Dagur - 23.08.1950, Blaðsíða 1
XXXIII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 23. ágúst 1950
36. tbl.
Eritreumenn fagna umboðsmönnum SÞ.
Fjórðungssamband Norðlendinga gengst fyrir full-
Sameinuðu þjóðirnar hafa eins og kunnugt er tekið að scr vcrndar-
gæzlu Eritreu, sem áður var ítölsk nýlenda. Mun sérstök stjórnar-
nefnd frá SÞ starfa í landinu, þar til íbúamir taka sjálfir við stjórn
þess. Myndin liér að ofan sýnir nokkra Eritreumenn fagna komu
stjórnamefndar Saineinuðu þjóðanna, þegar hún kom.
280 fiskikaupmenn í Fleeíwood
horfa fram á gjafójjroi
Ástæðan: Islénzkur fiskur ekki lengur
á markaðinum
frúafundi um stjórnarskrármálið
Fimmta ársping sambandsins skorar á ríkis-
stjórnina að undirbúa löggjöf um dómsúrskurði
í kaup- og kjaraágreiningi
Fimmta ársþing Fjórðungssambands Norðlendinga var haldið hér
í bænum dagana 20.—21. þ. m. og sátu þingið 16 fulltrúar frá sýslu-
og bæjarfélögum í Norðlendingafjórðungi, sem eru meðlimir sam-
bandsins. f sambandinu eru öll sýslu- og bæjarfélög fjórðungsins
nema Vestur-Húnavatnssýsla og Siglufjörður.
Fishing News segir nú nýlega
frá aðalfundi félags fiskikaup-
manna í Fleetwood og ræðu, sem
formaður félagsins, T. B. Mul-
lender, hélt við það tækifæri.
Skýrir blaðið frá því með stórri
fyrirsögn, að Fleetwood verði að
fá meiri fisk ella horfi fiskikaup-
menn fram á gjaldþrot.
fslendingar hættir að koma.
í ræðu Mullenders segir m. a.:
„Hér eru ekki nógu margir tog-
arar til þess að allir fiskikaup-
Hörmulegt slys
i heyoisiirði
f stórrigningu, sem gekk yfir
Norðausturland og Austfirði
aðfaranótt sl. laugardags, urðu
mikil skriðuföll víða austan
lands, aðallega á Seyðisfirði. —
Féllu þar margar skriður og
stórar og lenti ein á yzta íbúð-
arhúsið á Fjarðarströnd í Seyð
isfirði og braut það. Fimm
menn biðu bana í þessum ham-
förum, Ingibjörg Magnúsdóttir,
húsfreyja, og fjögur börn
hennar og Aðalbjörns Jónsson-
ar, manns hennar, liið clzta 18
ára stúlka, en hið yngsta sex
mánaða stúlkubarn. Ein dóttir
þeirra hjóna komst lífs af úr
skriðunni, sömulciðis feðgar
tveir, er áttu heima í húsinu.
f skriðunum skemmdust
önnur hús í Seyðisfirði, m. a.
síldarverksmiðjan. f Reyðar-
firði og víðar á Austfjörðum
urðu skemmdir á ræktuðu
landi og vegum af völdum
skriðufalla í stórviðri þessu.
menn, sem hér starfa (280 tals-
ins) hafi nóg að gera Við getum
ekki treyst heimaflotanum til
þess að færa okkur nægan fisk.
Á sl. ári var íslenzki fiskurinn
aðalverkefnið. En vegna fjár-
hagsástandsins lcoma íslendingar
ekki lengur með fisk sinn til
Bretlands. Þetta þýðir að tala
skipa hér við höfnina er lítið
hærri en hún var fyrir stríð — og
hvergi nærri nógu há til þess að
við getum haldið áfram að
verzla.“ Mullender sagði að lok-
um, að fiskikaupmenn mundu
gera allt sem í þeirra valdi stæði,
til þess að fá fleiri skip til þess að
landa í Fleetwood.
Nýbýlastjórnin á um þessar
mundir í samningum við nokkra
bændur í Ljósavatnshreppi í S.-
Þingeyjarsýslu um landkaup. —
Hyggst nýbýlastjórnin að láta
ræsa land þetta fram og undir-
búa þar nýbýlastofnun.
Hér er um að ræða stórt land-
svæði norðan Kinnarvegs, aðal-
lega úr Fremstafellslandi. Þetta
land er ágætlega fallið til rækt-
unar, liggur vel við samgöngum
í frjósamri sveit. Búizt er við því
að endanlega verði gengið frá
Framkvæmdir
við Laxárvirkjun
haínar
Vinna er nú hafin við undir-
búning nýju Laxárvlrkjunarinn-
ar. Er byrjað að sprengja við
Laxárfossa, til undirbúnings
stíflubyggingu og stöðvarhúsi. —
Verkamannafélögin á Akureyri
og í Húsavík hafa gert með sér
samkomulag um skiptjngu verka-
mannavinnu við virkjunina. Ak-
ureyri leggur til 80%, Húsavík
12% og nærsveitir 8%.
Eyfirzku verk-
smiðjurnar Iiafa
fengið 44 þúsnnd
mál
Eyfirzku verksmiðjurnar hafa
þessu sinni fengið miklu minni
síld en í fyrra, eða samtals 44
þús. mál. Hjalteyri um 22 þús.,
Dagverðareyri um 14700 og
Krossanes 7319 mál. Hjalteyri
fékk á vertíðinni í fyrra um 48
þús. mál og var búin að fá um 34
þús. mál um þetta leyti í fyrra.
Fé fórst í flóðunum
fyrir austan
í stórrigningunni í sl. viku urðu
allmiklir vatnavextir í Hjalta-
staðaþinghá austanlands, þeir
mestu, sem komið hafa þar á
þessum árstíma í áratugi. Ifngja-
lönd fóru á kaf og fé flæddi. —
Fundist hafa sex dauðar kindui\
Er óttast að fleira fé hafi farizt.
samningum um kaupih á landinu
á þessu hausti.
Þegar Dagur ræddi við land-
námsstjórann, Pálma Einarsson,
um þessi mál í Reykjavík nú ný-
lega, barst talið að möguleikun-
um til þess að fjölga býlum í
Eyjafirði. Taldi landnámsstjóri að
h'klegasta landið til nýbýlastofn-
unar væri í Arnarneshreppi,
austan þjóðvegarins, sunnan
Hjalteyrar. Er þar mikið land-
flæmi vel fallið til ræktunar.
Mætti koma þar upp nokkrum
álitlegum nýbýlum að áliti land-
námsstjóra.
Fjórðungsþingið gerði að þessu
sinni ýmsar markverðar ályktan-
ir, m. a. í stjórnarskrármálinu, og
var ákveðið að efna til fulltrúa-
fundar sýslu- og bæjarfélaga-
sambandanna urn málið, í sjúkra-
húsmálum fjórðungsins, í togara-
verkfallsmálinu og í skólamál-
um.
Þrjár aðalnefndir þingsins.
Þingið hafði. fundi sína að Hó-
tel KEA. Forseti þess var Sig-
urður Sigurðsson bæjarfógeti á
Sauðárkróki, fulltrúi Sauðár-
króks, en frá öðrum héruðum
voru mættir: Tveir fulltrúar frá
N.-Þingeyjarsýslu, 2 frá S.-Þing-
eyjarsýslu, 2 frá Húsavíkurkaup-
stað, 2 frá Eyjafjarðarsýslu, 2 frá
Akureyri, 2 frá Skagafjarðar-
sýslu, einn frá Sauðárkróki og 1
frá Austur-Húnavatnssýslu. Auk
þeirra bæjarfógetinn á Akur-
eyri. Þingið kaus þrjár nefndir til
þess að fjalla um dagskrármálin,
Fjórðungsmálanefnd, fjármála-
nefnd og allsherjarnefnd. For-
maður stjórnar Fjórðungssam-
bandsins, séra Páll Þorleifsson á
Skinnastað setti þingið og flutti
skýrslu um störf stjórnarinnar á
starfstímabilinu. Gerði hann m. a.
grein fyrir samvinnu sambands-
ins við Fjórðungssamband Aust-
firðinga um tillögur í stjórnar-
skrármálinu, en samböndin gáfu
á sl. ári út bækling um þessi mál,
er náð hefur mikilli útbreiðslu
um landið.
I
Stjórnarskrármálið — boðað
til ráðstefnu.
Karl Kristjánsson alþm. hafði
framsögu í stjórnarskrármálinu,
en síðar á þinginu flutti fjórð-
ungsmálanefndin — í henni sátu
Karl Kristjánsson alþm., Jónas G.
Rafnar alþm., Friðjón Skarphéð-
insson bæjarfógeti, Gísli Magnús-
son Eyhildarholti og Steingrímur
Davíðsson skólastjóri — eftirfar-
andi ályktun, sem samþykkt var
samhljóða:
— Fjórðungsþing Norðlend-
inga, lialdið á Akurcyri dagana
29.—21. ágúst 1950, lýsir yfir því,
að bað telur mikilsvcrt að öll
sýslu- og bæjarfélagasambönd,
sem þegar hefur verið stofnað til
í landshlutunum, lcitist við að
sameina sig um tillögur til breyt-
inga á stjórnarskránni. Þess
vegna felur þingið Fjórðungsráði
að gangast fyrir því, að sam-
bandið haldi sem fyrst sameigin-
lega fulltrúaráðstcfnu um stjórn-
arskrármálið, þar sem rétt hafi til
þátttöku tveir menn frá hverju
sambandi. — Samþykkir Fjórð-
ungsþingið að kjósa tvo menn og
2 til vara til þess að mæta fyrir
Fjórðungssamband Norðlendinga
á ráðstefnunni. —
Kosnir voru þeir Karl Krist-
jánsson alþm. og Jónas G. Rafnar
alþm., til vara Þórarinn Kr. Eld-
járn og Jón Gauti Pétursson.
Togaraverkfallið — dómsúr-
skurður í ágreiningsmálum.
Fjórðungsráð — þ. e. stjórn
sambandsins, — en í henni sitja
Páll Þorleifsson, Karl Kristjáns-
son og Brynjólfur Sveinsson,
flutti eftirfarandi tillögu, sem
samþykkt var samhljóða:
— Fjórðungsþing Norðlendinga,
haldið á Akureyri dagana 20.—
21. ágúst 1950, telur það í senn
undrunar- og liarmsefni, að tog-
arafloti landsins liggur nálega
allur við landfestar um hásumar-
ið vegna verkfalls, þegar þjóðina
vantar gjaldeyri til brýnustu
þarfa og togarar frá Akureyri og
(Framhald á 7. síðu).
r
Islenzk lögregla og toll-
gæzla við strandstaðinn
í Þorgeirsfirði
Á mánudagsmorguninn fór
björgunarskipið Sæbjörg héðan
frá Akureyri til Þorgeirsfjarð-
ar. Með skipinu fór íslenzkur
lögreglumaður og tollgæzlu-
maður á strandstaðinn, þar sem
rússneska birgðaskipið Júpíter
strandaði í sl. viku. Dómsmála-
ráðuneytið hafði leyft að
Rússar skipuðu vamingi úr
Júpíter í önnur rússnesk skip
strax og tækifæri gæfist. Munu
íslendingarnir sjá um, að inn-
Iendir menn hafi cngin afskipti
af skipsflakinu cða varningin-
um.
Nýbýlastjórnin á í samningum um
landkaup í Ljósavatnshreppi
Líklegasta landsvæði til býlafjölgnnar í Eyja-
firði í Arnarnesshreppi