Dagur - 19.07.1950, Síða 4
4
D AGUR
Miðvikudaginn 19. júlí 1950
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson
Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sími 1166
Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 25.00
Gjalddagi er 1. júlí.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
Kredduvísindi kommúnista
og friðurinn
LANGT ER UM liðið síðan eins ógeðsleg skrif
og nú getur daglega að líta í málgögnum komm-
únista, hafa séð dagsins ljós á íslandi. Verður að
leita allt til ársins 1939 til þess að finna sýnishorn
af svipuðu, kommúnistísku hugarfari. Á því ári
voru kommúnistablöðin full af vandlætingu yfir
árásarhneigð Finna, sem þau sögðu hafa ráðist
með her manns á hin friðsömu Ráðstjómarríki.
Sögðu kommúnistar Rússum nauðugan einn kost,
að hrekja árásarliðið af höndum sér og brjóta
finnsku þjóðina undir sig. Sami leikurinn var sett-
ur á svið, er Stalin og Hitler skiptu Póllandi með
sér og rússneskur her réðst inn í Pólland, að baki
hersveita þeirra, er vörðu Pólland fyrir sókn naz-
ista. Aðeins nokkrar auðtrúa sálir lögðu nokkurn
trúnað á þessa sagnfræði kommúnista. Heimurinn
vissi mæta vel, að finnsk-rússneska styrjöldin var
rússneskt árásarstríð og innrásin í Pólland er eitt
ljótasta dæmis um miskimnarleysi og blygðunar-
leysi valdafíkinna einvaldsherra. Kommúnista-
sprauturnar hér og annars staðar, sem í þetta sinn
bera í skauti sér. Lýðræðisþjóðir
heims geta ekki háð árásarstríð.
Vesturlandabúar, þing þeirra og
ríkisstjómir vilja frið. Það er
ekki á valdi neins eins manns á
Vesturlöndum að steypa heimin-
um út í þriðju heimsstyrjöldina.
En öðru máli gegnir fyrir austan
járntjald. Valdhafarnir þar þurfa
ekki að spyrja neitt þing eða al-
menningsálit hvort þeim leyfist
aessi árásin eða hin, fremur en
Hitler þurfti þess með. Þeir eigá
um það við sjálfa sig. Þingin þar
austur frá eru einskis megandi
hallelújasamkomur, sbr. þegar
málamyndaþing Rússlands sam-
þykkir fjárlög ríkisstjórnarinnar
fyrir allt hið víðlenda ríki og all-
an hinn gífurlega herkostnað, á
nokkrum klukkustundum. Og al-
menningsálitið hafa þessir vald-
hafar í hendi sér. Þeir hafa úti-
lokað frjálsan fréttaflutning. • —
Mánuð eftir mánuð er fólkinu,
sem ekkert annað má vita, sagt,
að lýðræðisþjóðir Vesturlanda
undirbúi styrjöld. Hinar æðis-
legu ásakanir rússneskra vald-
hafa á hendur vestrænum þjóðum
um stríðsundirbúning, eru eitt
óhugnanlegasta dæmið um stríðs
undirbúning þeirra sjálfra. Það
þykir, af augljósum ástæðum,
mikil nauðsyn að rækta stríðs-
hugarfar með rússnesku þjóðinni
og telja henni trú um að hún sé
umkringd af blóðþyrstum stríðs-
æsingamönnum. Eftir margra ára
kennslu í slíkum fræðum, þykir
hinum rússnesku valdhöfum nú
e. a. v. kominn sá tími, er akur-
inn er fullplægður, og óhætt að
sá því korninu, sem alþjóða-
kommúnisminn og heimsvalda-
stefna hans. geymir í sér, en það
er sú kenning, að kommúnisminn
og kapítalisminn hljóti að heyja
útrýmingarstríð í fyllingu tím-
ans. Þessi kenning kommúnista
er hættulegasti óvinur friðarins
og því hættulegri, sem fleiri
verða blindir bókstafsþrælar
marxistískra kreddukenninga.
KOMMÚNISTAR vaða nú um
allar jarðir með svokallað Stokk-
hólmsávarp upp á vasann. Segj-
ast þeir vilja banna notkun
kjarnorkuvopna. Það er ósvífni
að kalla þetta plagg friðarávarp,
því að það fjallar ekki um frið,
heldur bann við notkun eins
drápstækis. Er svo að sjá sem að-
standendum þess þyki það ágæt
vinnubrögð, að rússneskir, eld-
spúandi skriðdrekar og önnur
slík drápstæki geysist yfir frið-
söm lönd til að undirbúa komu
fagnaðarerindis Lenins og Stalíns.
Friðurinn á langt í land meðan
slíkar afsakanir fyrir friðrofum
þykja einhvers virði, og það
þykja sjálfsögð vinnubrögð í víð-
lendum ríkjum, að láta þjóðir ná-
grannaríkjanna „hoppa þegjandi
og hljóðalaust" inn í kommúnis-
tískt skipulag með aðstoð skrið-
dreka og byssustingja.
FOKDREIFAR
Kvenfélagið Framtíðiii og
Elliheimilið
Jónsmessuhátíð kvenfélagsins Framtíðin, er orðin
fastur liður í skemmtanalífi bæjarins og tilhlökk-
unarefni barna og bæjarbúa almennt. Að þessu
sinni var veðurfar ekki hið ákjósanlegasta, og varð
félagið að f resta hátíðinni um eina viku' af þeim
ástæðum. Ótrúlega vinnu leggja kvenfélagskonur á
sig til þess að koma þessari hátíð upp, en bæjarbú-
ar virðast einnig hafa skilið, að hér er um málefni
að ræða, sem alla varðar, og hafa því stutt félagið
við undirbúning, en mest þó með því að fjölmenna
á hátíðinni. í ræðu, sem formaður k'venfélagsins,
frú Gunnhildur Ryel, flutti, fórust henni m. a. orð
á þessa leið:
„Eins og ykkur mörgum er kunnugt, þá var Elli-
heimilissjóður Akureyrar 40 þúsund kr. í árslok
1939. Sú upphæð var þá lánuð til hins nýja sjúkra-
húss til að hraða því máli svo sem unnt var. Þessi
upphæð var lánuð til 10 ára, gegn góðum vöxtum.
Jafnframt hét kvenfélagið að veita sjúkrahúsinu
pann stuðning, sem unnt væri jafn langan tíma, eða
10 ár. Þessi 10 ár eru nú liðin. Þessi Jónsmessuhátíð
er hin fyrsta, er við höldum til ágóða fyrir væntan-
legt elliheimili hér í bæ, en það er markmið okkar
og hefur lengi verið, að koma hér upp fullkomnu
elliheimili. Skal það verða sjálfseignarstofnun. Hinu
væntanlega elliheimili hefur verið válinn staður
ofan við nýja sjúkrahúsið neðan Þórunnarstrætis.
Mun bærinn ætla því stóra lóð, svo að hægt verði
að gjöra þar aðrar framkvæmdir, sem nauðsynlegár
eru við slíka stofnun. Ætlunin er að hafa þar mikla
ræktun, og má geta þess, að elliheimilið Grund í
Reykjavík hefur haft miklar tekjur af blóma- og
grænmetissölu, og auk þess hefur heimilið haft
nægar birgðir grænmetis handa vistmönnum sínum.
Elliheimilissjóðurinn er nú rúmar 250 þús. krón-
ur. Við höfum reynt eftir beztu samvizku að ávaxta
höfðu endaskipti á sannleikanum, mynu vel hafa
vitað, hvað þær voru að gera. En þjónkunin við
föðurland allra kommúnista varð skynseminni
yfirsterkari. Kommúnista blöðin hér fögnuðu inn-
rásinni í Pólland og birtu langhunda um árásar-
hneigð finnsku þjóðarinnar. Þessir atburðir til-
heyra sögunni og eru mörgum gleymdir. En það
er þess vert að rifja þá upp nú, er menn lesa frá-
sagnir kommúnista af styrjöldinni í Kóreu og
greinargerðir þeirra fyrir sinni dæmalausu „frið-
arsókn“, en friðurinn er kommúnistum nú tamari
á tungu en nokkuð annað, jafnframt því sem þeir
gleðjast mjög yfir velgengni kommúnistaherjanna
í Asíu og ráða sér ekki af fögnuði, er rússneskar
vígvélar þessa árásarlýðs vinna hvern sigurinn af
öðrum á óviðbúnum þjóðum. Það er eitt gleggsta
dæmið um einlægnina í friðarskrafinu, að nokkr-
um dögum áður en hin vel undirbúna árás Norð-
ur-Kóreumanna hófst, höfðu kommúnistafor-
sprakkar þar skráð nöfn þúsunda manna í borgum
landsins undir kominform-friðarávarp það, sem
kennt er við Stokkhólm. I stjórnarherbúðum
kommúnistaliðsins höfðu menn skipt með sér verk
um. Sumir sáu um flutning vígvéla og herliðs til
landamæra nágrannans, en aðrir gengu fyrir hvers
manns dyr með „friðarávarp" Kominform upp á
vasann og föluðu undirskriftir. Kommúnistablöð-
in hér segja okkur nú, að undirskriftirnar sýni
friðarvilja árásarmannanna og séu miklu sterkara
sönnunargagn um hugarástand þeirra, en morð-
tólin, sem tóku að spúa eldi og dauða yfir sam-
landa kommúnistanna áður en blekið á undir-
skriftunum var þurrt orðið. Raunverulega er það
móðgun við allt hugsandi fólk, að láta slíkan
þvætting frá sér fara, en í slíkt fen eru kommún-
istaleiðtogamir fallnir. Þeirra æðsta skylda er að
verja allar gerðir rússnesku valdhafanna, hversu
fráleitar sem þær kunna að sýnast í hugum allra
skyni borinna manna.
HORFUR í ALÞJÓÐAMALUM eru ófriðvæn-
legar um þessar mimdir og enginn héma megin
járntjaldsins veit ,hvað næstu mánuðir kunna að
Fiskimenn og fisksala í bænum.
Borgari skrifar blaðinu:
„ÞAÐ VAR EINN þennan dá-
samlegu morgna, sem okkur hafa
gefist svo margir, frá því júní-
kuldunum lauk, að eg fór ofan í
bæ, að fá mér í soðið. Sól skein
í heiði og lognlæstur sær, hins
fagra Eyjafjarðar og Akureyrar-
polls, vöktu mér að dáun og
gleði. Örlítill andblær hreyfði
aðeins lauf reyniviðarins og bar
ilm hans að vitum mínum. Allt
var kyrrt og hljótt. Hið enda-
lausa, þreytandi bílaþvarg var
ekki hafið. Gangstéttimar máttu
heita auðar. Æskulýðshóparnir
sem svo mikið nota þær á
kvöldin, sáust nú ekki. Það var
aðeins slæðingur af eldra fólki í
leit að einhverju í hádegismat-
inn, sem sást á götunum. — Tveir
fisksalar höfðu tekið sér stöðu
neðan við Nýju kjötbúðina og
höfðu þar á boðstólum ýsu og
steinbít frá Dalvík. Flestir stað-
næmdust hjá þeim og gerðu kaup
sín þar, þótti víst of mikil fyrir-
höfn að ganga ofan að skipa-
kvínni og sjá hvað þriðji fisksal-
inn, sem stóð þar hjá kerru sinni,
hefði að þjóða. Eg þóttist vita að
þar mundi vera einn þeirra fáu
manna í Akureyrarbæ, sem einir
af öllum bæjarbúum — 6 til 7
þúsund manns — hafa enn fram-
tak og dugnað til að sækja góð-
fiski um langa vegu í greipar
Ægis gamla yzt í Eyjafjarðarál,
eða jafnvel norður fyrir Gjögra,
og sem heldur vilja taka á sig þá
áhættu og erfiði, sem því er sam-
fara að sækja á fjarlæg mið,
heldur en að heimta vinnu af
öðrum. Eg gekk til þeirra. Þeir
voru þreytulegir, höfðu auðsjá-
anlega lagt meira á sig en margir
hinna ungu og hraustu manna,
sem hafa framfæri sitt að mestu
úr bæjarsjóði, oftast fyrir óarð-
bæra vinnu og stundum lítt
nauðsynlega. Afli hafði verið all-
góður hjá sjómönnunum, mest
ýsa, og fiskurinn leit betur út og
var stinnari en sá fiskur, sem bú-
ið er flytja langa leið og þvæla á
vigtir og bíla. Eg keypti af þeim
það, sem eg þarfnaðist og hélt svo
leiðar minnar.
SKÖMMU fyrir hádegið, varð
mér reikað inn með kvínni. Fólk
hafði þá að mestu gert innkaup
sín. Sjómennirnir voru á sama
stað og enginn lagði leið sína til
þeirra. Af forvitni gekk eg þang-
að. Þeir stóðu þar vonsviknir og
leiðir yfir miklum hluta afla síns
óseldum.
Daginn eftir gekk eg aftur ofan
á bj-yggj u. Enn voru sjómennim-
ir við bát sinn og enn áttu þeir
eftir óselt af afla sínum. Eg komst
að því, að þeir höfðu neyðst til að
selija einni fiskbúðinni af afla
sínum og nú keppti fisksalinn við
þá með þeirra eigin fiski!
EG HEF EKKI getað varizt
því, að þessi atvik hafa sótt á
hugann og orðið mér umhugsun-
arefni. Hvað er að gerast hér?
Eru' Akureyringar virkilega að
neyða þessa víkinga, sem vilja
heimta skatt af Ægi konungi, til
að gefast upp í hinni lofsverðu
sjálfsbjargarviðleitni sinni —
leggja árar í bát — hætta að færa
góða björg í bú Akureyrarbæjar,
en bætist í þann allt of stóra hóp,
sem þarf að sækja lífsuppeldi sitt
til bæjarins? Almenningur með
því að láta þá ekki sitja fyrir
fiskkaupum sínum þá dagana,
sem þeir hafa á boðstólum nýjan
og góðan fisk. Ráðamenn bæjar-
ins með því að gera ekkert þeim
til hagsbóta.
Mér hefur oft dottlð í hug og
fundist það vera tæplega minnk-
unarlaust fyrir Akureyrarbúa að
afla ekki sjálfir nægilegs fiskjar
til neyzlu í bænum, heldur
(Framhald á 5. síðu).
það fé, er gefið hefur verið. En á meðan við unnum
að f járöflun fyrir sjúkrahúsið öfluðum við elliheim-
ilissjóðnum engra tekna. En nú er herferðin hafin og
það verður hyergi hikað og ekkert hlé, fyrr en hið
nýja Elliheimili Akureyrar er fullgert.“
Þá ræddi frúin um nafn á stofnun þessari, sem
enn væri ekki ákveðið, og óskaði eftir, að uppá-
stungur kæmu fram um gott nafn, sem allir gætu
orðið ánægðir með. Talaði hún um að heimilið
skyldi vera sjálfseignarstofnun og að Akureyringar
skyldu jafnan hafa forgangsrétt að dvöl þar .Hvatti
hún Akureyringa til að leggja fé í herbergi heim-
ilisins, svipað og gert hefur verið með stúdenta-
garðinn og Hallveigarstaði. Áætlað er að um 70 vist
menn geti dvalið á heimilinu á hverjum tíma, auk
starfsfólks. Nokkuð af byggingarkostnaðinum mun
koma frá Tryggingarstofnun ríkisins, samkvæmt
lögum, og nokkuð mun bærinn leggja fram. Frú
Ryel lauk máli sínu með því að hvetja bæjarbúa til
að leggja þessu nauðsynjamáli lið og hjálpa til við
að hrinda því í framkvæmd. Hún sagði að lokum:
„Framtíðarkonur munu ekki liggja á liði sínu, og
feginsamlega verður tekið við hvers konar stuðn-
ingi, bæði frá félögum og einstaklingum. Við, sem
unnum Akureyri, viljum að sérhverjum einstaklingi
geti liðið hér vel, en töluvert vantar á, að þeir öldr-
uðu hafi svo góða aðbúð sem skyldi. Verum því
samtaka um að reisa hið nýja elliheimili sem allra
fyrst. Fullvíst er, að með Guðs hjálp, einhug og
góðri samvinnu getu mvið náð settu marki.“
Ágóði af Jónsmessuhátíðinni að þessu sinni varð
29 þúsund krónur (nettóhagnaður), en af hátíðinni
í fyrra varð nettóhagnaðurinn 42 þúsund. Mun
mestu hafa ráðið um mismun þennan, að veður var
að þetesu sinni fremur óhagstætt, og svo hitt, að
aðrar skemmtanir í bænum voru haldnar þennan
dag, og það hefur að sjálfsögðu dregið nokkuð frá.
Bæjarbúar ættu að vera samtaka um að styðja
kvenfélagið Framtíðina í þessu starfi og stuðla
þannig að því, að Akureyri eignist fullkomið elli-
heimili sem allra fyrst.
P.