Dagur - 01.11.1950, Side 8

Dagur - 01.11.1950, Side 8
8 Bagtujr Miðvikudaginn 1. nóvember 1950 Brefar hafa keypf mikið magn af frosnum fiskflökum Greiðlega gengur ná að selja bæði freðfisk og saltfisk 75 ára afmæli íslenzku byggðarinnar í Kanada Hinn 12. októbcr sl. voru liðin 75 ár síðan islenzku landnemarnir stigu íyrst á Iand við Winnipegvatn og stofnuðu þar íslenzku byggð- ina. Var þessara tímamóta minnzt víða um byggðir íslendinga í sumar. Myndina hér að ofan gerði Friðrik Sveinsson, bróðir „Nonna“, en hann var einn himia fyrstu landnema. Teiknaði hann myndina á tjald, cn tjaldið var síðan ljósmyndað, en nú er það glatað. Fáum dögum eftir lendinguna fæddist fyrsta íslenzka barnið þar vestra, á nesi því, er myndin sýnir, í köldu tjaldi. frá stjórn Samb. ungra Framsóknarmanna Blaðið Víðir, sem Einar Sig- urðsson frá Vestmannaeyjum stýrir, flutti markverðar fregnir af afurðasölumálum þjóðarinnar sl. laugardag og greinir þar frá nýjum sölum á frosnum fiski til Bretlands. Með því að hér er um athyglis- verðar fréttir að ræða, leyfir Dagur sér að birta hér á eftir meginmál greinarinnar: Saltfiskurinn. Núna er verið að pakka geysi- miklu magni af saltfiski, um 12.000 lestum, eða tæplega þriðja hlutanum af ársframjeiðslunni. Þessi fiskur verður fluttur út í þessum og næsta mánuði. Mjög lítið mun vera óselt af saltfiskframleiðslunni, 1000—2000 lestir af þurrfiski eða fiski, sem ætlunin er að þurrka. Þennan fisk má þó telja sama sem seldan. Þá er óselt eitthvað af úrgangs- fiski og blautsöltuðum smáfiski, er hefur að mestu fallið til í sumar. Annars eru birgðirnar af saltfiski aldrei nákvæmar, því að saltfiskurinn léttist við geymslu. í ár hefur gengið miklu betur að selja saltfiskinn en í fyrra, þrátt fyrir miklu meira magn. Það er alltaf mjög mikilvæy' begar fyrra árs framleiðsla er seld, áður en nýja framleiðslan kemur á markaðinn. Frosni fiskurinn. Sveinn Jónsson, framkvæmda- stjóri frá Sandgerði, hefur, dval- ið í Englandi undanfarið og unn- ið að fisksölu. Hefur starf hans þar borið hinn bezta árangur. Seldi hann allan frosna fiskinn frá fyrra ári, að vísu fyrir lágt verð, en hann er heldur ekki lengur fyrsta flokks vara. Voru það um 650 lestir. Þá seldi Sveinn allan flatfisk- inn, sem framleiddur hefur verið í ár, 1400 lestir, og um 500 lestir af þorskflökum með roði, einnig frá í ár. Eins og kunnugt er, er nú verið að vinna að sölu sr 1000 lestum af frosnum fiski til Ungverjalands í skiptum fyrir hveiti, og eru fullar líkur fyrir því, að úi- þeim við- skiptum verði. Þá er búið að selja 1650 lestir af fiski til Austurríkis, og í undirbúningi er að selja 430 í viðbót .Þá er verið að vinna að sölu á 1500 lestum af frosnum flökum til ísrael. Næstu daga verður farið að ferma í Dettifoss það, sem eftir er fiski, sem á að fara til Ameríku. Væri nú hægt að selja þangað mun meira fiskmagn. Tékkar eiga enn ófengnar 800 lestir af flökum, sem þeir hafa keypt, og fer sá fiskur í nóvem- ber og desember næstk. Ef þessar sölur til Ungverja- lands, ísrael og Austurrikis kom- ast í kring, eru ekki óseldar nema um 1000 lestir, af frosna íiskin- um. Það er langt síðan, að svo gott ástand hefur verið, livað sölu á frosna fiskinum snertir, að hann hafi verið mest allur seldur í október. Þá tvo mánuði, sem eftir eru af árinu, verður lítið framleitt, nema ef farið verður að frysta karfa, en sé ætlunin að gera það í stórum stíl, er hætt við veru- legum umbúðaskorti. Það er lík- legt, að allt, sem framleitt verðui af karfa í haust, fari til Ameríku. Nýja framleiðslan kemur ekki neitt sem heitir á markaðinn fyrr en í febrúar, jafnvel ekki fyrr en í febrúarlok. Ættland og erfðir heitir bók, sem nýlega er kom- in út. Höfundur er hinn kunni Vestur-íslendingur, dr. Richard Beck. í bók þessari, sem er hin merkilegasta, er safn af ritgerð- um um ýmis íslenzk efni, m. a. um mörg íslenzk skáld og verk þeirra. Þeir, sem áhuga hafa á íslenzkum bókmenntum að fornu og nýju, munu hafa ánægju af lestri þessarar bókar. Verulegt atvinnuleysi yfirvoíandi, segir Verkamannafélagið Blaðinu hefur borizt eftirfar- andi frá Verkamannafélagi Akureyrarkaupstaðar. Dagana 18. til 26. þ. m. fór fram atvinnuleysiskönnun í Verka- mannafélagi Akureyrarkaupstað- ar. Á skrifstofu félagsins mættu til skráningar 141 verkamaður, auk þess aflaði stjórn félagsins upplýsinga um þá verkamenn, sem ekki mættu til skráningar, með aðstoð trúnaðarmanna sinna á vinnustöðum. Niðurstaða könn- unar þessar varð sem hér segir: í fastri atvinnu vetrarlangt eru 138 verlcamenn. í stopulli atvinnu vetrarlangt 61 verkamaður. í meiri eða minni atvinnu nú, en verða atvinnulausir í nóv. 84 verkamenn. Atvinnulausir eru nú 44 verkamenn. Af öðrum félagsmönnum verka- mannafélagsins eru 12 við nám í skólum, óvinnufyrir vegna aldurs eða veikinda 34, fjarverandi eða vantar upplýsingar um 24 menn. Þá vill stjórn Verkamannafé- lagsins taka fram að allmargir fé- lagsmenn annara stéttarfélaga, einkum úr Sjómannafélagi Akureyrar, stunda verkamanna- vinnu hér í bænum og verður því tala þeirra atvinnulausu eða at- vinnulitlu verkamanna allmiklu hærri en innanfélagskönnunin ber með sér. í því sambandi hef- ir skrifstofa verkalýðsfélaganna gefið þær upplýsingar að 25—30 félagar sjómannafélagsins séu nú atvinnulausir, en um 50 hafi ó- trygga atvinnu. Að athuguðu máli má því fullyrða að tala at- vinnulausra verkamanna og sjó- manna muni um mánaðarmót nóv.—des. verða um 150—180, nema til komi óvæntar atvinnu- framkvæmdir eða sérstakar ráð- stafanir verði gerðar til úrbóta. Gyðingar koma heim eftir dr. juris Björn Þórðarson, er nýkomin út á vegum Norðra. Er þetta fróðleg og skemmtileg frásögn um baráttu Gyðinga fyrir þjóðarheimili og um stofnun ísraelsríkis. Margar myndir prýða bókina. Mikil hey hafa náðst í sunnanáttinni Undanfarna daga hefur verið sunnanátt og hlýviðri hér um slóðir og góður þurrkur. Bændur hafa náð inn miklu af heyjum, þótt seint sé orðið, og hefur út- litið í fóðurbirgðamálum óþurrka svæðanna batnað verulega. — Sl. sunnudag mátti sjá kýr á beit g túnum á sumum bæjum, og í fyrri viku stóð bóndi við slátt í héraðinu. Fjallvegir eru auðir og ágætir yfirferðar. Er t. d. ágætt færi til Húsavíkur, Svo sem tilkynnt hcfur verið í blöðum flokksins er ákveðið, að 9. flokksþing Framsóknarmanna hefjist í Keykjavík föstudaginn 17. nóvember næskomandi. Þá hefur stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna ákveð- ið að halda aðalfund stjórnar S. U. F. í sambandi við flokksþingið. Sú ákvörðun er tekin með það fyrir augum, að stjórnarfulltrúar, sem að sjálfsögðu eiga að mæta á aðalfundinum, geti einnig verið fulltrúar á flokksþinginu, en fé- lög ungra Framsóknarmanna eiga samkv. flokkslögunum rétt til að senda fulltrúa á flokksþing, einn fyrir hverja þrjá tugi félags- bundinna manna og brot. Eins og að undanförnu er starf- andi nefnd, sem annast undir- búning flokksþingsins í samráði við formann flokksfélaganna. — Framkvæmdastj. nefndarinnar er Þráinn Valdimarsson, veitir hann allar nánari upplýsingar varðandi þinghaldið og aðalfund- inn. Sérstök athygli skal vakin á því, að þátttökutilkynningar þurfa að berast skrifstofu Fram- sóknarflokksins fyrir 10. nóvem- ber næstkomandi. Það eru að sjálfsögðu ýmsir erfiðleikar í sambandi við fund- arsókn um langa vegu og mis- jafna á þessum tíma árs. Taldi stjórn S. U. F. sér skylt að taka tillit til þess við ákvörðun aðal- fundarins. Stjórn S. U. F. vill vekja at- hygli ungra Framsóknarmanna á því að þeir geta í ríkari mæli en nokkru sinni áð- ur, látið til sín talca um afgreiðslu mála á flokksþinginu. Ástæðan til þess er eðlileg sú, að á tíma- bilinu frá því að síðasta flokks- þing var háð og til þessa dags, hafa hundraða tugir æskumanna og kvenna skipað sér í raðir samtakanna víðs vegar um land- ið. Þetta æskufólk hefur litið svo á, að nú væri þörf á að styrkja og styðja þá stjómmálastefnu, sem væri til heilla fyrir land og lýð. Innan raða ungra Framsókn- armanna hefur þetta fólk ákveðið að vinna sitt pólitíska starf. Þar fann það hugsjónir, þar fann það þróttmeiri stjórnmálastefnu, meiri einlægni og meira raunsæi en hjá öðrum stjórnmálaflokkum. Þess vegna kaus þetta fólk að vinna að lausn alvarlegra þjóð- félagsvandamála á grundvelli þeirrar stefnu, er Framsóknar- flokkurinn hefur barizt fyrir frá öndverðu. Stjórn S. U. F. heitir því á for- menn félganna í hinum ýmsu héruðum að sjá um, að félögin sendi fulla tölu fulltrúa til þings. Stjórn S. U. F. er þess fullviss, að félagsmenn, sem á annað borð hafa einhverja möguleika til að víkja frá stöz-fum sínum láti ekkert aftra því, að þeir leggi sitt fram til þess að þátttaka ungra manna í flokksþinginu og aðal- fundinum verði með sem mestum glæsibrag. Það er vert að gera sér ljóst, að þessa flokksþings bíða meiri vandamál en oftast áður. Það er því vissulega mikils um vert, að hver og einn gæti félagsskyldu sinnar, að hver og einn vinni öt- ullega að því, að samtök ungra Framsóknarmanna sendi til þings svo marga fulltrúa, sem framast er réttur til. SEXTÍU OG FIMM ÁRA varð 29. þ. m. frú Jóhanna Sig- urðardóttir, Brekkugötu 7 hér í bæ. Hún er Eyfirðingur að ætt, en hefur dvalið hér í bæ síðan 1911. Árið 1912 giftist hún Sveini Sigurjónssyni bæjarfulltrúa og kaupmanni. Eignuðust þau hjón tvær dætur, sem báðar eru giftar og búsettar hér í bæ. Auk þess ólu þau upp dreng og kostuðu til náms. Er hann nú verkfræðingur í Kaupmannahöfn. Frú Jóhanna missti mann sinn 1928. Hún er af öllum, sem til þekkja, talin mikil- hæf kona og merk, hefur hún jafnan stýrt heimili sínu af rausn og myndarskap og eins eftir að hún missti mann sinn. Nú hin síðari ár hefur hún haft á hendi brauð- og mjólkursölu fyrir KEA Framsóknarfélag Ákureyrar Félagsfundur næstkomandi mánudag, kl. 9 e. h., að Hótel Kea. DAGSKRÁ: Kosning fulltrúa á 9. flokksþing Framsóknari lokksins. Stjórnarskrármál ið. « Frummælandi: Tómas Árnason. Onnur mál. Fjölmennið á fyrsta fund vetrarins! STJÓRNIN.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.