Dagur - 26.07.1950, Blaðsíða 6

Dagur - 26.07.1950, Blaðsíða 6
6 D AGUR Mi'ðvikudaginn 26. júlí 1950 Ylðburðarríkur dagur Saga eftir Helen Howe. 5*1 3. DAGUR. (Framhald). „Og meðan eg man, þú manst eftir því, að það er alls ekki víst að eg geti farið með þér út á land um helgina," sagði Eric. „Nei, Eric,“ sagði Faith, og það var ofurlítil ásökun í röddinni. „En eg var búinn að vara þig við því. Þú veizt að Muccia á að syngja í útvarpið og ef hann vill að eg verði viðstaddinyer ómögu legt að komast hjá því.“ Faith leit á mann sinn og and- varpaði. Borðið var í milli þeirra. Hún minntist þess, er hún sá Erie fyrst. Þá hafði hún horft á hann yfir skrifborðið í skrifstofu hans. Hún hafði þá strax hugsað með sjálfri sér, að þessum manni væri óhætt að treysta, og ekki mundi unnt að fara í kringum hann. Hún hafði ekki breytt; i þessari skoðun sinni í 10 ára sambúð. Hún leit á mann sinn.' Svipbragð hans bar vott um ró-j lyndi, festu og karlmennsku,- Hann var grannvaxinri og henni fannst hann hafa grennst síðustu mánuðina. Hann leit ekki eins vel út nú og áður og það voru dökkir baugar undir augunum. Hann var ljósbláeygur og henni hafði alltaf fundizt að lesa mætti hug- arástand hans allt í augunum. Stundum var blái liturinn mild- ur og daufur, en hann gat líka orðið skýr, nær því heiðblár og minnt sterklega á norrænan upp- runa hans. Nú varð svipur hans mildur og hann sagði: „Eg skal reyna að vera laus. Eg get sagt honum að við eigum brúðkaupsafmæli og hann getur þá varla lagt hald á mig. En ,það er ekki víst að það takizt og bezt að vera við því bú- inn.“ Þau stóðu bæði upp frá borð- inu. Eric leit ástúðlega á konu sína. Hann var ánægður. En hug- ur hans hvarflaði brátt til hvers- dagslegra hluta. „Viltu senda búrnu fötin mín til klæðskerans? Það þarf að gera við vasana.“ „Eg skal sjá um það, góði,“ sagði hún. Hún ætlaði að ganga burt, en hann tók utan um axlir hennar og stöðvaði hana. Hann þrýsti henni að sér og kyssti hana. „Faith,“ sagði hann. „Þú ert dásamleg eiginkona og eg elska þig af öllu hjarta. Eg er ónýtur við að láta þig finna það og segja þér það, en eg elska þig samt og eg elska líf okkar eins og það er nú. Eg vildi að það gæti alltaf verið svona. Eg kæri mig ekkert um að þessi tími líði, ekki ein mínúta af honum.“ „Þú mátt ekki segja þetta, Eric, því að lífið verður því dásam- íegra, sem lengra líður.“ Hann horfði aðdáunaraugum á hana, ,og kyssti hana aftur. Faith sneri aftur til svefnher- bergisins, þegar hann var farinn. Hún horfði undrunaraugum á skelina, sem hann hafði gefið henni. Það var svo líkt Eric að hafa lagt sig í líma til þess að ná í einmitt þessa tegund í safnið hennar, dýrmætustu gjöfina, sem hann gat gefið henni. í 10 ára hjónabandi hafði hann alltaf verið þannig. Ekkert var svo smálegt, sem henni við kom, að hann hefði ekki tíma til þess að sinna því af alúð, og ekkert erfiði of mikið til þess að hann tæki það á sínar herðar hennar vegna. Henni fannst hún ætti ekki orð til að lýsa því nógsam- lega, hversu góður og hugsunar- samur eignmaður hann væri.. Hún hefði ekki getað sagt, hvaða dag það var, sem hún lærði að elska hann eins heitt og hún gerði gerði nú. Fyrir hjónaband þeirra hefði hann e. t. v. sagt: „Húni elskaði mig af því að eg hafði geqgið 'í gegnutn margar hættur og lifqð.þae).; af og eg elskaði hana af því að hún skildi mig.“ Og breytti - það nokkru, þótt þessar hættur hefðu ekki .verið líkam- legar?.Hún sá örin, sem stríðið hafði skilið eftir .Þau voru þar fyrir hana til þess að gæta þeirra, að sárin tækju sig ekki upp. En það tjóaði ekki að einblína á for- tíðina. Hún átti sjálf fortíð, ekki ósvipaða þeirri, sem Eric hafði lifað, aðeins stigsmunur, ekki eðlismunur. Hún hafði líka geng- ið í gegnum hættur — hættur sál- arlífsins — og þær höfðu líka skilið eftir sár, sem hún hélt á tímabili að aldrei mundu gróa. Hún leit í kringum sig í svefn- herberginu og var ánægð með það, sem hún sá. Þama voru margir hlutir þeirra beggja og báru þess yott, að samkomulagið var gott. Hvort um sig átti ljós- myndir, sem geymdu kærar minningar. Þarna var mynd af Klöru, er hún var lítið barn og þarna önnur af móður hennar sálugu. Og myndir af gamla hús- inu í Maple Street í Freetown. Á borði Erics var Ijósmynd í silfur- umgerð. Þegar hún skoðaði myndina af föður hans, óskaði hún þess jafnan, að hún hefði þekkt hann. Alexander Millet var enn nafn, sem var þekkt í listamannaheiminum. Heimurinn í dag þekkti ekki nema nokkrar ófullkomnar hljómplötur, sem hann hafði sungið inn á, en samt ljómaði listamannssál hans í söngnum. Millet eldri hafði far- izt í járnbrautarslysi í Frakk- landi fyrir mörgum árum, er Eric var lítill drengur. Augu hennar hurfu frá myndinni, til myndar, sem hékk ofan við borðið. Það var mynd af Cherry, hún, var hlæjandi og kátína skein úr augum hennar. Þessi mynd vakti mesta athygli í þerberginu. Það 555555555555555555555555555555555555555555g ÍÞRÓTTIR Og UTILIF $5555555555555555555555555555555555 JÚLÍ-MÓT í frjálsuni íþróttum fór fram á í- þróttavelli Þórs, laugard. 14. og sunnud. 15. júlí s. 1. Úrslit í ýmsiun greinum: 100 melra hlauþ: 1. Baldur Jónsson, Þór .. 11.8sek. 2. Hreiðar Jóns., KA .. 12.7 - ’ 3. Höskuldur Karlss., KA 12.7 — Baldur vann hlaupið með mikl- um yfirburðum. Hann cr nú lang-: be/.ti spretthlaupari hér á Akureyri.; 4Q0 metra hlaup: 1. Hermann Sigtr.s., ICA 55.9 sek. 2. Óðinn Árnas., KA .. 56.0 — 3. Baldur Jónss., Þór .. 56.3 — Hermann vann lilaupið á tíma, jrar sem þeir hlupu ekki saman í riðli hann og Óðinn. Hann er liarð- ur hlaupari, sem áreiðanlega lætur að sér kveða síðar. 1500 metra hlaup: 1. Óðinn Árnas., KA 4 m. 33.0 sek. 2. Einar Gunnl.s., Þór 4 — 36.6 — 3. Kristinn Bergs., Þór 4— 43.5 — Óðinn vann hlaupið örugglega. var svo líkt Eric að halda upp á gamla vináttu. Cherry hafði gefið honum teikninguna, sem auglýs- ingamyndir hennar voru gerðar eftir, myndina, sem oft gat að líta á auglýsingastöðum í stórborg- unum báðum megin Atlantzhafs- ins. Faith hafði stundum hugsað til þess, hvað kunningjarnir mundu halda, er þeir kæmu inn í herbergið og litu þessa mynd þar. — Hún hafði von- að, að þeir mundu hugsa sem svo, að þetta væri vinargjöf þakkláts listamanns til þess manns, sem hefði af miklum ágætum séð um hina veraldlegu hlið glæsilegs listamannsferils. því að vissulega var það Eric, sem hafði lyft Cherry til frægðar, flutt hana úr óperettum og léttum söngleikjum, upp á hljómleika- pall stærstu hljómleikahúsa stór- borganna. En kunningjarnir voru þögulir, ‘ og þögnin gat boðað margt. Ef þeir hefðu aðeins sagt: „Ljómandi er þetta skemmtileg teikning,“ eða: „Mikið er nú Cherry Slate dásamleg söng- kona,“ eða eitthvað þess háttar, hefði allt verið miklu skemmti- legra. En flestir litu á myndiná, en sögðu ekkert, nema Mona Stevens, sem hafði sagt: „Herra minn trúr, Faith, eg trúi því varla að þú þurfir að þola þetta.“ En nú voru svo mörg ár liðin og Faith gat nú sagt við sjálfa .sig, í fullri hreinskilni, að þetta skpiti ekki neinu máli lengur. Myndin var orðin hluti af Eric — alveg eins og myndin af föður hans. Hún hafði alltaf verið þarna. (Framhald). Ritstjóri: TÓMAS ÁRNASON. Einar fylgdi honum samt eftir þar til eftir voru 2—300 metrar a£ hlaupinu. Það þarf að brýna það fyrir þeim að hlaupa hraðar af stað og halda yfirleitt uppi meiri hraða í hlaupinu. Þá næst örugg- lega mun betri tími." 100 melra hlaup kvenna: 1. Guðrún Georgsd., Þór 13.6 sek. 2. Ásdís Karlsd., KA .... 15.1 — Langstökk: 1. Baldur Jónss., Þór .... 6.03 m. 2. Hreiðar Jónsson, KA 5.48 — 3. Haraldur Ólafss., Þór 5.46 — Árangurinn er slæmur. Baldur ætti að geta stokkið mun lengra með æfingu. Hástökk: 1. Eggert Steinsen KA .... 1.63 m. 2. Jón S. Arnþórss., KA .. 1.58 — 3. Baldur Jónsson, Þór .. 1.58 — Árangurinn er ekki góður og ber vott um íitla æfingu. Eggert á að geta stokkið 1.80 m. Slarigarstökk: l. Jón Steinbergss., KA .. 2.85 m. 2.1-Iermann Sigtryggss., KA 2.58 — 3. Valgarður Sigurðss., Þór 2.58 — Jón er greinilega beztur, en vant- ar léttleika í stökkið. Árangurinn er lakur. Kúluvarþ: 1. Guðm. Örn Árnas., KA 12.20 m. 2. Baldur Jónsson, Þór .. 12.17 — 3. Hörður Jörundss., KA 11.04 — Keppnin var mjög hörð og hríf- andi. Baldur náði sínu lengsta kasti í seinustu umferð, og átti eftir það lengsta kast. Guðmundi tókst svo að varpa 3 sentim. lengra i sein- asta kásti. Hann er rtljög efnilegur kúluvarpári, sterkur og mjúkur. Hann vantar áberandi meiri hraða í atrennuna. .Baldur er mjög fjað- urmagnaður og gegnum þjálfaður. Kringlukast: 1. Hörður Jörundsson, KA 35.59 m. 2. Óskar Eiríkss., KA .. 3,4.56 — 3.1’álmi Páhpas., Þór .. 33.63 — Hörður er skemmtilegur kastari, snöggur og mjúkur. Hann er auð- sjáanlega í góðri ælingu, erida viss og öruggur. Frá Óskari heyrist á- reiðanlega meira seinna. Hann er vel byggður og bráð qfnilegur. Spjótkast: 1. Kristján Kristjánss., Þór 49.57 m. 2. Pálmi Pálmason, Þór . . 47.56 — 3. Axel Kvaran, KA .... 41.69 — Þeir Kristján og Pálmi voru í sérflokki, báðir efnilegir kastarar. Kristján sýnilega betur æfður og öruggari. Þeir eiga sjálfsagt eftir að kasta langt yfr 50 metra, ef þeir æfa vel. Kúluvarp kvenna: 1. Anna Sveinbjörnsd., KA 9.80 m.' 2. Gíslína Óskarsd., Þór .. 8.85 — Því miður var kúlan ekki lögleg og þess vegna ekki hægt að stað- festa árangur Önnu sem íslenzkt met. Mót þetta sýnir, að margir efni- legir íþróttamenn eru til hér í .bæn- um. Þá virðast félögin vera nokkuð svipuð að styrjtleika, en það gerir keppnina skemmtilegri. ERÍBA sá um mótið. Áhorfendur voru fáir. Meistaramótið 19., 20. og 21. ágúst. Það er nú ákveðið, að meistara- mót Akureyrar í frjálsum íþróttum fari fram um helgfna 20. ágúst. Að vísu er ekki endanlega ákveðin niðurröðun greina. Það má því vera, að undanrásir byrji eittlivað á föstudag. Frjálsíþróttaráð í B A mun sjá um mótið og er þegar byrjað undirbúning. Akureyringar til keppni. Drengjameistaramót íslands ler frarn um næstu helgi í Vestmanna- eyjum. Héðan fara 12 drengir til kqppni. Er það vissulega vottur vax- aridi getu í frjálsum íþróttum. . Handknattleiksmót Islands í kvennaflokki hófst í Engidal við Hafnarfjörð s. 1. sunnudag. Sam- einað lið frá KA og Þór tekur þátt í mótinu. Þegar til fréttist seinast höfðu Akureyrarstúlkurnar sigrað KR með 8 íriörkum gegn 3. Vekur það vissulega vonir um góða lrammistöðu. Þór keppir á Eiðum. íþróttafélagið Þór fer keppnis- ferð austur að Eiðum unt verzluriar- mannahelgina. Verður keppt í frjálsum íþróttum og knattspyrnu. Ulrich Jonath. Nýlega kom hér til Akureyrar á vegum knattspyrnufélags Akur- eyrar ungur Þjóðverji, Jonath að nafni, til þess að kenna frjálsar í- þróttir. Hann er frá borginni Hamm, sem er á brezka liernáms- sv’æðinu og telur um 60 þús. íbúa. Þótt Jonath sé nú aðeins 24 ára að aldri var hann á vígstöðvunum í Rússlancli, -Póllandi, Belgíu, I'rakk- landi og Luxemburg og tók alls staðar þátt í bardögum. Hann særð- ist í jan. 1944 og.var á sjúkrahúsi, þegar stríðinu lauk. Eftir stríðið vann liann hálft ár hjá brezka hernum. Árið 1947 inn- ritaðist liann í íþróttaháskólann i Ivöln og lauk prófi þaðan í apríl s. 1. Prófessor Diem, sem er kunnur í- þróttafrömúður, var kennari hans, og telur Jonath einn af sínum beztu nemcndum. Er líklegt, að hann verði kennari við íþróttaháskóiann í frjálsum í- "þróttum og handknattleik, scin hann hefur sérstaklega lagt stund á. Hamm er mjög skemmd eftir stríðið. Svo einkennilega vildi þó til, að lieimili Jonaths er eina hús- ið, sem sténdur uppi við þá götu. Þó féll sprengja niður um þakið án þess að springa. jíþróttaferill Jonaths er mjög glæsilegur. 14 ára gamall varð liann meistari V-Þýzkal. í þríþr. drengja. Hljóp þá þegar 100 metra á 11.6 sek. og stökk 6.30 í langstökki. Tæp- lega 17 úra varð hann liermaður og lagði því íþróttir á hilluna um stund. Svo byrjaði hann æfingar aftur 1947. íþróttafélagið í Hamm á næst beztu boðhlaupssveitina í Þýzkalandi. Hefur luin hlaupið 4X100 m. á 42.0 sek. (Pesch 10.4, Iýremer 10.5, Jonath 10.7 og ýmsir á 10.9 og 11.0). Þá er Joriath mjög góður tug- þrautarmaður. (400 m. 49.6, 1500 m. 4:30 mín., langsh 6.98 m., há- (Framhald á 7. síðu).;

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.