Dagur - 15.03.1950, Qupperneq 8
8
Baguk
Miðvikudaginn 15. marz 1950
Breytingar á by!g]u!engdum
margra útvarpsstölva I dag
Reykjavíkurstöðiíi óbreytt
í dag ganga í gildi ákvæði al-
þjóðaútvarpsráðstefnunnar í
Kaupmannahöfn árið 1948 uin
breytingar á bylgjulengdum ým-
issa útvarpsstöðva. Er mn all-
verulegar breytingar að ræða á
öldulengd margra þeirra útvarps-
stöðva, sem hér heyrast bezt og
fer hér á eftir yfirlit yfir hina
nýju öldulengd nokkurra þeirra.
Reykjavík mun útvarpa áfram
á langbylgjum á 1648 metrum
eins og verið hefur. ísland und-
irritaði ekki samþykktir Káup-
mannahafnarráðstefnunnar, áðal-
lega vegna þess að sænskri út-
varpsstöð var úthlutað sömu
bylgjulengd og Reýkjavík.
Nýjar býlgjulengdir.
Samkvæmt frásögn brezka út-
varpsblaðsins „Radio Times“ eru
bylgjulengdir þessar: Langbylgj-
ur: 1935 metrar, Brasow í Rúm-
eníu, 150 kw. stöð. 1829 metrar
Allouis í Frakklandi, 450 kw. stöð.
1734 metrar Moskva I, 500 kw.
stöð. 1648 rrjetrar, Reykjavík, 100
kw. stöð. 1571 metri Motala Sví-
þjóð, 200 kw. stöð. 1500 metrar
Light Programme brezka útvarps
ins, 400 kw. stöð. 1376 metrar
Oslo, 200 kw. stöð. 1322 metrar
Warsjá I Póllandi, 200 kw. stöð.
1224 metrar Kalundborg, 150 kw.
stöð. 1103 metrar Tékkóslóvakía,
200 kw. stöð.
Miðbylgjur.
Á miðbylgjunum má nefna
þessar stöðvar: 539 metrar Hel-
sinki, 100 kw., 530 Athlone ír-
landi, 100 kw., 514 Vínarborg, 120
kw., 506 Sundsvall Svíþjóð, 150
kw., 498 Lyons Frakkland, 150
kw., 484 Briissel, 150 kw., 470
Prag I, 150 kw., 464 Thir pro-
granime brezka útvarpsins, 445
Marseilles, 100 kw., 434 North
Home Service brezka útvarpsins,
150 kw., 402 Hilversum Holland,
120 kw., 388 Stokkhólmur, 150
kw., 371 Scottish Home Service
brezka útvarpsins, 150 kw., 355
Rómaborg, 150 kw., 348 París I,
150 kw., 334 Mílanó, 150 kw., 330
London, 150 kw., 324 Briissél II,
150 kw., 318 Tolouse Frakkl., 100
kw., 309 Þýzkaland (brezka her-
námssv.), 303 Þýzkaland (amer-
íska hernámssv.), 298 Hilversum
U, 288 Þýzkaland (rússneska
hernámssv.), 280 París II, 247
Light programme brezka út-
varpsins, 194 Thir programme
brezka útvarpsins.
Merk handiðnaðarsýning í Kaup-
mannahöfn s næsfa mánuði
Norræn samkeppni í sambandi við sýningnna
Iðnaðarmannaféálagið í Kaup-
mannahöfn gengst fyrir iðnaðar-
sýningu í Forum í Kaupmanna-
höhi dagana 14.—30. apríl næstk.
Friðrik Danakonungur verður
verndari sýhmgarinnar. Danska
sendiráðið hér hefur látið blaðinu
í té eftirfarandi upplýsingar um
þessa sýningu:
Markmið sýningarinnar er að
sýna þýðingii hándiðiiáðarins fyrir
þjóðfélagið í heild og fyrir einstak-
linga, ásamt möguleikana til að
framleiða lyrsta flokks vörur. í
þessu sambandi má geta þess, að
handiðnáðuririn er þriðja stærstá
atvinnugrein Danmerkur með árs-
framleiðslu á stærð við stóriðnað-
iriri.
I sambandi við sýningu þessa
mun verða haldin norræn sam-
keppni, þar sem ungt fólk í mörg-
uiri iðngreinum (bæði meistarar og
svcinar) mun keppa um á ákveðnu
verksviði og tíma að inna af hendi
sem falegastan og béztán haridiðn-
að. -
Að minnsta kosti 10 iðngreinar
rriúuu taka þátt í sýningunni, ög
fléstar munu sýna ffá starfandi
verkstæðum, hvcrnig vorur þeirra
verða til, og mun þetta gefa sýning-
unni skemmtilegan og fjörugan
héildarsvip. Þar sem sýningin auk
þess verður sú stærsta al' þessari
tegund, sem til þessa liéfir verið
haldin á Norðurlöndum, og sú
stærsta handiðnaðarsýning í hcild,
sem haldin liefir verið í Danmörku,
í heiian mannsaldur, áiítur nefndin,
að sýningin muni geta talizt til stór-
virburða.
99,96% kjörsókn
- jafnt í Síberíu
sem Moskvu!
Kosriingar til æðsta ráðs Sovct-
ríkjanna fórn fram um sl. helgi.
Gátu iaridsmenn valið rilri að
,,kjósa“ frambjóðendur þá, sem rík-
isvaldið stillti upp, eða skila auðu.
AðeinS einri frambjóðandi var í
hverju kjördæmi. Moskvaútvarpið
segir að kjfirsóknin um allt laridið
hafi verið 99.96%; jafnt í strjálbýl-
um héruðum Síberíu sem í þcttbýl-
um stórborgum. Þó hafi 100% greitt
atkvæði í kjördæmi Stalíns sjálfs í
Moskvu og allir kosið hánnl Þeísar
töiur sýna nógu greinilega, hvers
konar „kosnirigáf" liér er um ræða.
lonaðarmaður
hciðraður
Olafur Hvanndal prentmynda-
gerðarmeistari, sem nú dvelur
hér í bænum, átti 71 árs afmæli í
gær. , Blaðamannafélag íslands
hefur nýlega heiðrað hann með
veglegu samsæti. Hvanndal er
brautryðjandi í prentmyndagerð
hér á landi.
Ungmennafélagslireyfmgm aftur í sókn
Fallin í ónáð
Erlend blöð telja fullvíst að rúm-
enski utanríkisráðherrann, Ana
Pauker, sé fallin í óánð í Moskvu.
hefur verið mjög hljótt um hana
nú lengi. í einu blaði var greint
frá því, að það hefði orðið henni
að falli að hafa drukkið eftirmið-
dagste hjá brczka sendiherranum
og hefði slíkt þótt óleyíileg um-
gegni við vestræna stríðsæsinga-
irienn!
StangarVeiöimenn
stofna félag
Stangveiðimenn hér um slóðir
hafa myndað með sér félags —
Stangveiðifélagið „Straumar". —
Var það stofnað sl. sunnudag. Um
30 stangveiðimenn gerðust stofn-
félagar. Tilgangur félagsins er m.
a. að bæta aðstöðu félagsmanna
til stangveiði í ám og vötnum,
vinna gegn ómenningarlegum og
ólöglegum veiðiaðferðum og
stuðla að fiskirækt í ám og vötn-
um. Stjórn félagsins skipa: Hauk-
ur Snorrason, formaður, Þórður
V. Sveinsson, gjaldkeri, og Tómas
Steingrímsson, ritari.
29. þing U. M. S. E. var haldið
á Laugalandi í Eyjafirði dagana 4.
og 5. marz, í hinum nýja barna-
skóla Ongulsstaðahrepps. Var
það eins og mörg hin fyrri þing
sambandsins hin virðulegasta
samkoma, þar sem rædd voru hin
fjölþættu verkefni þessara fé-
lagasamtaka.
Kom það greinilega í ljós að
ungmennafélögin við Eyjafjörð,
allt frá Ólafsfirði til Eyjafjarðar-
dala, vinna öll að margvíslegum
menningarmálum og báru árs-
skýrslur hinna einstöku félaga
það greinilega með sér ásamt
þinginu sjálfu, að ungmennafé-
lögin eru í sókn og er það gleði-
efni öllum hugsandi mönnum. —
Má t. d. í því sambandi benda á
að U. M. S. E. ætlar að ráða til sín
fastan íþróttakennara, sem jafn-
hliða íþróttakennslunni vinni að
ýmsum félagsmálum sambandsins
og félaga þess.
44 fulltrúar hinna ýmsu félaga
áttu rétt til þingsetu og mættu
flestir þrátt fyrir veðurvonzku.
Fæðissölu annaðist húsmæðra-
skólinn. Eiga báðir skólarnir á
Laugalandi þakkir skyldar fyrir
aðbúnað allan og vinsamlega
hjálp til að þingið yrði sem
ánægjulegast.
Á þinginu voru fluttar nær 100
ræður og tóku meira en helming-
ur fulltrúanna til máls. í þinglok
sátu fulltrúar boð Ársólar. Fóru
þar fram ræðuhöld og þingslit.
Þar söng og einn þingfulltrúinn
nokkur lög. Textinn var á flest-
um óþekktri tungu. Þá var full-
trúunum boðið á skemmtisam-
komu að Þverá, er Ársól og Ár-
roðinn í Öngulsstaðahreppi efndu
tiL
Stjóm Ungmennasambands
Eyjafjarðar var öll endurkosin,
en hana skipa: Hjalti Haraldsson,
héraðsstjóri, Erlingur Davíðsson,
ritari, Guðmundur Benediktsson,
gjaldkeri, og meðstjórnendur þeir
Guðmundur Sigurgeirsson og
Snorri Kristjánsson.
Aflasala ,.Svalbaks“
Togarinn „Svalbakur" seldi afla
sinn í Fleetwood sl. fimnitudag fyrir
8.258 sterlingspund. Var markaður-
inii þá lakari en verið hafði um
skeið að undanförnu. Kaldbakur
átti að selja í gær, en ekki hafði
borizt iregn uni aflasöluna er blaðið
fór í pressuna. Svalbakur er korninn
hingað aftur úr llretlandsförinni.
-Nýja ríkisstjórhin
Síldargangaii við Noreg
í vetur Vár árgangur
1943-1944
f viðtali við Bergens Tidende
nú fyrir skömmu, upplýsir Finn
Devold, starfsmaðui' hafrann-
sóknarstofnunar norska ríkisins,
að hinar miklu síldargöngur við
Noregsstrendur nú í vetur hafi
verið síld af árgöngunum 1943 og
1944. Þessi 6—7 ára gamla síld
verður allt að 30 cm. stór. Síldar-
merkingar Norðmanna virðast
sanna, segir Devold, að stórsíldin
og vorsíldin sé sama tegundin.
Færeyingar með Bretum
á salífiskveiðum
Fishing News í Aberdeen skýr-
ir frá því, að togaraeigendur í
Hull hafi mikinn áhuga fyrir að
endurvekja saltfiskútflutning frá
Hull, en fyrir stríð var borgin
mikil saltfiskútflutningsmiðstöð.
Nýlega er togarinn „Howard“
farinn til veiða í Norðurhöfum,
segir blaðið, og hyggst salta afl-
anri um borð. Færeyskir sjómenn
hafa verið ráðnir á togarann. —
Gert er ráð fyrir að skipið fái 200
lestir af saltfiski í veiðiförinni.
(Framhald af 1. síðu).
herra lýstu þeir Stefán Jóh. Stef-
ánsson og Einar Olgeirsson yfir
andstöðu flokka sinna við ríkis-
stjómina. Hvorúgur benti á neiri
úrræði önnur en þau, sem ríkis-
stjórnin hefur á stefnuskrá sinrii,
og hvorugur neitaði því, að riauð-
syn bæri til að gera róttækar
ráðstafanir vegna atvinnuveg-
anna.
Breytingarnar á gengisfell-
ingarfrumvarpinu.
Breytingar þær, sem stjórnar-
flokkarnir hafa komið sér sam-
an um að gera á gengisfellingar-
fi'umvarpinu snerta ekki gengis-
lækkunina sjálfa. Mun hún ráð-
gerð hin sama og frv. ákveður. —
Helzta breytingin snertir eigna-
skattinn. Er ákveðið að leggja
hann á allar eignir, en ekki að-
eins á fasteignir, sbr. frv., og að-
eiris á einstaklinga en ekki á fé-
lög. Verður eignum félaga skipt
niður á einstaklinga eftir eign
þeirra í þeim. Eignaskatturinn
verður stighækkandi, í stað þess
að frv. gerði ráð fyrir einum
skatti aðeins, og verður hann nú
25% af eignum umfram 1% millj.
króna. Eignaskattui'inn skv.
eignauppgjörslögunum frá 1947,
j gengur inn í þennari skatt. Tekj-
urnar af skattinum eiga að skipt-
ast þannig: 10 millj. gangi til upp-
bótar á sparifé, en það sem um-
fram er, skiptist til helminga: a)
til byggingasjóðs verkamanna og
samvinnubyggingafélaga og bygg
ingasjóðs Búnaðarbankans. b) til
greiðslu á skuldum ríkissjóðs. í
frv. fyrrv. stjórnar var gert ráð
fyrir að allur skatturinn færi til
skuldagreiðslu.
Gengishagnaður' bankanna
verður eign ríkisins og verður
honum skipt þannig til bráða-
birgða: 1/3 til byggingasjóðs
Búnaðarbankaris, 1/3 til bygg-
ingasjóðs verkamanna og það,
sem eftir er, verði lánað Rækt-
unarsjóði til 20 ára. Þetta framlag
til byggingasjóða verði endur-
greitt er þeir fá sinn hlut af
eignaskattinum, og verði sú end-
urgreiðsla látin ganga til þess að
greiða skuldir ríkissjéðs.
Um ýms atriði frumvarpsins,
sem ekki er fullt samkomulag
um, var ekki samið, heldur mun
hvor flokkurinn um sig sætta sig
við þá afgreiðslu, sem Alþingi
veitir þeim atriðum. Svo er t. d.
um ákvæðin um fasteignamat,
hvort þáð skuli fimmfalda eða
meira, viðskiptamálin o. fl.
Nokkrar fleiri breytingar á frv.
munu ráðgerðar, en blaðið hafði
ekki fullnægjandi upplýsingar
um þær í gær.