka, svo að marin-
brodda hefði þurft á fæturna til
þess að vera nokkurn veginn ör-
uggur um líf og limi, og sýnilega
hafði engin tilarun verið gerð til
að hreinsa þessar tröppur, þrátt
fyrir góðviðri undanfarinna daga.
Það hlýtur að vera óumdeilan-
leg skylda að hafa opinbér sam-
komuhús það aðgengileg að hægt
sé að nálgast þau án þess að eiga
á hættu limlestingu vegna hirðu-
leysis eða trassaskapar og alveg
óskiljanlegt að þetta skuli eiga
sér stað hjá ráðamönnum þeirrar
stofnunar, sem alveg sérstaklega
virðist bera velferð almennings
fyrir brjósti.“
ÞRIFOTUR
Litlir kollar eða stólar, hvort heldur þeir eru
ji'ífættir eða fjórfættir, eru afar þægilegir, hvar
sem er. Ýmis heimilisverk segja sérfræðingar að
við eigum að sitja við, því að við eyðum óþarflega
mikilli orku í það að standa, auk verksins sjálfs, t.
d. við að straua. Hefur þú reynt að straua sitjandi?
Nú eru framleiddir sér-
stakir stólar, sem hús-
móðurinni er ætlað að
vinna við, og eru þeir
|| þannig gérðir að hægt er
lækka þá og hækka, og
setan er hreyfanleg,
þannig, að hægt er að
snúa sér við á stólnum,
svipað og þekkist á
skrifstofustólum. Slíkir
stólar eru að sjálfsögðu
það bezta af þessu tagi, en þó getur þrífótur, eins og
hér sést á myndinni, verið til mikils gagns og léttis.
Eg hef heyrt konur segja, að þær geti ekki hugsað
sér að sitja við eldhúsverk, sér finnist það letilegt
og ómyndarlegt. Það ér von að sumum finnist svo,
þar sem hitt, sem sé að standa við öll verk í eld-
húsi, er það sem við höfum séð frá upphafi og
vanist.
En ef það er rétt. að hægt sé að vinna mörg verk
í eldhúsinu eins vel og fljótt sitjandi, hvers vegna
ættuð við þá að standa öllum stundum, þótt for-
mæðui' okkar hafi gert svo? Að sjálfsögðu verða
alltaf einhver verk, sem ekki er hægt að vinna sitj-
andi. En getur ekki verið, að fótaþreyta og veiklun,
sem svo algeng er meðal roskinna kvenná, stafi að
einhverju leyti af of miklum stöðum? Að minnsta
kosti væri ekki úr vegi að athuga. þennan stól-
möguleika í eldhúsinu og tylla sér við hin ýmsu
störf eftir því, sem við verður komið.
P.
LA BRANDADE DE MORUE.
(Franskur réttur úr saltfiski).
Þessi réttui' er sagður vera vinsæll um allt Frakk-
land, en han ner upprunninn frá Nimes.
1 pund þurrkaður saltfiskuiv — % bolli matarolía.
— V2 bolli mjólk. — Safi úr einni sítrónu. — Hvítur
pipar. — Múskat á hnífsoddi. — Hvítlaukur.
Saltfiskurinn er látinn liggja í bleyti í 12 klst. Roð
tekið af og fiskurin nskoi'inn í nokkra bita, settur í
pott með köldu vatni, og suðan látin koma upp. Þá
er fiskurinn strax tekinn af eldinúm og vatninu
hellt af honum. Nú eru öll bein fjarlægð og roð og
fiskurinn aftur Settur í pott yfir mjög lítinn hita,
og er mikilvægt að svo sé. Þá er hrært saman við
með trésleif, fyrst 1 matskeið af heitri olíu, sem
laukurinn hefur verið verið marinn út í, síðah mat-
skeið af heitri mjólk og svo koll af kolli, þar til olían
og mjólkin hafa verið notuð til fulls. Þá á þessi
stappa að vera þykk, mjúk og hvítleit. Kryddið lát-
ið saman við, þ. e. pipar, múskat, sítrónusafi og svo-
lítið salt, ef það er nauðsynlegt.
Með þessum rétti, sem almennt er víst kallaður
Brandade í Frakklandi, eru bornar franskbrauðs-
sneiðar, sem steiktar hafa verið í smjöri.
GOTT RÁÐ.
Skartgripir vilja óhreinkast, eins og flest annað.
Bezta ráð til þess að hreinsa þá, er að leggja þá í
bleyti í blöndu af salmíakspíritus og vatni (1 hluti
saímiaksp. á móti 5 hlutum af köldu vatni). Þetta á
aðallega við víravirkisskartgripi. Meðan silfrið ligg-
ur í vatninu er það hreinsað með stífum pensli.
Gullhringa með dýrum steinum er bezt að
hreinsa á þann hátt, að leggja þá í svipaða blöndu
og láta sjóða augnablik. Þetta er talið betra heldur
en að bursta steinana, vegna þess að hætt er við því
að þeir losni, ef svo er gert.