Dagur - 15.11.1950, Blaðsíða 6
6
DAGUR
Miðvikudaginn 15. nóv. 1950
Viðburðarríkur dagur
. Saga eftir Helen Howe.
J
15. DAGUR.
(Fi-amhald).
Þegar Klara hvarf í mann-
þröngina, rann upp fyrir Faith í
skærara ljósi en fyrr, hvað það
var, sem hún hafði raunverulega
samþykkt í samtali sínu við
Monu. Ráð hinnar kaldrifjuðu
heimskonu voru eins og svört rák
á hvítum feldi, borið saman við
góðleikann í fari Klöru. Hún
skildi ekkert í sjálfri sér að hafa
látið Monu leiða sig svo afvega,
að hún skyldi láta sér til hugar
koma að taka málinu svo létt.
Hafði hún gersamlega gleymt
þeim siðfræðihugmyndum, sem
hún hafði alizt upp við?
Hún sá í huga sér, hvað hún
átti að gera og segja. Hún heyrði
sjálfa sig segja við Eric, er heim
kæmi: „Þetta er til einskis, Eric.
Eg hef hugsað málið og tekið
mína ákvörðun. Hún er óbrety-
anleg. Þú hefur beðið mig um
meira en nokk’ur kona getur orð-
ið við.“
Faith gekk út á götuna, náði
sér í leigubíl og ók til klúbbsins.
Henni var innanþrjósts eins og
hún væri að leggja upp í langa
ferð.
—o—
Þegar til klúbbsins kom, hitti
hún frú Eyck í anddyrinu. Gamla
frúin sat þar og beið.
„Þú lítur ljómandi vel út, Faith
mín elskuleg," sagði hún. „Þú ert
alltaf svó ungleg.... Sedlmark
hlýtur að koma á hverri stundu.“
Faith horfði á vinkonu sína og
hugsaði með sjálfri sér, að hún
væri góð kona og vel hugsandi og
það væri andleg upplyfting að
vera í návist hennar á érfiðleika-
tímum. Mona mátti halda því
fram, að hún væri leiðinleg
skrafskjóða. Það breytti málinu
ekki vitund. Klara mundi aldrei
ségja neitt slíkt um hana, heídur
taka eftir því fyrst og fremst, að
frú van Eyck var góðleg og virðu-
leg.
„Komdu og sittu hérna hjá
mér,“ sagði frúin. „Hvernig líður
Eric. Eg var einmitt að hugsa um
hann á sunnudagskvöldið. Eg
hlustaði þá á svo ljómandi út-
varpskonsert hjá Cherry Slate.“
Þarna byrjar það, hugsaði
Faith. En hún sagði aðeins: „Já,
Eric sagði mér að hún ætti að
syngja í Detroit.“
- „Hlustaðirðu ekki? Það var
dásamlegur söngur!“
„Nei, það fór einhvern veginn
fram hjá mér. Eg man ekki eftir
útvarpinu nema endrum og
eins.“
Fr'úin hló við. „Já ,en þú hlýt-
ur þó að muna eftir öðrum eins
listamanni og Cherry Slate er.
Jæja, samt er það nú svoná, .að
ef sonur okkar hefði ekki verið
heima þetta kvöld, hefði þetta
líka farið fram hjá okkur. Og þá
hefði eg heldur ekki vitað, að hún
er mikill vinur Erics. Hann sagði
okkur einmitt frá svo skemmti-
legu kvöldi á stríðsárunum. Þeir
Eric fóru inn á skemmtistað fyrir
hei-menn og þó hittist svo á, að
Cherry Slate var einmitt að
skemmta með söng. Allt í einu sá
hún hvar Eric sat á fremsta bekk
og hún kallaði hann upp á senuna
og faðmaði hann að sér, en allir í
húsinu hrópuðu af fögnuði. Þú
veizt þetta náttúrlega allt saman,
Eric hefur sagt þér frá því?“
„Nei, hann sagði mér ékki svo
nákvæmlega frá því,“ svaraði
Faith. Hún horfði rannsakandi á
frúna. Skyldi hún vita, hvað hún
var að gera? Er hún að reyna að
sjá, hvernig mér er innanbrjósts,
prófa, hvernig mér verður við
svona tal? Ef sú er tilætlunin,
skaltu sannarlega verða fyrir
vonbrigðum, sagði Faith við sjálfa
sig. En svo sá hún að gamla frúin
hafði sagt þetta allt í sakleysi og
einfeldni og hafði enga hugmynd
um að hún var að ýfa upp opið
sár. Hún mundi miklu heldur
vilja þjást sjálf en valda nokkurri
lifándi veru sársauka. En það fór
samt hrollur um Faith. Þetta er
það, sem eg kem til með að búa
við ár og síð, ef Eric fær vilja
sínum framgengt. Hvar sem eg
fer í okkar kunningjahóp, verða
hálfkveðnar vísur, dylgjur og
nærgöngular spumingar.
Hún hrökk upp úr þessum
hugleiðingum við að gamla frúin
sagði:
„Þarna kemur Louis Sedl-
mark.“ Hún stóð á fætur og flýtti
sér að taka á móti gestinum.
Hún benti þeim útvalda hóp,
sem átti að sitja til borðs með
gestinum, að koma og kynnti þó.
Eftir það var sezt til borðs.
Nokkur hundruð konur þyrptust
ipn í salinn.
—o—
Faith horfði á manninn, sem
átti að tala yfir þeim þennan dag.
Henni fannst hún aldrei hafa séð
andlit, sem var eins gjörsneytt
lífsgleði eins og þetta. Það var
ekki aðeins alvarlegt, heldur
beinlínis sorgbitið og angurvært.
„Eg tala, sem Evrópumaður,"
sagði hann. „Af því leiðir — og
þið afsákið það — að eg tala eins
og fullorðinn n.aður við börn.
Þegar við tölum við venjulegan
Bandaríkjamann — og þá einkum
við venjulega ameríska konu —
finnst okkur eins og við séum að
tala við 14 ára ungling. Eg er hér
að ræða um tímabilið fyrir stríð.
f dag eru engin börn lengur í.
Evrépu.......“
Röddin hrjúf og fremur óvið-
felldin, hélt áfram. Hann taldi
dæmi- eftir dæmi, las tölur og
hlóð upp sönnunargögnum um
hvérn svikavefinn öðrum meiri.
Faith horfði á ræðumanninn, og
allt í einu sá hún hann fyrir sér
í sama ljósi og barnið, sem ekki
sá nýju fötin keisarans. Maðurinn
var ekki í neinu — þetta var trú-
laus maður — maður, sem hafði
misst trúna á framtíð mannsins
og hæfileika hans til þess að gera
jörðina að menningarlegum
samastað.
Faith þekkti uppflosnina af
orðum hans, og allt í einu fann
hún það, að hún sjálf var að
flosna upp og missa trúna. Það
var eins ástatt fyrir henni nú og
hermanni í no-mans-land.
(Framhald).
Nýkomnar vörur
Þvottasódi
kr. 1.15 kilóið
Blautsápa frá Sjöfn
J úgursmyrsl
Nýlenduvörudeildin
og útibú.
Hrísgrjón
Hrísmjöl
Flórsykur
'íekex
Maríukex
Cr. Crackers
Piparkökur
í pk. og 1. vigt
Petit Burre
í pk. og 1. vigt
Nýlenduvórudeildin
og útibú.
Margar nýjar tegundir
af SÆLGÆTI
Flóru konfekt í köss-
um (2 stærðir)
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Tómir kassar undan
Apricosum seljast
ódýrt
Nýlenduvörudeild
og útibú.
Kvenfélagið Hlíf
irefur ákveðið að hafa vinnu-
furid fimVntudaglnn 16. þ. m.
í Alþýðuflokkshrisinu, Tún-
götu 2 kl. 9 e. h. — Konur eru
beðnar að fjölmenna, hafa
með sér kaffi og mæta stund-
víslega.
Nefndin.
Innilegar pakkir fyrir alla vinsemd mér sýnda d
65 dra afmceii mínu.
Haraldur Þorvaldsson
1111111111111111111111111111111111111111 iii n iii iiiiiiiiiiMiiMiiiiiiiiiiiniiiii iii iii inimii ■1111111111111
Hárgreiðsla
Fyrst unr sinn tek ég heinr hárlagningar; einnig
I Iref ég kalt permanent og olíupernranent.
Jórunn Kristinsdóttir
Hafnarstr. 84, 3. Iræð.
Gnla bandið er búið til úr bezto fáan-
legurn hráefnnm og í nýtízku vélum.
Samvinnumenn nota smjörlíki frá
samvinnuverksmiðju
Norðlenzku ostarnir eru þjóðfrægir
45% og 30% mjólkurostar - fást um
land allt
Mjólkursamlag KEA
íu iiiiiiiiiimiiim.wiiiiimmmimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMfii.