Dagur - 15.03.1950, Side 6
G
D AGUR
Miðvikudaginn 15. marz 1950
—-’iw
LÁTTU HJARTÁD RÁDA!
Saga eftir Sarah-Elizabeth Rodger
15. DAGUR.
(Framhald).
þá, að ég varð að hitta þig. Eg er
búinn að ganga fram og aftur hér
úti og reyna að vinna bug á þess-
ari tilfinningu, en árangurslaust.
Eg skil, að þú kærir þig ekki um
slíka heimsókn. Það er eðlilegt.
„Þú þarft ekki að afsaka neitt,“
sagði hún. Rags lét ófriðlega og
hún hastaði á hann.
Rush leit á hundinn og sagði:
„Eg vissi ekki að þú ættir hund.“
Nei, auðvitað vissi hann það
ekki, hugsaði hún, og henni rann
í skap. Hann hafði yfirleitt ekki
kært sig um að vita neitt um
hana eða hennar hagi. En nú,
þegar hann sjálfur þarfnaðist þess
að tala við einhvern, kom hann
til hennar.
„Eg á hann ekki,“ svaraði hún
stillilega. „Terry á hann.“
Rush hafði ekkert vitað um
Terry fyrr en í kvöld. Hann
þekkti hana ekki, eins og hún var
nú orðin.
Rush gat ekki ráðið það af svip
hennar, hvað hún var að hugsa.
Hann sagði: „Eg get ekki gifst
Jenny. Eg sé alltaf betur og betur,
að þaá er ekki hægt:“ ’ .'
Alison svaraði ekki. Þetta hafði
komið mjög á óvart. Rush hélt
áfram.
„Þetta varð ekki ljóst fyrir mér
fyrr en í kvöld. Eg hef talið henni
trú um — og mér sjálfum — að
við gætum orðið hamingjusöm.
En það er allt misskilningur.“
„Hefurðu sagt henni frá þessu?“
spurði Alison.
„Nei. Eg komst aldrei til þess.
Hún tók alltaf fram í fyrir mér.
Eg kemst ekki nálægt henni með
hugsanir mínar — snerti hana að-
eins með atlotum."
Alison skildi, hvað hann var að
fara. Rauður blettur var auk
heldur á vörum hans. Þannig
mundi Jenny svara aðfinnslum.
„Kannske er Jenny hrædd við
hugsanir þínar, Rush,“ sagði hún.
„Þú hefur séð margt og lifað
lengur en hún. Þú verður að gefa
henni tíma til þess að vaxa upp
og þroskast."
Hann sneri þessum orðum
hennar þegar að henni sjálfri.
„Þarft þú líka að vera þolinmóð
og gefa McBride tækifæri til þess
að vaxa og þroskast? Heldurðu
að þér gangi það betur en mér?“
„Við vorum ekki að tala um
Terry og mig,“ sagði hún með
nokkrum þykkjuhreim.
„Það skiptir engu máli,“ svar-
aði hann. „Við erum bæði að
hugsa um það sama. Sjáðu nú til,
Alison. Eg hef hagað mér
heimskulega. Eg játa það fúslega.
En raunar hefur aldrei verið nein
nema þú. Eg þurfti á þér að halda,
en sá það ekki í bili. Nú er eg
trúlofaður Jenny, og þú ert bund-
in unglingi, sem ekkert getur fyr-
ir þig gert. Eg efast meira að
segja um, að hann geti séð sóma-
samlega fyrir þér. Eftir svo sem
ár verður þú orðin afhuga hon-
um, en hann verður búinn að
koma auga á aðrar stúlkur, á
hans aldri eða yngri. ... “
„Þetta er hugarburður,“ sagði
hún og gat ekki stillt skap sitt
lengur. „Þú ert búinn að drekka
/
of mikið í kvöld og þar að auki
eru taugar þínar ekki í lagi. Þú
veizt hreint ekki, hvað þú ert að
segja. Eina ástæðán til þess að
þú kemur hingað til mín nú er sú,
að við vorum eitt sinn vinir og þú
hafðir engan til þess að tala við
þessa stundina. Þetta er allt og
sumt, og þér er óhætt að trúa
því.“
„Er þetta í raun og sannleika
allt og sumt í þínum augum?“
„Já,“ svaraði hún hiklaust.
„Einu sinni var eg ástfanginn af
þér — það veizt þú vel. — En það
er allt búið nú.“
„Og nú ertu yfir þig hrifin af
McBride, tuttugu og þriggja ára
gömlum 'snáða — eða þú beldur
það sjálf. En eg segi þér satt, að
þú ert það ekki í raun og veru.
Eg.held áðibandið. milli .okkar sé
erih' til, éf VeT ef !að gáð. i; hvert
sinn, sem eg sá í augu þér í kvöld,
sannfærðist eg um þetta.“
(Framhald).
- Byggðasafn eða
reynslubú?
(Framhald af 5. síðu).
búrekstrar og til búskaparþátta,
sem óvenjulegir eru hér, en Ey-
firðingar gætu vel verið þekktir
fyrir að hafa forgöngu um hér á
landi.
Menningarframtak.
Á tillögustigi málsins er erfitt
að slá föstu með hverju móti skuli
hrinda framkvæmdum af stokk-
um. Um það þarf að ræða og gera
sér glögga grein fyrir hvaða mark
á að setja. En umfram allt ber að
miða við þau verkefni, sem að-
kallandi eru. Og svo þarf auðvit-
að að lyfta Grettistakinu þannig,
að það votti menningu þeirra, sem
að standa og efli hana í framtíð-
inni.
Ef hugmynd um byggðasafn á
margar rætur og djúpar, sé eg
ekkert því til fyrirstöðu að hún sé
sameinuð öðru framtaki og
stærra. En framlagi því, sem gert
er ráð fyrir að bændurnir leggi
af mörkum, hver af sínu mjólk-
urmagfti, á auðvitað að verja til
þess að styðja annað framtak og
miklu stærra en byggðasafnið. —
Um það hef eg annars að segja,
sem persónulegt sjónarmið, að
telja má nokkurt álitamál hvort
offra ber fjármunum til þess að
byggja yfir gamla muni á meira
en svo sem fjórum stöðum í
Ríiskinns-áburður
Skókrít
Leðurfeiti
Gull-lakk
Gúmmílím
Hælhlífar.
Skóbúð KEA
Nýkomið:
G Ú M M f
ofan á stígvél.
Skóbúð KEA
Kakomjólk
Grænmeíissúpa
Baunasúpa
Tómatsafi
Tómatmauk.
Nýlenduvurudeildin.
og útibd • < !
Seljum tóma
Eplakassa
Hentugii' undir útsæði.
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Harmonika
Nýleg pianó-harmonika til
sýnis og sölu frá kl. 1 til 4
hjá
Guðna Friðrikssyni,
Lundargötu 2.
landinu. Að hver landsfjórðung-
ur hafi sitt safn þjóðminja, held
eg samrýmist betur fjárhagslegri
getu þjóðar okkar ef gera skal
það úr garði sómasamlega og
halda opnu almenningi til fróð-
leiks og ánægju.
Hitt veit .eg knýjandi nauðsyn
landbúnaði Eyjafjarðar að efna
til búmenningarstöðvar í miðju
héraði, til eflingar virkum starfs-
greinum, til úrlausnar ýmissum
viðfangsefnum og til fyrirmynd-
ar þeim, sem hafa tilhneigingu til
að dragast aftur úr. Samtíðin
mundi gagn af slíku hljóta og
framtíðin þó ennþá fremur. Og
menningarvottur mundi það tal-
inn svo sem annars staðar er
raun á.
íþróttir
Á skíðum.
Tvær undanfarnar vikur hefur
verið allmikið um skíðaferðir frá
Akureyri. Hópar skólafólks hafa
dvalið í skálum sínum, M. A. í
Útgarði og G. A. í Ásgarði. Nær
bænum hefur svo verið strjáling-
ur skíðafólks daglega.
Fyrra laugardag fóru hópar frá
K. A. og Þór upp í fjall til úti-
legu yfir helgina. Síðari hluta
dagsins var suðvestan éljagangur
og undir rökkrið gerði blindstór-
hríð í 2—3 tíma. Nokkrir, sem á
undan fóru, komust í áfangastað:
5 K. A.-menn upp í Ásgarð og 7
frá Þór upp í Skíðastaði. Þrír K.
A.-menn fóru síðar, en urðu að
snúa við á miðri leið. Hópur frá
Þór, 12 manns, komst inn á Gler-
árdal ,en treystist ekki að hitta á
Skíðastaði í kófinu, en sneri við
niður með ánni og komst í bæinn
um kl. 8. — Um miðnættið var
stillt og bjart og fóru þá þrír pilt-
ar upp í Skíðastaði, þar sem óvíst
var um afdrif þeirra, er fyrst
fóru. Um kl. 2 á sunnud. kom allt
fólkið til baka, reyndar glatt í
skapi yfir ferðinni, bæði konur
og karlar, þótt öðruvísi færi en
ætlað var.
Um síðustu helgi var aftur hóp-
ur Þórsfélaga á Skíðastöðum. —
Veður var þá bjart og fagurt, en
færi hart og óslétt. Nokkrir — þ.
á- m. ein stúlka — gengu á Súlur.
• Skátar eru fleiri og færri um'
helgar í Fálkafelli sínu.
Þessar fjallaferðir hafa mikið
til síns ágætis, en jafnan skyldi
um það hugsað að forustan sé
ákveðin og góð, gætt reglusemi í
háttum og jafnað niður á alla
störfum, skyldum og leik. Hópar
unglinga þyrftu og að hafa með
sér einhvern, sem leiðbeint gæti
og hjálpað byrjendum á skíðun-
um. Skíðakennsla kemur sjaldan
að betra gagni en einmitt í
svona hópum. Hefur oft áður
verið betur fyrir því séð en nú og
þyrfti þar að bæta úr. Hér hefur
verið mjög lítið um skíðakennslu
í vetur. Akureyringar eru ekki
líklegir að verða framarlega í
fylkingum skíðamanna á næstu
árum, ef svona heldur áfram.
Sumir vilja þó e. t. v. telja, að
göngukeppnin sl. sunnud. bendi
til annars. Fór þá fram keppni í
skíðagöngu — Akureyrarmót —
nýbreytni, sem er ánægjuleg út af
fyrir sig, en bara of erfið byrjun
miðað við þá æfingu, sem fengin
var. Þátttakan var sæmileg, 6 í
eldri fl. — 20—32 ára — og 8 í
þeir yngri — 17—19 ára. — Leið-
in er talin ca. 14 km. (ágizkun) og
frekar erfið — mishæðótt og færi
hart. „En allir komu þeir aftur“,
sem betur fór og sumir vissulega
á góðum tíma miðað við--ja,
þá, sem seinni voru a. m. k.! Og
áreiðanlega má gera ráð fyrir, að
þarna séu framtíðar-göngumenn
á labbi, ef þeir bara legðu sig
fram og æfðu skynsamlega.
Guðm. Guðmundsson, serii
þarna náði langbeztum tíma, er
nú reyndar kallaður „Guðm. 2.“
hér ennþá, en hann virðist hafa
margt það til að bera, að hann
Og útilíf
muni með nokkrum rétti geta
kallast Guðm. 1. áður en langt
líður. Ymsa fletiri mætti nefna
sem efnilega — en við bíðum
næstu göngu með það.
Keppendur voru langflestir
frá K. A„ eða 9, 4 frá M. A„ 1 frá
Þór, enginn frá G. A.
Úrslit urðu sem hér segir:
Eldri flokkur:
1. Bergur Eiríksson, K. A„ 54.02
mín.
2. Friðrik Guðmundsson, K. A„
54.08 mín.
3. Einar Einarsson, K. A„ 58.40
mín.
Yngri flokkur:
1. Guðmundur Guðmundsson, K.
A„ 52.36 mín.
2. Ólafur Einai’sson, M. A„ 55.24
mín.
3. Haukur Jakobsson, K. A„ 55.31
mín.
Fjögurra manna sveitakeppni í
báðum fl. vann A-sveit K. A. og
þar með Göngubikar Akureyrar
1950, sem vinnst til eignar. Bikar-
inn er gefinn af Einari Kristjáns-
syni framkvæmdastj.
í sveitinni voru:
• Guðm. Guðmundsson,
Bergur Eiríksson,
Friðrik Guðmundsson,
Haukur Jakobsson.
Tími.syeitarinngy 3,16.17 mín.
Sveit MV. Al' .Vár ,2-. á 235.33 fníri.
Veður var ágætt, og að lokum
allmargir áhorfendur.
Skautafél. Akureyrar
kom á innanfélagsmóti síðastl.
sunnudag. Tókst það vel og náð-
ust betri árangrar bæði á 500 og
1500 m. en á sjálfu íslandsmótinu
í Reykjavík nú fyrir skemmstu.
Verður nánar frá þessu skýrt í
næsta blaði.
Síðari fundur
þings f. B. A. verður í félags-
heimilinu í kvöld og hefst kl.
8.20. Fulltrúar! Munið að koma
stundvíslega!
Vil kaupa
góðan BÁT, með eða án
vélar, ca. 16—20 fet.
Afgr. vísar á.
MISGRIP
Mánudaginn 6. þ. m. var
tekin í misgripum kven-
skóhlíf, merkt Þ. H„ fram-
an við dyrnar á ljóslækn-
ingastofunni í Hafnarstræti
101 (yfir verzl. Amaro), og
önnur hærri skilin eftir í
staðinn.
Leiðréttingu á misgripum
þessum getur hlutaðeigandi
fengið í Helga-magra-stræti
51, uppi.
Lítið herbergi
óskast. — Upplýsingar í
síma 502.