Dagur - 26.07.1950, Blaðsíða 4

Dagur - 26.07.1950, Blaðsíða 4
4 DAGUR Miðvikudagmn 26. júlí 1950 DAGUR Ritstjóri: Haukur Snorrason. Afgreiðsla, auglýsingar, innheirata: Erlingur Davíðsson Skrifstofa í Hafnarstræti 87 — Sírai 1I6G Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Árgangurinn kostar kr. 25.00 Gjalddagi er 1. júlí. PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F. Gjaldeyrisöflun og gjaldeyriseyðsla í GÆR VAR verið að selja erlendar kartöflur hér í gær, eftir langvarandi kartöfluleysi. Þessi kartöfluskortur hefur náð til alls landsins. Langt er um liðið síðan íslenzkar kartöflur gengu til þurrðar. Og sennilega verður enn kartöfluskortur í landinu áður en íslenzk uppskera kemur á mark- aðinn á komandi hausti. Daglega má heyra síldar- skipin íslenzku útvarpa „kostlistum" sínum til stöðva í landi. Skipin biðja um íslenzkt smjör. Það er ekki til. Þau biðja um dilkakjöt. Það fæst heldur ekki alls staðar og mun víðast gengið til þurrðar. Þannig mætti lengur telja dæmin. Land- búnaðarafurðirnar skortir hér nú orðið, sumar verulegan hluta ársins, aðrar allt árið, eins og t. d. smjörið. Á sama tíma og þetta gei'izt, gengur' fólk atvinnulaust í stór hópum af því að efni skortir til að framleiða gosdrykki, súkkulaði og ýmsan ann- an svokallaðan innlendan iðnað,- Þessi dæmi sýna okkur í einu vetfangi, hvernig högum þjóðarinnar er komið: Of fátt fólk vinnur við framléiðslu mat- væla í landinu sjálfu, en of margt við framleiðslu ýmiss konar varnings, sem kallað er að búinn sé til hér, enda þótt hráefnin séu erlend. Fólk gengur atvinnulaust vegna þess að gjaldeyi'ir fæst ekki .til kaupa á þessum erlendu hráefnum á sama tíma og erlendum gjaldeyri er varið til kaupa á mát- vælum, sem hægur vandi er að framleiða í land- inu sjálfu. Þannig er þjóðarbúskap okkar fslend- inga nú háttað að þessu leyti og ætti það að vera umhugsunar- og áhyggjuefni allra þjóðhollra mánna. Dæmin eru mjög nærtæk. Um þessar mundir fá Norðmenn uppgripa síldveiði hér fyrir Noi'ðurlandi, en allir vita, hvernig vertíð íslenzka síldveiðiflotans hefur gengið til þessa. Eru Norð- menn þó í engu fremri okkur í fiskveiðum. En þeiri-a skip eru búin reknetum. Þeir gerðu góða vertíð hingað til lands í fyn'a. Útgerðarmenn hér segja aftur á móti, að ekki þýði að tala um rek- netaveiði hér. Engir menn séu fáanlegir á rek- netaskip. Hvei'su mikill gjaldeyrir fer þar í súg- inn? i f FYRIR NOKKRUM ARUM hóf Jón H. Þor- bergsson á Laxamýri að rita greinaflokk hér í blaðið, sem hann nefndi „Gróandi jörð“. í gi-ein- um þessum benti hann á þá staðreynd, að þjóðar- búskap íslendinga væri þannig farið, að of fátt fólk starfaði við framleiðsluna en of margt við ýmiss konar óábyrg störf, sem hann nefndi svo, þ. e. alls konar skrifstofuvinnu, ýmsan „iðnað“ o. s. frv. Jafnframt benti hann á, að sú tíð mundi renna upp, að verulegur skortur yrði á helztu fram- leiðsluvörum landbúnaðarins. Ýmsir töldu það fjarstæðu á þeim tíma, að skortur yrði hér á dilkakjöti til dæmis. En þetta er nú komið á dag- inn. Kartöfluskorturinn er orðinn landlægur og fleiri landbúnaðarafurðir skortir í þéttbýlinu, t. d. alls konar grænmeti, meira að segja yfir sum- armánuðina. Það virðist augljóst, að á þessu verð- urf ekki breyting nema með breyttu viðhorfi þjóðarinnar til framleiðslunnax'. Möguleikarnir til þess að framleiða landbúnaðarafurðir hér á landi eru mjög miklir, en þeir eru ekki nýttir nema að takmörkuðu leyti. Fólkið er of fátt, fjármagnið of lítið. Sveitir íslands eiga mögxileika til þess að sjá DÚsundum manna farborða og framleiða mikið magn af mai-gs konai' afui'ðum. En íslendingar hafa enga möguleika til þess að halda áfram sókn sinni til menn- ingarlífs, meðan sú stefna er ráð- andi, að fjái-festingin sé að veru- legu leyti bundin við mesta þétt- býlið og það þykir hin mesta nauðsyn fyrir þjóðarbúskapinn að foi'ða atvinnuleysi þar með xví að flytja inn hi-áefni til súkku laði- og sælgætisgerðar og til annai's slíks „iðnaðar“, eða það er nauðsyn að vei-ja gjaldeyri til kaupa á kartöflum, smjöri og öðrum matvælum, sem auðvelt er að framleiða hér á landi í stórum stfl. ÍSLENDINGAR þurfa að hefja sókn til þess að auka útflutnings- verðmæti landsmanna. Og jafn- lramt þeirri sókn, þarf að vinna að því öllum ái'um, að spara gjaldeyri til kaups á vamingi, sem unnt er að framleiða hér heima, eins og hvers konar land- búnaðai-afurðir. Landsmenn eiga ekki að krefjast þess af gjald- eyrisyfirvöldunum, að þau sjái fyrir nægum kartöflum í landinu. Þeir eiga að líta í eiginn barm og hefja kartöflurækt sjálfir. Þeir eiga ekki að heimta erlent smjör, heldur aukið fjármagn til land- búnaðarins til þess að auka smjör framleiðsluna og gera landbú- skap að eftirsóttri atvinnugrein. Landsmenn eiga ekki að horfa aðgerðarlaust á það ár eftir ár, að Noi'ðmenn og aðrar erlendar þjóðir ausi upp síldinni við strend ur landsins á sama tíma og lítið aflast á íslenzk skip. Þeir eiga að hefja veiðar í stórum stíl með þeim veiðarfærum, sem þessar erlendu þjóðir nota og tryggja þannig afkomu þjóðarbúsins bet- ur en nú er gert og gei-a gjaldeyr- isöflunina öruggari. En til þess að þessi stefna sigri, þarf mikill hluti þjóðarinnar að líta öðrum augum á framleiðsluna en nú er gert. Baráttan á ekki að standa um það, að herja út gjaldeyrir til kaupa á einhvei'ri vöru, heldur að íramleiða vöru, sem gefur þjóð- inni gjaldeyri eða foi'ðar ónauð- synlegri eyðslu hans. FOKDREIFAR Mitt hjartans mál. Jón Austfjörð ski-ifar blaðinu: „Mér er ekki grunlaust um, að ýmsar yngri mæður vorra daga gefi því lítinn gauin, hvers virði það er að signa yfir hvílu bai-ns- ins, þegar það er sofnað á kvöldin og lesa eitthvert gott orð yfir því, er það fer til leiks á morgnana. Sú var tíðin, að mæður gættu þess vel, að þessi siður gleymdist ekki í uppeldinu. Óteljandi dæmi hafa sannað gildi hans. Eg minnist á þetta vegna þess, að þegar eg var lítið bam, þá kenndi mamma mín mér Guðsoi'ð, m. a. á þennan hátt. Þegar eg var háttaður, þá signdi hún mig og bað bæn með mér, oftast Faðir vor. Á morgnana, er eg var klæddur, þá signdi hún mig sömuleiðis og bað með mér þessa bæn: Nú er eg klæddur og kominn á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól. í Guðsóttanum gefðu mér að ganga í dag, svo lflri þér. Brýndi hún fyrir mér að þetta skyldi eg gera alltaf, ef eg ætti eitthvert líf fyrir höndum. — Þá bón hennar hef eg líka reynt að uppfylla af fremtsa megni. Og hefur þessi siður orðið mér til mikillar blessunar. Eg efast ekki um, að þessi at- höfn er í jafn miklu gildi nú, eins og hún var meðal minna sam- ferðamanna. Þess vegna vil eg biðja yður, elskulegu mæður, að hafa þennan fagra trúarsið um hönd við uppeldi bai-na yðar. — Allir tímar eru alvarlegir, ekki sízt þeir, sem vér lifum nú á. — Engin móðir má vanrækja það bezta, sem hún getur gefið barni sínu í vegarnesti út í lífið.“ Hvað fá Akureyringar fyrir vegaféð? UM ÞESSAR MUNDIR munu margir Akureyringar hugleiða með sjálfum sér, hvað þeir fái fyrir þær hundruð þúsunda króna, sem bæjai'stjórnin ver ár- lega til viðhalds gatna hér í bæn- um. Þetta rifjast upp fyrir mönn- um af því tilefni, að göturnar eru alveg óvenjulega illar yfirferðar. Svo er nú komið, að verulegur hluti þeirra gatnaspotta, sem malbikaðir hafa verið með ærn- um kostnaði á undanförnum ár- um, eru að verða ónýtir. Má þar t. d. nefna megin hluta Hafnar- strætis, sem er aðalumferðargata bæjarins. Þessi götuspotti er nú svo holóttur, að til vandræða hoi'fir. Sést nú glöggt að það var réttmæt ábending, sem gerð var hér í blaðinu á sl. vetri. Var þar bent á, að ef bærinn léti ekki hreinsa snjó og klaka af malbik- uðu götunum, væri óhjákvæmi- legt að bifreiðir færu sömu slóð- ina á götunni, og afleiðingin mundi verða sú í vor, að djúpar rásir mynduðust í götuna. Mundi dýrara að malbika götuna á ný en hreinsa snjóinn og klakann. Nú sést hver sannleikur þetta er. Rekja má slóðir bifreiðanna í malbikinu. Keðjui'nar á bílunum eyða slitlaginu. Síðan myndast holur og rásir. Þannig útlítandi umferðagata eyðir hjólbörðum meii-a en góðu hófi gegnir og er auk þess sannkallaður farartálmi. — Verkvísindameistarar bæjar- ins héldu því fram á sl. vetri, að hentara væi'i fyrir bæinn að láta eyðileggja malbikið með þessum hætti, en kosta hreinsun klakans af götunum. Væru þeir sjálfum sér samkvæmir, ættu þeir að hafa hafizt handa um viðgerðir á þess- um vegum fyrir löngu. En engin hreyfing sést í þá átt. Þessi stjórn á vegamálum bæjarins virðist benda til þess, að því fé, sem ár- lega er tekið af bæjarmönnum til þess að halda gatnakei'finu í sæmilegu lagi, sé ekki vel og skynsamlega varið, og sumt af því fari forgörðum fyi'ir heimsku lega ráðsmennsku þeirra, sem þama ættu að vera vel á vei'ði. Þá má benda á, að sumar götur, t. d. Kaupangsstræti, eru svo ill- ar yfirferðar ár eftir ár, að þær munu vafalaust eyðileggja bif- reiðagúmmí fyrir verulegar fúlgur á ári hverju, til tjóns fyrir bifreiðaeigendur og þjóðfélagið í heild. Er nú nægilegt vatn? A ÞESSUM ÁRSTÍMA er oft- ast nægilegt vatn i þeim bæjar- hveríum, sem verða mest fyrir barðinu á vatnsskortinum á vet- urna og vorin. Sorgir vetrarins eru gleymdar og menn hafa ekki (Framhald á 5. síðu). . 1 Geymsla á rabbarbara Kona, sem kallar sig „fáfróð“ og ýmsar fleiri, hafa spurt kvennadálkinn í'áða um það, hvemig bezt sé að geyma sultu úr rabarbara og geyma hann á ann- an hátt. Fjölmargar leiðir eru til, sem flestar kon- ur þekkja og í matreiðslubókum má finna ýmsar aðferðir. Sulta er bezt og geymist einnig lengst, ef í henni er mikill sykur. Mörgum finnst sultan bragð betri sé notaður kandís í stað strásykurs. En þegar sykurskammturinn leyfir ekki að gera nema örlítið af sultu með miklum sykx-i, t. d. helmingur sykur á móti helming af rabax’bara, sem er mjög góð sulta, xá verðum við að fara aðrar leiðir til þess að geyma rabarbarann, því að óneitanlega getur verið gott að eiga hann heima vetrai'mánuðina í grauta og ann- að. Ódýrasta og fljótlegasta aðferðin, sem ég hef heyi't getið um, er að geyma rabarbarann í vatni. Nokkrar húsmæður hafa sagt mér, að þannig hafi xeim tekizt að geyma rabarbarann mánuðum sam- an og að hann hafi verið bragðgóður og óskemmdur að þeim tíma liðnum. Það þarf engan sykur, en rabarbarinn geymist samt. Aðferðin. Aðferðin getur vai'la vei'ið einfaldari. Rabai'bar- inn, sem á að vera nýupptekinn er þveginn og skor- inn í bita. Bitarnir eru látanir í krukkur eða flösk- ur, kalt vatn látið renna ofan í ílátið, þar til það er fullt og síðan er lokað með þéttu loki. Séu notaðar flöskur, er lakkað yfir tappana. Krukkur með skrúfuðu loki og gúmmfliring ei-u einnig ágætar. Þannig segjast nokkrar húsmæður, sem eg hef spurt ráða, hafa geymt rabarbarann allan veturinn. Vatnið soðið. í danskri bók um niðursuðu er þessi aðferð einn- ig nefnd, en þar er sagt, að vatnið eigi að vera soðið, en ekki hellt á bitana, fyrr en það er oi’ðið kalt. Tekið er sérstaklega fram, að krukkumar eigi að geyma á dimmum, þurrum og köldum stað. Þessa bita má nota í grauta og einnig gera úr þeim sultu síðar á vetrinum, eða jafnóðxxm og á þarf að halda. Áríðandi er að rabai'barinn sé óskemmdur og ekki trénaður, þegar hann er lagður í vatn. Rabarbarinn saxaður. í bók sinni, „Grænmeti og ber alt áx’ið“, telur Helga Sigui'ðardóttir, að ein hin bezta aðfex’ð til geymbslu á rabarbara sé eftirfarandi: Rabarbarinn, sem er nýupptekinn, óskemmdur og ekki trénaður, er hi-einsaður og þveginn vel úr köldu vatni. Leggirnir eru þerraðir með soðnum línklút. Það má ekki flysja leggina. Söxunarvél er soðin í sódavatni, þvegin og þerruð. Bezt er að vélin sé glei'uð. Rabai'barinn er saxaður, einn og einn leggur er settur í vélina í einu. Þetta er erfitt verk, sem þó borgar sig, því að ég álít að þessi að- ferð sé ein hin bezta til geymslu á rabarbara. Benzo súrt natron er hrært út í 2 matsk. af heitu vatni (2 gr. benzosúrt natron eða 114 gr. benzosýx-a er not- að í 5 kg. af rabarbai-a). Upplausninni er hrært vel saman við saxaða rabarbaraxm, honum síðan ausið í könnur og hellt á flöskur. Lakkað yfir tappana. Sé skrúfað lok á flöskunum, nægir það. Geymist á köldum stað. Þannig segist fi-k. Helga hafa geymt rabarbara í 2 ár, og hafi hann þá verið sem nýr. Hún telur ekki nauðsynlegt að nota hin kemísku efni, en að það sé tryggai-a. Segir hún, að saxaðan rabai'bara megi nota í allan mat á venjulegan hátt. Einnig má gera úr honum ágætis mauk, og er það gert jafnóðum sem nota á, og má þá nota helmingi minni sykur en í það mauk, se má að geyma. Þær, sem ekki hafa grammavog, geta mælt benzo- súra natronið í teskeiðum, þannig: Benzosúrt natron 2 gr. = 1 stór teskeið. Benzosýra 1 gr. = 1 stór teskeið. Meii-a um niðui'suðu síðar. Puella.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.