Dagur - 05.04.1950, Blaðsíða 1
Forustugreinin:
Markaðsmálin og komm-
únistar.
Fimmta síðan:
Rætt við Sigurð Gunn-
arsson á Ljótsstöðum í
Vopnafii’ði.
XXXIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 5. apríl 1950
18. tbl.
„Uppstigning" Sigurðar Norda! er
næsta viðfangsefni Leikfélagsins
Ágúst Kvaran er leikstjóri
Fyrir nokkru hófust hér æfing-
ar á vegum Leikfélags Akureyr-
ar á sjónleiknum „Uppstigning“
eftir Sigurð Nordal prófessor. Er
æfingum nú langt komið og mun
leikurinn verða tilbúinn til sýn-
ingar um miðjan þennan mánuð,
cn vegna þess að leikhúsið verð-
ur upptekið og af fleiri ástæðum
munu sýningar ekki hefjast fyrr
cn síðar í mánuðinum.
Ágúst Kvai’an er leikstjóri.
Er þetta fyrsti leikurinn, sem
hann setur á svið síðan 1941, er
hann hafði leikstjórn á hendi við
„Skrúðsbóndann“. Munu bæjar-
menn fagna því, að hann skuli á
ný taka að sér leikstjórn.
„Uppstigning" er í fjórum þátt-
um og fimm sýningum. Leikurinn
var sýndur í fyrsta sinn í Reykja-
vík árið 1945 og vakti þá mikla
athygli, m. a. vegna þess, að höf-
undurinn fer í leikritinu inn á
leiksviðstækni, sem ekki hefur
fyrr sést í íslenzkum leikritum.
í leiknum eru 14 leikendur.
Stærstu hlutverkin hafa með
höndum: Guðmundur Gunnars-
son, Björg Baldvinsdóttir, Matt-
hildur Sveinsdóttir, Þórir Guð-
jónsson og Jónína Þorsteinsdótt-
ir.
Mjög aukinn áhugi
fyrir kartöflurækt
í sumar
Garðyrkjuráðunautuf bæjarins
hefur skýrt blaðinu frá því, að
áhugi bæjarbúa fyrir kartöflu-
rækt sé mjög vaxandi. Árið 1947
var tala þeirra, sem höfðu land á
leigu hjá bænum á annað hundr-
að, en nú eru þeir á fimmta
hundrað.
Bridgekeppni Akureyr-
inga og Siglfirðinga
Sveit frá Bridgefélagi Siglu-
fjarðar kom hingað um helgina til
keppni við Bi’idgefélag Akureyr-
ar. Hófst keppnin í fyrrakvöld og
sigruðu Akureyringar í þeirri
umferð. Keppni var haldið áfram
í gærkvöldi og lýkur í kvöld.
Fjölmenn skemmtun
F ramsóknarmanna
Framsóknargélag Akureyrar
hafði skemmtikvöld að Hótel
KEA sl. sunnudagskvöld. Var
spiluð Framsóknarvist undir
stjórn Þorleifs Þorleifssonar og
síðan dansað. Færri komust að en
vildu. Skemmtikvöld Framsókn-
armanna eru orðin mjög vinsæl í
bænum.
Sfórfelldur bruni af völdum
olíukyndingar í Reykjavík
á mánudaginn
Tjönið nemur milljónum króna
Enn einn bruniim hefur orðið af vö'dum olíukyndingar. — Á
mánudagskvöldið brann fiskþurrhunarstöð Sambands ísl. fiskfram-
leiðenda við Elliðaárvog í Reykjavík, til kaldra kola, og eyðilögðust
þar verðmæti, vélar, hús, fiskur og vörubirgðir fyrir a. m. k. 2 millj.
króna. En tjónið er ekki uppgcrt að fullu og er líklegt að það sé mun
meira. Þar að auki er óbeint tjón vegna stöðvunar fiskþurrkunar-
stöðvarinnar, atvinnmissis um 50 manns o. fl.
íkviknunarinnar varð vart um
kl. 8 á mánudagskvöldið. Voru þá
vaktaskipti í stöðinni. Sáu vakt-
menn að eldur var laus í olíu á
gólfi olíukyndingarklefa. Reyndu
þeir að slökkva hann með hand-
slökkvitækjum og vatni, en án
árangurs. Slökkvistai’f Slökkvi-
liðs Rvíkur gekk og mjög erf-
iðlega. Vatnslítið er á þessum
slóðum og var reynt að dæla sjó á
eldinn, en þari og leir settist í
slöngurnar. Var þá reynt að
flytja vatn á tankbílum, en allt
kom fyrir ekki. Stöðin brann til
ösku. Mikið af fiski brann þarna
eða skemmdist. Þá brunnu
nokkrar birgðir af hessianstriga,
sem er torfengin vara nú og
munu litlar aðrar birgðir í land-
inu.
Leon Blum látinn
Hinn kunni, franski jafnaðar-
manaforingi Leon Blum andaðist
að heimili sínu
nálægt París í
sl. viku, 78 ára
að aldri. Hann
var heimskunn
ur stjórnmála-
maður, nokkr-
um sinnum for
sætisráðher r a
og þjóðhetja á
stríðsáru n u m
og sérstaklega í
r é ttarhöldun-
um í Ríom. Eftir þau sat hann um
hríð í Buchenwaldfangabúðum í
Þýzkalandi. Margir af stjóm-
málaleiðtogum Evrópu minntust
hans í sl. viku í ræðum og blaða-
viðtölum.
Alþingi
í páskaieyfi
Síðastl. föstudag lauk fundum
Alþingis að þessu sinni og fóru
þingmenn í páskaleyfi. Þingið á
að koma saman aftur 12. þ. m. —
Ríkisstjórnin liyggst vinna að
fjárlögunum meðan þingið er í
leyfinu og er þess vænzt, að fjár-
lög verði afgreidd fljótlega eftir
að þing kemur saman á ný. Þing-
menn utan af landi hafa margir
farið heim til sín nú um páskana.
Jónas G. Rafnar, þingm. bæjarins,
er kominn hingað norður. Bem-
harð Stefánsson, 1. þingm. Eyfirð-
inga, mun ekki koma norður
vegna lasleika.
íslenzkir iðnaðarmenn
velkomnir á dönsku
iðnaðarsýninguna
í þessuin mánuði
Eins og fyrr er frá skýrt hér í
blaðinu verður efnt til stórrar
iðnaðarsýningar dagana 14.—30.
þ. m. í Forum í K.höfn, báðir dag-
' ar meðt. Verður þetta stærsta og
íullkomnasta sýning sinnar teg-
undar í Danmörku.
Danski vararæðismaðurinn hér,
Balduin Ryel, hefur skýrt blaðinu
fl'á því, að islenzkir iðnaðarmenn
og aðrir gestir, séu sérstaklega
velkomnir á sýninguna og muni
framkvæmdastjóm sýningarinn-
ar leiðbeina þeim eftir beztu getu
til þess að þeir geti haft sem bezt
not af dvöl sinni á sýningunni. —
Skrifstofa sýningarinnar er í Dr.
Tværgade 2, Kaupmannahöfn,
sími Byen 7291, þangað til sýn-
ingin opnar 14. þ. m., en eftir það
í Forum, sími Luna 2020. Allar
nánari upplýsingar um sýninguna
geta menn fengið í danska vísi-
konsúlatinu hér.
Amtsbókasafnið verður lokað 5.
—10. apríl.
Hið nýja kjötbúðareldhús K. E. A.
Frk. Ingibjörg Júliusdóttir að starfi í kjötbúðareldhúsinu.
Smjörlíkisgerð K.E.Á. búin full-
komnum dönskum og sviss-
neskum vélum
Nýungar í starfsemi kjötbíiðar og pylsugerðar
Sl. föstudag bauð framkvæmda-
stjóm Kaupfélags Eyfirðinga
fréttamönnum, heilbrigðisfulltrúa
og héraðslækni að skoða nokkur
iðnfyrirtæki félagsins hér á Ak-
ureyri. Er nýlega lokið miklum
endurbótum á nokkrum iðnfyr-
irtækjum félagsins. Eftir að iðn-
fyrirtækin höfðu verið skoðuð,
bauð íélagið til hádegisverðar og
þar flutti framkvæmdastjórinn,
Jakob Frímannsson, ræðu, og
skýrði starfsemina og þýðingu
liennar fyrir bæ og hérað.
Nýja smjörlíkisverksmiðjan.
Kaupfélag Eyfirðinga stofnsetti
smjörlíkisverksmiðju fyrir 20 ár-
um. Var sú verksmiðja mjög full-
komin á þeirra tíma mælikvarða,
en síðan hafa orðið miklar fram-
farir í smjörlíkisframleiðslu og
taldi félagið nauðsynlegt að fylgj-
ast með á þeim vettvangi. Var af-
ráðið, að endurnýja verksmiðjuna
eins fljótt og unnt væri eftir
stríðið. Vélar voru pantaðar þá.
en afgreiðslutími þeirra reyndist
langur. Byggja þurfti nýtt verk-
smiðjuhús og var því valinn stað-
ur í Grófargili, skammt fyrir ofan
gamla húsið. Fyrir tæplega ári
var þessum framkvæmdum öllum
lokið og verksmiðjan tók til starfa
með nýjum vélakosti. Aðalfram-
leiðsluvélarnar eru keyptar í
Danmörk og Sviss og eru þær af
fullkomnustu gerð. Engin manns-
hönd snertir við efninu frá því að
olían fer í bræðslu- og blöndun-
arkerin þangað til smjörlíkis-
stykkin eru innpökkuð og fara
beint úr innpökkunarvélinni í
umbúðakassana. Þessi verk-
smiðja er nú tvímælalaust full-
komnasta smjörlíkisverksmiðja
landsins. í hinu nýja smjörlíki er
ekkert vatn, sem telja verður mik
inn kost. Ilins vegar hefur nú um
sinn gengið erfiolega að fá hinar
beztu smjörlíkisolíur til lands-
ins, þ. e. kókosolíur, og hef-
ur bragð smjörlíkisins því ekki
batnað í samræmi við hina bættu
framleiðsluhætti, en vonir standa
til að úr þessu rætist. í ræðu sinni
benti Jakob Frímannsson á þýð-
ingu þess, að vandað væri til
smjörlíkisframleiðslu landsins,
því að verulegum hluta af feit-
metisþörf þjóðarinnar yrði að
fullnægja með smjörlíki með því
að smjörframleiðslan fullnægði
(Framhald á 8. síðu).